Þjóðviljinn - 08.02.1983, Page 4
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 8. febrúar 1983
íþróttir Viðir Sigurðsson
Úrslit:
1. deild:
Arsenal-Brighton..............3-1
Birmingham-WestHam............3-0
Everton - Notts County........3-0
Ipswich-Manch. United.........1-1
LutonTown-Liverpool...........1-3
Manch. City-Tottenham.........2-2
Nottm. Forest-Aston Viila.....1-2
Southampton - Norwich.........4-0
Sunderland-Coventry...........2-1
Swansea-Watford...............1-3
W.B.A.- Stoke City............1-1
2. deild:
Barnsley-Wolves...............2-1
Blackburn-Grimsby.............2-1
Bolton-Fulham.................0-1
Carlisle-Leicester............0-1
Charlton - Cambridge..........2-1
Chelsea-Derby.................1-3
Leeds-Sheff. Wednesday.....frestað
Middlesboro-Newcastle.........1-1
Q.P.R.-Oldham.................1-0
Rotherham - Burnley...........1-1
Shrewsbury-CrystalPalace......1-1
3. deild:
Bristol Rovers - Plymouth.....2-0
Exeter- Bournemouth...........4-2
Miilwall - Portsmouth.........0-2
Newport- Brentford............0-0
Orient- Lincoln...............1-1
Oxford-Huddersfield...........1-1
Reading-Doncaster.............2-0
Sheff. United - Cardiff.......2-0
Southend- Bradford City.......1-1
Walsall-Gillingham............0-0
Wigan - Chesterf ield.........2-2
Wrexham-Preston N.E...........3-1
4. deild:
Blackpool-Colchester..........1-2
Crewe-Swindon.................3-0
Halifax-Bury..................1-0
Heref ord - Chester...........5-2
HullCity-Aldershot............2-2
Northampton - Stockport.......2-3
Peterborough-YorkCity.........2-2
Port Vale-Darlington..........2-1
Rochdale-Mansfield............2-2
Scunthorpe-BristolCity........1-1
Torquay-Wimbledon.............0-1
Tranmere-Hartlepool...........1-1
Staðan:
1-deild:
Liverpool .26 18 5 3 63-22 59
Manch.Utd ..26 13 8 5 36-20 47
Watford ..26 14 4 8 47-27 46
Nottm.For .26 13 4 9 41-35 43
Everton .26 11 6 9 43-32 39
Aston Villa ..26 12 3 11 37-35 39
Coventry .26 11 6 9 34-32 39
WestHam .26 12 1 13 42-40 37
W.B.A ..26 10 7 9 38-36 37
Manch.City.... ..26 10 7 9 36-40 37
Tottenham ..26 10 6 10 38-37 36
Arsenal ..26 10 6 10 34-34 36
Ipswich ..26 9 9 9 40-31 35
Stoke .26 10 5 11 37-40 35
Southampton 26 9 9 11 33-41 33
Notts Co ..26 9 4 13 32-47 31
Luton ..26 7 9 10 47-54 30
Sunderland.... ..26 7 9 10 30-39 30
Swansea ..26 7 6 13 32-39 27
Birmingham.. ..26 5 11 10 22-35 26
Norwich ..26 7 5 14 26-45 26
Brighton .26 6 6 14 24-51 24
2.deild:
Woives ..26 16 5 5 51-25 53
Q.P.R .26 16 4 6 41-22 52
Fulham ..26 15 5 6 48-32 50
Leicester ..26 12 3 11 42-28 39
Sheff.Wed ..25 10 8 7 40-33 38
Oldham ..27 8 13 6 44-36 37
Barnsley ..26 9 10 7 38-32 37
Blackburn ..26 10 7 9 39-38 37
Shrewsbury... .26 10 7 9 31-35 37
Leeds ..25 8 12 5 30-27 36
Grimsby ..26 10 5 11 36-45 35
Newcastle ..26 8 10 8 39-37 34
Rotherham .27 8 9 10 30-38 33
Charlton ..26 9 5 12 39-52 32
Chelsea ..26 8 7 11 33-34 31
Bolton ..26 8 7 11 30-34 31
Cr.Palace ..26 7 10 9 28-33 31
Carllsle ..26 8 6 12 46-49 30
Middlesboro.. ..26 6 11 9 29-45 29
Cambridge.... ..26 7 6 13 28-42 27
Burnley ..26 6 5 15 36-48 23
Derby Co ..26 4 11 11 30-43 23
3. deild:
Cardiff..........28 17 4 7 50-36 55
Lincoln..........26 17 3 6 56-24 54
Portsmouth.......27 16 4 7 44-30 52
Bristol R........28 15 5 8 62-34 50
Huddersfleld.....27 13 8 6 50-31 47
Oxford...........27 13 8 6 46-31 47
4. deild:
HullCity.........29 16 9 4 53-22 57
PortVale.........28 17 6 5 43-19 57
Bury.............29 15 8 6 50-26 53
Wimbledon........28 15 7 6 50-30 52
Scunthorpe.......27 13 9 5 36-21 48
Colchester.......28 14 6 8 43-32 48
Markahæstér:
i
IEftlrtaldir leikmenn hafa skorað flest
mörk í 1 .deildarkeppninni:
lan Rush, Liverpool.................20
Brian Stein, Luton..................15
Luther Blissett, Watford............14
Kenny Dalglish, Liverpool...........13
Bob Latchf ord, Swansea.............13
John Wark, Ipswich..................12
David Cross, Manch.City.............11
Enska knattspyrnan:
Jafntefli í Ipswich og
bilið breikkar enn
Luther Blissett, hinn nýi landsliðsframherji Englendinga, skoraði tvívegis
fyrir Watford í Swansea á sunnudaginn og er þriðji markahæsti leikmaður
I.deilar.
Möguleikar Manchester United
á að halda í við Liverpool í barátt-
unni um meistaratitilinn minnkuðu
enn á laugardag þegar Ipswich og
Manchester United skildu jöfn í
spennandi leik á Portman Road,
1:1. Uniteder 12stigumáeftirogsá
munur hefði getað orðið þrettán ef
ekki hefði komið tii frábær mark-
varsia Gary Bailey. Hvað eftir
annað í fyrri hálfleiknum varði
hann vel, aldrei þó betur en þegar
John Wark skallaði að marki. Ba-
iley kastaði sér og náði að lyfta
knettinum yflr þverslána. Paul
Mariner og Alan Brazil voru síógn-
andi og Ipswich náði forystunni
sanngjarnt á 41. mínútu.
Sending barst fyrir mark United
frá hægri Mariner skallaði knöttinn
aftur fyrir sig á Wark sem skoraði
með fallegu viðstöðulausu skoti,
1:0. Forystan stóð ekki lengi, Unit-
ed jafnaði strax á 2. mínútu síðari
hálfleiks. Frank Stapleton tók við
fyrirgjöf og lagði knöttinn fyrir fæt-
ur Bryan Robson sem sendi hann
í netið með góðu skoti 1:1. Bæði lið
fengu sín færi eftir þetta, United
það besta þegar Steve Coppell
sendi þrumufleyg að marki Ipswich
og Paul Cooper náði að verja glæsi-
lega. Menn biðu eftir einvígi Holl-
endinganna Arnold Muhren hjá
United og fyrrum félaga hans
Franz Thijssen hjá Ipswich en
hvorugur var í sviðsljósinu, mest
vegna leikaðferðar beggja. Knött-
urinn sveif í loftinu varnarmanna á
milli og miðjumenn fengu tak-
mörkuð tækifæri til að sýna snilli
sína. Allir leikmenn léku með sorg-
arbönd til minningar um Múnchen-
slysið fyrir 25 árum, 6. febrúar
1958, þegar megnið af liði United
fórst í flugslysi í Múnchen.
Á meðan var Liverpool að hirða
þrjú stig í Luton en heimaliðið náði
þó forystu með marki Brian Stein
um miðjan fyrri hálfleik. Hún stóð
ekki, Liverpool býrjaði á miðju
brunaði í gegnum opna vörn Luton
og Ian Rush jafnaði, 1:1. Rétt fyrir
hlé kom Alan Kennedy Liverpool
yfir með marki af 20 m færi og Gra-
eme Souness, bætti um betur á 79.
mínútu, hann sendi knöttinn í
stöngina og inn af 25 m færi, 1:3, og
sanngjarn sigur meistaranna var í
höfn.
Everton er komið í fimmta sætið
eftir góða leiki að undanförnu og
Notts County átti aldrei möguleika
á Goddison Park. Andy King og
Adrian Heath skoruðu í fyrri hálf-
leik og Kevin Sheedy í þeim síðari.
Mick Channon, fyrrum
leikmaður með Southampton, var
gerður að fyrirliða Norwich fyrir
leikinn á The Dell gegn hans gömlu
félögum en hann vill áreiðanlega
gleyma honum hið fyrsta. Sout-
hampton vann létt, 4:0, með mörk-
um Steve Williams, Nick Holmes,
Danny Wallace og Steve Moran.
George Berry náði forystunni
fyrir Stoke í fyrri hálfleiknum í
West Bromwich en Nicky Cross
jafnaði fyrir heimaliðið í byrjun
þess síðari.
Nottingham Forest er að gefa
eftir og varð að sætta sig við tap
heima gegn Aston Villa. Eftir að
bæði lið höfðu fengið fjölda færa
náði Peter Withe forystunni fyrir
Villa á 32. mínútu með skalla eftir
fyrirgjöf Tony Morley. Danny Wil-
son, í sínum fyrsta leik með Forest
eftir söluna frá Chesterfield, jafn-
aði rétt fyrir hlé. Á 5. mínútu síðari
hálfleiks varði Steve Sutton mark-
vörður Forest vítaspyrnu frá Gor-
don Cowans en tíu mínútum síðar
skoraði Withe sitt annað og sigur-
mark Villa, 1:2.
Gífurleg barátta var á Maine Ro-
ad þar sem Manchester City, án
framkvæmdastjóra eftir að John
Bond sagði af sér í síðustu viku, tók
á móti Tottenham. Ekkert var
skorað í fyrri hálfleik en Totten-
ham komst í 0:2 með mörkum
Gary Brooke úr vítaspyrnu og
Terry Gibson en hann nældi ein-
mitt í vítaspyrnuna. Inn á milli fékk
David Cross þrjú færi fyrir City,
eitt stangarskot, en níu mínútum
fyrir leikslok fékk City víti. Dennis
Tueart skoraði og aðeins mínútu
síðar var staðan orðin 2:2. Cross
fékk knöttinn eftir gífurleg varn-
armistök Tottenham og eftirleikur-
inn var auðveldur. Fimm leikmenn
voru bókaðir, Tueart, Reid og
Cross hjá City og Crooks og Perr-
yman hjá Tottenham. Osvaldo
Ardiles var borinn af leikvelli slas-
aður í fyrri hálfleik eftir að hafa
verið felldur illa af Cross.
Arsenal vann öruggan sigur á
botnliði Brighton, 3:1. Raphael
Meade skoraði sín fyrstu tvö mörk
á keppnistímabilinu og Graham
Rix sá um eitt en Mick Robinson
gerði mark Brighton sem nú situr
eitt í neðsta sæti 1. deildar og er
ekki líklegt til að lyfta sér þaðan.
Sunderland vann góðan sigur á
Coventry og heldur sér áfram ofar
fallsæti. Stan Cummins og Gary
Rowell komu heimaliðinu í 2:0 og
áður en Steve Whitton minnkaði
muninn fyrir Coventry.
Swansea tók forystuna sann-
gjarnt gegn Watford á sunnudag
með marki Bob Latchford eftir
aukaspyrnu Ante Rajkovic á 36.
mínútu. Dai Davies hélt Swansea á
floti rétt fyrir hlé með því að verja
tvívegis vel frá Jan Lohman. Lut-
her Blissett jafnaði fljótlega í síðari
hálfleik eftir sendingu John Barnes
og Watford komst yfir á 80. mínútu
eftir slæm varnarmistök Nigel
Stevenson. Hann ætlaði að senda
aftur og skoraði auðveldlega. Blis-
sett tryggði síðan endanlegan sigur
Watford, 1:3, með marki mínútu
fyrir leikslok.
Úlfarnir töpuðu!
Þar kom að því að Wolves tapaði
í 2. deildinni en það hefur ekki
skeð síðan í nóvember. Úlfarnir
náðu þó forystunni í Barnsley með
marki Godron Smith en Ian Banks
og Derrick Parker tryggðu heima-
liðinu sigur.
QPR og Fulham unnu bæði,
Tony Sealy skoraði sigurmark
QPR gegn Oldham og Fulham náði
þremur stigum í Bolton, þökk sé
marki Sean O’Driscoll á 72. mín-
útu. Derby vann sinn fyrsta úti-
sigur, Archie Gemmill skoraði eitt
markanna á Stamford Bridge gegn
Chelsea. Um 24.000 manns fylgd-
ust með viðureign nágrannanna í
norðaustrinu, Middlesboro og
Newcastle. Mick Baxter kom
„Boro“ yfir eftir 5 mínútur en Ke-
vin Keegan jafnaði á 60. mínútu.
Áður hafði sá frægi kappi verið
bókaður fyrir að mótmæla dómi. í
3. deildinni vegnar Alan Ball vel
hjá sínu nýja félagi, Bristol Ro-
vers. Hann lagði upp mark í fyrsta
leiknum um síðustu helgi og á
laugardag skoraði hann í 2:0 sigrin-
um á Brentford. Engin ellimörk á
hinum 37 ára gamla heimsmeistara
frá árinu 1966 og hann sagði um
síðustu helgi: „Eg leik með Ro-
vers, alla vega út þetta keppnis-
tímabil, en hef enn ekki ákveðið
hvort ég hætti í vor!“.
- VS
Leikur helgarinnar
„Nú fyrst er keppnistíma-
bilið hjá okkur að byrja“
Mick Harford skoraði sitt fyrsta
mark fyrir Birmingham í vetur
gegn West Ham
„Nú fyrst er keppnistímabilið
hjá okkur raunverulega að byrja.
Við höfum að undanförnu keypt
fjóra nýja leikmenn sem eru að
festa sig í sessi og eru nú reiðu-
búnir ásamt hinum að hefja bar-
áttuna af krafti“. Þessi orð Ron
Saunders framkvæmdastjóra
Birmingham voru letruð í leik-
skrá viðureignar Birmingham og
West Ham á St.Andrews á
Iaugardag. Leikmenn Birming-
ham, sem fyrir leikinn var á botni
l.deildar, og hafði skorað fæst
mörk allra liða í deildarkeppn-
inni, börðust af krafti allan
tímann og liðið sýndi sinn besta
leik i langan tíma. Þrír nýju
leikmannanna skoruðu 3-0 ör-
uggum sigri á West Ham og Birm-
ingham náði þar með sínum
fyrsta sigri í l.deild á árinu 1983.
Það fór aldrei á milli mála
hvort liðið væri sterkara og á 36.
mínútu tók Birmingham for-
ystuna með marki Mick Harford
sem kom til liðsins í fyrravor.
Mick Ferguson, stuttu keyptur
frá Everton, bætti öðru marki við
á 57. mínútu og Birmingham óð í
færum. Kevin Dillon gat leyft sér
þann munað að brenna af úr vít-
aspyrnu áður en blökkumaður-
inn Howard Gayle innsiglaði
sigur Birmingham á lokamínút-
unni. Hann er nýkominn frá Li-
verpool en hefur leikið sem láns-
maður hjá Newcastle að undan-
förnu og skoraði þar tvö mörk.
West Ham átti aldrei mögu-
leika og tapaði sínum þrettánda
leik í deildinni. Arangur liðsins á
útivöllum hefur verið slakur og
það nær ekki sæti í Evrópukeppni
með svona áframhaldi. Birming-
ham virðist hins vegar til alls lík-
legt og engin ástæða til að afskrifa
liðið hans Ron Saunders þrátt
fyrir slakt gengi fram að leiknum
við West Ham.
-VS