Þjóðviljinn - 12.11.1982, Qupperneq 2
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN
ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
Fjórar myndir um
kjamorkuvígbúnað
Þessa dagana stcndur hópur áhuga-
manna um afvopnun og frið fyrir
kvikmyndadagskrá í C-salnum í
Regnboganum. Sýndar eru fjórar
myndir, sem allar fjalla um ein-
hverjar hliðar kjarnorkuvígbún-
aðarins.
Myndirnar eru þessar:
Sprengjan lit, 1980. Blaða- og
sjónvarpsfréttamaðurinn Jonathan
Dimbleby lýsir þróun kjarnorku-
vopna frá Hiroshima til tölvustýr-
ingu. Hann tekur fyrir marga þætti
vígbúnaðarkapphlaups, meðal
annars kenníngar um „ógnarjafn-
vægi“ og „takmarkað kjarnorku-
stríð.“
Leyniferðir Nixons s/h 1976. Far-
ið er í heimsókn í kjarnorkustjórn-
stöð í Dakota fylki í Bandaríkjun-
um, sem sýnir á mjög áhrifaríkan
hátt heim þeirra er verja, viðhalda
og koma til með að skjóta kjarn-
orkueldflaugarnar. Röksemda-
færsla þeirra takmarkast af „það er
ekki fyrir okkur að spyrja hvers
vegna“ og „við hlýðum aðeins skip-
unum.“
Paul Jacobs og kjarnorku gagnrýni
lit 1979. Myndin segir frá til-
raunum stjórnvalda í Bandaríkj-
unum að kæfa upplýsingar um
hættu þeirrar geislavirkni sem staf-
ar af kjarnorku- og kjarnorku-
vopnaprófunum. Paul Jacobs var
blaða- og kvikmyndagerðarmaður
sem stóð í baráttunni við að koma
upplýsingum á framfæri þangað til
hann dó sjálfur af krabbameini ors-
ökuðu af geislavirkni 1978.
í túninu heima lit 1981. Myndin
fjallar um bandaríska herstöð í Ás-
tralíu, búnaðinn og hlutverk henn-
ar og hugsanlegan gang atvikanna
þar, ef til kjarnorkuátaka kæmi.
Seinni hluti myndarinnar segir frá
íhlutun CIA í innanlandspólitík í
Ástralíu í gegnum aðsetur þar.
Myndirnar verða sýndar í C-sal
Regnbogans föstudags-,la:ugar-
dags- og sunnudagskvöld kl. 7,
9 og 11.
Tónlistarperformansar í
Nýlistasafninu um helgina
„Það hefur verið ágæt aðsókn hjá
okkur í vetur, enda höfum við verið
með áhugaverðar sýningar. Fyrst
var DieterRoth og nú síðast þau
Guðjón Ketilsson og Guðrún
Hrönn. Um helgina verða sýnd
verk eftir mig og Guðrúnu
Tryggvadóttur og jafnframt verða
tveir tónlistarperformansar,“sagði
Arni Ingólfsson, sem sýnir verk sín
í Nýlistasafninu við Vatnsstíg.
Sýning þeirra Árna og Guðrúnar
verður opnuð kl. 20.00 í kvöld með
performans eftir Bob Becker, en
hann er Bandaríkjamaður. Á
morgun, laugardag, verður per-
formans kl. 20.00 eftir Rod Som-
mers sem er „breskur" Hollending-
ur og kennir hér í Myndlista- og
handíðaskólanum. Sýningin er op-
in fram á sunnudagskvöld.
Frönsk
kvöld
Næstu daga tökum við
sérstaklega fyrir mat frá
Frakklandi. Hinn frábæri
franski matreiðslumeistari
Paul Eric Colmon, eldar franskan
mat eitis og hann gerist beztur
SOIREE FRANCAISE
MENU
LA SOUPE DE CRABES
OU
LA TERRINE DE RÉNNE MARINÉ
— O —
LA COQUILLES SANT-JACQUES AU GRATIN
OU
LES ÉSCARGOTS AU PERNOD
— O —
LE GIGOT A L’AIL ET AU THYM
OU
LE POULET AU VINAIGRE
— O —
LES LÉGUMES DE SAISON
LA SALADE MIMOSA
— O —
LA MOUSSE DE ROQUEFORT
OU
LA GLACE AUX BETTERAVES
)
f
kJ
Grettir Björnsson harmonikkusnillingur
leikur franska slagara á harmonikkuna.
Verið velkomin
B2N
um helgina
Æft á steinaspilið. Ljósm - eik -
Gjörningur og steinaspil
leiklist
Súrmjólk
á
sunnudag
Barnaleikritið Súrmjólk með
sultu verður sýnt á sunnudag kl. 15
í Alþýðuleikhúsinu Hafnarbíói.
Sýningar eru nú að nálgast 6. tug-
inn og fer þeim brátt að fækka, og
er því hver að verða síðastur að sjá
þessa vinsælu leiksýningu.
Skáld-Rósa í
Kópavogsbíói
Leikfélag Hornafjarðar er nú á
leikferð með Skáld-Rósu eftir
Birgi Sigurðsson og verður sýning í
Kópavogsbíói í kvöld, föstudag, kl.
20.30. Leikstjóri er Jón Sigur-
björnsson, en með helstu hlutverk
fara Ingunn Jensdóttir, Haukur
Þorvaldsson og Halldór Tjörvi.
Miðapantanir eru í síma 41190, og
miðar verða seldir við innganginn.
Leikfélag Rvíkur:
Fimm sýningar
um helgina
í kvöld er 9. sýning á írlands-
kortinu hjá LR og er uppselt á sýn- •
inguna. Þá eru miðnætursýningar á
Hassinu hennar mömmu í kvöld og
annað kvöld í Austurbæjarbíói.
Skilnaður Kjartans Ragnarssonar
verður sýndur annaðkvöld í Iðnó
og Jói, einnig eftir Kjartan verður
sýndur á sunnudagskvöldið. Þetta
er annað leikárið sem Jói er á fjöl-
unum, og eru sýningar á verkinu
þegar orcjnar yfir 100.
Atómstöðin hjá LA:
Síðustu sýn-
ingar nyrðra
Um helgina verða síðustu sýning-
ar norðanlands á Atómstöðinni í
uppfærslu Leikfélags Akureyrar.
Aðsókn hefur verið mjög góð og
hefur Þjóðleikhúsið boðið LA að
sýna í Þjóðleikhúsinu 23. nó-
vember.
Það eru því síðustu forvöð fyrir
þá sem búa á Akureyri og nágrenni
að sjá sýninguna um helgina. Sýn-
ingarnar eru í kvöld kl. 20.30 og
annaðkvöld á sama tíma. Leikgerð
gerði Bríet Héðinsdóttir, og er hún
jafnframt leikstjóri.
Fáar sýningar
eftir á „Prests
fólkinu”
Nú fer að fækka sýningum á
„Prestsfólkinu" hjá Nemenda-
leikhúsinu, en þessi sýning hlaut
sem kunnugt er mjög góða dóma. í
kvöld er 15. sýning á verkinu, en sú
16. á sunnudag, og byrja báðar kl.
20.30.
Fjalakötturinn:_______
Fyrsta mynd
Polanskis
Nú um helgina verður sýnd í
Fjalakettinum fyrsta myndin sem
Roman Polanski gerði í fullri lengd:
Hnífur í vatninu, en hún er gerð í
Póllandi 1962. Hún fjallar um ung
hjón sem ætla að eyða helgi um
borð í seglskútu og taka ungan
puttaling upp í bíl sinn á leiðinni.
Aðrar myndir helgarinnar eru:
Trial, byggð á sögu Kafka, leik-
stjóri er Orson Welles. Aðalhlut-
verk: Anthony Perkins. Myndin er
gerð í Frakklandi 1962. Stella, gerð
í Grikklandi 1956. Leikstjóri er
Michael Cacoyannes, og í aðal-
hlutverki er Melina Mercouri.
Þjóðleikhúsið:________
Amadeus
og Gosi í
síðasta sinn
Tvær vinsælar sýningar verða í
siðasta sinn í Þjóðleikhúsinu um
helgina, Amadeus og Gosi, en sú
fyrri er í kvöld, en Gosi á sunnudag
kl. 14.00.
Garðveislan er a sviðinu annað
kvöld og Hjálparkokkamir á sunnu-
dagskvöldið. Þetta er í 18. sinn
sem Garðveislan er sýnd, en 7. sýn-
ing á Hjálparkokkunum. Tví-
leikurinn er svo í kjallaranum í 19.
sinn á sunnudagskvöldið.
myndlist
Vefjarlist
Laugardaginn 13. nóvember
opnar Elín Th. Björnsdóttir sýn-
ingu á vefnaði á Hofsvallagötu 16.
Sýningin stendur fram til 21. nó-
vember og er opin alla virka daga
frá kl. 19.30 - 22 og um helgar frá
14 - 22.
Elín Th. Björnsdóttir hefur unn-
ið við vefnað í 30 ár á Vefstofunni
Ásvallagötu 10 A, sem hún hefur
sjálf rekið í 10 ár. Upp á síðkastið
hefur hún bryddað upp á nýjung-
um í mynstri og reynt fyrir sér í
gerð veggstykkja. Állt garn, sem
Elín notar er íslenskt. Sýningin er
sölusýning.
Akranes:____________
Sýning 1
Bókhlöðunni
I kvöld, föstudaginn 12. nóvemb-
er, verður opnuð í Bókhlöðunni á
Akranesi sýning á verkum Krist-
jáns Hall. Það er Lionsklúbbur
Ákraness sem gengst fyrir sýning-
unni.
Á sýningunni eru 30 myndir mál-
aðar víðs vegar að á landinu. Þetta
er 12. einkasýning Kristjáns og
önnur sýning hans á Akranesi.
Sýningjn verður opin alla virka
daga frá kl. 18 - 22 og um helgar frá
kl. 14 - 22 fram til 21. nóvember.
Allur ágóði af sýningunni mun
renna til líknarmála á Akranesi.
Myndlistarmenn
í eina sæng
Myndlistarmenn hafa hingað til
skipt sér í félög eftir sérsviði þeirra.
Þeim hefur fjölgáð með árunum
eftir því hve einstökum myndlistar-
greinum hefur vaxið fiskur um
hrygg. Þannig hafa því verið starf-
rækt sex félög. Þau eru Félag ís-
lenskra myndlistarmanna, Hags-
munafélag myndlistarmanna, Is-
lensk grafik, Leirlistafélagið,
Mvndhöegvarafélag íslands og
Textílfélagið.
En nú hafa myndlistarmenn ák-
veðið að ganga í eina sæng og boða
stofnfund Sambands íslenskra
myndlistarfélaga að Hótel Borg
laugardaginn 13. nóv. kl. 13.30.
Ragnar Lár
sýnir í Gallery
Lækjartorg
Ragnar Lár opnar sýningu í
Gallery Lækjartorg á sunnudag, og
sýnir hann þar olíumálverk og
teikningar. Sýning hans verður op-
in daglega til 21. nóvember.
Gunnar Hjaltason
sýnir í Háholti
Gunnar Hjaltason opnar á
laugardag málverkasýningu í Há-
holti við Reykjanesbraut. Gunnar
hefur haldið 20 málverkasýningar.
Sjón í
Skmggubúð
Á morgun, laugardaginn 13.11
kl. 15, opnar í Skruggubúð,,
Suðurgötu 3a, sýning á teikningum i
og smáhlutum eftir Sjón. Sjón er,
íslenskur súrrealisti sem hefur,
starfað með súrrealistahópnum
Medúsa síðustu ár. Hann hefur
áður sýnt á samsýningum Medúsu
og er höfundur nokkurra ljóða-
bóka.
Sýningin mun standa til 29. nó-
vember, og verður Skruggubúð op-
in kl. 15-21 um helgar, en kl. 17 -
21 virka daga.
Á morgun verður gjörningur í
Norræna húsinu kl. 8.30 og koma
þar fram sameiginlega listamenn-
irnir Bat-Yosef, Haukur og
Hörður, Elías Davíðsson og Ort-
hulf Prunner. Hugmyndin er að
þrjár listgreinar, myndlist, hreyfi-
list og tónlist renni saman í eina
heild. Bat-Yosef mun mála
Thorvaldsen-
sýningunni
að ljúka
Um helgina lýkur sýningu á
verkum Thorvaldsen á Kjarvals-
stöðum, en þessi sýning hefur vak-
ið mikla athygli og fengið ágæta
aðsókn. Karólína Lárusdóttir sýnir
í vestursal og fyrir framan hann eru
handprjónaðir kjólar eftir Aðal-
björgu Jónsdóttur.
tónlist
Kammermúsík
Næstkomandi þriðjudag, 16. nó-
vember, verða haldnir fyrstu tón-
leikar Kammermúsíkklúbbsins á
þessu starfsári. Þeir verða á Kjarv-
alsstöðum og hefjast kl. 20.30
Á efnisskrá er tríó fyrir píanó,
fiðlu og celló í c-moll op.101 eftir
Jóannes Brahms, tríó fyrir píanó,
fiðlu og celló í a-moll op.50 eftir
Piotr Tchaikovski. Flytjendur eru
Árni Kristjánsson sem leikur á pí-
anó, Laufey Sigurðardóttir, sem
leikur á fiðlu og Gunnar Kvaran
sem leikur á celló.
Savrígúl Kúrbanova, eindansari
með Rúbob-sveitinni frá Tadsjik-
istan.
Lokatónleikar
Tadsjikanna
Lokatónleikar og danssýning
listafólksins frá sovétlýðveldinu
Tadsjikistan, sem kom hingað til
lands í síðustu viku tjl þátttöku í
Sovéskum dögum MÍR, verða í
Gamla bíói á sunnudagskvöld 14.
nóvember kl. 20.30.
Listafólkið, óperusöngkonan
Ojat Sabzalíéva, píanóleikarinn
Valamat-Zade og Söng- og dans-
flokkur rúbob-leikara Ríkisfíl-
harmóníunnar í Tadsjikistan, hef-
ur komið fram á allmörgum tón-
leikum, m.a. í Reykjavík, Mos-
fellssveit, Hveragerði og Vest-
mannaeyjum, hvarvetna við ágæta
aðsókn og frábærar viðtökur.
Á efnisskrá tónleikanna er ein-
söngur og einleikur á píanó, sveit
hljóðfæraleikara leikur og dans-
flokkur sýnir; leikið er á gömul
bræðurna Hauk og Hörð, en þeir
sýna hreyfilist við tónlist eftir Elías
og Orthulf. Tónlistin er samin fyrir
íslenska steina, eða réttara sagt
hljóðfæri sem Elías hefur sett
saman úr íslenskum steinum og
kallar steinaspil. Gjörningurinn er
haldinn á vegum Gallery Lækjar-
torgs.
þjóðleg hljófæri, m.a. strengja-
hljóðfærið rúbob og ásláttar-
hljóðfærið dojru.
í Ásmundarsal við Freyjugötu
stendur nú yfir sýning á listmunum
frá Tadsjikistan, svo sem vefnaði,
ísaumi, þjóðbúningum, skraut-
munum, keramik, tréskurði,
myndum máluðum á tré o.fl. Sýn-
ingin er opin kl. 16-19, nema á
laugardag og sunnudag kl. 14-19.
Djass í
Stúdenta
kjallaranum
Djass verður í Stúdentakjallar-
anum ásunnudaginn kl. 21.00. Þeir
sem spila eru Eyþór Gunnarsson á
píanó, Friðrik Karlsson á gítar,
Gunnlaugur Briem á trommur,
Sigurður Flosason á saxófón og
Tómas Einarsson á bassa.
Tónlistarfélagið
Stjernlöf
syngur
Tónlistarfélagið gengst fyrir tón-
leikum á morgun, laugardag kl.
2.30 í Austurbæjarbíói. Söngkon-
an Ingrid Stjernlöf syngur við
undirleik dr. Erik Werba.
ýmislegt
Menningar-
dagar á
Hellissandi
Listráð Neshreppinga gengst um
helgina fyrir Menningardögum á
Hellissandi og fær norðlenska lista-
menn til liðs við sig. Ilefst dagskrá-
in kl. 20 á laugardagskvöld og lýkur
kl. 18 á sunnudag. Markmiðið með
Menningardögunum er að efla
tengsl foreldra og skóla og auka
áhuga heimamanna á listum
Norðlensku listmálararnir Örn
Ingi, Aðalsteinn Vestmann,
ÓlafurTorfason og Sigurður Aðal-
steinsson sýna verk sín. Tónlist-
armennirnir Kristinn Örn Kristins-
son, Michael John Clark og Paula
Parker koma fram einnig Signý
Pálsdóttir leikkona og Guðlaugur
Arason rithöfundur les úr verkum
sínum.
Heimamenn verða líka þátttak-
endur f Menningardögunum. Haf-
steinn Engilbertsson les úr óprent-
uðu handriti sínu og fjórir krakkar
úr grunnskólanum lesa eigin ljóð.
Þau heita: Ella Björk, Viggó Ein-
ar, Eggert Amar og Iris Bjarg-
munds.
Foreldradagur
í Fellahelli
í tilefni af 8 ára afmæli félags-
miðstöðvarinnar Fellahellis sem
var 9. nóvember hefur verið ák-
veðið að hafa opið hús fyrir ung-
linga úr Breiðholti og foreldra
þeirra n.k. sunnudag 14. nóv. milli
kl. 14. - 17.
Ætlunin er að kynna foreldrum
það starf sem fram fer í Fellahelli
og gefa þeim kost á að hitta starfs-
fólk. Einnig verður selt kaffi og
kökur sem unglingarnir baka sjálfir
og munu þeir njóta ágóðans af söl-
unni. Eru allir foreldrar eindregið
hvattir til þess að láta loksins verða
af því að kynnast þeim stað sem
börn þeirra eyða miklu af frítíma
sínum.
Námskeið í
kvikmyndagerð
Á laugardaginn 13. nóv., verður
haldið á vegum Samtaka áhuga-
manna um kvikmyndagerð náms-
keið í kvikmyndagerð.
Leiðbeinandi verður Þorsteinn
Pálsson kvikmyndagerðarmaður.
Á námskeiðinu verður farið í
undirstöðuatriði kvikmyndagerð-
ar og síðan verður tekið fyrir
hvernig taka á kvikmynd og nokkr-
ar myndir skoðaðar í þeim tilgangi.
Námskeiðið verður haldið í Álfta-
mýrarskóla og hefst kl. 14.00.
Allir kvikmyndaáhugamenn eru
velkomnir.
Fundur í félagi
áhugamanna
um réttarsögu
Fyrsti fræðafundur í Félagi áhuga-
manna um réttarsögu verður
haldinn mánudaginn 15. nóvember
kl. 20.30 í stofu 103 í Lögbergi, húsi
lagadeildar Háskólans. Fundarefni
er Um staðfræði Landnámubókar,
og frummælandi er dr. Haraldur
Matthíasson fyrrv. mennta- og
skólakennari á Laugarvatni. Síðan
verðar almennar umræður. Félags-
menn og aðrir áhugamenn úm
sagnfiæðileg efni og þjóðleg fiæði
eru hvattir til að fjölmenna.
Breskur Pub
á Hótel
Loftleiðum
Barnum á Hótel Loftleiðum hef-
ur verið breytt í breskan Pub og þar
skemmtir píanóleikarinn Sam
Avent. Pubbinn er opinn á hverju
kvöldi fram til 21. nóvember en þá
skemmtir Sam í síðasta sinn.
Ymsir smáréttir eru á boðstólum
eins og tíðkast á krám í Bretlandi.
Sam Avant hefur skemmt víða um
heim við góðar undirtektir og
margir þekkja kappann frá fyrri
heimsóknum hans hingað. í kvöld,
föstudagskvöld, verður sérstakt
Villibráðarkvöld að Hótel Loft-
leiðum og þar gefst tækifæri til að
smakka gómsæta rétti sem ekki em í
boði á öðrum tímum.
„Mjólkurdagar
1982” á laugardag
og sunnudag
Á morgun, laugardaginn 13. og
sunnudaginn 14. nóv. verða hald-
nir „Mjólkurdagar“ í húsakynnum
Osta- og smjörsölunnar, Bitruhálsi
2.
Allir eru að sjálfsögðu velkomn-
ir á „Mjólkurdaga 1982“, aðgangur
er ókeypis og opið verður báða
dagana frá kl. 13.00 til kl. 20.00.
-mhg
Hópurinn sem æfir „Höfuðbólið og hjáleiguna“ í Keflavík.
Leikfélag Keflavíkur frumsýnir gamanleikinn Höfuðbólið og Hjáleguna
eftir Sigurð Róbertsson í Félagsbíó Keflavík, laugardaginn 13. nóv. n.k.
kl. 21, leikstjóri er Jónína Kristjánsdóttir.
Leikritið fjallar á gamansaman hátt um brottrekstur Lúsifers frá himna-
ríki og um sköpunina. Með helstu hlutverk í leiknum fara Árni Margeirs-
son, Jóhannes Kjartansson, Gísli Gunnarsson, Guðfinnur Kristjánsson
og Unnur Þórhaílsdóttir. Önnur sýning verður þriðjudaginn 16. nóv. í
Félagsbíó.
Mótei Loftleiðir
sími 22322
Blómasalur: Villiréttakvöld
föstudag og laugardag.
Opið frákl. 12-14.30 og kl. 19-
23.30 alla daga.
Vínlandsbar: Breskur „pub“
Opið alla daga vikunnar frá kl.
19-23.30 nema um helgar, en
þá er opið til kl. 01. Opið í há-
deginu kl. 12-13.30 á laugar-
dögum og sunnudögum.
Veitingabúðin: Opið alla daga
vikunnar kl. 05-20.
Maustið
sími17759
Opið allan daginn alla daga.
Fjölskylduhátíð á sunnudag.
f baðstofunni eru leiktæki, ví-
deótæki með teiknimyndum,
blöð o.fl. fyrir börnin. Þar fá þau
pylsur, hamborgara, gos o.fl.
og fóstran okkar gætir þeirra á
meðan fullorðna fólkið gæðir
sér á góðmetinu í aðalsalnum.
Fjöllistamaðurinn Valter Vasil
kemur í hádeginu,
eftirmiðdagskaffinu og um
kvöldið og leikur listir sínar fyrir
gesti okkar.
¥í
eitingahúsið
Borg
Föstudagur: Opið frá kl. 18-03
Diskótekið Dísa
Laugardagur: Opið frá kl. 18-
03 Matur framreiddur frá kl. 18
Diskótekið Dísa
Sunnudagur: Síðdegisjass kl.
16.30
Gömlu dansarnir kl. 21-01
Mótel Saga
sími 20221
HÓTEL SAGA
Föstudagur: Súlnasalur:
einkasamkvæmi, en Grillið og
Mímisbar opinn.
Laugardagur: Súlnasalur:
Einkasamkvæmi til kl 23. Eftir
það verður opið til kl. 03 Hljóm-
sveitin Upplyfting leikur fyrir
dansi. Á meðan þið bíðið er
bæði Grillið og Mímisbar opinn
Sunnudagur: Grillið, Mímisbar
og Súlnasalur opinn til kl. 01
Mótel Esja
Skálafell
sími 82200
M
lúbburinn
sími 35355
FÖSTUDAGUR
LAUGARDAGUR:
Opið trá kl. 22.30-03. Hljóm-
sveitin Starf og diskótek.
læsibær
sími 86220
Opið frá kl. 22-03.Hljómsveitin
Start og diskótek. Nektar-
dansmærin Cathy Star
skemmtir.
LAUGARDAGUR:
Opiðfrá kl. 22-03. Hljómsveitin
Start og diskótek. Nektar-
dansmærin Cathy Star
skemmtir.
SUNNUDAGUR:
Opið frá kl. 21-01. Hljómsveitin
Glæsir og nektardansmærin
Cathy Star.
rtún
sími 85090
FOSTUDAGUR OG
LAUGARDAGUR rGömlu dan-
sarnir.
Opið frá kl. 21 -02. Hljómsveitin
Drekar og söngkonan Mattý Jó-
hanns. Forstjóri Nýja dansksó-
lans kynnir. Kynnt verður til-
högun danskeppninnar.
Föstudagur:
Skálafell: Opið frá kl. 19.
Haukur Morthens og félagar
órscafé
sími 23333
LAUGARDAGUR:Skálafell:
Opiö frá kl. 19.
Sunnudagur
Skálafell: Opið frá kl. 19.
Haukur Morthens og félagar
TÍSKUSÝNING alla fimmtu-
daga á Skálafelli.
Og munið Kaffihlaðborðið alla
sunnudaga á Esjubergi.
Laugardagur:
Þórskabarett 1
Laugcrdagur:
Þórskabarett 2
Sunnudagur:
Þórskabarett 3
Opnað fyrir matargesti kl. 19.
Dansað til kl. 03 Dansbandið
leikur fyrir dansi á efri hæðinni
en Diskótekið í fullum gangi á
neðri hæðinni.