Þjóðviljinn - 18.01.1983, Side 1

Þjóðviljinn - 18.01.1983, Side 1
ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 íþrottir ————■ llmsión: VíðirSigurðsson Breiöablik í annað sætið Breiðablik styrkti stöðu sína í 2. deild karla í handknattleik í gær- kvöld' með því að sigra Armann 20-14 í Laugardalshöllinni. KA hef- ur 16 stig, Breiðablik og Grótta 14, Haukar 12, Þór Ve. 11, HK 9, Afturelding 7 og Armann 5 stig. - VS. Létt fyrir Skagamenn Skagamenn áttu ekki í neinum vandræðum með nágranna sína, Skallagrím úr Borgarnesi, í gær- kvöld þegar liðin mættust á Akra- nesi í 3. deild karla í handknattleik. Leiknum lauk með yfirburðasigri heimaliðsins, 34-10. Efstu lið 3. deildar eru Fylkir með 18 stig, Reynir 13, Þór Akureyri 12, Akr- anes og Keflavík með 11 stig. - VS. Fimmtíu stiga sigur IR-ingar áttu ekki í neinum vandræðum með 2. deildarlið Breiðabliks í bikarkeppni KKI í körfuknattleik í gærkvöld/. Leikið var í Hagaskólanum og sigruðu IR- ingar með 50 stiga mun, 109-59, og átti Kópavogsliðið aldrei mögu- le ika gegn Pétri Guðmundssyni og félögum. - VS. Fimmtán marka sigur FH á botnliði ÍR Knattspyrnustúlkurnar frá Akranesi komu færandi hendi heim í sitt byggðarlag á laugardagskvöldið eftir að hafa sigrað á íslandsmótinu í innanhússknattspyrnu. Þær unnu Breiðablik í úrslitaleik og sigruðu þar með á þessu móti í fimmta skipti. Sjá nánar á næstu síðu. Mynd:-eik Þriðja sætið af fjórum á Guernsey Rétt eins og við var að búast reyndust ÍR-ingar FH-ingum engin fyrirstaða þegar félögin mættust í l.deild karla í handknattleik í Laugardalshöllinni í gærkvöld . í slökum leik sem oft líktist hraðaupphlaupa- og skotæfíngu hjá FH vann Hafnarfjarðarliðið auðveldan sigur, 35-20. Þrettánda tap IR í jafnmörgum leikjum í deildinni í vetur. FH byrjaði með látum, komst í 3-0, en IR-ingar gerðu sér lítið fyrir og jöfnuðu, 3-3. Þá tóku FH- ingar af skarið, 6-3, 11-5 og síðan 16-9 þegar flautað var til leikhlés. Munurinn jókst framan af síðari hálfleik, 23-12 fljótlega en síðan héldu ÍR-inar í við andstæðinga sína í markaskoruninni upp að 29- 19. Þá komu sex FH mörk í röð en ÍR átti lokaorðið, 35-20. Það er varla hægt að hrósa Staðan: Staðan í l.deild karla í handknatt- leik eftir leik IR og FH í gærkvöld : FH...............13 9 0 4 348-289 18 Víkingur.........12 8 2 2 259-237 18 KR...............12 8 0 4 292-223 16 Stjarnan..........12 7 1 4 246-239 15 Valur...........12 5 1 6 250-236 11 Þróttur.........12 5 1 6 241-249 11 Fram............12 4 1 7 259-277 9 ÍR..............13 0 0 13 227-372 0 Valur og Stjarnan mætast í Laugardalshöllinni í kvöld kl. 20. nokkrum leikmanni FH-liðsins að þessu sinni þrátt fyrir fimmtán marka sigur. Hann hefði getað orð- ið mun stærri. Þorgils Óttar Mathiesen átti skárstan leik og var drjúgur í hraðaupphlaupunum. Kristján Arason var afar mistækur þrátt fyrir mörkin 12. Sverrir Krist- insson varði vel í síðari hálfleik. Kristján skoraði 12 mörk, Þorgils Óttar 8, Hans 6, Guðjón G. 3, Guðmundur 3, Sveinn 2 og Pálmi eitt. ÍR-ingarnir voru allir jafn slakir nema Guðjón markvörður Hauks- son. Gunnar og Þórarinn skoruðu 4 mörk hvor, Atli 3, Björn 3, Einir 2, Einar 2 og Ólafur tvö. -MHM/VS íslenska landsliðið í borðtennis hafnaði í þriðja sæti af fjórum i 3.deild Fvrópukeppni landsliða sem fram fór á Ermasundseynni Guernsey um helgina. Að sögn Gunnars Jóhannessonar formanns borðtennissambandsins eru menn ánægðir með þá frammistöðu þar sem neðsta sætið hefur yfirleitt orð- ið hlutskipti íslands á mótum þess- um. ísland tapaði fyrst fyrir Guern- sey 6-1 en flestir leikir voru frekar jafnir. Stefán Konráðsson herjaði út eina vinning íslands, sigraði Powell 21-18,11-21,21-19. Þávar leikið við Jersey og þar vannst sigur, 4-3. Stefán og Hilmar Kon- ráðssynir unnu tvo leiki hvor en Ragnhildur Sigurðardóttir tapaði. Jerseybúar unnu einnig tvenndar- leik og tvíliðaleik en íslenskur sigur samt. Loks mætti íslenska liðið Möltubúum og tapaði naumlega, 4-3. Stefán og Ragnhildur sigruðu sinn leikinn hvort í einliðaleik en Stefán tapaði einum og Hilmar tveimur. Stefán og Ragnhiidur sigr- uðu í tvenndarleik en Stefán og Hilmar töpuðu í tvíliðaleiknum. Lokastaðan: Guernsey.........3 3 0 18-3 6 Malta.............3 2 1 8-13 4 ísland............3 1 2 8-13 2 Jersey........... 3 0 3 8-13 0 í tengslum við keppnina var haldin einstaklingskeppni og í henni lenti Hilmar á móti Powel í undanúrslitum. Powel sigraði naumlega 19-21, 21-18, 21-18. Powel vann síðan öruggan sigur í úrslitaleiknum við Cordonna frá Möltu. Ragnhildur komst einnig í undanúrslit en tapaði þar fyrir Sop- er frá Jersey sem sigraði á mótinu. -VS Liðum Skagamanna vegn- aði báðum vel um helgina Stúlkurnar neituðu og ekkert brun í gær Liðunum sem Skagamennirnir Teitur Þórðarson og Karl Þórðar- son leika með í frönsku knattspyrn- unni vegnaði báðum vel um helg- ina. Lens sigraði Mulhouse á heimavelli 4-2 og Laval gerði jafn- tefli, 1-1, við St.Etienne á útivelli. Aðeins 8.000 manns fylgdust með þeim leik og gamla stórveldið St.Et- ienne riðar á barmi falls vegna innanhússátaka auk lélegrar frammistöðu á knattspyrnuvcll- inum. Nantes vann Bordeaux 4-0 í uppgjöri toppliðanna og hafði mikla yfirburði. Þá sigraði Monaco Bastia 3-0. Nantes hefur 33 stig, Bordeaux 28, Lens 27, Laval og Monaco 24 hvort. Real á toppinn Real Madrid tók forystuna í spænsku l.deildinni með l-0sigri á Real Zaragoza. Á meðan varð Atl- btico Bilbao að sætta sig við 1-1 jafntefli heima gegn botnliðinu Valladolid. Barcelona sigraði Se- villa 1-0. Real Madrid hefur 31 stig, Bilbao 30 og Barcelona 28 stig. Meistararnir og Víkingsban- arnir, Real Sociedad, sigruðu Ösa- una 1-0 en eru aðeins í áttunda sæti deildarinnar. Falcao í fréttum Brasilíumaðurinn Roberto Falc- ao kom mjög við sögu er lið hans, AS Roma, jók forystu sína í ítölsku knattspyrnunni með 1-0 sigri á Cagliari. Falcao lék skínandi vel, skoraði sigurmarkið á 48. mínútu en var rekinn af leikvelli fyrir brot á Bergomi þegar þrjár mínútur voru til leiksloka. Liðin í öður og þriðja sæti, Inter Milano og Verona.skildu jöfn, 1- 1, eftir að Verona hfði haft forystu í tæpar 80 mínútur. Juventus mátti sætta sig við jafntefli, 1-1, heima gegn Sampdoria. Bettega skoraði fyrir Juventus með skalla 5 mínút- um fyrir leikslok en mínútu síðar jafnaði Scanziani. Óbreytt í Hollandi Öll efstu liðin í Hollandi sigruðu um helgina. Ajax vann Go Ahead Deventer 2-0, Feyenoord vann nágranna sína Excelsior 1-0 og PSV Eindhoven sigraði Vilhjálm annan frá Tilburg (William II Til- burg) 2-1. Ajax hefur 30 stig, Fey- enoord 29 og PSV 28 stig. -VS Snjóleysið í Ölpunum hefur sett stórt strik í reikning heimsbikar. - keppninnaráskíðum að undanförnu en í Austurríki þurfti í gær að fresta brunkcppni kvenna vegna snjó- byls. Skíðayfirvöld höfðu að vísu ákveðið að veðrið hefði gengið nægilega mikið niður en stúlkurnar voru ekki á sama máii, neituðu að renna sér og þar við sat. Það var hins vegar keppt í svigi og þar sigraði austurríska stúlkan Anni Kronsbichler, sem er aðeins 19 ára gömul. Heimsbikarhafinn Erika Hess frá Sviss datt í fyrri ferðinni og féll úr keppni en heldur samt forystu sinni í stigakeppninni. I heimsbikarnum í skíðastökki vann Matti Nykanen frá Finnlandi sinn annan sigur í röð þegar hann stökk lengst allra á móti í Lake Placid í Bandaríkjunum. Armin Kogler frá Austurríki varð annar og Stein Bratten frá Noregi þriðji. A laugardag hafði Nykaenen einn- ig sigrað, Kogler varð annar en Jeff Hasting frá Bandaríkjunum þriðji. -VS

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.