Þjóðviljinn - 04.01.1983, Side 1
Þriðjudagur 4. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Kenny Dalglish og félagar í Li-
verpool náðu tíu stiga forystu í
ensku 1. deildinni í knatt-
spyrnu í gær með sigri á Arse-
nal. Allt um ensku knatt-
spyrnuna í gær og á nýársdag
á bls. 10 og 11.
Kristján
setti
nýtt
met
Kristján Harðarson langstökkv-
arinn efnilegi úr Ármanni, setti
nýtt Islandsmet í langstökki á jóla-
móti Ármanns og ÍR sem fram fór í
Baldurshaga milli jóla og nýárs.
Gamla metið átti ísfirski knatt-
spyrnukappinn Jón Oddsson, 7,26
m, en Kristján bætti það um fjóra
sentimetra, stökk 7,30 metra.
Maccabi
vann
Maccabi frá Israel, körfuknatt-
leiksliðið utan Evrópu sem svo oft
hefur borið ægishjálm yfir Evróp-
ulið í Evrópukeppnum, vann sigur
á alþjóðlegu körfuknattleiksmóti
sem lauk í Crystal Palace í Englandi
í gær. Maccabi mætti Crystal Pal-
ace í úrslitaleik og sigraði 64-60.
í undanúrslitum keppninnar
hafði Maccabi borið sigurorð af
júgóslavnesku meisturunum,
Rauðu Stjörnunni, sem eru með
bestu liðum Evrópu. Crystal Pal-
ace hafði hins vegar sigrað landa
sína frá Sunderland 83-78. Meðal
annarra keppenda á mótinu, sem
þykir eitt hið sterkasta sinnar teg-
undar í heiminum og fer fram ár-
lega, voru brasilísku nreistararnir
San Jose en þeir voru slegnir út af
Rauðu Stjörnunni í 8-liða úrslitum
87-81.
Árangur ísraelskra liða í Evróp-
ukeppnum hefur jafnan verið góð-
ur og Maccabi hefur fjórum sinn-
um orðið Evrópumeistari. Körf-
uknattleikur er vinsælasta íþróttin í
landinu og hefur verið það um ára-
raðir. í Júgóslavíu virðist hann nú
einnig vera kominn í efsta sætið
eftir slakt gengi knattspyrnulands-
liðsins í heimsmeistarakeppninni á
Spáni í sumar. Júgóslavar, sem
leika harðan og þungan körfu-
knattlei, urðu í þriðja sæti í
síðustu heimsmeistarakeppni, á
eftir Sovétmönnuinog Bandaríkja-
mönnum. - VS.
SkúliÓskarssonkvaddur
Hann Skúli okkar Óskarsson,
kraftlyftingamaðurinn sterki, er
horfínn af sjónarsviði íþróttanna.
„Fáskrúðsfírðingurinn frækni“
lauk löngum og litríkum ferli sín-
um á kraftlyftingamóti KR næst-
síðasta dag ársins 1982 og munaði
ekki nema hársbrcidd, cða öllu
heldur hársþyngd, að hann næði
að setja nýtt Norðurlandamet.
Skúli hefur með hressilegri fram-
komu og skemmtilegum uppá-
tækjum haldið merki lyftingaí-
þróttarinnar hátt á lofti og vakið
athygli langt út fyrir raðir íþrótta-
unncnda. Hann hefur verið
kjörinn íþróttamaður ársins og
náð frábærum árangri á alþjóða-
vettvangi. Við óskum Skúla alls
hins besta um ókomin ár og þökk-
um honum ánægjustundir sem
hann hefur veitt svo mörgum á
liðnum árum.
Myndir: eik.