Þjóðviljinn - 23.11.1982, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 23.11.1982, Blaðsíða 2
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 23. nóvember 1982 Þriðjudagur 23. nóvember 1982 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 iþrótlir Umsjón: Viöir Sigurðsson Umsjón: Viðir Sigurðsson Atli og Arnór í sviðsljósinu Atli Eðvaldsson lék mjög vel þeg- ar lið hans, Fortuna Diisseldorf, sigraði Karlsruhe 4-3 í vestur- þýsku „Bundesligunni“ í knatt- spyrnu. Atli skoraði fyrsta mark leiksins og átti skalla í stöng að auki. Dusseldorf er nú komið úr fallsæti, hefur 10 stig og fjögur lið fyrir neðan sig. í Belgíu var Arnór Guðjohnsen í miklum ham þegar Lokeren sigraði Beveren 2-1. Öðrum „ísiendinga- liðum“ gekk illa nema Waterschei, sem án Lárusar Guðmundssonar, í leikbanni, vann Tongeren 2-1 á úti- veili. CS Brúgge tapaði 4-0 fyrir Standard Liege. Danir voru bestir Danska badmintonfólkið, Mort- en Frost og Nettie Nielsen, hirtu Norðurlandameistaratitlana í ein- liðaleikjum karla og kvenna í ba- dminton en Norðurlandamótið fór fram í Kaupmannahöfn um helg- ina. Frost og Sten Fladberg sigruðu í tvíliðaleik karla, Nielsen og Dorte Kjær í tvíliðaleik kvenna. Broddi Kristjánsson var eini ís- lenski keppandinn sem komst í 2. umferð en hann sigraði Thomas Westerholm frá Finnlandi. Broddi tapaði síðan fyrir Jens Peter Nier- hoff frá Danmörku í 2. umferð en Nierhoff tapaði fyrir Frost í úr- slitaleiknum. Víðir Bragason tapaði fyrir Ulf Johansson frá Svíþjóð, Kristín Magnúsdóttir fyrir Lenu Staxler frá Svíþjóð og Kristín Kristjáns- dóttir fyrir Annettu Börjesson í einliðaleiknum. Víðir og Broddi voru slegnir út af Dönunum Helle- die og Skovgaard í tvíliðaleik karla og Kristínarnar tvær af Piu Nilsen og Kirsten Larsen frá Danmörku. Broddi og Kristín Magnúsdóttir töpuðu síðan fyrir Jesper Knudsen og Dorte Kjær, og Víðir og Kristín Krjstjánsdóttir fyrir Sten Fladberg og Piu Nilsen í tvenndarleik.- VS Fyrstu stig ÍS-stúlkna ÍS hlaut sín fyrstu stig í l.deild kvenna í körfuknattleik í fyrra- kvöld er liðið sigraði Hauka 59-48 í Hafnarfirði. Kolbrún Leifsdóttir, þjálfari Hauka, var stigahæst hjá IS með 17 stig en Margrét Eiríks- dóttir skoraði 16. Sóley Indriða- dóttir 19 og Svana Guðlaugsdóttir 14 skoruðu mest fyrir Hauka. IR vann Njarðvík suðurfrá á laugardag 58-26 og hefur dofnað yfir Njarðvíkurstúlkunum eftir að bandaríska driffjöðrin, Mary Jo Pisko, hætti að leika með liðinu. Guðrún Gunnarsdóttir 17 og Sóley Oddsdóttir 10 skoruðu mest fyrir ÍR en Katrín Eiríksdóttir 7, Ásdís Hlöðversdóttir og Hulda Lárus- dóttir 6 fyrir Njarðvík. Staðan í 1. deild kvenna: KR...........4 4 0 281-144 8 ÍR...........4 3 1 185-163 6 Njarðvík.....4 2 2 150-221 4 ÍS...........4 1 3 181-204 2 Haukar.......4 0 4 154-219 0 vs Skytturnar skárri en samt tap öðru sinni Síðari landsleikur íslendinga og Vestur-þjóðverja í handknattleik í fyrrakvöld var heldur síðri hjá íslenska liðinuen leikurinná föstudagskvöldið. Jafnræði var þó með liðunum fram í síðari hálfleik, staðan var 12- 2 þegar 10 mínútur voru liðnar af honum, en þá skoruðu V.Þjóðverjar þrjú mörk í röð á einni og hálfri mínútu og sá kafli réð í raun úrslitum leiksins. V.Þjóðverjarsigruðu21-9 eftir að hafa náð f jögurra marka forskoti í seinni hluta síðari hálfleiks. Það virtist þó full ástæða tfl bjartsýni lengi vel. ísland komst í 4-2 og 5-3 og til viðbótar varnar- leiknum góða frá fyrri leiknum sáust nú mjög góð tilþrif í sókninni. Þar vó þungt að Kristján Arason virtist nú vera búinn að stilla „kan- ónuna“ en einhverjar miðunar- truflanir voru í henni á föstudags- kvöldið. V.Þjóðverjum tókstþó að komast yfir, 5-6 og 6-7 en Island svaraði, 8-7 og 9-8. Tvö síðustu mörk fyrri hálfleiks voru síðan „in Deutschland gemacht" og staðan því 9-10, V.Þjóðverjum í hag, í leikhléi. Eftir aðeins 5 mínútur af síðari hálfleik missti íslenska liðið Pál Ólafsson útaf fyrir fullt og allt vegna þriggja brottrekstra og við það beið sóknarleikurinn nokkra hnekki. Rétt á eftir komu mörkin þrjú hjá V.Þjóðverjum sem gerðu útslagið og eftir það munaði tveimur til fjórum mörkum. V.Þjóðverjar komust í 20-16 og 21—17 en tvö síðustu mörkin skoruðu þeir Sigurður Sveinsson og Bjarni Guðmundsson, félagarn- ir hjá v-þýska liðinu Nettelstedt. Eitt atriði öðru fremur í leik ís- lenska liðsins brást algerlega: mark- varslan. Einar Þorvarðarson og Kristján Sigmundsson vörðu fimm skot í fyrri hálfleik en aðeins eitt, endurtekið eitt, skot í öllum síðari hálfleiknum. Að vísu virtist skiln- ingur manna á milli í vörninni minnka þegar á leið en það er ekki nógu haldbær afsökun. Sóknarleikurinn var mun betri en í fyrri leiknum. Skytturnar voru ekki eins ragar, aðeins tvö mörk voru skoruð með langskotum á föstudag en nú voru þau sex. Krist- ján fjögur, Sigurður Sveinsson og Alfreð Gíslason eitt hvor. Kristján var besti maður liðsins ásamt Bjarna Guðmundssyni. Alfreð sótti sig þegar á leið, Páll Ólafsson gerði laglega hluti en varð einnig sekur um slæmar villur. Magnús Teitsson komst bærilega frá sínum fyrsta landsleik og Steindór Gunn- arsson lék betur en nokkurn tíma með Val í vetur. Sigurður Sveins- son hafði sig ekki mikið í frammi og Þorbergi Aðalsteinssyni voru afar mislagðar hendur. Ólafur Jónsson sýndi ekkert né heldur Guðmund- ur Guðmundsson. Kristján var markahæstur með 7/3 mörk, Bjarni skoraði 4, Alfreð 2, Sigurður Sv. 2, Magnús, Páll, Steindór og Þor- bergur eitt hver. Hjá V.Þjóðverjum voru Wegen- er og Fey bestir. Wegener skoraði 6 mörk, Fey og Gnau 4 hvor. En það verður að segjast eins og er: við fáum sennilega aldrei annað eins tækifæri til að leggja heims- meistarana fyrrverandi að velli. Hér heima gegn liði sem vantar þrjá af sínum bestu mönnum hefðum við átt að geta náð hag- stæðari úrslitum. Sænsku dómaranir dæmdu báða leikina ágætlega þegar á heildina er litið. Ekki auðdæmdir leikir og menn ekki alltaf sammála þeim svartklæddu en þeir höfðu góða stjórn á gangi mála. Og þá er að bíða eftir leikjunum tveimur við Frakka á miðvikudag og fimmtu- dag. -VS Klaus Völler, markvörð- ur V.Þjóðverja, sýnir gífurlega loftfimleika í baráttu við Þorberg Aðalsteinsson, Ólaf Jónsson og Kristján Ar- ason. Völler sýndi oft stórkostleg tilþrif og það var mikill munur á markvörslu íslendinga og Vestur-Þjóðverja í leikjunum tveimur.- gel Miley byrjaði betur enPétur og ÍBK vann Ir-ingar, með Pétur Guðmundsson í sínum hópi í fyrsta skipti, náðu ekki að næla sér í sín fyrstu stig í úrvalsdeildinni í körfuknattleik á föstudagskvöldið. Þeir Góður varnarleikur var ekki nóg á V Þjóðverj Góður varnarleikur af beggja hálfu einkenndi fyrri landsleik Is- lands og Vestur-Þýskalands í hand- knattleik sem fram fór í Laugar- dalshöllinni á föstudagskvöldið. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann, aldrei skildu meira en tvö mörk liðin að, en Vestur- Þjóðverjum tókst að tryggja sér tveggja marka sigur undir lokin, 17-15. Liðin voru yfir til skiptis í fyrri hálfleik en að honum loknum var ísland yfir, 8-7. ísland komst síðan í 11-9 en misnotaði vítakast í þeirri stöðu og það varð afdrifaríkt. V.Þjóðverjar skoruðu næstu þrjú mrökin og voru yfir, 15-13 þegar tvær og hálf mínúta voru til leiks- loka. Þá 15-14 og 16-14 en Kristján Arason skoraði úr vítakasti 23 sek. fyrir leikslok, 16-15. V.Þjóðverj- um tókst að halda knettinum þar til 2. sek. voru eftir en þá skoraði Schuzl 17. markið og sigur þeirra var í höfn. Sjaldan hefur íslenskt landslið í seinni tíð sýnt jafn góðan varnar- leik. Þar var hver öðrum betri. I sókninni voru mönnum hins vegar afar mislagðar hendur og skytturn- ar áttu erfitt uppdráttar gegn hinni sterku vörn V.Þjóðverja. Bjarni Guðmundsson var besti maður liðsins og þá var Þorbergur Aðal- steinsson góður framan af. Þor- bergur skoraði 4 mörk, Kristján Arason 4/4, Bjarni 3, Guðmundur Guðmundsson 2, Ólafur Jónsson og Sigurður Sveinsson eitt hvor. Krokowski 4/2, Fey 3, Schuzl 3 og Wegener 3 voru atkvæðamestir í þýska liðinu sem sýndi slakan sóknarleik, enda vantaði þrjá af aðalmönnunum, Wunderlich, Brand og Freisler. -VS Hummel og HSI HSI hefur gert samning við íþróttavörufyrirtækið Hummcl um að öll íslensku landsliðin í handknattleik, fimm talsins, leiki I vörum frá fyrirtækinu næstu þrjú árin. Umboðsaðili Hummel hér á landi er Ólafur H. Jónsson HF, en Ólafur sá hinn sami er fyrrverandi fyrir- liði íslenska landsliðsins og á að baki flesta landsleiki íslenskra handknattleikmanna. Andvirði þeirrar vöru sem HSÍ fær á hverju ári er um kr. 140,000, miðað við útsöluverð, og því um stóran samning að ræða. léku þá í Keflavík en heimamenn voru einnig með nýjan leikmann, Brad Miley, og sigruðu 73-67 eftir að hafa haft 14 stiga forystu í leikhléi. 44-30. Keflavík komst fljótlega í 17-18, en ÍR minnkaði muninn í 21-18. Síðan 30-26 en þá skoraði Axel Nikulásson 8 stig í röð fyrir ÍBK og heimamenn því með góða foiystu í hálfleik. IR lagaði stöðuna í byrjun síðari hálf- leiks en þá kom góður kafli Keflvíkinga sem náðu góðu forskoti, 54-38. ÍR náði sínu besta og staðan var allt í einu 59-55 en þá gerðu Þorsteinn Bjarnason og Brad Miley út um leikinn með 10 stigum í röð. ÍR átti ekki möguleika eftir það en rétti sinn hlut nokkuð undir lokin. Það var fátt sem gladdi augað i þessum leik. Hann var ekki vel leikinn og mis- tökin mörg. Eina glætan var hjá Þor- steini Bjarnasyni sem átti stórleik, sinn besta í langan tíma. Hjá ÍBK átti Axel góðan kafla í fyrri hálfleik og þá er Björn Víkingur alltaf traustur. Brad Miley er ekki alveg kominn í takt við félaga sína og var ekki áberandi í sókninni. I vörn- inni var hann aftur á móti mjög sterkur og hélt Pétri Guðmundssyni vel í skefjum og gaf honum ekkert pláss til að athafna sig. Athyglisvert er að Keflvík- ingar notuðu aðeins 6 menn í leiknum en ÍR-ingar 9. Hjá ÍR vantar ýmislegt. Oft á tíðum er Kristinn Jörundsson meira en hálft liðið og er það ekki nógu gott. Pétri gekk illa að ná sér á strik og skoraði aðeins 4 stig í fyrri hálfleik. f þeim síðari skaut hann meira en hittnin var léleg hjá honum. Það er augljóst að mikið vantar á sam- æfingu liðsins með Pétur innanborðs því margar sendingar fóru forgörðum í sókn- inni og oft sent beint á mótherja eins og menn væru ósammála um uppbyggingu sóknarinnar. Stig ÍBK: Þorsteinn 26, Axel 21, Jón Kr. Gíslason 13, Brad Miley 10 og Björn Víkingur 3. Stig ÍR: Kristinn 20, Pétur 19, Hreinn Þorkelsson 14, Jón Jörundsson, Gylfi Þorkelsson og Kolbeinn Kristinsson 4 hver og Ragnar Torfason 2. Gunnar B. Guðqiundsson og Björn Ólafsson áttu ágætan dag í dómgæslunni. - Rsm Úrvalsdeildin í körfuknattleik: Karfa - tvö stig! Valur Ingimundarson, Njarðvíkingur, horfir á eftir knettinum í körfu Valsmanna og andstæðingar hans, Leifur Gústafsson og Tim Dwyer, fá ekkert að gert. Mynd: - gel Framtak Rikka dugði ekki gegn Njarðvík íslandsmeistarar Njarðvíkur í körfuknattleik hleyptu mikilli spennu í úrvalsdeiidina þegar þeir sigruðu Valsmenn í hörkuspennandi leik, 88-87, á sunnudagskvöldið í Hagaskóla. Þar með tókst þeim að hefna fyrir tapið í Njarðvík fyrr í vetur og Valsmenn hafa nú tapað tveimur leikjum eins og Keflavík. Njarðvík og KR hafa tapað þreniur en Fram fjórum og öll þessi fimm lið virðast geta komið til greina í baráttunni um meistaratitilinn. Fjörug og spennandi keppni virðist því vera í uppsiglingu. Það var greinilegt strax í upphafi að það átti ekkert að gefa eftir, Bæði lið börðust af mikilli grimmd og kom það heldur niður á gæðum leiksins en inná milli sáust þó afar laglegir hlutir. Bill Kottermann, nýi Kaninn hjá Njarðvík, sýndi góð tilþrif og gæti reynst liðinu drjúgur í vetur. Njarðvík hafði undirtökin lengst af í fyrri hálfleik en Vals- menn voru ávallt rétt á eftir og náðu að jafna á lokasekúndum hál- fleiksins, 39-39. Sama jafnræðið hélst framan af síðari hálfleik en Valsmenn urðu fljótlega fyrir áföllum. Torfi Magn- ússon, sem var kominn með þrjár villur fyrir leikhlé, fékk á sig tvær í sömu andránni á upphafsmínútun- um og var þar með úr leik. Ekki leið á löngu þar til Tim Dwyer fór sömu leið, rekinn út úr húsinu og fær líklega leikbann, og útlitið var ekki bjart hjá Hlíðarendaliðinu. Njarðvík komst sjö stigum yfir, 65-58, og síðan munaði tíu stigum, 76-66. En þá kom í ljós að Valur átti hauk í horni þar sem Ríkharður Hrafnkelsson var. I síðari hálf- leiknum virtist sama hvaðan hann skaut. alltaf rataði knötturinn of- aní körfuna hjá Njarðvík. Hann skoraði 12 stig í röð meðan lítið gekk hjá Suðurnesjamönnum og allt í einu munaði aðeins einu stigi, 78-77. Njarðvík komst framúr á ný og var yfir, 88-83, þegar hálf mín- úta var eftir. Ríkharður og Leifur Gústafsson minnkuðu muninn í 88- 87 og þegar 8 sek. voru eftir misstu Njarðvíkingar knöttinn klaufa- lega. Valsmenn brunuðu upp en eftir skot Tómasar Holton utanaf kanti dansaði knötturinn á körfu- Staðan: Staðan í úrvalsdcildinni í körf- uknattleik að loknum leikjum helg- arinnar: Valur................7 5 2 634-559 10 Keflavík.............7 5 2 596-578 10 NJarðvík.............7 4 3 614-602 8 KR...................7 4 3 609-621 8 Fram.................7 3 4 636-625 6 ÍR...................7 0 7 511-615 0 hringnum þegar flautað var til leiksloka. Kaninn Kottermann gerði öðr- um fremur útslagið hjá Njarðvík ásamt Val Ingimundarsyni. Kott- ermann er ekki aðeins iðinn við að skora sjálfur, heldur á hann góðar , sendingar og eigingirni virðist ekki þjaka hann eins og suma landa hans. Júlíus Valgeirsson átti ágæt- an leik og Ástþór Ingason gerði laglega hluti. Kottermann skoraði 34 stig, Valur 20, Júlíus 11, Árni Lárusson 8, Gunnar Þorvarðarson 6, Ástþór 5 og Ingimar Jónsson 4. Einstaklingsframtak Ríkharðs Hrafnkelssonar í síðari hálf- leiknum, þá skoraði hann 25 stig, var næstum því búið að færa Vals- mönnum sigur. Hann var óst- öðvandi en aðra félaga hans virtist skorta nokkuð baráttugleði eftir hlé. Tómas Holton lék vel en aðrir voru með daufara móti. Dwyer skoraði grimmt í fyrri hálfleik, öll sín stig þá, en það var virkilega slæmt fyrir Val að missa hann og Torfa útaf svo snemma. Ríkharður skoraði 29 stig, Dwyer 14, Jón Steingrímsson 10, Tómas 9, Krist- ján Ágústsson, Leifur Gústafsson og Torfi 6 hver, Sigurður Hjörleifs- son 4 og Hafsteinn Hafsteinsson þrjú. Dómarar voru Jón Otti Ólafsson og Sigurður Valur Hall- dórsson. _ vs

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.