Þjóðviljinn - 13.01.1983, Side 8

Þjóðviljinn - 13.01.1983, Side 8
1Í4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN, Föstudagur 13. janúar 1984 Verður Kúba síðasta hálmstráið? Sama dag og bandarísku stríðs- flugvélarnar voru skotnar niður í Líbanon birtist mynd af Ronald Reagan á forsíðu eins útbreiddasta sunnudagsblaðs Bandaríkjanna. Forsetinn var á stuttermabol og hnyklaði armvöðvana. Inni í blað- inu voru fleiri myndir af forsetan- um í kraftastellingum á bolnum, og svo ein glansmynd frá árinu 1941. Ronald Reagan tjáði blaðinu, að hann hefði aukið brjóstmál sitt um þó nokkra sentimetra með stöðug- um líkamsæfingum síðustu vikur. Hann sagðist einnig hafa þyngst um ein tvö kíló, en bætti við, að vöðvar væru þyngri en fita og þar væri skýringin á þyngdaraukning- unni komin. Forsetinn sagði einnig frá því, að einn samstarfsmanna sinna hefði lagt til, að forsetinn fengi sér boxæfingapúða í skrifstof- una sína „og þá get ég fest á púðann mynd af þeim, sem er að ergja mig þá stundina, og boxað hann nið- ur!“. Forsetinn minnti á gamalt orð- tæki kúreka í Bandaríkjunum sem hljóðar eitthvað á þá leið, að ekk- ert sé eins gott fyrir innra manninn og ytra byrðið á hrossi. Og svo kom rúsínan: „Kannski er þetta gert til að ganga í augun á Nancy, en alla- vega finnst mér ennþá gaman að stökkva af háu sundbretti og taka sveiflur á því“. Utanríkismálin angra hinn almenna borgara Þegar Reagan forseti tók ekki til greina mótmæli aðalsamstarfs- manna sinna gegn því að ráðist yrði á Sýrlendinga úr lofti í Líbanon, var hann þá að ímynda sér að með þessu væri hann að „boxa niður" Hafez-el-Asad forseta? Og var innrásin á Grenada nokkurs konar stökk af sundbretti, svo forsetafrú- in gæti dáðst að manni sínum? Við verðum öll að velta því fyrir okkur hversu mikið af bringuhár- um sínum forsetinn ætlar að sýna frúnni sinni og okkur hinum á næstu mánuðum. Því Reagan situr í einum valdamesta stól heimsins og hann á í vændum erfiða kosn- ingabaráttu á þessu ári við skarpa andstæðinga. Efnahagslíf Bandaríkjanna hef- ur tekið smákipp undanfarið og Reagan gumar látlaust af. En í kjölfarið fylgir, að hinn almenni borgari hefur snúið sér meira að utanríkismálunum en áður. Nýj- ustu skoðanakannanir sýna, að fylgið við Reagan hefur snar- minnkað upp á síðkastið, en það jókst mjög eftir innrásina á Gren- ada. Fylgisaukningin reyndist skammlíf og hefur slíkt ekki gerst á síðustu 25 árum þegar Bandaríkja- forseti hefur ráðist inn í a'nnað land. Færri styðja nú Reagan en fyrir ári og fylgið við hann er minna en fylgið við Carter forseta við lok þriðja árs valdatíma hans. Sá hluti almennings, sem segist óttast styr- jöld og finnast sá ótti lykilatriðið í því sem Bandaríkjamenn þurfa að glíma við, er nú kominn upp í það sem var þegar mest gekk á í sam- bandi við Víetnamstríðið. Enn fleiri eru hinir sem segjast óttast, að Reagan forseti muni leiða þjóð- ina inn á styrjadlarbrautir. Annað Grenada fyrir kosningar Ef skoðanakannanir sem gerðar verða næsta sumar spá því, að úrslit verði mjög tvísýn í forsetakosning- unum í nóvember, verður Reagan karlinn að taka á öllu sínu til að bjarga málum. Lagt verður fast að honum að finna upp á einhverju ævintýri í október. Er helst leitt getum að því, að hann muni feta stríðsslóðina í þeim efnum. Ekki þykir ólíklegt, að forsetinn muni Hversu mikið fáum við að sjá af bringuhárum forsetans á þessu ári? Endurtekur hann lcikinn frá 1961-62 á. Kúbu? Kosningabrella Reagans 1984 skipuleggja annað Grenadaævin- týri til að auka vinsældir sínar, svona rétt fyrir kosningar. Forsetinn glatar trausti En Reagan miín eiga í erfið- leikum þegar kemur að Skipulagn- ingu kosningaævintýrisins. Hann hefur nú þegar glatað trausti hátt- settustu samstarfsmanna sinna og nokkurra reyndustu embættis- manna innan hermálaráðuneytis- ins, en þessir embættismenn yrðu að framfyigja og raunar skipu- leggja ævintýrið. Þetta má lesa út úr skýrslu þingnefndar varnarmálaráðuneytisins um sprengjuárásina á Beirút, en skýrslan kom út rétt fyrir síðustu jól. í skýrslunni kemur fram hörð gagnrýni á hina borgaralegu stefnumörkun og minnir sú gagnrýni á skoðanaskipti Trumans forseta og MacArthurs hershöfð- ingja þegar Kóreustríðið stóð sem hæst. Stjórnendurnir í Pentagon hafa í framhaldi af þessu beðið Bandaríkjaforseta að hætta að panta tvísýnar hernaðaraðgerðir til að ná einhverjum pólitískum markmiðum, sem eru illa skil- greind af forsetans hálfu eða alls ekki hægt að ná. CIA hefur einnig látið berast, að menn þar séu óánægðir með forset- ann, Schultz og persónulega ráð- gjafa þeirra. Hápunkti náði þessi boðskapur CIA á nýársdag, en þá birtust á sjónvarpsskjánum um gervöll Bandaríkin tveir fyrrum stjórnendur CIA, þeir William Colby og Stansfield Turner. Þeir sökuðu Reaganstjórnina um að Bringuummál forsetans hefur aukist um nokkra sentimetra síð- ustu vikur. hafa eyðilagt sambönd CIA við ar- abaleiðtoga, og þá einkum Yasser Arafat. Ronald Reagan mun þó að lík- indum ekki standa alveg vinalaus uppi, þegar hann leggur upp í kosn- ingabrellu sína. Sjóherinn er trygg- ur stefnu Hvíta hússins, því hann mun mestu tapa ef Reagan nær ekki kjöri. Þá mun CIA einnig hjálpa til við skipulagninguna þeg- ar þar að kemur. En hvar á Grenada ’84 að vera? En eitt vandamál vefst mikið fyrir mönnum. Hvar á að skipu- leggja kosningabrelluna? Þótt stjórnin í E1 Salvador falli, þykir mjög ólíklegt að stjórn Reagans geti hvatt til þann mannafla sem þarf til að bjarga henni, því al- menningsálit, andstaða á þingi og efasemdir hersins munu koma í veg fyrir slíkt. Innrás í Nicaragua kæmi engum á óvart og myndi kosta mikið mannfall í liði Bandaríkja- manna og því lítt auka á vinsældir forsetans. Menn í Hvíta húsinu vonast til að Bandaríkjamenn verði horfnir á brott frá Líbanon fyrir kosningar. Ef það ferst fyrir gæti Reagan litlu bjargað með samningum á síðustu stundu eða með því að leggja fram einhverja áætlun um Gaza-svæðið eða vesturbakkann. Slíkt myndi ekki duga honum í kosningum. Ævintýrið í Chad í Afríku á síðasta ári hafði ekkert pólitískt gildi heima fyrir í Bandaríkjunum; enn ein átökin við Líbýu yrðu gagns- laus einnig. Ef Reagan verður óheppinn mun hann e.t.v. neyðast til að bjarga stjórn Hassans kon- ungs í Marokkó frá uppreisn hers- ins. Forsetinn getur lítið sem ekk- ert gert til hjálpar Marcosi forseta á Filippseyjum. Verður það Kúba? Það er því fátt um fína drætti í þessum efnum. Svo kann að fara, að aðeins einn staður á jarðar- kringlunni geti aukið á hróður for- setans í Bandaríkjunum og duga honum til aö ná attur kjori. Það er Kúba. Það þykir ekki líklegt að forset- inn ígrundi innrás á Kúbu, en svo kann að fara að þetta verði hálm- stráið sem hann grípur í sér til bjargar. Hann mun þá endurtaka leikinn frá 1962 - en sá leikur jók vinsældir Kennedys um heil 13 prósent á sínum tíma. Sjóherinn og. CIA munu þá beina sjónum allra að sovéskum kjarnorkukafbátum, sem eru á sveimi undan austurströnd Banda- ríkjanna. Nýlega hefur sjóherinn látið það berast, að sést hafi til sov- éskra Echo-II kafbáta óvenjulega nærri ströndu og að líklega sé kaf- bátahöfn á Kúbu. Þessir kafbátar hafa innanborðs eldflaugar með 250 mflna fluggetu. Reaganstjórninni væri hægur vandi að staðhæfa, að staðsetning Echo-II kafbátanna á Kúbu bryti í bága við samkomulagið, sem Kennedy og Krúsjéf gerðu með sér árið 1962. Nú segir í lýsingum frá sjóhernum, að þessir kafbátar Sov- étmanna séu fremur ætlaðir til að granda skipum en skjóta flaugum á land. En skítt með það. Forsetinn gæti sent Moskvu viðvörun um að fjarlægja þegar í stað kafbátana, birt loftmyndir af kafbátastöðinni á Kúbu, kallað út flotann og flugher- inn, sett allt í viðbragðsstöðu og sett hafnbann á Kúbu til að hindra sovésku kafbátana í að komast í höfn þar. Menn í Hvíta húsinu sjá þann kostinn við þessa áætlun, að ekki tæki nokkur maður í Moskvu mark á henni-en hinn ameríski kjósandi léti hins vegar biekkjast. (ast - endursagt úr New Statesman, jan. ’84).

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.