Þjóðviljinn - 18.11.1982, Blaðsíða 1
UÚmiUINN
Sagt fra
afsláttarkortum
KRON sem gilda í
desember í
Búsýslunni
Sjá 8.
nóvember 1982
fimmtudagur
47. árgangur
259. tölublað
Sturlungaöld í Þelamerkurskóla:
Skólastjóra
og kennara
vikið úr starfi
Hálfgert upplausnarástand hefur ríkt í allt haust í Þelamerkur-
skóla í Hörgárdai í Eyjafirði. Stafar þetta af ósamkomulagi skóla-
stjórans, Sturlu Kristjánssonar, og eins kennara, Kjartans
Heiðberg, og keyrði svo um þverbak um síðustu helgi að ekki hefur
verið hægt að kenna í skólanum síðan á mánudag. Menntamála-
ráðherra, Ingvar Gíslason, þraut þolinmæðina s.I. þriðjudag og
vék skólastjóranum fyrirvaralaust úr starfi, og sagði Ingvar í gær
að kennarinn myndi líka víkja.
Ingvar Gíslason sagði í samtali
við Þjóðviljann, að það væri sitt álit
og meirihluta skólanefndar að ekki
fengist vinnufriður við skólann fyrr
en þessir tveir menn vikju; Sturla
Kristjánsson hefði ekki valdið
þessu starfi, honum hefði ekki tek-
ist að halda frið við skólann og
hefði hann skapað úlfúð í kringum
sig.
Setti ákveðin
skilyrði
- Ég hélt að þessi mál væru komin
á hreint um mánaðamótin sept./
okt. s.l., en þá setti ég ásamt
fræðslustjóra fram ákveðin skilyrði
um það hvernig skólastjórinn ætti
að starfa, en hann hefur ekki farið
eftir þessum skilyrðum og ekki
bætt sína skólastjórn og því var
ekki um annað að ræða en víkja
honum úr starfi. Vissulega er hægt
að víkja mönnum úr starfi sem
þessu, fyrirvaralaust, en telji þeir
sig órétti beitta geta þeir auðvitað
sótt sitt mál á hendur menntamála-
ráðuneytinu, sagði Ingvar Gísl-
ason.
Mjög löng og flókin saga mun
liggja að baki þeim illvígum, sem
þarna hafa átt sér stað og enduðu
með brottvikningu mannanna
tveggja.
Ekki tókst að ná í Sturlu Krist-
jánsson, þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir í gær.
-S.dór.
Vflmundur
úr Alþýðu-
flokknum
Vilmundur Gylfason tíikynnti
þingflokki Alþýöuflokks-
ins í gær að hann myndi form-
lega segja sig úr Alþýðuflokkn-
um í dag. Jafnframt mun
fyrsta þingmálið verða lagt
fram af hálfu „Bandalags
jafnaðarmanna“ sem sagt er
að sé verið að stofna og muni
líta dagsins jjós innan nokk-
urra vikna. I þingræðu í gær
talaði Vilmundur um Alþýðu-
flokkinn sem sínn „gamla
flokk.“
-ekh
Fegursta vetrarveður var í Reykjavík í gær, heiðskírt og logn með vægu
frosti. Snjóruðningstæki voru víða á ferð, og þessa mynd tók eik af einu
sem er sérstaklega útbúið til að hreinsa gangstéttir.
Skerðing verðbóta 1. desember:
Minnkar stórlega
viðskiptahallann
„Auðvitað er hér um að ræða neyðar-
ráðstöfun sem gerð er vegna mikils
viðskiptahalla á síðasta ári sem eykur
erlendar skuldir um 3.1 miljarð króna.
Þessar ráðstafanir nú hafa það í för með
sér að viðskiptahalli næsta árs verður
allt að r/2 miljarði minni á sambærilegu
verðlagi,“ sagði Svavar Gestsson for-
maður Alþýðubandalagsins í tilefni á-
kvörðunar verðbóta á laun 1. desember
og sagt er frá í Þjóðviljanum í dag.
„Það er athyglisvert að sú
skerðing verðbóta sem verður 1.
desember er svipuð og gert hafði
verið ráð fyrir við setningu bráða-
birgðalaganna í sumar. Þá var talað
um 7-8% skerðingu, en útkoman
varð 7,72%,“ sagði Svavar Gestsson
ennfremur.
„Með þessum ráðstöfunum er
sumsé reynt að draga stórlega úr
erlendri skuldasöfnun og treysta
efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinn-
ar. Hins vegar er því miður ljóst, að
kreppan er að knýja dyra og því
óvíst að þessar ráðstafanir dugi til
að treysta stöðu þjóðarbúsins. Til
viðbótar þurfa að koma ráðstafanir
sem draga úr innflutningi, stuðla
50 miljónum króna varið til
láglaunabóta í næsta mánuði
segir Svavar Gestsson
að gjaldeyrissparnaði og aukinni
framleiðslu,“ sagði Svavar.
Svavar Gestsson sagði að á
næstu dögum yrði gerð grein fyrir
því hvernig dregið yrði úr áhrifum
verðbótaskerðingarinnar á hag elli-
og örorkulífeyrisþega. Einnig væri
verið að skipuleggja greiðslu lág-
launabóta, en 50 milljónum króna
verður varið í desember til lág-
launafólks. 125 milljónir koma svo
til viðbótar í því skyni á næsta ári.
-v.
Sjá 16.
Eigendur flatra þaka í
Hraunbæ vilja fá bætt
mikið tjón sem þeir hafa
orðið fyrir.
Kvennaframboðið í Reykjavík:
Allmlklar líkur á
framboði til þings
Allmiklar líkur eru nú taldar á
að Kvennaframboðið í Reykjavík
bjóði fram til Alþingis við næstu
kosningar. Kvennaframboðskonur
hafa mjög rætt hugsanlegt framboð
síðustu vikur og nýr kraftur kom í
þá umræðu eftir að Vilmundur
Gylfason kom að máli við nokkra
forystumenn Kvennaframboðsins
og óskaði eftir samstarfl um
framboð.
Nokkrir einstaklingar í Kvenn-
aframboðinu í Reykjavík, sem
Þjóðviljinn ræddi við í gær, könn-
uðust allir við að framboð til Al-
þingjs hafi verið til umræðu í sam-
tökunum undanfama daga. Á-
reiðanlegar heimildir Þjóðviljans
herma að Vilmundur Gylfason al-
þingismaður hafi mjög borið víurn-
ar í Kvennaframboðskonur eftir að
hann stefndi að sérframboði til
Alþingis. Það mun hafa knúið
Kvennaframboðið til að taka af-
stöðu í málinu og eru taldar veru-
legar líkur á að meirihluti verði
fyrir framboði til þings á meðal
Kvennaframboðskvenna, þegar at-
kvæði verða greidd þar um.
-v.
Hópur kvenna hefur að
undanförnn sótt sérstakt
fræðslunámskeið til
undirbúnings starfi á
kvennaath varfi sem
opnað verður fyrir
áramót.