Þjóðviljinn - 18.11.1982, Blaðsíða 12
12 SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 18. nóvember 1082
Frá Skjaldborg:
Þrjár íslenskar bamabækur
Skjaldborg á Akureyri hefur gef-
ið út þrjár nýjar íslenskar barna-
og unglingabækur eftir Guðjón
Sveinsson, Indriða Úlfsson og Mar-
inó L. Stefánsson.
Bók Guðjóns Sveinssonar heitir
Ævintýrið við alheimsstjörnuna,
ÍNDRIO! ÚLFSSON
RFI
„TnmnGUR
og er þetta tólfta bók höfundarins.
Þetta er saga um líf fuglanna og
þeirra baráttu um völdin, sem mun
væntanlega eiga sér ýmsar hlið-
stæður í mannheimum. Sigrún Eld-
járn hefur myndskreytt bókina.
Afi táningur heitir fimmtánda
bók Indriða Úlfssonar. Hún segir
frá afa einum sem á sér sumarbú-
stað á eyðibýli þar sem hann var
fæddur og upp alinn. í sögunni er
hann við það þarfa verk að brúa
kynslóðabilið; hjá honum dveljast
barnabörn hans tvö og fá nú að
heyra þegar afi var „táningur" á
árum stríðs og hernáms.
Manni litli í Sólhlíð heitir bók
Marinós L. Stefánssonar kennara.
Þessi saga hefur tvívegis verið lesin'
í morgunbarnatíma útvarpsins.
Hún segir frá hversdagsleika og til-
dragelsum í lífi sveitadrengs allt
þar til hann er fjórtán ára.
Ein þýdd barnabók kemur út hjá
Skjaldborg, tólfta bókin í Kátufl-
okknum og heitir „Káta í frum-
skóginum“. Káta er komin til Af-
ríku og eignast þar ýmsa vini, m.a.
mungódýr sem verndar hana fyrir
eiturslöngum.
ALÞVÐUBANDALAGID
Alþýðubandalagið í Neshreppi Hellissandi
Aðalfundur í Röst, fimmtudaginn 18. nóvember kl. 21.00. Dagskrá:
ljlnntaka nýrra félaga, 2)kosning stjórnar, 3)kosning fulltrúa á flokks-
ráðsfund, 4)önnur mál. - Stjórnin
Fundir Æskulýðsnefndar Alþýðubandalagsins
Meginstarf Æskulýðsnefndar Alþýðubandalagsins mun í vetur fara fram á
vettvangi opinna starfshópa. Ýmis verkefni liggja nú fyrir hópunum, en að
öðru leyti verða þeir mjög sjálfstæðir um val viðfangsefna sinna.
Fyrstu fundir hópanna verða sem hér segir:
Þriðjudagur 16. nóv.Menntamálanefnd - Félagsmálanefnd
Miðvikudagur 17. nóv. Verkalýðsnefnd
Fimmtudagur 18. nóv. Fræðslu- og útgáfunefnd
Aliir fundirpir verða að Grettisgötu 3 og hefjast kl. 20.30
Munið: Æskulýðsstarf Ab. er opið öllum ungum sósíalistum, flokksaðild
er ekki skilyrði.
Æskulýðsnefnd Ab.
Hver 1
Hverjum er þín 1
bjargar ama Uml afsökun jf* 1
Það gm. næst •
||XER0AR 1
Auglýsið í
Þjóðviljanum
Blikkiðjan
Asgaröi 7, Garöabæ
Önnumst þakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verötilboö
SÍMI53468
Starf
vigtarmanns
hjá Reykjavíkurhöfn er laust til umsóknar.
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 1. des-
ember n.k.
Reykjavík, 17. nóvember 1982,
Hafnarstjórinn í Reykjavík
Minninga-
bók Skúla á
Ljótuimar
stððum
Út er komin hjá Skuggsjá minn-
ingabók Skúla Guðjónssonar á
Ljótunnarstöðum, sem hann hefur
gefið nafnið Hver liðin stund er lögð
í sjóð. Skúli á Ljótunnarstöðum er
fyrir löngu þjóðkunnur fyrir erindi
sín í útvarpi, greinar sínar í blöðum
og tímaritum og þá ekki síst fyrir
bækur sínar.
Skúli segir m.a. frá kennslukonu
sinni sem var „elskan hans Þór-
bergs“, frá veru sinni í Samvinnu-
skólanum, frá pólitískum átökum
kenndum við Borðeyri og Finna-
galdur.
Þetta er sjötta bók Skúla
Guðjónssonar, sem hefur fyrir
löngu getið sér gott orð sem ágætur
höfundur og stflisti. Skuggsjá gefur
út.
Dyflinar-
sögur James
Joyce
MÁL OG MENNING hefur sent
frá sér í íslenskri þýðingu Sigurðar
A. Magnússonar smásagnasafnið
Dubliners eftir James Joyce og er
titill bókarinnar á íslensku / Dyfl-
inni. Er þetta í fyrsta sinn sem verk
eftir James Joyce birtist í íslenskri
þýðingu, og er útgáfunni ætlað að
vera virðingarvottur við höfundinn
á aldarafmæii hans, um leið og ís-
lenskum lesendum gefst kostur á að
kynnast þessum öndvegishöfundi.
Á bókarkápu segir m.a.:
„Smásagnasafnið I Dyflinni er
æskuverk James Joyce (1882-1941)
sem hann samdi rúmlega tvítugur.
Þessar sögur jafnast auðvitað ekki
á við hin stóru skáldverk hans, Ul-
ysses og Finnegans Wake, en þær
eru miklum mun aðgengilegri og
geta að ýmsu leyti talist lykill að
skáldskaparheimi þessa írska rit-
snillings“...
í safninu er fimmtán smásögur
og ritar þýðandinn, Sigurður A.
Magnússon, inngang.
Ási í Bæ
rænir Seðla-
bankann
Þjófur í Seðlabanka nefnist bæk-
lingur eftir Ása í Bæ sem Bæjarút-
gáfan hefur gefið út.
Þar stiklar höfundur á stóru í sjó-
mennskusögu sinni með viðkomu í
ýmsum stfltegundum og menning-
arsviðum. En aðalefnið er saga af
viðureign Ása við Seðlabankann,
erindreka hans og talsmenn, út af
bát einum litlum sem fór undir
hamarinn fyrir margt löngu og stóð
mjög lengi á svörum um það, hvað
hefði um andvirðið orðið. Koma
þar við sögu ýmsir nafnkenndir
menn og þjóðfrægir.
Stofnfundur sögu-
félags Mosfellfnga
Sögufélag Mosfellssveitar verð-
ur stofnað í dag, fimmtudaginn 18.
nóvember kl. 20.30, í samkomusal
Varmárskóla. Séra Bjarni Sigurðs-
son frá Mosfelli mun á stofnfundin-
um flytja erindi sem hann nefnir
„Um gamla legsteina í Mosfells-
kirkjugarði“.
Hlutverk sögufélagsins á m.a. að
vera að efla áhuga almennings og
ráðamanna á hverskonar
varðveislu sögulegs fróðleiks,
stuðla að því að sveitarfélagið
eignist byggðasafn og héraðs-
skjalasafn og stuðla að fræðslu um
sögu Mosfellssveitar.
ri i ái i »i 1*11111 iTm! - K—-ff^
nH u
Sjúkraliðar
Sjúkraliöa vantar til starfa nú þegar á ýmsar
deildir spítalans.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu hjúkrun-
arframkvæmdastjóra, sími 81200.
Reykjavík, 16. nóv. 1982
Borgarspítalinn
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Vonarstræti 4 - Sfmi 25500
Laus staða
Staða fulltrúa í rekstrardeild er laus til um-
sóknar.
Reynsla í skrifstofustörfum nauðsynleg.
Umsóknarfrestur er til 27. nóv. n.k.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifsto-
funni.
Upplýsingar veitir skrifstofustjóri.
Blaðberar
óskast
Sporðagrunnur-Laugarásvegur
Bárugata-Öldugata-T úngata
Lindarbraut-Nesbali
DJOÐVIUINN
Sími: 81333
Kennarasamband íslands og Hið íslenska
kennarafélag auglýsa laust til umsóknar
starf ritstjóra
við tímarit um uppeldis- og skólamál. Um
getur verið að ræða allt að hálfu starfi. Laun
skv. samkomulagi.
Umsóknir er greini menntun og fyrri störf
sendist á skrifstofu KÍ, Grettisgötu 89, 105
Reykjavík, fyrir 1. des. 1982.