Þjóðviljinn - 04.01.1983, Blaðsíða 4
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 4. janúar 1983
íþróttir
Umsjón:
Víðir Sigurðsspn
Bók um
knattspyrnu
Út er komin hjá bókaforlaginu
Fjölni í Reykjavík bókin „Fimm-
tán kunnir knattspyrnumenn" eftir
Anders Fiansen blaðamann á
Morgunblaðinu. í henni er rætt við
eftirtalda knattspyrnumenn: Pétur
Pétursson, Arnór Guðjohnsen,
Ellert Schram, Björgvin Schram,
Hörð Hilmarsson, Martein Geirs-
son, Rúnar Júlíusson, Ástu B.
Gunnlauasdóttur, Pórólf Beck,
Diðrik (5lafsson, Viðar Halldórs-
son, Rósu Valdimarsdóttur, Ellert
Sölvason, Karl Hermannsson og
Magnús Jónatansson.
Anc/ets Hansen
Fimmtán
rnnnir
_ mattspyrnu
menn mcnn '
Afreks^
Dæmdur
r
i
ævibann
Þjálfari Dinamo, meistaranna í
knattspyrnunni í Zimbabwe, hefur
verið dæmdur í ævilangt keppnis-
bann fyrir að ráðast á dómara sem
dæmdi vítaspyrnu á lið hans. í fyrra
var allt lið Dinamo dæmt í sams
konar bann fyrir að neita að mæta
til leiks en var náðað og afsökunar-
beiðni látin gilda. Hæpið að slíkt
dugi þjálfaranum nú.... _VS
Marteinn Geirsson
Vílltastu draumar þínír.
Björtustu vonir annarra.
Miði í Happdrætti SÍBS hefur tvær góðar hliðar:
Þú gefur sjálfum þér von um veglegan vinning.
Hin hliðin, - og ekki síðri. Þú tekur þátt í víðtæku
endurhæfingar- og þjálfunarstarfi á Múlalundi
og Reykjalundi.
HAPPDRÆTTISÍBS
— Happdrætti til góðs.
Marteinn
meiddur
Marteinn Geirsson, fyrirliði ís-
lenska landsliðsins í knattspyrnu,
sleit hásin á vinstra fæti á æfingu
milli jóla og nýárs. Hann verður frá
æfingum í tvo til þrjá mánuði af
þessurn sökum.
Þessir
fara til
Árósa
Einar Bollason þjálfari ungling-
alandsliðsins í körfuknattleik hefur
valið þá tíu leikmenn sem fara til
Árósa í Danntörku um næstu helgi
til að leika þar í Norðurlandamóti
unglingalandsliða. Þeir eru:
Ástþór Ingason, Njarðvík
Björn Steffensen, IR
Björn Zoega, Val
Kristinn Kristinsson, Haukum
Matthías Einarsson, KR
Jóhann Bjarnason, Fram
Ólafur Guðmundsson, KR
Páll Kolbeinsson, KR
Tómas Holton, Val
Þorkell Andrésson, Fram.
Til vara hafa verið valdir þeir
Einar Ólafsson, Val og Jóhann
Kristbjörnsson, KR.
Vaíið
fyrír
Dana-
leikina
ísland og Danntörk leika þrjá
landsleiki í körfuknattleik hér á
landi um næstu helgi, á föstudag,
laugardag og sunnudag. Leikið
verður í Keflavík, Reykjavík og
Borgarnesi. Landsliðshópur ís-
lands hefur verið valinn og er hann
þannig skipaður:
Torfi Magnússon, Val
Kristján Agústsson, Val
Ríkharður Hrafnkelsson, Val
Hreinn Þorkelsson, ÍR
Pétur Guðntundsson, ÍR
Valur Ingimundarson, Njarðvík
Axel Nikulásson, Keflavík
Björn Skúlason, Keflavík
Jón Kr. Gíslason, Keflavík
Símon Ólafsson, Fram
Viðar Þorkelsson, Fram
Þorvaldur Geirsson, Frant
Pálmar Sigurðsson, Haukum.
Þeir Björn Víkingur og Hreinn
hafa ekki leikið landsleik áður.
Björn V. Skúlason frá Kcflavík er
nú í fyrsta skipti í lands-
liðshópnum.