Þjóðviljinn - 18.11.1982, Síða 4

Þjóðviljinn - 18.11.1982, Síða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 18. nóvember 1982 MOOVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis Utgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann. Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson. Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guöjón Friðriksson. Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Blaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúðvik Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Þórunn Sigurðardóttir, Valþór Hlöðversson. íþróttafréttaritari: Viðir Sigurðsson. Útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir, Guðjón Sveinbjörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elíasson. Handrita-og prófarkalestur: Elías Mar, Gísli Sigurðsson, Guðmundur Andri Thorsson. Augiýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Kristin Pétursdóttir. Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bflstjóri: Sigrún Bárðardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigmundsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Otkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6 Reykjavík, sími 8 13 33 Umbrot og setning: Prent. Frentun: Blaðaprent h.f. Leiðtogaskipti í Sovétríkjunum • Eftirmanni Leoníds Brésjnéfs í embætti aðalritara Kommúnistaflokks Sovétríkjanna fylgja nokkuð þverstæðu- kenndar vangaveltur og spádómar í fjölmiðlum þessa dag- ana. Annarsvegar er það ekki talið boða nema illt, að hinn nýi oddviti Sovétríkjanna hefur um langt skeið stjórnað leyniþjónustunni og ber því ábyrgð á harkalegri meðferð sem andófsfólk af ýmsu tagi hefur sætt. Hinsvegar er talsvert um það skrifað, að Júrí Andropof sé tiltölulega góður kost- ur, hann hafi verið heldur betur siðaður lögreglustjóri en flestir fyrirrennarar hans og sé hann í raun vel að sér og kannski einskonar umbótasinnaður tæknimaður valdsins. Er þá gjarna vitnað til þess, að Andropof er talinn hliðhollur þeirri tegund lagfæringa á efnahagskerfinu sem hefur skilað eftirtektarverðum árangri í Ungverjalandi Kadars. • Það er líka athyglisvert, að svo misjafnar umsagnir um nýjan sovéskan leiðtoga fara alls ekki eftir pólitískum lit þeirra málgagna sem þær birta. • Það hefur verið ítrekað hér í blaðinu, að þau Kremlar- fræði sem spá í einstaklinga innan hinnar sovésku forystu hafa oft reynst haldlítil. Ástæðan er fyrst og fremst sú, að æðsta valdastofnun Sovétríkjanna, framkvæmdanefnd Kommúnistaflokksins, er harðlokuð í öllum starfsháttum. Það hefur jafnan gengið treglega að fá upplýsingar sem treysta mætti um þann ágreining um stærri mál sem hlýtur öðru hverju að rísa í þeim hópi. Af þessum sökum vita menn ekki nema fátt eitt um nýjan forystumann, þegar hann hefst til æðstu valda, og drjúgur tími verður að líða áður en það kemur ótvírætt í Ijós, hvort hann hyggur á meiriháttar breytingar eða ekki. • Vissulega er mikilla breytinga þörf í Sovétríkjunum - hverjar sem nú kynnu að vera framkvæmanlegar. Leoníd Brésjnéf fær þá kveðju frá fjölda fréttaskýrenda, að stjórn- artíð hans hafi einkennst af íhaldssemi og hálfum lausnum, sem urðu svo engar lausnir, dugðu kannski hvorki til umbóta né óbreytts ástands. Til staðfestingar á slíku mati nefna menn ýmisleg þau vandræði sem Sovétríkin eiga við að glíma í alþjóðamálum, erfiða stöðu þeirra í Austur-Evrópu, rýrn- andi álit þeirra í ýmsum hlutum þriðja heimsins og þar fram eftir götum. Eða þá til dæmis að taka matvælaástandið innanlands sem gerir stórt strik í alla efnahagsreikninga Sovétmanna og er í hrópandi andstöðu við þau fyrirheit um framfarir og úrbætur sem gefin hafa verið allar götur frá 1957. • Það er mjög líklegt að í Sovétríkjunum láti margir sig dreyma um umbætur sem gengju í átt til hins ungverska fordæmis: einstök fyrirtæki yrðu sjálfstæðari, visst svigrúm gefið fyrir einkaframtak í þjónustugreinum og landbúnaði, framleiðsla á neysluvarningi hefði forgang og fylgdi öllu saman slökun á pólitísku eftirliti. Þessháttar innanlandspó- litík ætti sér svo hliðstæðu í opnari og virkari slökunarstefnu á alþjóðlegum vettvangi en hingað til hefur þekkst og þar með raunverulegum árangri í afvopnunarmálum. Breyting- ar í þessa átt eru mögulegar, en enginn getur spáð um það, hvort og hvernig þeir möguleikar verði nýttir. Hitt er svo ljóst, að ef engu má breyta, þá stóraukast hættur á aftur- hvarfi til Stalínstíma með enn auknu valdi lögreglu og hers og styrjaldarótta. - áb. klippt i Þingið I öllum ií; opið / <an Stytta af Jónasi f Reykjavfk um stuAu cfnaha flokksfojmaðurinn IbKhinda þyrfti efr einsoj; þær sem rik nú aA fást við til að cins árs. Þá sagði fyndist athyitlisvei manna vaeri sem • krafan um takmo ingi. .Við tnilum ur.“ sa»{ði hann o að taka þ.vrfti up| Jhi ekki með þv Koinlu haftanna. FJOLMENN ASTAI FLOKKSlMNGIÐ1 Hart deilt um málefni Tímans: Þórarinn Þórarinsson hótaðj aó segja af sér Tímans tönn á flokksþingi Nú eru dagar flokksþinga og eitt af þeim málum sem þá koma upp er nærvera fréttamanna: Helgi H. Jónsson fréttamaður og varaþingmaður vildi loka þingi Framsóknarmanna nú um helg- ina, en fékk ekki stuðning. Og af því að þetta mál kom nú upp hjá Framsóknarmönnum er ekki ófróðlegt að rekja tvö tilbrigði við umræðu þings þeirra um dag- blaðið Tímann. Morgunblaðið segir svo í bak- síðufrétt (og nokkru ýtarlegar inni í blaðinu): „Einnig kom fram hörð gagn- rýni á málgagn flokksins Tímann og lýsti ritstjóri hans, Þórarinn Þórarinsson, því yfir á sunnu- dagskvöld, að hann myndi segja af sér ef ádeilan snerist um leiðaraskrif hans. í drögum að ályktun um Tímann var sérstaklega deilt á pólistísk skrif blaðsins. Við yfir- lýsingu Þórarins komu forystu- menn flokksins hver af öðrum í ræðustól og sögðu Þórarinn bezta leiðarahöfund landsins, ádeilunni væri beint að öðrum þáttum. Fram komu ýmsar breytingartillögur og var þeim vísað til starfshópsins á ný. I gær- morgun var síðan samþykkt á- lyktun, þar sem flokksþingið lýs- ir yfir ánægju með forystugreinar Tímans en telur nauðsynlegt að beita blaðinu meira í hinni póli- tísku baráttu." Frásögn Tímans af þessu máli er svo nokkuð öðruvísi, eins og vonlegt er. Tíminn segir: „Miklar umræður urðu um Tímann eins og oft hefur orðið á þingum og fundum flokksins, en allir voru á einu máli um að efla blaðið og gera veg þess sem mest- an enda væri Framsóknarflokkn- um nauðsyn að eiga öflugt málgagn og láta ekki deigan síga þótt fjölmiðlaveldi pólitískra andstæðinga gerist sífellt öflugra." Tvenns konar tónn? Dragi svo hver sínar ályktanir af þesum einföldu dæmum. Það var reyndar nokkuð fróð- legt sem haft er eftir Tómasi Áma- syni viðskiptamálaráðherra um tillögu Helga H. Jónssonar um að loka þinginu fyrir aðvífandi frétta- mönnum. Tómas sagði að slíkt þing sem þetta yrði ekki rekið nema með opnum tjöldum. „Hann benti á, segir Mbl. enn- fremur, að nefndarstörf færu fram fyrir luktum dyrum og menn gætu tjáð sig þar opinskátt". Ekki verður betur séð en það sem Tómas ráðherra meinti hafi verið á þesa leið: Það verður ekki komist hjá fréttamönnum úr þessu, en menn skuli þá temja sér tvennslags talsmáta - annan slétt- an og felldan og eilftið undir rós, meðan opnir þingfundir standa - og annan tón, opinskáan, á nefndarfundum. Ólíkt hafast þeir að Það var ekki alveg spauglaust að Framsóknarþingið skyldi sam- þykkja með „dúndrandi lófataki" að láta reisa styttu af Jónasi frá Hriflu í Reykjavík og skuli hún risin áður en gamli maðurinn á aldarafmæli. Ólíkt hafast þeir að, Fram- sóknarflokkurinn og Kommún- istaflokkurinn sovéski. Fyrst var Jónas útskúfaður, afhjúpaður og jarðaður pólitískt í lifanda lífi - svo rís hann upp dauður til endur- heimtrar virðingar og eilífðar í bronsi uppi á stalli. Hjá Kreml- verjum er atburðarásin þver- öfug: fyrst hefja þeir Stalín á stall með sætum hymnum, en að honum Iátnum afhjúpa þeir hann, útskúfa og færa úr virðu- legu grafhýsi, steypa svo styttum hans af stalli. Tvöfalt flokka- kerfi Sem sagt: gott. Af flokksþingi krata hefur ýmislegt spurst, sem blöð hafa svo velt sér í munni. Ásta Benediktsdóttir, formaður Kvenfélags Alþýðuflokksins í Reykjavík, fer í fyrradag inn á mál sem mun eiga sér nokkra hliðstæðu í öllum flokkum. Hún lýsir vonbrigðum og undrun yfir því að við kosningu til flokks- stjórnar voru „fulltrúar" Reykja- víkur nánast þurkaðir út.“ Sérstæðasta og um leið einna sterkasta einkennið á íslensku flokkakerfi er nefnilega það, að í hverjum flokki eru dreifbýlis- flokkur og suðvesturhornsflokk- ur starfandi. Þessi staðreynd er oft ansi þungvæg, og á gífurlega mikinn þátt í því hve erfitt til dæmis yngra fólk margt virðist eiga með að átta sig á því hver er hvað og hver er ekki hvað í ís- lenskum stjórnmálum. -ÁB Mönnum til tilbreytingar í skammdeginu skal hér vitnað til nokkurra fréttaklausa úr bresk- um blöðum, sem minna á nokkr- ar þær hliðar á tilveru granna okkar í suðri sem spaugilegar eru - viljandi eða óviljandi. Fiskirœktar- raunir „Hreppsnefndin í Kenver ræddi á fundi sínum um það, hvaða fiskitegund ætti að rækta upp í ánni Sterrymore, sem renn- ur gegnum plássið. Þar komu fram þær upplýsingar, að eftir að þúsund pundum hafði verið varið til að hreinsa ána og breyta far- vegi hennar, hefði hún þornað upp. Talsmaður hreppsnefndar- innar sagði: „Flokkur manna hef- ur verið sendur upp í fjöllin til að finna aftur upptök árinnar“. Dýrmœtur hundur Rannsókn er hafin í Good Hope spítala í Sutton Coldfield, á því, að hr. Peter Berger, einn af yfirmönnum á skurðlækninga- deild spítalans, notaði örbylgju- skanner sem kostaði 5000 pund til að ganga úr skugga um það, hvort tíkin hans væri hvolpafull. (Daily Mirror). Hestar og menn Wager liðþjálfi sagði síðar: „Prinsessan talaði um hinn skelfi- lega harmleik hestanna sem urðu fyrir sprengju IRA-manna“. Cook liðþjálfi bætti við: „Hún lét einnig í ljós mikla samúð með mönnunum sem týndu lífi eða særðust." Tré í borg. Borgarráðið í Birmingham hefur ákveðið að sett verði niður tré með grönnum bolum til að ræningjar geti ekki falið sig á bak við þau. Birmingham hefur þegar byrjað á þeirri nýbreytni að planta trjám með hérumbil lóðréttum greinum í námunda við dómkirkjuna til að koma í veg fyrir að fuglar geri sér hreiður í þeim. (Gardneres Chronicle). Lítillœti „Eins og alltaf sannfæri ég andstæðinga mína í pólitík með töfrum og rökvísi minna sjónar- miða einum saman. Einn eða tveir hafa til þessa sýnt andóf, en enginn vafi er á því að þeir muni fyrr eða síðar láta undan.“ (íhaldsmaðurinn Norman Tebbit í Sunday Times.)

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.