Þjóðviljinn - 18.11.1982, Side 5

Þjóðviljinn - 18.11.1982, Side 5
Fimmtudagur 18. nóvember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Aðalvinningurinn í Happdrætti Þjóðviljans: Spameytinn en þó snarp ur fjöl- skyldubíll Þessa dagana eru að detta inn um bréfalúgurnar hjá velunnurum Þjóðviljans umslög með árlegum happ- drættismiðum í Þjóðviljahappdrættinu. Happdrættið hefur um árabil verið ein meginstoðin undir útgáfu blaðsins, og þó segja megi að oft hafí verið þörf, þá er nú nauðsyn á að því verði vel tekið vegna nýju prent- smiðjunnar og mikils kostnaðarauka við útgáfuna af þeim sökum. Aðalvinningurinn í happdrætt- inu er Daihatsu Charade bfll, sem kostar 128 þúsund krónur. Bfllinn er mjög faÚegur eins og meðfylgj- andi mynd ber með sér. Hann er framhjóladrifinn og rúmar _ manns, sparneytinn en þó snarpur fjölskyldubfll. Hér er um að ræða einn vinsælasta smábílinn á mark- aðnum í dag með vél sem er 60 hestöfl, þriggja dyra og fjögurra gíra, svokallaða „Runabout" tegund. Á næstu dögum munum við kynna aðra vinninga í Happdrætti Þjóðviljans; húsgögn eftir eigin vali frá TM fyrir 25 þúsund krónur, Nordmende hljómflutningstæki „íslenskir verkalýðssinnar hafa verið formlega klofnir alltfrá árinu 1930. Það gœti t.d. verið verðugt sögulegt hlutverk fyrir yngri sósíal- ista að vinna að aukinni samvinnu þeirra og markvissri baráttu“. Meira um íslenska vinstrimennsku Sl. fimmtudag birtist hér í Sjónarhorni grein, sem höfund- urinn, ungur róttækur rithöfund- ur kallar í undirfyrirsögn „svar við grein Margrétar Björnsdóttur í Þjóðv. 29. október.“ Eg verð að játa að mér gengur illa að skilja þessa grein hans sem „svar“ við minni grein - og varð hugsað þegar ég las hana, að þarna hefur rithöfundurinn Kristján borið fræðimanninn Kristján ofurliði. í þessu „svari“ sínu rangfærir og snýr Kristján ekki einungis út úr minni grein, heidur einnig fyrri grein sinni, sem ég hafði svarað í Þjóðv. 29. október. Ég hirði ekki um að sýna fram á þetta með tilvitnun- um (gæti hins vegar sent Kristjáni slíkt prívat, ef hann óskar), í fyrsta lagi vegna þess að þetta má vera öllum augljóst er lesið hafa greinarnar og í öðru lagi vegna þess að ég tel að menn eigi ekki aðíþyngja lesendum og rekstrar- reikningi Þjóðv. með efni sem einungis varðar eina persónu (svo sem Kristján gerir í sinni síð- ari grein). Nauðsyn heiðarlegrar og málefnalegrar umrœðu Mér er hins vegar í mun að áfram haldi með heiðarlegum og málefnalegum hætti sú umræða er Kristján hóf með sinni fyrri grein um slæma stöðu íslenskrar vinstrihreyfingar, einangrun og sundurþykkju s.n. ’68 kynslóðar og hvernig úr megi bæta. Hér virðist Kristján mér ekki sam- mála, því í seinni grein sinni fórn- ar hann möguleika siðaðrar um- ræðu á altari aulafyndni. Kannski vegna þess að hann eins og reyndar fleiri hefur ekki áttað sig á því að persónulegt leshringja- grín á ekkert erindi í opinbera stjórnmálaumræðu - eöa kannski vegna þess að örlög íslenskrar vinstri hreyfingar eru honum Vinsælasti smábfllinn í dag: Daihatsu Charade, er aðalvinningurinn i Happdrætti Þjóðviljans. fyrir 19.170 krónur og 4 ferðir eftir eigin vali fyrir 15 þúsund krónur hver. Miðinn í Happdrætti Þjóðviljans kostar 75 krónur og dregið verður 1. desember n.k. Eru menn hvattir til að bregðast nú skjótt við þegar þeir heyra umslögin detta inn um lúgurnar og gera upp á skrifstofu Alþýðubandalagsins, Grettisgötu 3 eða á afgreiðslu Þjóðviljans Síðu- múla 6. Jóna Sigurjónsdóttir ann- ast happdrættið að þessu sinni og hún er í síma 17500. -AI Námsstefnur á Akureyri og í Reykjavík: Viðhald og endurbætur gamalla húsa Kringum næstu mánaðamót gangast Byggingaþjónustan og Fræðslumiðstöð iðnaðarins fyrir námsstefnum um viðhald og endur- bætur gamalla húsa, og er þá fyrst og fremst átt við timburhús og járn- varin timburhús. Námsstefnurnar verða á Hótel KEA dagana 26. og 27. nóvember n.k. og í Reykjavík dagana 3. og 4. desember. Á þeim verður leitast Við að koma sem mestum og bestum upplýsingum á framfæri til byggingameistara, eigenda gamalla húsa og forráða- manna bæjar- og sveitarstjórna. í fréttatilkynningu sem Þjóðvilj- 'anum hefur borist segir að mjög færir fyrirlesarar hafi verið fengnir til þess að námsstefnurnar megi takast sem best. Tilkynningar um þátttöku skulu berast til Byggingaþjónustunnar, Hallveigarstíg 1, Reykjavík, sími: 29266 eða til Byggingaþjónustunn- ar á Akureyri í síma 96-21022. Lágmarksþátttaka á hvort nám- skeið eru 30 manns. ekki það hugar- og hjartansmál sem hann lætur. Einangrun, tœkifœrismennska og rógburður í minni grein setti ég fram þá fullyrðingu, að ’68 kynslóðin hefði sjálf kosið sér pólitíska ein- angrun. Flestir hefðu forðast alla sem ekki „aðhylltust ákveðna kreddu”, „stundað þrotlausa naflaskoðun í sellum og leshringj- um“ og stofnað ótal einangraðra og áhrifalitla „áhugamanna- hópa“. Ég vil ekki fortaka að allt þetta stúss hafi haft ýmis áhrif til hins betra í mannlífi og hugmynd- um landsmanna og átti satt að segja von á að Kristján reyndi að sýna fram á það, m.a. vegna þess að í fyrri grein sinni fullyrti hann að aðferðir sjöunda áratugarins hafi verið „réttar á þeim tíma“. Ég sagði ennfremur að fáir hefðu gengið til liðs við hagsmun- asamtök þeirrar alþýðu, sem þeir þó þóttust vera að berjast fyrir. Þessa sjálfvöldu einangrun frá venjulegu fólki tel ég veigamikla ástæðu þess hvernig komið er fyrir áðurnefndri kynslóð. Kyn- slóð sem m.a. hefur sl. áratug staðið fyrir hverju tækifæris- framboðinu af öðru. 1971 var boðið fram í nafni andstöðu við staðnað flokkakerfi, 1974 í nafni gamals Kínverja, 1974 og ’78 í nafni IV Alþjóðasambandsins, 1982 í nafni reynsluheims kvenna og næst eiga það víst að vera Margrét S. Björnsdóttir skrifar óhreinindi, þ.e. umhverfis- og mengunarmál. Algengur er í þessum hópi vægðarlaus rógur um forystu- menn íslenskrar verkalýðshreyf- ingar og á stundum finnst manni sem þar fari mun hættulegri menn en íslenskir kapítalistar. (Ó það er dýrðlegt að drottna). • Og ekki er minni hrok- inn og fyrirlitningin í garð Al- þýðuflokks og Alþýðubandalags. Allt séu þetta ólýðræðislegar, staðnaðar og borgaralegar stofn- anir sem hafi það helst að mark- miði að hlaða undir völd og veg- semdir tækifærissinnaðra for-.,- ingja á kostnað alþýðufólks.' Fussum svei, þá sé nú betra hið pólitíska hreinlífi „Sósíalismi í einu herbergi“ sem Einar Már Guðmundsson yrkir um. Þrátt fyrir að þú sért, eins og hann segir í kvæðinu. „örlítid þreyttur á frösunum á staðhœfingum þínum sem reynast ávallt réttar í ein rúmi á reyksvœldu þunglyndu fundunum örlítið þreyttur á sjálfum þér þriggja binda útgáfum af atburðum og fólki sem skilur ekki orð..." Sögulegt hlutverk ungra sósíalista Það hvarflar ekki að mér að þessi hagsmunasamtök íslenskrar alþýðu séu yfir alla gagnrýni haf- in. Og mér er fullljóst að tækifær- isframboðin gera m.a. út á syndir Alþýðubandalagsins, eins og ég reyndar benti á í Þjóðv. eftir síð- ustu borgarstjórnarkosningar. Gagnrýni er hins vegar tilgangs- lítil ef hún byggir á fordómum og hroka í stað þekkingar og sam- stöðu. íslenskir verkalýðssinnar hafa verið formlega klofnir allt frá ár- inu 1930. Það gæti t.d. verið verð- ugt sögulegt hlutverk fyrir yngri sósíalista að vinna að aukinni samvinnu þeirra og markvissari baráttu. Það verkefni krefst starfs innan samtaka íslenskrar alþýðu og baráttu gegn fordóm- um og innbyrðis sundurþykkju er þar ríkir. Tel ég að sósíalistar 'verðu kröftum sínum betur með þeim hætti, í stað þess að vera bara róttækir úti í bæ, sjálfum sér til ófullnægju, afturhaldinu til ánægju, en hagsmunum alþýðu- fólks síst til framdráttar. Margrét S. Björnsdóttir er þjóðfélagsfræðingur að mennt, menntaðistf V-Þýskalandi. Hún er kennari við fjölbrautaskóla. Margrét cr virkur félagsmaður í Alþýðubandalaginu. Hún hefur skrifað greinar áður í Þjóðviljann.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.