Þjóðviljinn - 25.01.1983, Síða 3

Þjóðviljinn - 25.01.1983, Síða 3
10 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Þriðjudagur 25. janúar 1983 Þriðjudagur 25. janúar 19831 ÞJÓÐVILJINN — StÐA. U íþróttir Umsjón: Víöir Sigurósson Ásgeir aftur með og Stuttgart sigraði Ásgeir Sigurvinsson er kominn af stað í vesturþýsku knattspyrnunni á ný eftir meiðslin og á laugardag átti hann góðan leik með Stuttgart scm sigraði Iforussia Dortmund 2-1. Allgöwer skoraði bæði mörk Stutt- gart. Diisseldorf, lið Atla Eðvaldssonar, tapaði 3-1 í Bochum og er áfram í fallbaráttu. Hamburger vann Nurnberg 3-0 og hefur nú leikið 36 leiki í röð í „Bund- esligunni“ án taps. Bayern Múnchen gerðu jafntefli við Bremen, 1-1. Hamburger hefur 28 stig, Bayern 25, Stuttgart, Köln og Bremen 24. Dússeldorf er í fimmta neðsta sæti með 14 stig. í Belgíu lyfti CS Brúgge sér fjær fallbaráttu með 3-1 sigri á útivelli gegn Lárusi Guðmundssyni og félögum í Waterschei. Sævar Jónsson átti góðan leik með Brugge og Lárus átti tvö stangarskot. Antwerpen, með Pétur Pétursson á miðjunni sigraði Beveren 2-1 á útivelli, Magnús Bergs og félagar í Tongeren komust úr neðsta sætinu með því að sigra Waregem 3-2 en Lokeren, án Arnórs Guðjohnsen sem er í leikbanni, tapaði aftur, nú 2-1 fyrir Gent. Anderlecht hefur 27 stig, Standard og FC Brúgge 26, Antwerpen 24, Gent og Waterschei 22, Molenbeek og Lokeren 21. CS Brugge er skammt undan með 18 stig, en Tongeren er næst neðst með 13 stig. í Frakklandi vann Laval, lið Karls Þórðarsonar, góðan sigur á Monaco, 1-0, og Karl lagði upp markið. Lens, lið Teits Pórðarsonar tapaði hins vegar 4-0 á Korsíku fyrir Bastia. Nantes gerði jafntefli við Brest, 1-1, og er áfram efst með 34 stig, Bordeaux hefur 30 eftir 3-2 sigur á Nancy, Lens 27, Laval og Paris St. Germain 26 hvort. - VS Besti árangur Islands - siöunda sæti í Basel Islenska landsliðið í badminton náði sínum besta árangri í B- keppni Evrópulandsliða mcð því að ná sjöunda sæti í Hclvetia Cup sem fram fór í Basel í Sviss um helgina. Liðið hefur aldrei áður komist í hóp átta efstu í keppni þessari. Island lék í riðli með Vestur- Þjóðverjum og Möltubúum. Leikurinn gegn V-Pjóðverjum tap- aðist, 7-0, en Möltubúar voru lagðir að velli með sömu stigatölu. í keppninni um 5.-8. sæti lék liðið svo við Norðmenn, Finna og Tékka. Fyrsti leikurinn, gegn Norðmönnum, tapaðist 2-5 en síð- an vann ísland Finnland 6-1. Loks var leikið við Tékka um sjötta sæt- ið og þar sigruðu Tékkar 6-1. Vestur-Þjóðverjar urðu sigur- vegarar á mótinu, sigruðu Wales í úrslitaleik. írar urðu þriðju, Austurríkismenn fjórðu, þá Norð- menn, Tékkar, íslendingar og Finnar. -VS KSI freistar þess að leysa skuldamálin með happdrætti Eins og flestum er í fersku minni, varð vcrulegur halli á rekstri Knattspyrnusambands Islands á síðasta ári, en ástæða þess var fyrst og fremst sú, að aðsókn að lands- lcikjum síðari hluta keppnistíma- bilsins brást algjörlega, en tekjur af landsleikjum hafa staðið undir um- svifamikilli starfsemi sambandsins undanfarin ár, að mestu leyti. Stjórn K.S.Í. hefur ákveðið að efna til happdrættis til að freista þess að leysa skuldamál sambands- ins, að öðrum kosti yrði að draga starfsemina verulega saman Fjöldi útgefinna miða í happ- drættinu er aðeins 3400 og verð hvers miða 500 kr. Þess er einkum vænst, að fyrirtæki hlaupi undir bagga með Knattspyrnusamband- inu við að reyna að komast út úr þessum fjárhagserfiðleikum. Aðalvinningur í happdrættinu er bifreið af gerðinni Saab GL 900, árgerð 1983. Auk þess eru í vinn- inga fjórar flugferðir með Flug- leiðum, tvær Keflavík-London- Reykjavík og tvær Keflavík-New York-Keflavík. Dregið verður 7. mars n.k. Knattspyrnusambandið væntir þess að velunnarar knattspyrnunn- ar taki þessu happdrætti vel. ís- lensk knattspyrna hefur verið í stöðugri sókn undanfarin ár og landslið okkar ná sífellt betri og betri árangri. Ef unnt á að vera að halda áfram á þeirri braut er nauð- synlegt að Knattspyrnusambandið standi á traustum fótum, fjárhags- lega, þannig að forráðamenn þess þurfi ekki að eyða mestum tíma í að afla fjár til að halda hlutunum gangandi. Haukar komnir í annað sæti Haukar l- Hafnarfirði hafa nú Leikurinn var ekki síst mikilvægur Staðan í 2. deild: sett stefnuna í 1. deild eftir slælega fyrir þær sakir að liðin taka með KA..........11 7 2 2 278-243 16 byrjun í 1. deild karla í handknatt- sér stigin úr forkeppninni í úrslit- ^au^ar . ..^ ® J 4 278-261 14 leik í vetur. Á föstudagskvöldið akeppnina, öfugt við efstu liðin í 1. Grótta11 7 0 4 259-266 14 unnu þeir Gróttu 23-19 í þýðingar- deild. ÞórVe.!!!™!Z.’.’.'.’.".’.'.".10 4 3 3 221-218 11 miklum leik á Seltjarnarnesi og Þór Vestmannaeyjum átti að HK..........11 4 1 6 237-248 9 ættu nú að vera öruggir um sæti í leika við Breiðablik og HK um Afturelding...12 2 3 7 231-259 7 fjögurra liða toppbaráttunni. helgina en komst ekki til leiks. íþróttir Umsjón: Víöir Sigurösson Markverðirnir fóru kostum a þegar Valsmenn komu sér sex stigum frá fallsæti Valsmenn stigu stórt skref í átt til öryggis í 1. deild karla í handknatt- leik á laugardaginn er þeir sigruðu Þrótt 18-16 í spennandi og fjörug- um leik í Laugardalshöllinni þar sem markverðirnir, Olafur Bene- diktsson hjá Þrótti og Einar Þor- varðarson hjá Val, voru í aðalhlut- verkum. Þessi tvö lið eru meðal þeirra fjögurra sem berjast við fall- ið í mars og Valsmenn eru nú komnir með sex stiga forskot á næstneðsta liðið, Fram, að lokinni forkeppninni. Það var ekkert gefið eftir á laugardag og menn gerðu sér augljóslega grein fyrir gildi þessa leiks. Ekkert var gefið eftir, varnir beggja sterkar og markvarslan frá- bær eins og áður var vikið að. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann, Þróttarar höfðu frumkvæðið í fyrri hálfleiknum en að honum loknum var staðan jöfn 8-8. í byrjun síðari hálfleiks tóku Valsmenn að koma meira út á móti Páli Ólafssyni í vörninni og það riðlaði sóknarleik Þróttar veru- lega. Þeir komust í 12-9 og síðan 14-10 en þá kom mótleikur Þrótt- ara. Brynjar Harðarson var tekinn __________________ úr umferð og þá fór villunum að fjölga í sóknarleik Vals. Þrjú næstu mörk voru Þróttara, 14-13 en Vals- menn svöruðu 16-13. Tvö mörk Guðmundar Sveinssonar minnk- uðu muninn í 16-15 og Þróttur átti- kost á að jafna en efnilegu hraða- upphlaupi var klúðrað á herfilegan hátt á miðju vallarins og Brynjar skoraði í staðinn fyrir Val. Lárus Karl Ingason lagaði stöðuna fyrir Þrótt í 17-16, 15 sekúndum fyrir leikslok, en á síðustu sekúndunum innsiglaði Gunnar Lúðvíksson sigur Vals, Þróttarar slepptu hon- um í gegn til að freista þess að ná knettinum eftir mistök hans en Gunnar brást ekki og sigur Vals var í höfn. Leikurinn var fjörugur og skemmtilegur á að horfa, annað en hægt hefur verið að segja um marga leiki hjá þessum liðum í vet- ur. Talsvert var um mistök í sókn- arleik beggja, ekki síst vegna sterkra vama og markvörslunnar. Valsmenn þurfa vart að óttast fall úr þessu og endurkoma Brynjars er þýðingarmikil fyrir liðið. Hann er þó einum of villtur og óagaður en gerir virkilega laglega hluti og er ávallt óútreiknanlegur fyrir varnir andstæðinganna. Hann á þó margt ólært í vamarleik. Annars var Vals- liðið jafnt að þessu sinni en Einar í markinu átti stærstan hlut í sigrin- um. Brynjar skoraði flest mörk 8/3 víti, Jón Pétur Jónsson 2, Theodór Guðfinnsson 2, Þorbjörn Jensson 2, Gunnar Lúðvíksson, Jakob Sig- urðsson, Steindór Gunnarsson og Þorbjörn Guðmundsson eitt hver. Óli Ben. var bestur í liði Þróttar og markvarsla hans á köflum stór- fengleg. Hann hélt liðinu á floti á örlagaríkum augnablikum. Jens Jensson komst best frá leiknum af útispilurununi og hefur sjaldan átt jafn heilsteyptan leik. Páll átti erf- itt uppdráttar eftir góða byrjun og áhyggjuefni fyrir Þrótt hve sókn- arleikurinn lamast þegar hans nýt- ur ekki við. Þróttur ætti að sleppa við fall en ekkert er öruggt í þeim efnum, Framararnir geta reynst skeinuhættir. Jens skoraði 4 mörk, Páll 3, Guðmundur Sveinsson 3/2, Ólafur H. Jónsson 2, Konráð Jóns- son 2, Gísli Óskarsson og Lárus Karl Ingason eitt hvor. Lítið samræmi var í dómgæslu Árna Sverrissonar og Ólafs Steingrímssonar og mistök þeirra félaga alltof mörg. í 1. deild verða menn að dæma betur en þetta. -VS A „Hlógum bara þegar við fréttum úr Firðinum!“ Ótrúlegir yfirburöir FH: Náðu 17 marka mun - byrjuðu upp á nýtt Eftir hinn ótrúlega stóra sigur FH-inga á Frömurum á sunnudeginum voru þeir fáir sem gáfu KR-ingum nokkra möguleika til að ná efsta sæti 1. deildar karla í handknattleik. Til þess þurftu þeir að sigra íslandsmeistara Víkings með sjö marka mun um kvöldið en hins vegar nægði Víkingum sigur til að hljóta efsta sætið og þátttökurétt í IHF-Evrópukeppninni. Önnur úrslit, þ.e. jafntefli up að 6 marka sigri KR, þýddu að FH stæði uppi á toppnum. En KR-ingar sýndu af sér mikið keppnisskap og baráttu- vilja og eftir að hafa leitt 13-10 í hálfleik gjörsigruðu þeir Víkingana með níu marka mun, 27-18. „Við fórum saman út að borða og biðum eftir úrslitunum úr Hafn- arfirði. Þegar við fréttum að FH hefði sigrað með 23 marka mun fór- um við einfaldlega að hlæjam okk- ur óraði ekki fyrir því að okkur tækist að sigra Víking með sjö marka mun og fórum því afslapp- aðir í leikinn", sagði Jens Einars- son, markvörðurinn snjalli í KR sem átti stóran þátt í sigrinum. Hann varði alls 17 skot í leiknum, þar af sex á fyrstu tíu mínútunum. En Jens hafði nokkuð að segja um þá talningu: „Ég vil að það komist á framfæri að skotafjöldi sem markvörður ver í leik segir ekki allt um hvort hann hafi leikið vel eða illa. Ég hefði getað varið tíu skot og leikið jafnvel fyrir liðið. Ef mark- vörður tekur þau skot sem hann á að taka stendur hann fyrir sínu og það tel ég að mér hafi tekist í kvöld. Mér hefur gengið vel að undan- förnu og tel að ég sé að komast í sama form og ég var í þegar ég lék með Víkingi undir stjórn Bogdans fyrir nokkrum árum“. KR skoraði þrjú fyrstu mörkin og lét forystuna aldrei af hendi. Munurinn var eitt til þrjú mörk all- an fyrri hálfleik, 13-10 í hálfleik, en hann tók að aukast eftir hlé. Þegar sjö mínútur voru til leiksloka náðist markið langþráða, Alfreð Gíslason skoraði glæsilega, 24-17, Víkingar minnkuðu í 24-18 en þrjú síðustu mörkin voru KR-inga, það síðasta úr vítakasti Alfreðs tíu sek- úndum fyrir leikslok. Viggó Sig- urðsson skoraði á síðustu sekúnd- unni með fallegu skoti en dómar- arnir töldu leiktímann runninn út. Fæstir voru því sammála. „Ég átti engan veginn von á þess- um stórsigri", sagði Alfreð eftir leikinn. Við ætluðum að sigra og ná öðru sætinu, enginn trúði virkilega að þetta væri hægt. Markvarslan hjá Jensí upphafi var vendipunkt- urinn, frammistaða hans „púrr- aði“ okkur hina upp. Við æfðum stíft um jólin og það skilaði sér svo sannarlega í kvöld. Þá tókst okkur að halda haus þó Víkingarnir reyndu að taka menn úr umferð undir lokin, við höfum oft misst niður leiki undir þannig kringum- stæðum. Varðandi Víkingsliðið fannst mér vanta léttleikann hjá þeim, þeir einbeittu sér einum of mikið að hörkunni í þetta skiptið“, sagði Alfreð Gíslason sem átti stór- góðan leik og skoraði tíu mörk, hvert öíðu glæsilegra. KR Iék þarna einn sinn allra besta leik í vetur og takist liðinu að LOKASTAÐAN Staðan að lokinni forkeppni í 1. deild er þá þannig: KR............14 10 0 4 345:250 20 FH.......... 14 10 0 4 384:302 20 Víkingur......14 8 3 3 300:287 19 Stjarnan..... 14 0 1 5 293:276 17 Valur.........14 7 1 6 288:267 15 Þróttur.......14 5 2 7 280:290 12 Fram......... 14 4 1 9 291:339 9 IR............14 0 0 14 244:404 0 Úrslitakeppnin hefst 18. mars. Fjögur efstu liðin leika fjórfalda umferð og hefja stigakeppni upp á nýtt en hin fjögur taka núver- andi stig með sér í samskonar keppni. Tvö neðstu liðin þar falla í 2. deild. Markahæstir að lokinni for- keppni: Kristján Arason, FH............103 Eviólfur Braqason, Stjörnunni..100 Anders Dahl, Nlrelsen KR....... 77 Þorgils Ottar Mathiesen, FH.... 75 Alfreö Gíslason, Kr............ 73 Páll Ólafsson, Þrótti.......... 70 Hans Guömundsson, FH........... 68 Egill Jóhannesson, Fram........ 63 Björn Björnsson, ÍR............ 54 SigurðurGunnarsson, Vikingi... 51 Viggó Sigurðsson, Víkingi...... 49 GuðmundurÞórðarson, Stjörnunni 49 TheódórGuðfinnsson, Val........ 45 halda þessari ferð verður það erfitt viðureignar í úrslitakeppninni. Al- freð og Jens voru í sérflokki en allir áttu ágætan dag. Gunnar Gíslason var traustur að vanda, svo og Anders Dahl Nielsen, sem þó hef- ur oft leikið betur. Guðmundur Al- bertsson er ört vaxandi horna- maður sem yljar áhorfendum með snerpu sinni og áræði. Haukur Ott- esen laumaði inn laglegum mörk- um og í vörninni stóðu Jóhannes Stefánsson og Friðrik Þorbjörns- son fyrir sínu ásamt hinum. Þá kom styrkur markvörslunnar hjá KR vel í ljós þegar Gísli Felix Bjarnason brá sér inná og varði vítakast frá Viggó á þýðingarmiklu augnabliki. Viggó Sigurðsson var yfir- burðamaður í liði Víkings og nálg- ast ört sitt fyrra form. Hann sá al- farið um mörk liðsins fyrsta korterið og Viggó í þessum hant ætti að vera sjálfsagður í landsliðið. Kristján Sigmundsson varði vel, betur en oftast í vetur. Aðrir voru í lágu plani og náðu aldrei að rífa sig upp fyrir það. Mörk KR: Alfreð 10/1 víti, Anders 6/2, Guðmundur 4, Gunn- ar 3, Haukur 0/3, Jóhannes eitt. Mörk Víkings: Viggó 9/1, Steinar Birgisson 3, Guðmundur Guðmundsson 2, Sigurður Gunn- arsson 2, Hilmar Sigurgíslason og Páll Björgvinsson eitt hvor. Það er bjarnargreiði hjá HSl við Rögnvald Erlingsson og Stefán Arnaldsson að láta þá dæma leiki eins og þennan. Þeir valda ekki jafn voldugu verkefni og það verð- ur að segjast að Víkingar högn- uðust heldur á slakri frammistöðu þeirra. -VS „Strákar bara eitt í einu“, kallaði Geir Hallsteinsson þjálfari FH- strákanna til sinna manna, þegar liðið hafði náð 17 marka forystu gegn hörmulega slöku liði Framara í Hafnarfirði á sunnudaginn. 17 mörk í forskot þurftu FH-ingar til að ná jöfnu markahlutfalli og KR- ingar sem áttu eftir að leika við Víking síðar sama dag. FH-ingar tóku tillit til orða þjálf- arans og skoruðu síðustu sjö mörk leiksins án þess að Framarar næðu að svara fyrir sig. Lokastaðan hljóðaði upp á 23 marka forskot, 36-13, ótrúlegur munur á tveimur 1. deildar liðum. Þegar 17 marka muninum var náð fór Geir að telja upp á nýtt, 1-0, 2-0, o.s.frv. Framarar mættu galvaskir til leiks og þrátt fyrir að FH kæmist í 3-0 náðu þeir að jafna leikinn 4-4. • Eftir það var allur vindur úr liðinu. Vörnin var hörmuleg og sóknin enn verri. Þessir stóru og stæðilegu piltar virtust engan veginn geta spilað saman. Boltinn stóð fastur á miðjunni, þar sem Hermann var eini maðurinn sem eitthvað hreyfði sig. Á meðan skoruðu FH-ingar livert niarkið á fætur öðru úr hraðaupphlaupum, flestuni stór- kostlega vel útfærðum. Kristián, Árason skoraði sitt 100. mark í deildinni í vetur ineð stórkostlegu skoti þrjá metra fyrir utan punkta- línu, stöng, stöng inn. Ef Framarar léku illa í fyrri hálf- leik, þá voru þeir algerlega utan- gátta í þeim síðari. Að skora aðeins fjögur rnörk í heilum hálfleik, en fá á sig 18, nær flest úr hraðaupp- hlaupum, segir sína sögu um frammistöðu liðsins. FH-ingar geta hins vegar unað glaðir við sitt. Þrátt fyrir yfirburði, héldu þeir uppi skemmtilega út- færðum samleik. Varnarleikurinn var góður og Sverrir átti góðan leik í markinu. Mörk FH: Þorgils Óttar Mathie- •sen 9, Pálmi Jónsson 8, Kristján Arason 7, Hans Guðmundsson 5, Sveinn Bragason 5 og Guðmundur Magnússon 2. Mörk Fram: Dagur Jónasson 3, Gunnar Gunnarsson 3, Egill Jó- hannesson 2, Erlendur Davíðsson, Jón Árni Rúnarsson, Hinrik Ólafs- son, Hermann Björnsson og Brynjar Stefánsson eitt hver. _lg Eyjólfur með góða markakóngstilraun Eyjólfur Bragason úr Stjörnunni hjó nærri markameti Alfreðs Gísla- sonar frá því í fyrra er hann skoraði 19 mörk í sigri Stjörnunnar, 32-17, á ÍR í 1. deild karla í handknattleik í fyrrakvöld. Alfreð skoraði 21 mark í leik í fyrra, besta fyrr eða síðar í 1. deild. Það lá Ijóst fyrir að Eyjólfur þurfti að skora 22 mörk til að ná Kristjáni Arasyni úr FH og hann fór langt með það. Kristján skoraði 103 mörk í 1. deild en Eyj- ólfur 100. Eyjólfur er þó með betra hlutfall því hann lék einum leik færra en Kristján vegna leikbanns. Leikurinn var eins og aðrir ÍR- leikir og spurningin var aðeins sú wtttzwtmsms. f!SS!Sí3l>SS!b3BSnKSiiá hve mikið Eyjólfur næði að skora. Staðan í hálfleik var 11-5 en öllu meira var skorað á bóða bóga í síð- ari hálfleiknum. auk Eyjólfs skoruðu fyrir Stjörnuna Magnús Andrésson 4, Gunnar Einarsson 2, Viðar Símonarson 2, Ólafur Lárus- son 2, Björgvin Elíasson, Guð- mundur Óskarsson og Sigurjón Guðmundsson eitt hver. Fyrir ÍR: Björn Björnsson 4, Þórarinn Tyrfingsson 3, Einir Valdimarsson 3, Atli Þorvaldsson 2, Gunnar Kristófersson 2, Ólafur Vilhjálmsson 2 og Einar Ólafsson eitt. -VS Motherwell er komið í gang Motherwell, lið Jóhannesar Eðvaldsonar í skosku úrvalsdcildinni í knattspyrnu, er nú komið á skrið í kjölfar sigranna á Rangers og Celtic. Á laugardag mætti Motherwell Morton á útivelli og komst loks úr fallsæti mcð 1:0 sigri. Morton sótti allan fyrri hálf- leikinn en Motherwell tók leikinn í sínar hendur í þeim síðari. Einn mesti ógnvaldur skosku varnanna um þessar mundir er háskólastúdentinn tvítugi, Brian McClair, og það var hann sem skoraði sigurmarkið. Sjötta mark hans í úrvalsdcildinni frá ára- mótum. Celtic vann Hibernian 4:1 með góðum síðari hálfleik. Charlie Nicholas skoraði eftir 4 mínútur cn sjálfsmark Tom McAdam leiddi til stöðunnar 1:1 í lcikhléi. George McCluskey og Frank McGarvey 2 skoruðu síðan fyrir Celtic í síðari hálfleik. Dundee Untied vann St. Mirren létt, 3:0 David Dodds 2 og Billy Kirkwood skoruðu mörkin. Doug Rougvie og Mark McGhee skoruðu fyrir Aberdeen í 2:0 sigri á Rangers og Brian Gallaghcr og Robert Clark skoruðu fyrir botnliðið Kilmarnock sem vann Dundec 2:0. Staðan í úrvalsdeildinni: Celtic 21 17 2 2 58:23 34 22 15 2 2 58:23 34 21 13 5 3 47:16 31 Rangers 21 6 9 6 29:26 21 Dundee 21 6 7 8 27:28 19 22 8 1 13 25:44 17 22 3 10 9 17:30 16 22 4 7 11 23:40 15 St. Mirren 22 3 9 10 19:36 15 Kilmarnock 22 2 8 12 18:49 12 Stórar tölur í 3. deildinni Reynir Sandgerði vann auðvcldan sigur á Skallagrími úr Borgarnesi fyrir helgi í 3. deild karla í handknattleik, 45:14. Á laugar- dag unnu Borgarnespiltarnir hins vegar Ögra létt í Laugardalshöllinni 29:11. Fylkir hefur 18 stig í 3. deild, Reynir 15, Þór Akur- eyri 12, Akranes og Keflavík 11 stig. Fyrsta markið á 22. mínútu! Víkingsstúlkurnar voru heldur betur ró- legar í tíðinni þegar þær mættu FH í 1. deild kvenna í handknattleik í fyrrakvöld. Það tók þær 22 mínútur að skora mark en áður hafði FH gert 8 stykki. Staðan í hálfleik var 9:1, Hafnarfjarðarliðinu í vil en síðari hálf- leikinn unnu Víkingstúlkurnar. Það dugði þó skammt, FH sigraði örugglega, 18:11. KR náði í dýrmæt stig í fallbaráttunni í Hafnarfirði á laugardaginn með því að sigra Hauka 17:12. Þór og Fram áttu að leika á Akureyri en þeim leik var frestað vegna ófærðar. Staðan í 1. deild kvenna: Valur..............10 7 2 1 158:122 16 ÍR.................10 7 1 2 165:133 15 FH................. 9 6 2 1 150:110 14 Fram............... 9 6 1 2 128:105 13 Víkingur...........10 3 1 6 119:144 7 KR................ 9 3 0 6 108:115 6 Haukar............ 9 0 1 8 100:154 1 ÞórAk............. 6 0 0 6 80:124 0 Öruggur sigur HK á Selfossi Niðurfelldar flugferðir til Norðurlands sáu til þcss að cúiungis 20% leikja á dagskrá á Islandsmótinu í blaki gat farið fram um helgina. Fimm leikir fyrirhugaðir, einn var lcikinn. Sá var þýðingarmikill, efstu lið 2. deildar, Samhygð og HK, léku á Sclfossi. HK, undir stjórn Samúels Arnar Erlings- sonar, sigraði 3:0 og tók þar með forystuna í deildinni. Sigurinn var öruggur, hrinurnar enduðu 15:5, 15:4 og 15:10. Þróttur átti að leika við UMSE og Bjarma fyrir norðan í 1. deild karla og Brciðablik tvo leiki við KA á Akureyri en öllum var frestað. Staðan í 2. deild: HK.......................6 5 1 15:5 10 Samhygð..................6 4 2 14:8 8 Breiðablik...............6 3 3 11:13 6 Fram.....................4 2 2 9:8 4 Þróttur N..:............4 13 5:11 2 Akranes.................4 0 4 3:12 0 -—!___________ ■. ..........- vs

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.