Þjóðviljinn - 08.02.1983, Page 1
Þriðjudagur 8. febrúar 1983 ÞJóÐVILJlNN — SIÐA 9
Ný borð-
tennis-
stjarna
Fjórtán ára gamalli stúlku frá
Rúmeníu skaut óvænt upp á
stjörnuhimin borðtennisíþróttar-
innar um helgina. Þá fór fram í
Cleveland á Englandi keppni tólf
bestu þjóða í Evrópu og keppt í ein-
liðaleikjum karla og kvenna.
Oganemez heitir þessi kornunga
stúlka sem kom sá og sigraði í Cle-
veland. Snemma í keppninni sigr-
aði hún margar af sterkustu
borðtenniskonum í Evrópu og eftir
keppni á föstudag og laugardag var
hún í efsta sæti. Margir reiknuðu
með að álagið yrði of mikið á hana
lokadaginn en sú stutta lék af sama
öryggi og tryggði sér efsta sætið.
Hún tapaði aðeins einum leik,
gegn fyrrum Evrópumeistaranum,
Joe Hamersley frá Englandi. Sig-
urvegarinn frá því í fyrra, Berta Ri-
es frá Hollandi, tapaði fyrir þeirri
rúmensku og varð að láta sér lynda
þriðja sæti.
f einliðaleik karla mátti handhafi
titilsins, Michael Appelgren frá
Svíþjóð, einnig sætta sig við þriðja
sætið. Þar sigraði hinn margreyndi
Tékki Milanolowski sem vann
þessa keppni síðast árið 1977.
-VS
Helgi til
Víkings?
Helgi Bentsson, framherjinn
fljóti úr Breiðabliki, hefur æft með
íslandsmeisturum Víkings í knatt-
spyrnu síðan fyrir áramót. Hann
hefur stundað æfingar þar við
Hæðargarðinn mjög vel og er talið
líklegt að hann leiki með Víkingun-
um næsta sumar. _VS
Ingólfur
fyrstur
Múllersmótið í skíðagöngu var
haldið við skíðaskálann í Hveradöl-
um um helgina. I flokki karla 20
ára og eldri sigraði Ingólfur Jóns-
son, Reykjavík, á 31,28 mín., ann-
ar Garðar Sigurðsson, Reykjavík,
á 33,49 og þriðji Karl Guðlaugs-
son, Siglufirði, á 36,24 mínútum.
Þeir gengu 10 kílómetra.
Guðbjörg Haraldsdóttir,
Reykjavík, sigraði í kvennaflokki
en þar voru gengnir 5 km. Hún
gekk á 19,51 mínútu en Sigurbjörg
Helgadóttir, Reykjavík, varð önn-
ur á 23,11 mín.
Piltar gengu 2,5 km og þar sigr-
aði Þórir Óskarsson, Reykjavík,
með yfirburðum, fékk tímann
11,52 mín. Annar varð Bjarni
Hauksson, Reykjavík, á 18,16.
Keppnin í öldungaflokknum stal
næstum því senunni frá hinum en
þar áttust við gömlu kapparnir
Tryggvi Halldórsson og Haraldur
Pálsson. Tryggvi sigraði að þessu
sinni á 22,47 mín. en Haraldur varð
annar á 24,54. Þriðji varð svo Einar
Ólafsson á 26,50 mín.
-VS
Þorvaldur Geirsson (14) og Omar Þráinsson (13) úr Fram í harðri baráttu við Pétur Guðmundsson (13) og
Kristin Jörundsson (11) IR-inga í leik liðanna á laugardag. Sú viðureign var all söguleg og m.a. var þeim
Þorvaldi og Ómari vísað útúr Hagaskólanum áður en yfir lauk og Pétur og Kristinn urðu að hverfa af
leikvelli með 5 villur ásamt mörgum fleirum. Nánar um þennan stormasama leik á bls. 11. Mynd: - eik.
Asgeir, Pétur og
Lárus allir á blað
Lárus meiddist og gæti misst næstu leiki.
Ásgeir Sigurvinsson lét svo sannarlega vita af því að hann
væri mættur til leiks að nýju hjá Stuttgart í vestur-þýsku
Bundesligunni í knattspyrnu á laugardaginn. Hann lék mjög
vel þegar Stuttgart sigraði Nurnberg 3-0, skoraði eitt mark-
anna eftir aukaspyrnu en lét síðan verja frá sér vítaspyrnu.
Kargus, markvörður Nurnberg, varði annað víti en það dugði
skammt.
Nokkrum leikjum var frestað og
Bayern Múnchen náði forystunni
með 6-1 sigri á Karlsruhe. Karl-
Heinz Rummenigge skoraði þrjú
markanna. Köln og Dortmund
skildu jöfn, 2-1, en leik Hamburger
og Dússeldorf var frestað. Bayern
hefur 29 stig, Hamburger og Stutt-
gart 28, Bremen og Dortmund 26.
Dússeldorf hefur 14 stig en þar
fyrir neðan eru Hertha, Karlsruhe,
Schalke og Leverkusen með 13
stig.
Pétur og Lárus
skoruðu
Lárus Guðmundsson skoraði
fyrir Waterschei í Belgíu er liðið
sigraði Lierse 3-0. Hann meiddist
síðan í hné og gæti misst af næstu
leikjum liðsins. Pétur Pétursson
skoraði beint úr aukaspyrnu þegar
Antwerpen vann Liege 2-0. CS
Brúgge Sævar og Ragnar) tapaði
3-0 í Beveren og Tongeren (Magn-
ús) tapaði 0-1 fyrir Lokeren. Þar
með tók Arnór Guðjohnsen út sinn
síðasta leik í fjögurra leikja bann-
inu og getur því farið að leika að
nýju með Lokeren. Anderlecht er
efst í Belgíu með 30 stig, Standard
hefur 29, Antwerpen 28, Watersc-
hei og FC Brúgge 26 og Lokeren
25 stig. CS Brúgge er komið neðar-
lega á ný með 18 stig en Tongeren
er áfram við botninn með 14 stig.
Laval lagði Bordeaux
Laval, lið Karls Þórðarsonar í
Frakklandi, vann sannfærandi
sigur á Bordeaux, 2-0, á laugardag.
Nantes sigraði Lyon 2-0 og er kom-
ið með 7 stiga forskot, hefur 38
stig. Bordeaux er næst með 31, þá
Laval 28, Monaco 27 og Paris 26
stig.
Eintóm jafntefli
Staðan á toppnum á Ítalíu
breyttist ekkert því sjö leikjum af
átta í 1. deildinni þar lauk með
jafntefli. Liarn Brady, Trevor Fra-
ncis og félögum í Sampdoria tókst
að knýja fram sigur, 1-0, gegn Pisa.
Roma gerði jafntefli við Ascoli og
hefur nú 28 stig, Verona hefur 25,
Inter Milano 24 og Juventus án si-
gurs síðan 12. desember, hefur 22
stig.
Enzo Bearzot landsliðsþjálfari
ítala hefur valið lið sitt fyrir leikinn
á Kýpur í Evrópukeppni landsliða
á laugardaginn. Hann hefur haldið
tryggð við HM-stjörnurnar, sem
þó hafa aðeins náð í tvö stig í
tveimur leikjum í keppninni. Eini
nýliðinn er Carlo Anzolotti frá AS
Roma.
Barcelona á toppinn
Barcelona gengur nú allt í hag-
inn í spænsku l.-deildinni þrátt
fyrir að leika án Diego Maradona
og vann um helgina sinn sjöunda
leik í röð. Nú lágu nágrannarnir
Espanol 3-0 á útivelli. Real Madrid
tapaði 2-1 í Malaga og Barcelona
hefur þar með náð efsta sætinu en
bæði lið hafa 34 stig. Atletico Bil-
bao kemur næst með 33.
Ajax sígur framúr
Ajax náði tveggja stiga forystu í
Hollandi með því að sigra botnliðið
NAC Breda 2-0, þó ekki átaka-
laust. Á meðan náði Feyenoord
aðeins jafntefli gegn NEC Nij-
megen, 1-1 sigri á Helmond Sport.
Ajax hefur nú 35 stig, Feyenoord
33 og PSV 32 stig.
- VS
Ardiles
fót-
brotinn!
Osvaldo Ardiles, argentínski
knattspyrnusnillingurinn hjá
eiisku; bikarmeisturunum Totten-
ham, verður frá í a.m.k. sjö vikur
vegna fótbrots. Hann varð að fara
af leikvelli á Mainc Road gegn
Manchester City á laugardag og við
röntgenmyndatöku í gær kom í Ijós
að sperrileggurinn, grcnnri pipan
milli hnés og ökkla, er brotinn.
Eins og menn muna er Ardiles
nýkominn til Tottenham aftur eftir
fjarveru frá því Falklandseyjastríð-
ið braust út. Hann hefur því aðeins
náð að leika fimm leiki með liðinu
og ekki séð fyrir hvenær sá sjötti
verður.
Arsenal og Leeds áttu að mætast
í þriðja sinn í 4. umferð ensku bik-
arkeppninnar í gærkvöldi en
leiknum varð að fresta vegna
vatnselgs á Highbury, heimavelli
Arsenal. Leikurinn fer fram annað
kvöld.
-VS
Þróttur
í kröppum
dansi!
Þróttarar lentu óvænt í vand-
ræðum með Víkinga í 1. dcild karla
í blaki um helgina. Þróttur vann
fyrstu hrinuna 15-12 en Víkingar
næstu tvær. 14-16 og 6-15, og botn-
liðið hafði þar með tekið forystuna,
2- 1. í fjórðu hrinu lciddu síðan
Víkingar lengst af, og voru yfir 13-
11. Þróttur sneri stöðunni sér í hag
og sigraði 16-14. Úrslitahrinuna
vann svo Þróttur 15-6, Víkingar
sprungnir, og leikinn þar með 3-2.
Víkingar eru í mikilli framför undir
stórn Guðmundar Arnaldssonar og
ættu að geta haldið sæti sínu í 1.
dcild með svipuðu áframhaldi.
Staðan í 1. deild karla:
Þróttur.........11 11 0 33-7 22
ÍS..............10 8 2 26-7 16
Bjarmi.......... 8 3 5 9-17 6
UMSE............ 8 2 6 7-21 4
Víkingur........11 0 11 10-33 0
ÍS komst ekki norður um heiðar
til leiks við Bjarma og UMSE.
f 1. deild kvenna vann ÍS Víking
auðveldlega, 3-0. Hrinurnar
enduðu 15-3, 15-4 og 15-8.
Staðan í 1. deild kvenna:
ÍS...............13 11 2 36-7 22
Þróttur..........10 10 0 30-6 20
Breiðablik....... 8 2 6 10-18 4
KA............... 8 1 7 3-21 2
Víkingur......... 9 0 9 0-27 0
Fram vann Samhygð á Selfossi,
3- 2, í þýðingarmiklum leik í 2.
deild karla. Hrinurnar þar enduðu
10-15, 15-12, 2-15, 15-10, 15-4. Þá
léku Þróttur Neskaupstað og HK
fyrir austan og HK vann örugglega,
0-3, eða 4-15, 4-15, 11-15.
Staðan í 2. deild:
HK......................7 5 2 16-7 10
Samhygð.................7 4 3 16-14 8
Fram....................5 3 2 12-10 6
Breiðablik..............6 2 4 10-14 4
Þróttur N...............5 1 4 5-14 2
í kvöld mætast Þróttur og ÍS í
Hagaskólanum í 1. deild karla og
kvenna og hefst kvennaleikurinn
kl. 18.30.
Getraunir
Einn með 12 rétta kr. 287.765. í
sjötta skipti í vetur tókst einum
aðila að fá „stóra pottinn“
óskiptan. Er þetta þriðji hæsti
vinningur frá upphafi Getrauna. í
2. vinning komu fram 25 raðir og
gefur hver röð kr. 4.933,-