Þjóðviljinn - 14.12.1982, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 14.12.1982, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 14. desember 1982! ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Meðal efnis: Evrópukeppni í handknattleik, körfu- knattleikur, blak, enska knattspyrnan o.fl. Við lestur Dalalífs kemstu innrnorfið mannlíf og umhverfi. Kynnist lífsbaráttu forfeðranna, ástum þeirra og afbrýði. Skáldkonan Guðrún frá Lundi sýnir lesandanum Ijóslifandi þennan gamla heim í spennandi sögu. Á sínum tíma var Dalalíf nánast rifið út úr bókabúðum. Bókin sló öll útlánamet bókasafna á íslandi og var á skömmum tíma lesin upp til agna, enda var Guðrún hin dæmigerða íslenska sagnakona af guðs náð. Fortuna Diisseldorf, lið Atla Eðvaldssonar og Péturs Ormslev í vestur-þýsku „Bundesligunni“ í knattspyrnu, nældi sér enn í stig á útivelli með 2:2 jafntefli gegn Ein- tracht Frankfurt á laugardag. Diisseldorf er nú komið upp í 11. sæti deildarinnar. Hamburger SV sigraði Schalke 04 6:2, Bayern vann Niirnberg 1:0 en Stuttgart gerði jafntefli heima gegn Kaiserslautern, 1:1. Hambur- ger hefur 26 stig, Bayern 24, Dort- mund og Bremen 23, Stuttgart og Köln 22 stig. Dusseldorf hefur 14 úr 17 leikjum. Lens fékk skell í Frakklandi fékk Lens, lið Teits Þórðarsonar, skell, 5:1, á útivelli gegn toppliðinu, Nantes. Karl Þórðarson og félagar í Laval töpuðu 3:2 í Metz. Lens heldur þó þriðja sætinu, Nantes hefur 28 stig, Bor- deaux 26 og Lens 25. Paris St. Germain er í fjórða sæti með 22 stig og Laval fimmta með 21 stig. Ekk- ert var leikið í Belgfu. í spænsku 1. deildinni tapaði Barcelona óvænt á heimavelli, 0:1, gegn Atletico Bilbao á meðan Real Madrid vann Las Palmas 1:0. Real hefur 24 stig, Bilbao 22, Barcelona og Real Zaragoza 20 stig. Óbreytt á Ítalíu Mörk Falcao og Iorio tryggðu AS Roma 2:1 sigur á Inter Milano í stórleik ítölsku 1. deildarinnar. Verona sigraði Torino 1:0 og Ju- ventus vann Catanzaro 3:1 eftir að hafa lent 0:1 undir. Marco Tardeli skoraði tvö marka Juventus. Heimsmeistararnir Paolo Rossi og Claudio Gentile léku ekki með Ju- ventus vegna meiðsla. Rorna hefur 18 stig, Verona 17 og Juventus 16. - VS Tveir KR-ingar með f stað Víkinganna íslenska landsliðið í handknatt- leik hélt í gærmorgun áleiðis til Austur-Þýskalands þar sem það tekur þátt í sterku alþjóðlegu móti. A morgun verður leikið við Austur- Þjóðverja en síðan við Svía, b-lið Austur-Þjóðverja, Rúmena og Ungverja. Tvær breytingar voru gerðar á landsliðshópnum á síðustu stundu. Víkingarnir Þorbergur Aðalsteins- son, sem er illa meiddur, og Guð- mundur Guðmundsson fara ekki með en sæti þeirra tóku KR- ingarnir Gunnar Gíslason og Haukur Geirmundsson. Aðrir í liðinu eru: Markverðir: Brynjar Kvaran, Stjörnunni, Einar Þorvarðarson, Val, og Kristján Sigmundsson Víkingi. Utispilarar: Alfreð Gíslason, KR. Bjarni Guð- mundsson, Nettelstedt, Hans Guð- mundsson, FH, Kristján Arason, FH, Ólafur Jónsson, Víkingi, Páll Olafsson, Þrótti, Sigurður Gunn- arsson, Víkingi, Sigurður Sveins- son, Nettelstedt, Steindór Gunn- arsson, Val og Þorgils Óttar Mathiesen, FH. - VS Tap ÍS á Akureyri Staða Ilauka í 1. deild karla i körfuknattleik vænkaðist enn þeg- ar þeirra helsti keppinautur, ÍS, tapaði fyrir Þór á Akureyri, 76:72, í jöfnum og spennandi leik. Roberl McField skoraði 39 stig fyrir Þór en Pat Bock 29 fyrir Stúdenta. Staðan í 1. deild: Haukar................8 8 0 756:544 16 Þór Ak................8 6 2 658:577 12 ÍS....................7 4 3 635:518 8 Grindavík.............9 2 7 632:785 4 Skallagr..............8 0 8 599:856 0 Dússeldorf náði í stig á útivelli „Sigur er alltaf sigur“ „Þetta var ekki nógu góður sigur þó það sé alltaf gaman að vinna svona leik. Við gerðum okkur tæpast vonir fyrirfram um að vinna upp átta marka forystu Tékkanna svo þetta er nokkur sárabót eftir tapið úti, sigur er alltaf sigur“, sagði Páll Björg- vinsson í samtali við Þjóðviljann eftir leik Víkings og Dukla Pag í fyrrakvöld. „Það var mjög erfitt að spila á móti þessu liði, þeir eru seigir, Tékkarnir, og þetta er baráttulið. Það leikur yfirvegað og gerir lítið af vitleysum, mjög svipað og tékkneska landsliðið, enda er þetta nánast það sama“, sagði Páll Björgvinsson. - VS „Rólegur Óli minn. Ég skal taka í þá fyrir þig!“ Árni Indriðason stendur yfir félaga sínum, Olafi Jónssyni, í Evrópuleik Víkings og Dukla Prag í fyrrakvöld. Sjá nán- ar um þennan mikla baráttuleik í opnu. Mynd: - eik Líklegt er að Tommy Caton, Manch. City fái sinn fyrsta lands- leik í fjarveru Phil Thompson og Alvin Martin. Mikið um meiðsli Svo mikil afföll eru vegna meiðsla í enska landsliðshópnum í knattspyrnu eftir leiki helgarinnar að Bobby Robson landsliðseinvald- ur varð í gær að fresta að tilkynna liðið fyrir leikinn gegn Luxemburg annað kvöld. Leikurinn er liður í Evrópukeppni landsliða. Aðeins 13 af 22 leikmönnum sem í hópnum voru gátu verið með á æfingu í gær. Um helgina meiddust Bryan Robson, Phil Thompson, Paul Marincr og Alan Devonshire í leikjum 1. deildar og það er líklegt að nokkrir af yngri kynslóðinni fái að spreyta sig annað kvöld. - VS á Evrópu Enn hallar á Evrópubúa hvað varðar titilinn „besta félagslið heims í knattspyrnu", en til úrslita um hann leika ár hvert Evrópumeist arar gegn meisturum Suður Ameríku. Að þessu sinni léku Ast- on Villa frá Englandi og Penarol frá Uruguay í Tokyo og sigraði Penar- ol, 2:0. Brasilíumaðurinn Gercalv- es skoraði fyrra markið og Silva það síðara, sitt í hvorum hálfleik. Þetta var 22. úrslitaleikur sinar teg- undar og staðan er nú 14:8, Suður- Ameríku í hag. - VS Enn hallar

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.