Þjóðviljinn - 29.10.1982, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 29.10.1982, Blaðsíða 12
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 29. október 1982 ALÞÝÐU B AN D AL AGIÐ Alþýðubandalagið á Neskaupsstað Skrifstofa félagsins er opin á mánudögum kl. 17.30 - 18.30. Bæjarráð kemur saman á miðvikudögum kl. 20.00 að Egilsbraut 11. Ráðið er opið öllum félögum. Umræðuhópar um skóiamál hóf starf 26. október. Hópurinn kemur saman annan hvern þriðjudag kl. 20.30 að Egilsbraut 11 og er opinn öllu áhugafólki. Hafið samband í sfma 7397. Félagsmálanámskeið hefst laugardaginn 6. nóvermber. Komið verður saman á föstudagskvöldum og laugardagsmorgnum í sjö skipti. Leiðbeinandi Gerður G. Óskarsdóttir. Námskeiðið er opið ölium félags- mönnum og stuðningsmönnum. Skráning í síma 7397. Félagsvistin hefst 11. nóvember kl. 21 í sjómannastofunni. Stjórnendur Þórður Þórðarson og Sigfinnur Karlsson. Félagsvistin er opin öllum. Félagsfundur um stjórnmálaviðhorfin og flokksráðsfundinn verður föstu- daginn 5. nóvember kl. 20.30. Hjörleifur Guttormsson mætir á fundinn. Stjórnin. Alþýðubandalag Héraðsmanna Almennur félagsfundur verður haldinn í fundarsal Egilsstaðahrepps, laugardaginn 30. október kl. 13:30. Dagskrá: Framboðsmál og kosningaundirbúningur. Kosning til flokksráðs. Einar Már Sigurðsson formaður kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Austurlandi kemur á fundinn. Mikilvægt að sem flestir félagar mæti. - Stjórnin. Alþýðubandalagið á Akranesi Aðalfundur verður haldinn í Rein sunnudaginn 31. október næstkomandi kl. 14.00. Dagskrá: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Venjuleg aðalfundarstörf. 3. Kjör fulltrúa á aðalfund kjördæmisráðs. 4. Kjör fulltrúa á flokksrá- ðsfund 5. Kosning stjórnar Reinar. 6. Kosning ritstjórnar Dögunar. 7. Önnur mál. 8. Skúli Alexandersson ræðir stjórnmálaviðhorfið. -Stjórnin. Aðalfundur Aðalfundur í Alþýðubandalagi Rangárþings verður haldinn þriðjudaginn 2. nóvember að Þrúðvangi 9 á Hellu og hefst kl. 21. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, kosning fulltrúa í flokksráð og kjördæmisráð og önnur mál. Alþýðubandalagið í Reykjavík Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík boðar til félagsfundar um at- vinnulýðræði miðvikudaginn 10. nóvember kl. 20:30 í Hreyfilshúsinu við Grensásveg. Á fundinum verða einnig kjörnir fulltrúar félagsins á flokksráðsfund og kjörnefnd vegna alþingiskosniiiga. Tillaga kjömefndar um fulltrúa á flokksráðsfund og tillaga stjórnar um kjörnefnd vegna alþingiskosninga liggja frammi á skrifstofu félagsins frá og með mánudeginum 8. nóvember. Nánar auglýst síðar. Stjórn ABR. Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna halda opinn fund í Sóknargalnum, Freyju- oötu 27 ítilefniafafvopnunarvikuSameinuöu þjöanna laugardaginn 30. október kl. 14. Dagskrá: 1. Kvikmynd, þar sem læknishjónin Helen og Dill Caldicott ræöa um kjarnorkuvopn, ábyrgö vísindamanna og fjöldahreyfingar. 2. Hringborösumræöur. Allir velkomnir meöan húsrúm leyfir. Fólki úr heilbrigðisstéttum og þeim sem bera ábyrgð á þjóðfélaginu er sérstaklega boðið á fundinn. Stjórn MFÍK. Ungt söngfólk Þjóðleikhúskórinn getur bætt viö sig ungu söngfólki í allar raddir. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Þjóöieikhússins til 4. nóvember, alla virka daga kl. 9-17. Sími 11204. Eru luktir og glitmerki í lagi á hjólinu þfnu? Rádstefna um flokkana og jafnréttismál Alþýðubandalagið á Akureyri efnir til ráðstefnu um flokkana og jaf nréttismál í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18 á Akureyri, laugardaginn 30. og sunnudaginn 31. október. Laugard. 30. október Dagskrá: Kl.13.30 Ráðstefnan sett Ávarp: formaður Alþýðubandalagsins. Svavar Gestsson. Kl.14.00 Framsöguræður um eftirtalin efni: 1) Stjórnmálaflokkar, staða þeirra og starfshættir. Soffía Guðmundsdóttir. 2) Afstaða Alþýðubandalagsins til kvenn- ahreyfinga og annarra félagslegra hrey- finga. Helgi Guðmundsson. 3) Jafnréttisbarátta, kvennahreyfingar - Markmið og leiðir. Sigríður Stefánsdóttir. Kl. 15.00 Kaffihlé og skipting i umræðu- hópa Kl.15.30 - 18.30 Almennar umræður - umræðuhópar starfa. Kl.20.30 Kvöldvaka í Lárusarhúsi. Sunnud. 31. október KI.10.00 - 12.00 Umræðuhópar starfa Kl.13.30 Greinargerðir umræðuhópa lagðar fram Kl.15.00 Kaffihlé Kl.15.30 - 17.00 Almennar umræður, ráðstefnusiit. Þátttaka tilkynnist í síma (91)17500 og (96)24270 Alþýðubandalagið á Akureyri Svavar Soffía Helgi Sigríður Hjörleifur Framhald af 7. siðu. það hækki í 24 mill um 1990 á sama verðlagi reiknað. Ekki vekur síður athygli að meðalorkuverð í þeim 13 álverksmiðjum sem Alusuisse á hlutdeild í er 20 mill/kWh, lægst hjá ísal 6,5 mill, en hæst í Þýska- landi og Bandaríkjunum, þ.e. um og yfir 30 mill. Ráðherrann sagði: Þessi greinargerð starfshóps ráðuneytisins er slíkt grundvallar- gagn í jressu máli og sýnir ljóslega og ótvírætt réttmæti íslensks mál- staðar varðandi kröfuna um allt að þreföldun raforkuverðs til Isal, að enginn sem kynnir sér hana getur verið í neinum vafa um málstað okkar. Stuðningur frá Landsvirkjun Ráðuneytið sendi raforkuverðs- skýrsluna með bréfi til Landsvirkj- unar 31. ágúst sl. og óskaði eftir urnsögn um meginniðurstöður skýrslunnar og mat á áhrifum af umræddum hækkunum á íjárhags- afkomu Landsvirkjunar. I umsögn stjórnar Landsvirkjunar sem barst ráðuneytinu í bréfi dags. 30. sept- ember sl. segir m.a.: „Með samn- ingsendurskoðuninni árið 1975 var brautin því rudd til þess að jafnan megi taka samningana við Alu- suisse og ísal til endurskoðunar, ef samningsforsendur breytast, og að áliti stjórnarinnar eru slíkar að- stæður nú fyrir hendi. Stjórn Landsvirkjunar er því sammála þeirri niðurstöðu skýrslunnar, að breyttar forsendur nú gefi tilefni til endurskoðunar rafmagnssamn- ingsins með raforkuverðshækkun fyrir augum.“ í sérstakri greinargerð um raf- magnsverð til stóriðju, sem fylgdi umsögninni frá Landsvirkjun kem- ur fram sú meginniðurstaða að: „Þegar á allt er litið, virðist raun- hæft að fara fram á tvö- til þreföld- un á núverandi orkuverði til lsal.“ Einhliða aðgerðir - réttur fullvalda ríkis Undir lok ræðu sinnar sagði Hjörleifur: Varðandi raforkuverðið er það lágmarkskrafa okkar, að fá greitt a.m.k. framleiðslukostnaðarverð frá þeim virkjunum, sem ákveðið er að reisa á næstu árum, þ.e. um þreföldun á því verði, sem ísal nú greiðir. Við getum eflaust.unað því að ná því marki í einhverjum áföngum á stuttum tíma og höfum verið reiðubúnir til að taka nokk- urt tillit til þeirrar kreppu, sem nú ríkir á álmörkuðum. Fuilt fram- leiðslukostnaðarverð ásamt fullri og öruggri verðtryggingu er hins vegar skilyrði af okkar hálfu varð- andi samninga til frambúðar, og það verð hefur verið talið liggja á bilinu 18 - 22 mill/kWh miðað við verðlag á miðju yfirstandandi ári. Um þetta erum við reiðubúnir að semja, en vilji Alusuisse ekki lúta að slíku nú fremur en hingað til, heldur sýna okkur áfrant hrúts- hornin, er okkur skylt að sækja rétt okkar eftir þeim leiðum, sem full- valda ríki eru tiltækar. Tíminn til samninga er að renna út, einhliða aðgerðir hljóta að vera á dagskrá fyrr en varir. Við háttvirta flutningsmenn þessarar tillögu vil ég segja að lok- um. Gerum ekki þann óvinafagnað að auka innbyrðis sundurþykkju hér á háttvirtu Alþingi í þessu mikla hagsmunamáli þjóðarinnar. Ég er reiðubúinn til að hlýða á mál Hjúkrunar- fræðingar sjúkraliðar Sjúkrahúsið á Húsavík óskar aö ráöa hjúkr- unardeildarstjóra og hjúkrunarfræðinga í fastar stööur nú þegar eöa eftir samkomu- lagi. Sjúkraliöa frá 1. desember. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri, í síma 96-41333 alla virka daga frá kl. 09-16. Sjúkrahúsið á Húsavík s.f. Útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ommu Helgu Sigurðardóttur Barmahiíð 6 fer fram frá Dómkirkjunni, mánudaginn 1. nóvember kl. 15:00. Guðjón Guðmundsson Erla Guðjónsdóttir Egill Egilsson Auður Guðjónsdóttir Rúnar Guðjónsson Hrafnkell Guðjónsson Guðlaug Jónsdóttir Helga Guðjónsdóttir Thomas Kaaber Guðrún Sóley Guðjónsdóttir og barnabörn. Þorsteinn Hilmarsson Húsavik háttvirtrar stjórnarandstöðu nú sent fyrr með það í huga að halda samstöðu um málsmeðferð og lag- færa hnökra sem færð eru gild rök fyrir og sem unnt ætti að vera að slétta úr. Ábyrgðin hlýtur hins vegar eftir sem áður að vera hjá réttu stjórn- valdi í þessu máli sem öðrum, og það er engum til góðs að drepa henni á dreif. Hver er þín afsökun ijU^FERÐAR

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.