Þjóðviljinn - 18.11.1982, Qupperneq 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN ' Fimmtudagur 18. nóvember 1982
am
atikaduti
Vil selja nýlegt hjónarúm (álm-
ur) meö dýnum og lítinn ísskáp
- en kaupa eða fá í skiptum
breiðan svefnbekk með rúmfat-
ageymslu og ryksugu. Hringið í
síma 31598.
Til sölu 15 ára gamall ísskápur
af gerðinni Atlas Crystal King.
Kostar aðeins 500 krónur. Upp-
lýsingar í síma 79966 á kvöldin
og um helgina.
Frá froskinum: Hvítur hestur
óskast strax! Má breytast í
prinsessu við fyrsta koss eða
helst alltaf þegar ekki þarf að
nota hann til reiðar, þar sem ég
á ekki hestahús, bara reiðtygi.
Upplýs. í síma 31598.
Ódýr en gamall ísskápur til
sölu. Upplýsingar í síma 36226.
Ódýrt. Bing & Gröndal bollar
meö diskum og sykursett, selst
ódýrt. Einnig reiknivél. Uppl í
síma 15000.
Geri upp gamlar bækur. Hall-
dór Þorsteinsson. Sími 33526.
Allsérstætt rúm til sölu ca 1,20
m á breidd og 1,50 á hæð með
skrifborði undir og hillum í kring.
Gottþarsemplásserlítið. Uppl.
3 í síma 31197.
Efnisskrá. Get tekið að mér að
gera efnisskrá yfir tímarit. Upp-
lýsingar í síma 53840.
Citröen GS Club árgerð 1974
ekinn 85 þús. km. Verð 30 þús.
Upplýsingar í síma 28256.
Trabant. Óska eftir að kaupa
gamlan gangfæran og ódýran
Trabant. Upplýsingar í síma
19848.
Á ekki einhver gamla komm-
óðu til að selja mér. Uppl. í
síma 74304.
Til sölu gömul Viku blöð. Ekki
heilir árgangar. Mjög ódýrt.
Sími 41648.
Heimasmíðaðurfurusófi með
dýnu og púðum frá Pétri Snæ-
land til sölu. Ódýrt. Sími 29396.
Peis til sölu. Til sölu notaður
oturpels. Efnismikil flík tilvalin til
breyiinga. Sími 79966.
Geymsluhúsnæði. Til leigu
rúmgott upphitað geymsluher-
bergi með sér inngangi. Upp-
lýsingar í síma 41039 eftir kl. 17
í dag og næstu daga.
Kerruvagn. 3ja ára vel með
farinn kerruvagn til sölu. Upp-
lýsingar í síma 23089.
Óska eftir ódýrri ritvél helst
rafmagnsritvél. Upplýsingar í
síma 25763.
Skrifstofuhúsnæði óskast
helst miðsvæðis. Uppl. í síma
25763
Bráðvantar stóra kommóðu
4-6 skúffur. Uppl. í síma 41039.
Óska eftir atvinnu eftir hádegi.
Margt kemur til greina. Uppl. í
síma 19172.
Atvinna óskast Ýmislegt kem-
ur til greina. Tala og skrifa
Norðurlandamálin og ensku.
Uppl. í síma 41831.
Til sölu gamlir pottofnar og
WC. Uppl. í síma 14110.
Tveir dúkkuvagnar óskast
Uppl. í síma 78411.
Útidyrahurð í karmi meö
hliðarglugga. Volvo Penta
utanborösmótorar. Einnig Wil-
lys jeppablæjur og gluggar eru
til sölu. Sími 41153.
ísskápur til sölu. Uppl. í síma
39857 eftir kl. 19.
4 negld snjódekk til sölu á BW
300 línuna. Upplýsingar í síma
73666.
Lítið notuð Cany uppþvottavél
til sölu. Sanngjarnt verð. Upp-
lýsingar í síma 51995.
Tek að mér mótafráslátt og
hreinsa mótatimbur í ákvæðis-
vinnu. Geri tilboð. Upplýsingar
í síma 15438.
Vél í Wolkswagen (bjöllu) ósk-
ast. Upplýsingar í síma 75322 á
kvöldin. Óska eftir að kaupa
fururúm ca 1.40 x 1.90 m. Upp-
lýsingar í síma 37413.
Til sölu ný AEG-eldavél með
blástursofni (notar 380 volta
straum), eldri Indizit-
uppþvottavél, vatnsrúm
(Oueen-size), nokkrar FUJI-II
segulbandsspólur og ein
Betamax-videospóla. Upplýs-i
ingar í síma 32296.
Rauður Austin Mini 75 til
sölu, þarfnast bremsu-
viðgerðar. Til mála kæmi að
taka eitthvað af eftirfarandi upp
í kaupin: Litasjónvarp, mynd-
segulband (VHS), ísskáp, 8mm
Super-kvikmyndasýningavél,
skíðagræjur, riffil eða hagla-
byssa. Upplýsingar í síma
12253.
Hreinlætistæki óskast ódýr.
Upplýs. í síma 31197.
Stólar, lampar, símaborð o.fl.
til sölu. Upplýsingar i síma
35742.
Sófasetttil sölu. Hornsófi 7 ein-
ingar. Uppl. í síma 45375.
Okkur vantar 2ja-3ja herb.
íbúð strax. Erum tvö og eitt á
leiðinni. Uppl. í síma 32752 á
kvöldin.
Saumavél óskast. Vel með
farin og helst ekki mjög öldruð.
Uppl. í síma 53627 á kvöldin.
Efnisskrá. Get tekið aö mér að
gera efnisskrá yfir tímarit. Upp-
lýsingar í síma 53840 eftir kl.
18.
Hreinlætistæki óskast (ódýr).
Uppl. í síma 31197.
Til sölu eru 4 vetrardekk á felg-
um og auk þess 4 sumardekk,
undan Fíat 850. Upplýsingar í
síma 45014.
Megininntakið er hjáip til sjálfshjálpar og alger þagnarskylda. Frá
fræðsiunámskeiðinu. Ljósm. -eik.
Opnum athvarf
fyrir áramótin
— segir Anna Magnea Hreinsdóttir
Við höfum stefnt að því frá upphafi aðopnakvenna-
athvarf fyrir áramótin og vonum að það takist. Við
höfum augastað á þremur íbúðum hér á Stór-
Reykjavíkursvæðinu og ætlum að leigja þær fram á
vorið, en flytja síðan í eigið húsnæði fyrir mitt næsta
ár, sagði Anna Magnea Hreinsdóttir, fulltrúi í fram-
kvæmdanefnd Samtaka um kvennaathvarf í samtali
við Þjóðviljann.
Undanfarin kvöld hafa 13 kon-
ur setið á sérstöku fræðslunám-
skeiði á vegum samtakanna, sem
ætlað er til undirbúnings starfi á
athvarfinu. Að sögn Önnu Magn-
eu er það skilyrði fyrir að geta
tekið vaktir á athvarfinu að hafa
sótt slíkt námskeið, en þetta var
aðeins fyrri hluti þess. Síðari
hlutinn verður þegar nokkur
reynsla er fengin af rekstri at-
hvarfsins, sagði Anna Magnea.
Á námskeiðinu var m.a. fjallað
um hugmyndafræðilegan grund-
völl og innra starf athvarfsins, um
réttarstöðu kvenna, löggjöf og
skilnaðarferli nauðganir skyndi-
hjálp áföll eða lost og samtals-
tækni. Leiðbeinendur voru Anne
Berit Mörch, Guðrún Jónsdóttir,
Ásdís J. Rafnar, Sigurveig Pét-
ursdóttir og Sigrún Júlíusdóttir.
Kvennaathvarfið er ætlað sem
skjól fyrir konur sem flýja þurfa
heimili sín undan ofbeldi og hefur
undirbúningur tekið mið af
rekstri slíkra athvarfa í nágranna-
löndum okkar. Anna Magnea
sagði að sérfræðimenntun væri
ekki skilyrði fyrir starfi á athvarf-
inu, það væri ekki hugsað sem
meðferðarheimili. Þær konur
sem þar starfa eru til að benda á
úrræði og veita hjálp til sjálfs-
hjálpar, sagði hún. Það verður
enginn sem leggur konur þar inn
eða skrifar þær út, þær geta leitað
þangað þegar þær þurfa á því að
halda, kynnst konum sem eru í
svipaðri aðstöðu og hugsað sín
mál. Megininntakið er hjálp til
sjálfshjálpar og alger þagnar-
skylda allra sem í hlut eiga.
- En hvernig á að fjármagna
þessa starfsemi?
- Fjárhagurinn er ekkert of
góður, sagði Anna. Við eigum
núna um 75 þúsund krónur, sem
allt eru styrkir frá einstaklingum
og nokkrum félagasamtökum.
Við höfum óskað eftir fjár-
stuðningi frá sveitarfélögunum
hér í kring og frá ríkinu og á fjár-
lagafrumvarpi fyrir næsta ár er
gert ráð fyrir 600 þúsund króna
framlagi til athvarfsins. Þá pen-
inga og framlög sem við væntum
frá sveitarfélögunum munum við
nota til þess að kaupa húsnæði á
næsta ári, en reksturinn sjálfan
verðum við að fjármagna af
frjálsum framlögum félaga,
stofnana og einstaklinga.
Á næstu dögum og vikum
munu.samtökin leita til fyrirtækja
á Stór-Reykjavíkursvæðinu eftir
stuðningi við að búa athvarfið
nauðsynlegum húsgögnum og
búnaði. Við vonum að okkur
verði vel tekið, sagði Anna
Magnea, því ef við ættum að
kaupa allan búnað fullu verði
yrðu peningarnir fljótir að fara.
Aðalfundur Samtaka um
kvennaathvarf verður haldinn
27. nóvember n.k. Þar verður að
sögn Önnu gerð grein fyrir starf-
seminni frá stofnfundinum 2 júní
sl. og teknar ákvarðanir um fram-
tíðina. Þá er stefnt að því að
halda opinn fund í byrjun desem-
ber til að vekja athygli á baráttu-
máli samtakanna. Skrifstofa
þeirra er að Gnoðarvogi 44—46 og
er opin kl. 13-15 virka daga.
Síminn er 31575, og ekki gleyma
póstgírónúmerinu, sagði Anna
Magnea, þar er 44442-1.
Réttarstaða kvenna, löggjöf og skilnaðarferii var meðal þess sem fræðslunámskeiðið tók til.
Ljósm. -eik.