Þjóðviljinn - 13.01.1983, Síða 7
BLAÐAUKI
Fðstudagur 13. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
Samábyrgð íslands á fiskiskipum
Búin að slíta
barnsskónum
- Samábyrgðin er nú komin
nokkuð til aldurs. Hún var
stofnuð 1909 og getur því
minnst 75 ára afmælis síns á
þessu ári. Þaðvar FinnurStep-
hensen, skrifstofustjóri Samá-
byrgðar íslands áfiskiskipum,
sem mælti svo.
- Þú spyrð um starfsemi Samá-
byrgðarinnar. Hún skiptist í þrjá
meginþætti. í fyrsta lagi annast hún
endurtryggingu á skipum, sem
vátryggð eru hjá bátaábyrgðarfé-
lögum, sem starfandi eru út um
land, en hjá þeim eru skyldutryggð
öll skip, sem eru undir 100 rúmlest-
um að stærð. Og ef við nefnum
bátaábyrgðarfélögin þá eru þau
þessi: Vélbátaábyrgðarfélagið
Grótta í Reykjavík, Bátatrygging
Breiðafjarðar í Stykkishólmi, Vél-
bátaábyrgðarfélag ísfirðinga á ísa-
firði, Vélbátatrygging Eyjafjarðar
á Akureyri, Skipatrygging Aust-
fjarða á Höfn, Vélbátatrygging
Reykjaness, Keflavík, og Bátaá-
byrgðarfélag Vestmannaeyja í
Vestmannaeyjum.
Nú, í annan stað tekur svo Samá-
byrgðin að sér vátryggingar á
skipum, sem eru stærri en 100
rúmlestir og raunar allar aðrar
vátryggingar, sem snerta útgerð
fiskiskipa. Auk þess önnumst við
svo ábyrgðartryggingar vegna
skipaviðgerða fyrir skipasmíða-
stöðvarnar og nýbyggingartrygg-
ingar vegna skipa, sem eru í smíð-
um. Loks annast svo Samábyrgðin
rekstur Aldurslagasjóðs fiskiskipa
og Úreldingarsjóðs fiskiskipa.
- Viltu segja okkur hvernig hátt-
að er endurtryggingum hjá ykkur?
- Já, þessu er þannig varið hvað
snertir skip undir 100 rúmlestum
að bátaábyrgðarfélögin endur-
tryggja ákveðinn hundraðshluta
hvert hjá öðru og dreifa þannig á-
hættunni. Afganginn endurtryggir
svo Samábyrgðin. Nú, síðan
tryggja aðilarnir sig fyrir stórtjón-
um með svokallaðri „Excess of
loss“ tryggingu erlendis. Fiskiskip
stærri en 100 rúmlestir eru hinsveg-
ar endurtryggð hjá Samsteypu ís-
lenskra fiskiskipatrygginga og ís-
lenskri endurtryggingu. Endur-
tryggingar vegna annarra vátrygg-
inga sem snerta útgerð eru fengnar
hjá íslenskri endurtryggingu. End-
urtryggingar vegna ábyrgðartrygg-
inga skipasmíðastöðva og ný-
smíðatryggingar eru fengnar í
London.
Um afkomu Samábyrgðarinnar
hafði Finnur þetta að segja:
- Reikningar ársins 1983 liggja
enn ekki fyrir og því of snemmt að
segja til um útkomu hinna ýmsu
greina sl. ár. En það má segja að
Finnur Stephensen.
útkoma skipatrygginga ráðist að
miklu leyti af fjölda alskaða. Á ár-
inu 1983 urðu þeir fjórir á skipum
undir 100 rúmlestum. Því má svo
bæta við, að í þeirri verðbólgu, sem
hér hefur ríkt undanfarin ár, hefur
verið reynt að fylgja verðþróun-
inni. Til dæmis eru skip undir 100
rúmlestum metin árlega samkvæmt
matsreglum, sem byggðar eru á
nýjasta verðlagi á skipshlutum,
vélum og tækjum um hver áramót.
Ef verðhækkanir hafa orðið veru-
legar milli áramóta, t.d. vegna
breytinga á gengi krónunnar, hafa
vátryggingarfjárhæðir skipanna
hækkað, jafnvel oftar en einu sinni
á ári. Þar að auki eiga útgerðar-
menn þess kost að kaupa svo-
nefnda hagsmunatryggingu, sem
nema má allt að fjórðungi húft-
ryggingarverðs viðkomandi skips.
- mhg.
Tryggingamiðstöðin hf.
Fyrirhyggjan
mætti vera meiri
- Þettafélag.Tryggingamiö-
stööin, hóf starf 1. janúar 1957
og er því aö byrja 28. árið, sagði
Gunnar Felixson, forstjóri fél-
agsins. Viö höfum með hönd-
um alhliðatryggingastarfsemi,
sinnum öllum greinum trygg-
inga, sem um er að ræða hér-
lendis. En gildasti þátturinn í
okkar rekstri er viðkomandi
skipatryggingum.
Við inntum Gunnar eftir afkomu
félagsins.
- Hún er náttúrlega nokkuð
sveiflukennd frá einu ári til annars.
Áhættan er mikil við skipatrygg-
ingar. Þar geta komið og hafa kom-
ið þungir skellir. Brunatryggingar
hafa á hinn bóginn oftast nær kom-
ið vel út hjá okkur, nema á sl. ári.
Þá urðu verulegir frystihúsabrunar
eins og alla rekur sjálfsagt minni
til, og þeir komu mjög hastarlega
við okkur. Slíkir brunar eru að
verða ískyggilega algengir. Það eru
því óneitanlega bæði skin og skúrir
í þessari starfsemi.
- Þið endurtryggið náttúrlega til
öryggis gegn svona stóráföllum?
- Já við endurtryggjum frá okkur
en erum að öðru leyti ekki mikið í
endurtryggingum.
Við spurðum Gunnar hvort
hann teldi að íslendingar væru
nægilega fyrirhyggjusamir varð-
andi tryggingar.
- Nei, það tel ég nú varla hægt að
Gunnar Felixson.
segja. Mönnum hættir til að van-
tryggja, horfa í iðgjöldin og treysta
um of á það að ekki hendi þá sjálfa
neitt óhapp. íslendingar eru, ýmsir
hverjir, ekki beinlínis tryggingar-
lega sinnaðir, ef svo má að orði
komast. —mhg
Almennar tryggingar hf.
Numið
nýjum
Ef blaðamaður hefði dotfið
inn um dyr hjá Almennum
tryggingum fáeinum dögum
fyrr þá hefði hann lent þar á 40.
afmælisári félagsins. Þaðvar
nefnilega stofnað 11. maí
1943. En þar sem hér var nú
ekki verið að huga að neinu af-
mælisspjalli þá skipti þetta
„slys“ ekki miklu máli, enda
eiga menn þess heldur ekki
kost að tryggja sig fyrir þeim.
Ólafur B. Thors, forstjóri Al-
mennra trygginga, sagði okkur að
starfsemi félagsins væri í 5
deildum: eignatryggingadeild,
skipa-, farm- og flugvélatrygginga-
deild, ökutækjatryggingadeild,
ábyrgða- og slysatryggingadeild og
endurtryggingadeild. Félagið hefði
því með höndum allar venjulegar
tryggingar. Auk þess rekur svo fé-
lagið hlutafélagið Almennar líf-
tryggingar, sem er sjálfstætt félag,
stofnað 30. mars 1977.
Viðskipti okkar eru í verulegum
mæli við einstaklinga og því erum
við mikið bæði í heimilistrygg-
ingum og húseigendatryggingum.
Á síðustu árum höfum verið að
nema land á nýjum sviðum. Má þar
nefna að við höfum leitast við að
sinna tryggingaþörfum íslenskra
verktaka vegna stærri fram-
kvæmda, svo sem við virkjanir og
stóriðju. Vegna vöntunar á slíkum
tryggingum hafa íslendingar staðið
verr að vígi en útlendingar -
tryggðir í bak og fyrir - til að bjóða
í stærri verk og fá þau. Þá tryggjum
við og vélar einstakra fyrirtækja
gegn tjóni sem gjarnan vill verða ef
þær bila. Við höfum einnig tekið
það upp að bjóða einstökum stétt-
um ábyrgðartryggingu, sem tryggir
þær fyrir afleiðingum mistaka í
starfi, svo sem lögfræðinga, lækna,
verkfræðinga o.fl., en enginn er
svo fullkominn að honum geti ekki
orðið á mistök. Á þessu byrjuðum
við 1975. Þetta kemur sér vel bæði
fyrir þann, sem framkvæmir við-
komandi verk, og hinn, sem nýtur
þjónustunnar. Mönnum er smátt
og smátt að verða þessi nauðsyn
ljós og notfæra sér því slíka trygg-
ingaþjónustu í vaxandi mæli. í
stuttu máli má segja að við reynum
að reka sem best þessar almennu
land á
sviðum
Ólafur B. Thors.
tryggingar og jafnframt að sinna
tryggingaþörfinni eins og hún er á
hverjum tíma.
Ólafur B. Thors var þeirrar
skoðunar að mönnum hætti til þess
að tryggja of lágt og vöruðu sig þá
ekki á verðbólgunni. Því var
brugðið á það ráð að láta trygg-
ingar fylgja breytingum á vísitölu.
Samt vill það henda að menn gæti
þess ekki að hækka tryggingar á
innbúi eftir því sem búslóðin vex.
Láta gömlu upphæðina bara duga,
en það getur og hefur komið
mönnum óþægilega í koll.
Að lokum vildi Ólafur benda á
að menn ættu að huga betur en þeir
gerðu að því að líftryggja sig, taka
'a.m.k. áhættutryggingu ef þeir
stæðu t.d. í húsbyggingum. Menn
eru þá oftast skuldum hlaðnir og ef
annað hjónanna - þegar um það er
að ræða - fellur frá, getur líftrygg-
ingin verið það, sem baggamuninn
ríður með það að halda eigninni.
Að þessu huga menn of lítið, sagði
Ólafur.
Líftryggingar eru hér fremur fá-
tíðar miðað við það, sem gerist
með öðrum þjóðum. Lífslíkur ís-
lendinga yfirleitt eru miklar og því
eru iðgjöld af slíkum tryggingum
hér lág miðað við það ómetanlega
öryggi sem þær veita.
Og þar með slitum við Ólafur
talinu.
- mhg.
Iðnnemasamband íslands óskar að ráða
framkvæmdastjóra
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af
félagsstörfum og þekki til málefna iðnnema.
Starfið er einkum fólgið í umsjón með rekstri
skrifstofu sambandsinsog upplýsingamiðlun
um málefni iðnnema.
Umsóknir um starfið ásamt upplýsingum um
menntun pg fyrri störf skulu hafa borist skrif-
stofu INSÍ, Skólavörðustíg 19, 101 R., í síð-
asta lagi fyrir kl. 12 á hádegi 14. janúar nk.
Sjúkraþjálfarar
Endurhæfingarstöð í Keflavík óskar eftir að
ráða sjúkraþjálfara til starfa allan daginn frá
1. mars nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Umsóknir skulu hafa borist Endurhæfingar-
stöðinni, Suðurvöllum 9, Keflavík, fyrir 15.
febrúar nk.
AHar nánari upplýsingar veittar hjá yfirsjúkra-
þjálfara eða rekstrarstjóra í síma 99-3330.