Þjóðviljinn - 13.01.1983, Síða 3

Þjóðviljinn - 13.01.1983, Síða 3
BLAÐAUKI Föstudagur 13. janúar 1984 ÞJÓÐVÍLJINN — SÍÐA 9 Hallgrímur Sigurðsson. Samvinnutryggingar g.t. Eign þeirra, sem við þær skipta Samvinnutryggingar voru stofnaðar 1. sept. 1946, sagði Hallgrímur Sigurðsson, forstjóri trygginganna. Tilgangurinn með stofnun þeirravartvíþætt- ur. (fyrsta lagi þótti eðlilegtað samvinnuhreyfingin ræki sitt eigið tryggingafélag til þess að annast tryggingar fyrir sam- vinnufélögin og í annan stað að leggja lóð á þá vogarskál að fólk gæti fengið tryggingar á eðlilegu verði. Auðvitað er það vandsigld leið þvíjafnan verður að leitast við að hafa vaðið fyrir neðan sig með það, að geta bæði staðið undirtjóni og kostnaði og tjónin sér enginn fyrir. Allt um það teljum við að hvort tveggja hafi tekist. Við byrjuðum með brunatrygg- ingar en höfum svo fært út kvíarnar smátt og smátt. Og innan 10 ára vorum við orðnir stærsta trygging- arfélagið á markaðnum. Þriðjun- gurinn af bílum landsmanna er tryggður hjá okkur enda voru bifr- eiðatryggingarnar orðnar lang stærsta greinin 1982. Þá voru heildariðgjöld hjá okkur 202,9 milj. kr. og af þeim voru iðgjöld af ökutækjum 84,1 milj. En í sam- bandi við gjöld af bifreiðatrygg- ingum skyldu menn gæta þess að þar hafa ökumenn málið mjög í eigin höndum með því að kosta alls kapps um það að koma í veg fyrir tjón. Til þess þarf oft ekki annað en meiri varkárni og aðgæslu. Nú erum við komnir með allar greinar trygginga, sem reknar eru hér á landi. Samvinnutrygginar urðu fyrstar til að taka upp heimilistryggingar. Nú seljum við ekki heimilistrygg- ingu undir ákveðnu marki. Fólki hættir nefnilega mjög til þess að vanmeta innbú sitt og kemur það því í koll ef það verður fyrir tjóni. Þegar íslendingar tryggj a þá er eins og þeir geri sér ógjarnan grein fyrir hvað af því hlýst ef tjón verður. En meira en helming þeirra tjóna sem verða árlega höfum við borgað út á sama ári og þau verða. Hér áður keyptu menn sér gjarnan líftryggingu, sem þá var einskonar sparifé. En það var óverðtryggt og því gerði verðbólg- an það að engu. En nú erum við með áhættutryggingu. Hún er í verulegum mæli keypt af ungu fólki, sem stendur t.d. í húsbygg- ingum, og tryggir það gegn afleið- ingum áfalla, sem það kann að verða fyrir á meðan það á í skulda- baslinu. Áhættutryggingin fæst bæði sem einstaklingstrygging og hjónatrygging. Af iðgjöldum okkar koma 58,9% frá einstaklingum, 23% frá samvinnufyrirtækjum og 18,7% frá öðrum fyrirtækjum. Þó að það hafi, eins og fyrr segir, verið annar megin tilgangurinn með stofnun Samvinnufyrirtækja að gefa sam- vinnufyrirtækjum kost á að tryggja hjá eigin félagi þá fer því fjarri, eins og þessar tölur sýna, að við séum sniðgengnir af öðrum fyrirtækjum. Höfuðmarkmiðið hlýtur að vera að hverjum og einum sé frjálst að tryggja það sem hann kýs og þar sem hann kýs. Tryggingafélag verður ekki rek- ið á Islandi nema hægt sé að kaupa erlenda endurtryggingu. Tökum t.d. samvinnuverksmiðjurnar á Akureyri og verslunina í Holta- görðum. Ef þarna yrði verulegt tjón þá skipti það miljörðum. Undir slíku gæti ekkert íslenskt tryggingafélag risið fyrir eigið afl einvörðungu. Vörnin, mótleikur- inn, er að kaupa sér endurtrygg- ingu erlendis. Og þá skiptir öllu máli að tryggt sé hjá traustu fyrir- tæki. Endurtryggingar eru af ýms- um stigum. Við skiptum einungis við þá, sem greiða tjón að fullu. Það þýðir, að hagur Samvinnutr- ygginga raskast lítið þótt verulegt tjón verði, endurtryggingin tekur á sig megin skellinn. Af heildarið- gjöldum ársins 1982 héldum við eftir 79% en 21% rann til endur- trygginga, sem er svo aftur okkar trygging. Samvinnutryggingar eru eign þeirra, sem við þær skipta. Ef þær hættu starfsemi sinni þá skiptust eignirnar á milli þeirra, sem skipt hafa við þær sl. tvö ár, í hlutfalli við viðskiptin. Ég er ekki með þessum orðum að gera því skóna að til þessa komi, síður en svo, enda hygg ég að mörgum þætti þá skarð fyrir skildi, heldur aðeins að benda á hvers eðlis Samvinnutryggingar eru. -mhg erveT tryggt SJÓVÁ SUÐURLANDSBRAUT 4 -SÍMI 82500 SELJAVEGl 12 — GLORIA slökkvitækineru framleidd ÍV. Þýskalandi. Þau eru I mjög háum gæðaflokki og eru viðurkennd um allan heim og seld íyfir 100 löndum. Þjónusta á tækjum fer fram bæði á verkstæði eða úr þjónustubíl okkar. Fyrirtæki og einstaklingar geta því komiö sjálfir með tækin, sem er ódýrara, eða óskað eftir þvl að við sækjum þau eða þjónustum á staðnum. Við bjóðum einnig þjónustusamninga, sem tryggja það aðt ækin séu yfirfarin árlega og þeim viðhaldið þannig að hægt sé að treysta þeim. Varahlutir eru að sjálfsögðu til í öll GLORIA slökkvitæki. GINGE Halon 1301 slökkvikerfi bjóðum við fyrir allar aðstæður, t.d.fyrirskip, báta, bíla, tölvusalio.fl.. Kerfineru bæði sjálfvirk og handstýrð. Halon 1301 slökkvikerfin eru ekki hættuleg mönnum, og því mjög hentug í vélarrúm, tölvu- sali eða þar sem menn eru við vinnu í lokuðu rúmi. Mí»ul«ctu.»d b, BRIDELA LIMITED eldvarnarteppi eigum við í fjórum stærðum fyrir heimili, matsölustaði, verkstæði o.fl.. Teppin er einnig hægt að fá í öðrum stærðum og þykktum, og henta þau þá vel til þess að verja hluti gegn neistaflugi frá rafsuðu eða brennslu með gastækjum. Þaö er öllum nau&sy nlegt að kunna notkun og me&f erð slökkvitækja. Hringíð til okkar og fáift sendan kennslubækling.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.