Þjóðviljinn - 18.11.1982, Side 11
Fimmtudagur 18. nóvember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SíÐA 11
Fashanu
má ekki
æfa með
Forest!
Brian Clough, framkvæmda-
stjóri enska knattspyrnuliðsins
Nottingham Forest, hefur bannað
miðherjanum svarta, Justin Fas-
hanu, að æfa með liðinu. Fashanu,
sem er ættaður frá Nígeríu en
leikur með enska landsliðinu undir
21 árs, má ekki einu sinni stíga fæti
sínum inn fyrir dyr á City Ground,
heimavelli Forest.
Ástæðan er talin sú að Fashanu,
sem hefur að undanförnu verið í
láni hjá Southampton og staðið sig
vel þar, neitaði að fara sem láns-
maður til 2. deildarliðsins Derby
County. Framkvæmdastjóri þar er
gamall félagi Clough, Peter Ta-
ylor.
„Þetta er fáránlegt. Það eina sem
ég vil er að berjast fyrir sæti mínu í
aðalliði Forest. Að vera á sífelldum
þeytingi milli félaga sem láns-
maður hjálpar manni ekki til að ná
Justin Fashanu
sér á strik. Clough vill greinilega
losna við mig,“ segir Fashanu
sjálfur.
- Sebastian Coe, hlauparinn
frægi, er orðinn varaformaður 2.
deildarliðs Fulham.
- Craig Johnston, sem er á sölu-
lista hjá Liverpool og vill komast
frá félaginu, hefur lýst því yfir að
hann vilji ekki fara til WBÁ. sem
hafði mikinn áhuga á að kaupa
hann, -VS
Sedov er farínn
Sá nýi kemur 15. janúar
Youri Sedov, þjálfari 1.
deildarliðs Víkinga í knattspyrnu
s.l. þrjú ár, fór af landi brott í fyrra-
dag og kemur ekki hingað aftur. í
stað hans kemur annar Sovét-
maður og hefur hann störf 15. jan-
úar. Ekki þorðu Víkingar að ábyrgj-
ast nafn hans í gær en hann mun
vera um fertugt, hafa verið
leikmaður með sovéska lands-
liðinu í mörg ár, og aðstoðarmaður
Beskov, landsliðseinvalds Sovét-
manna. Sedov ber þessum nýja
þjálfara, sem kemur frá Spartak
Moskva, vel söguna.
-VS
Léttir sigrar ÍS
ÍS vann fremur létta sigra á Vík-
ingi í 1. deild karla og kvenna í
blaki í fyrrakvöld. í karlaflokki
vann ÍS 3-0 (15-6, 15-10 og 15-5) og
cinnig 3-0 í kvennaflokki (15-6, 15-
1 og 15-10). Þá léku Fram og
Breiðablik í 2. deild karla og þar
sigruðu Framarar 3-0 (19-17, 15-9
og 15-7).
íslandsmótið innanhúss
íslandsmótið í innanhússknatt- ingar þurfa að berast skrifstofu
spyrnu kvenna verður haldið K.S.Í. fyrir 22. desember n.k.
laugardaginn 15. janúar 1983 í Þátttökugjald er kr. 500.00
Laugardalshöll. Þátttökutilkynn-
Fjögur fara héöan
á Norðurlandamót
ísland á fjóra keppendur á
Norðurlandamótinu í badminton
sem haldið verður í Kaupmanna-
höfn um næstu helgi. Þeir eru
Broddi Kristjánsson, Kristín
Magnúsdóttir og Þórdís Edwald,
TBR og Víðir Bragason, ÍA.
Meðal dönsku og sænsku kepp-
endanna er margt af fremsta bad-
mintonfólki Evrópu, svo sem
Morten Frost, Lena Köppen og
Jens Peter Nierhoff frá Danmörku,
Stefan Karlsson og Thomas Kihl-
ström frá Svíþjóð.
I 1. umferð keppninnar leikur
Broddi við Finnann Thomas West-
erholm í einliðaleik, Víðir við Sví-
ann Ulf Johansson, Kristín við
Lenu Axelsson frá Svíþjóð og Þór-
dís mætir einnig sænskri stúlku,
Annette Börjesson.
Liðið heldur utan á föstudag og
er væntanlegt heim á mánudag.
Ásamt keppendum verða í förinni
Rafn Viggósson formaður BSÍ og
Bjarni Lúðvíksson sem sitja munu
þing Badmintonsambands Norður-
lands, svo og Hrólfur Jónsson sem
fer utan sem dómari, en venja er að
hvert land sendi einn dómara á
mótið.
Kristín Magnúsdóttir verður
meðal keppenda á Norðurlanda-
mótinu í badminton um helgina.
Umsjón:
Víöir Sigurðsson
Evrópukeppni landsliða í knattspjmu:
7
N.Irar slgruðu
V.Þjóðverjana!
Norður-írland heldur áfram að
koma á óvart á alþjóðlegum vett-
vangi í knattspyrnu. 1 gærkvöldi
léku Norður-Irar við Evrópu-
mcistarana og silfurliðið úr
heimsmeistarakeppninni í sumar,
Vestur-Þjóðverja, í Belfast.
Norður-Irar sigruðu 1-0 með
marki QPR-leikmannsins Ian
Stewart á 17. mínútu en lengi vel
leit út fyrir að hann gæti ekki leikið
með vegna meiðsla. Leikurinn var
liður í Evrópukeppni landsliða.
Annar leikur var í 6. riðli í gær.
Austurríkismenn unnu Tyrki létt í
Vín, 4-0. Toni Polster, Bruno
Pezzey, Herbert Prohaska og
Walter Schachner skoruðu
mörkin.
Staðan í 6. riðli:
Austurríki..........3 3 0 0 11-0 6
N.írland............2 10 1 1-2 2
Tyrkland............2 10 1 1-4 2
V.Pýskaland.........1 0 0 1 0-10
Albanía.............2 0 0 2 0-6 0
Englendingar afar
sannfærandi
Englendingar tóku forystuna í 3.
riðli í gær er þeir sigruðu Grikki
sannfærandi, 3-0, í Saloniki. Fyrsti
sigur Englands undir stjórn hins
nýja landsliðseinvalds, Bobby Rob-
son, og Grikkir, sem vanalega eru
afar erfiðir heim að sækja, ógnuðu
sigrinum ekki að marki.
Það voru aðeins liðnar 80 sek-
úndur þegar England skoraði
Zico valinn bestur
Penarol
Penarol frá Uruguay er kom-
ið í úrslit Copa de Libertadores,
sem er meistarakeppni félagas -
liðaí Suður-Ameríku og jafn-
gildir Evrópukeppni meistara-
liða í knattspyrnu. í úrslitaleik
mætir Penarol Cobreloa frá
Chile.
Penarol lér í fyrrakvöld við
Zico og félaga úr Flamengo frá
Brasilíu sem vann þessa keppni
í fyrra. Fyrri lciknum í Urugu-
ay lauk með eins marks sigri
Penarol og liðið gerði sér lítið
fyrir og vann leikinn í Río 1-0.
Sigurvegarinn í keppninni
mætir Aston Villa, Evrópu-
meisturunum, í úrslitaleik
heimsmeistarakcppni félagsliða
í desembcr. Fyrir leikinn í
fyrrakvöld var Zico útnefndur
knattspyrnumaður ársins í
Suður-Ameríku fyrir árið
1981. -VS
Woodcock skoraði tvö.
fyrsta markið. Upp úr aukaspyrnu
Bryan Robson, sem var nú fyrirliði
liðsins í fyrsta skipti, skallaði
Kenny Sansom innfyrir grísku
vörnina á Tony Woodcock sem
skoraði af stuttu færi.
Annað markið kom eftir 63 mín-
útur. Markvörður Grikkja spyrnti
frá marki sínu inn á miðjan vallar-
helming Englands. Alvin Martin
sendi viðstöðulaust til baka yfir
flata gríska vörn, Tony Woodcock
komst einn í gegn og lyfti yfir mar-
kvörðinn, 2-0. Þá var komið að ný-
liðanum Sammy Lee sem þarna lék
sinn fyrsta landsleik. Hann fékk
knöttinn á vítateigslínu Grikkja
eftir aukaspyrnu Robsons og eftir
hörkuskot hans breytti knötturinn
stefnu af varnarmanni, og mark-
vörður Grikkja átti ekki möguleika
á að verja, 3-0.
Staðan í 3. riðli
England..........
Danmork..........
Grikkland........
Luxemburg........
Ungverjaland.....
Stapleton bjargaði
heiðri íra
Það leit ekki vel út hjá írum í 7.
riðlinum, riðli íslands, er þeir léku
við Spánverja í Dublin. Eftir
klukkustundar leik stóð 1-3 fyrir
Spán en þá tók Frank Stapleton til
sinna ráða. Tvö skallamörk hans
með tíu mínútna millibili tryggðu
írum jafntefli, 3-3.
írar byrjuðu þó vel, Ashley
Grimes skoraði strax eftir 90 sek-
úndur, 1-0. Maceda jafnaði fyrir
hlé og sjálfsmark Mick Martin og
gott mark frá Victor komu Spán-
verjum í 1-3 áður en Stapleton
skoraði sín tvö mörk. Hann hefur
nú skorað jafnmörg mörk í 7. riðli,
þrjú í þremur leikjum, og í 14 1.
deildarleikjum með Manchester
United á þessu keppnistímabili!
Staðan í 7. riðli:
írland..........3 1116-53
Spánn...........2 110 4-33
Swansea
tapaði
3. deildarlið Brentford vann
afar óvæntan sigur á 1.
deildarliði Swansea, 2-1, í
enska deildarbikarnum í knatt-
spyrnu í gærkvöldi. Leikið var
á heimavelli Swansea, Vetch Fi-
eld, en Brentford mætir Nott-
ingham Forest á útivelli í 4. um-
ferð. Þetta var aukaleikur en
liðin höfðu skilið jöfn í London,
1-1. -VS
Holland...................2 110 3-23
Malta.....................1 1 0 0 2-1 2
Island....................4 0 1 3 2-6 0
Slakt í Sofia
Lélegur leikur í Sofia í Búlgaríu
þar sem Júgóslavar náðu tveimur
dýrmætum stigum í 4. riðli. Júgó-
slavar sigruðu 1-0 með marki Stoj-
kovic í fyrri hálfleik.
Staðan í 4. riðli:
Noregur..............3 1115-43
Wales................1 10 0 1-02
Júgóslavfa...........2 10 12-32
Búlgaria.............2 0 112-31
Skotar lágu í Bern
Skotar riðu ekki feitum hesti frá
Bern en þar mættu þeir Svisslend-
ingum í drullusvaði og snjókomu í
1. riðli. Sviss sigraði sanngjarnt,
2-0, og sýndi sigurinn á heims-
meisturum ítala í Róm á dögunum
var engin tilviljun.
Fyrri hálfleikur var fjörugur og
vel leikinn af beggja hálfu en eftir
að Claudio Sulser hafði komið
Svislendingum yfir á 4. mínútu síð-
ari hálfleiksins var aldrei spurning
um sigurvegara. Tíu mínútum síðar
bætti Andre Egli öðru marki við og
Skotar voru búnir að vera. Aðeins
markvarsla Jim Leighton frá Aber-
deen bjargaði þeim frá stærra tapi.
Staðan í 1. riðli:
Belgía...............1 1 0 0 3-0 2
Skotland.............2 10 12-22
Sviss................2 10 12-32
A.Þýskaland..........1 0 0 1 0-2 0
-VS.
Keegan frá í mánuð
Keegan á
sjúkrahús
Kevin Keegan, fyrrum fyrir-
liði enska landsliðsins í knatt-
spyrnu, liggur nú á sjúkrahúsi
meiddur á auga eftir ágóðaleik
sem lið hans, Newcastle, lék í
Middlesborough í fyrrakvöld.
Leikurinn var til styrktar John
Craggs, sem um árabil hefur
verið bakvörður hjá Middles-
boro en hóf feril sinn hjá New-
castle.
Keegan verður frá í mánuð
og fær ekki að yfirgefa sjúkra-
húsið fyrr en á sunnudag.
- Aðrar fréttir frá Englandi
eru þær að 4. deildarliðið Tran-
mere Rovers, sem fyrir nokkr-
um áruin var nokkurs konar
útibú frá Liverpool, er gjald-
þrota. Grípi fjársterkir aðilar
ekki inní málið, hættir félagið í
deildakeppninni þann 27. nó-
vember en það situr nú á botni
4. deildar. Hjá Tranmere hóf
enski landsliðsmaðurinn, Steve
Coppell, feril sinn.
2 110 5-23
2 110 4-33
2 10 12-32
2 0 0 2 1-4 0
0 0 0 0 0-0 0