Þjóðviljinn - 18.11.1982, Síða 9

Þjóðviljinn - 18.11.1982, Síða 9
Fimmtudagur 18. nóvember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Deilu- mál rædd í Moskvu Huang Hua, utanríkisráð- herra Kína, og Andrej Grom- iko utanríkisráðherra Sovét- ríkjanna áttu með sér einnar og hálfrar stundar fund I Moskvu í fyrradag eftir að útför Bresj- nevs hafði farið fram. Hafa jafn háttsettir embættismenn ríkjanna tveggja ekki átt við- ræður síðan þeir Kosygin og Chou En-lai hittust á flugvell- inum í Peking 1969. Markar fundurinn tímamót í bættri sambúð ríkjanna, og var ákveðið að halda viðræðum áfram á næstunni. Kínverjar hafa sem kunn- ugt er sett fram þrjú megin- skilyrði fyrir bættri sambúð: lausn á landamæradeilunni, Afghanistanmálinu og Kam- pútseu. Haft var eftir Deng Tsjaoping í síðustu viku að Kínverjar myndu halda viðræðum áfram ef Sovét- menn gripu til raunhæfra aðgerða í einu þessara mála. Talið er að auðveldast verði fyrir ríkin að semja um fækk- un herliðs á landamærum ríkj- anna. Andropov: Mun hann reyna að linna leið út úr Afghan- istan? Þá er ekki talið ólíklegt að Andropov vilji leita lausnar á Afghanistanmálinu. Hann átti 40 mínútna fund með Zia Ul-Haq, forseta Pakistans eftir jarðarförina, þar sem Afghanistanmálið var á dag- skrá. Þá átti hann einnig við- ræður við Karmal forseta Afg- hanistan og Indiru Gandhi, þar sem sama mál var á dag- skrá. Fréttaskýrendur segja það áberandi að sovéskir fjölmiðlar hafi ekki minnst á Karmal í frásögum af jarðar- förinni, og er talið að þeir hafi ekki viljað styggja Kínverja með því að hampa honum. Sovétmenn hafa nú yfir 100 þúsund hermenn í Afghanist- an að því er talið er, og hafa þeir skýrt nærveru sína með „erlendri íhlutun“ frá Pakist- an. í reynd þýðir þetta að So- vétmenn krefjast viðurkenn- ingar á stjórn Karmals af* hálfu Pakistans og Vestur- veldanna. Hvort Andropov hefur slakað á þeirri kröfu er óljóst, en hins vegar er talið að hann muni leitast við að finna pólitíska lausn á málinu. Andropov átti einnig fund með George Bush og George Schultz utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og þeir áttu einnig viðrasður við Huang Hua og Zia Ul-Haq, þar sem Afghanistan-málið hefur efa- laust verið á dagskrá. George Bush varaforseti Bandaríkj- anna sagði fyrir brottförina frá Moskvu að vandamálin í samskiptum landanna væru erfið, en ekki óleysanleg. -ólg Jarðarför Leonid Bresjnevs var sjónvarpað í beinni útsendingu um stóran hluta hcimsins. í V-Evrópu voru það bara ísland, Spánn, Grikkland og Tyrkland, sem ekki höfðu pantað útsendingarrétt. Uppruni mannsins Fjórar bandarískar sjónvarps- stöðvar sendu út beint frá athöfn- inni. Að frátalinni heimsmeistarakeppn- inni í knattspyrnu og olympíu- leikjunum er þetta talin hafa verið með viðameiri sjónvarpsútsend- ingum, og hafa ekki færri séð hana en brúðkaup Karls og Díönu í fyrra, að því er talið er. A myndinni sjáum við lík Bresjnevs borið til grafar. Lengst t.v. er Tichonov forsætisráðherra, þá eftirmaður Bresjnevs, Júrí Andropov. Á eftir honum kemur Konstantin Tjer- enko og lengst til hægri sést í And- rej Gromyko utanríkisráðherra. Nýir fomleifafundir í Kenya Þeir eru trúlega margir, sem hafa fylgst með hinum stórfróðlegu þáttum forsögufræðingsins og mannfræðingsins Richard Leakey um uppruna og þróun mannsins í sjónvarpinu undanfarnar vikur. Leakey, sem er Keneyabúi og forstöðumaður þjóðminjasafnsins í Kenya, kynnti nýlegaá blaðamannafundi í Nairobi nýjan fornleifafund, sem hann telur að eigi eftir að varpa nýju Ijósi á uppruna mannsins. Hér er um að ræða 22 kjálkabrot úr veru, sem lifað hefur fyrir 15 miljón árum síðan og verið lík manni í útliti. Það var nánasti samstarfsmaður Leakeys sem fann beinin í „Stóra sprungudal" í Kenya, en hann tók þátt í rannsóknarleiðangri undir stjórn japansks mannfræðiprófess- ors. Fundust beinin hinn 15. októ- ber síðastliðinn í Samburufjöllun- um um 40 km. fyrir norðan Na- irobi. Það sem gerir fund þennan mikilvægan, sagði Leakey, er að hann mun gera vísindamönnum kleift að finna Kenyapithecus endanlegan stað í þrónunarsög- unni. Kenyapithecus er apategund með mannsmynd, sem talin er hafa lifað við Viktoríuvatn í Kenya fyrir um það bil 14 miljón árum. Það var faðir Leakeys, sem einnig var for- sögufræðingur, er gaf apategund þessari nafn eftir fornleifafund frá 1961. Sérfræðingar telja að þessi forn- leifafundur stafi frá sameiginlegum forföður apa og manna, en á þess- um tíma er ekki talið að þróunar- leiðir þeirra hafi verið orðnar að- skildar. Fyrir fáum árum var það al- mennt álitið, að mannapinn Ram- apithecus hafi verið síðasti sam- eiginlegur forfaðir apa og manna, en hann og náskyldar tegundir hafa fundist í Asíu, Evrópu og Afríku og hefur hann lifað á tímabilinu frá 8-15 miljón árum síðan. Flestir fornleifafundir af Ramapithecus hafa fundist í Pakistan, en einnig í Kína, Tyrklandi og A-Afríku. Þegar Louis Leakey, faðir Ric- hards, fann steingervingana í Austur-Afríku fyrir rúmum 20 árum síðan og skírði þá Kenyapit- hecus til aðgreiningar frá fyrri fundum vakti það deilur meðal fræðimanna. Þeir drógu í efa að um sérstaka tegund væri að ræða. Ramapithecus og sú undirtegund hans, sem kölluð hefur verið Sivap- ithecus voru smávaxnir apar er lifðu fyrir 10-20 miljónum árasíðan og hafa verið taldir forfeður orang- útanapans. Það vakti mikla athygli þegar bandarískur prófessor frá Harvard lýsti því yfir í byrjun þessa árs, að hann hefði fundið 8 miljón ára gamlar leifar af Sivapithecusi í Pakistan. Það þýddi að ættkvíslir manna og apa hefðu ekki greinst í sundur fyrr en eftir þann tíma, sagði prófessorinn. Sú niðurstaða er reyndar sögð í samræmi við nið- urstöður rannsókna erfðafræðinga á genum manna og sjimpans-apa, en þær niðurstöður hafa bent til þess að greiningin hafi byrjað fyrir 5 miljón árum en ekki 15 eins og áður hafði verið haldið. Richard Leakey hefur stutt niðurstöður hins bandaríska prófessors, og hann segir að hinn nýi fundur í Lois Leakey með fyrsta kjálkann af Kenyaphitecus fyrir 20 árum síðan. Kenya muni geta leitt í ljós, hvort Kenyapithecus hafi verið eins kon- ar órangútanapi er gekk á fjórum fótum, eða áður óþekktur forfaðir mannsins er gekk á tveim fótum, eða hvort hér sé um áður óþekkta veru að ræða. Leakey segir að rannsóknar- svæðið í Samburuföjllunum í Ken- ya, sem er eldfjallasvæði, sé ríkara af forsögulegum minjum um for- feður mannsins en nokkur annar þekktur staður á jörðinni, og er hann nú að safna fé til frekari rann- sókna, á meðan nánari rannsóknir fara fram á hinum nýfundnu steingervingum. Apamaðurinn frá Java, sem lifði fyrir 1/2 miljón árum síðan - málverk. Það var í Samburufjöllunum í Kenya sem Richard Leakey og samstarf: menn hans fundu steingervinga af Kcnya-mannapanum í síðasta mánuð Aður hafði Leakey gert merka fundi í Koobi Fora.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.