Þjóðviljinn - 13.01.1983, Page 6
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN. Föstudagur 13. janúar 1984
BLAÐAUKI
ÞITT FÉLAG
s
2
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ÁRMÚLA3 SÍMI81411
UMBOÐSMENN UM LANDALLT
Samábyrgð íslands
á f iskiskipum
Lágmúla 9-105 Reykjavík—sími 81400
Símnefni: Samábyrgð 7 Lágmúla 9 — Reykja-
vík
SAMABYRGÐIN
tekstá hendureftirfarandi:
FYRIR ÚTGERÐARMENN:
Skipatryggingar, Ábyrgöartryggingar út-
gerðarmanna, Slysatryggingar sjómanna,
Farangurstryggingar skipshafna, Afla- og
veiðarfæratryggingar, Endurtryggingar fiski-
skipa undir 100 rúmlestum, Rekstur Aldurs-
lagasjóðs fiskiskipa.
FYRIR SKIPASMÍÐASTÖÐVAR:
Ábyrgðartryggingar vegna skipaviðgerða,
Nýbyggingatryggingar.
Skrifstofa Samábyrgðarinnar og eftir-
taldir umboðsmenn vorir veita allar nauðsyn-
legar upplýsingar varðandi tryggingar þess-
ar og taka á móti tryggingarbeiðnum:
Vélbátaábyrgðarfélagiö Grótta, Reykjavík
Bátatrygging Breiðafjaröar, Stykkishólmi
Vélbátaábyrgðarfélag ísfirðinga, ísafirði
Vélbátatrygging Eyjafjarðar, Akureyri
Skipatrygging Austfjarða, Höfn Hornafirði
Vólbátatrygging Reykjaness, Keflavík
Trygging hf.
Vátryggingar ættu
að vera frjálsar
Hugmyndin að stofnun T rygg-
ingar hf. varð til hjá Erling Ell-
ingsen fyrrverandi flugmála-
stjóra í framhaldi af störfum
hans og nokkrum kynnum af
flugtryggingum, sagði Jón
MagnússonhjáTryggingu hf..
Þann 17. maí 1951 varfélagið
svo formlega stofnað og stóðu
að því, auk Erlings, þeir Othar
Ellingsen, kaupmaðuríVerslun
O. Ellingsen, og Jón Einars-
son, kaupmaðurí Vouge. Starf-
semin hófst svo í septmeber
sama ár.
Fyrstu árin voru bruna- og sjó-
tryggingar gildasti þáttur starf-
seminnar en síðar bættust við aðrar
greinar og eftir 1963 hefur verið
boðið upp á allar greinar trygginga
fyrri einstaklinga og fyrirtæki nema
líftryggingar, sem lögum sam-
kvæmt má ekki blanda saman við
aðrar tryggingar.
Á fyrsta bókhaldsári Trygg-
ingar, sem stóð raunar aðeins í 4
mánuði, var veltan 170 nýkrónur
og tvö herbergi að Vesturgötu 10A
nægðu starfseminni. Nú, 32 árum
síðar, er veltan orðin 95.000.000 og
fjöldi starfsmanna kringum 40.
Umboðsmenn eru víðsvegar um
land, einstaklingar og fyrirtæki
heimamanna í héruðunum, sem
Trygging á aðild að, svo sem á Sel-
fossi, ísafirði, Kefiavík, Egilsstöð-
um, Höfn og Akureyri.
Flugtryggingar hafa alltaf skipað
veglegan sess hjá félaginu og mikill
hluti flugflota landsmanna ávallt
tryggður þar.
Jón Magnússon.
Fyrir nokkrum árum hóf félagið
sókn inn á endurtryggingarmarkað
í London og rak þar um skeið skrif-
stofu til að sinna þeim viðskiptum.
Sú skrifstofa var síðar lögð niður
þar og flutt heim þegar aðstæður
erlendis fóru versnandi. Þótt þess-
ar tvær greinar trygginga hafi verið
áberandi í rekstrinum þá snýst
starfsemin í heild um að sinna þörf-
um smærri og stærri viðskiptavina,
sem kjósa að njóta verndar gegn vá
með kaupum á fjölbreyttum vá-
tryggingum félagsins.
Afkoma félagsins hefur verið
góð undanfarin ár ef tekið er tillit
til óðaverðbólgu og fallandi gengis.
Minni þátttaka í framangreindum
endurtryggingum, ásamt uppgjöri
tengdum þeim hefur að vísu orsak-
að taprekstur sum undanfarin ár en
til lengri tíma litið hafa þessi við-
skitpi þó styrkt stöðuna. Afkoma
einstakra greina hefur verið mis-
jöfn milli ára, enda íslenski trygg-
ingamarkaðurinn það lítill, að
jöfnuður milli ára næst aldrei að
fullu. Hlutverk endurtrygginga er
að jafna þetta. Bifreiðatryggingar
sýna versta útkomu þótt mönnum
þyki iðgjaldið sjálfsagt nógu hátt.
Öllum kæmi best að fækka slysum.
og tjónum fremur en að hækka ið-
gjöld og sjálfsábyrgð. Alltaf láta
einhverjir tryggingar sitja á hakan-
um er að kreppir efnahagslega.
Hinir eru þó sem betur fer fleiri,
sem hafa þann hátt á að vernda sig
betur fyrir áföllum þegar þeir eru
verr í stakk búnir til að mæta þeim
sjálfir.
Tryggingaþörf manna er misjöfn
og misjafnt hvaða áhættu fólk vill
taka sjálft. Því er eðlilegast að allir
hafi forsjá sinna tryggingamála í
eigin hendi. En fyrirkomulag um
húsatryggingar o.fl. veldur því að
sumir láta „skyldutryggingu“
nægja en sjá síðar að þær eru mjög
takmarkaðar. Þróunin þyrfti að
verða sú að allar vátryggingar væru
frjálsar og hver og einn hugsi um
sín mál í samráði við sitt trygg-
ingafélag. Trúlega mundi það auka
enn meira metnað félaganna til
þess að hugsa betur um hvern og
einn og fylgjast betur með því að
ekkert vanti, sem viðskiptavinur-
. inn vill hafa verndað gegn vá, sagði
Jón Magnússon að lokum.
-mhg
5ÍÍSS «55 ^
Hvað kostar árekstur?
Hafa menn hugleitt hvaö það kostar hvern bíleiganda í beinum peningum aö eiga sök á árekstri?
Þótt menn hafi bíla sína vel tryggða, bæöi meö ábyrgðar- og kaskótryggingu, þurfa þeir samt aö
greiða sjálfir verulega fjárhæö.
Eigandi meöalstórs bíls, sem er meö 5600 króna sjálfsábyrgð í kaskó þarf að greiða:
1. Sjálfsábyrgðaf ábyrgðartryggingu kr. 2.500
2. Sjálfsábyrgðaf kaskótryggingu kr. 5.600
3. Bónusmissiáábyrgðartryggingunni kr. 3.050
4. Bónusmissiákaskótryggingunni kr. 5.800
5. Sektfyrirumferðarlagabroti kr. 500 1.200
Kr. 17.450- 18.150
Missir bílsins:
Bílaleigubíll íviku kr. 6.000
Alls kr. 23.450 - 24.150
Að auki: Fyrirhöfn og margskonar óþægindi vegna missis bílsins um skemmri eða lengri tíma.