Þjóðviljinn - 02.03.1983, Page 7

Þjóðviljinn - 02.03.1983, Page 7
Miðvikudagur 2. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7 Utanríkisstefna Svía_____________ Samstarf Egons Bahr og Pahne vegur deílur Fyrirspurn sænsku ríkisstjórn- arinnartil ríkisstjórnar nokkurra ríkja í Evrópu um álit þeirra á hugmynd um kjarnorkulaust belti í Miðevrópu hefur valdið miklu fjaðrafoki í Svíþjóð. Ekki vegnainnihaldsins, heldurfyrst og fremst vegna þess að stjórn- arandstöðunni finnst ríkisstjórn Olofs Palme leggja meiri áherslu á samráð og samstarf við Alþjóðasamband jafnaðarmannaen stjórnarandstöðuna í mótun utanríkisstefnunnar. í Svíþjóð hefur skapast sú hefð vegna sérstöðu landsins sem óháðs ríkis að samstaða hefur verið á milli allra stjórnmálaflokkanna um grundvallaratriði utanríkisstefn- unnar, þar á meðal að Svíþjóð skuli standa utan hernaðarbandalaga og byggja á eigin vörnum. Það eru jafnaðarmenn sem hafa átt drýgstan þáttinn í mótun utan- ríkisstefnu Svía, og má í því sam- bandi minnast manna eins og Östcns Undén og Thorstens Nils- son, sem báðir gegndu utanríkis- ráðherraembætti fyrir Jafnaðar- menn um árabil eftir stríð. Sænskir jafnaðarmenn hafa jafnframt beitt virkri stefnu á alþjóðavettvangi til slökunar spennu og afvopnunar, bæði innan Alþjóðasambands jafn- aðarmanna og á vettvangi Sam- einuðu þjóðanna. Hefur Olof Palme sérstaklega unnið sér orð sem skeleggur baráttumaður fyrir fyrir virkri stefnu jafnaðarmanna á alþjóðavettvangi. Palme- nefndin Þannig átti hann frumkvæði að því að svokölluð „Palme-nefnd" var stofnuð fyrir um það bil 2 árum síðan til þess að vinna að tillögum um afvopnun og öryggi í Evrópu. Nefndin sem var skipuð 17 mönnum, þar af 4 þáverandi eða fyrrverandi forsætisráðherrum og öðrum sérfræðingum um öryggis- og alþjóðamál, skilaði áliti sínu í skýrsíu sem lögð var fram í apríl 1982. í áliti nefndarinnar er gengið út frá því að „gróft jafnvægi" sé á milli stórveldanna í vígbúnaði. Leggur nefndin til að Salt-2 samningurinn verði staðfestur, þannig að dregið verði verulega úr fjölda sóknarv- opna. Síðan er gerð grein fyrir hin- um einstöku vopnakerfum og lögð fram áætlun um niðurskurð þeirra hvers fyrir sig. Þá leggur nefndin til að myndað verði 150 km breitt belti sitt hvoru megin við „járn- tjaldið" og verði þetta belti án kjarnorkuvopna. Nýtt frum- kvæöi Palme Ekki er hægt að segja að skýrsla þessi hafi hlotið þá athygli sem til stóð á sínum tíma, en síðan hefur Olof Palme og ríkisstjórn hans lagt skýrsluna og hugmyndir þær sem þar koma fram um kjarnorku- vopnalaust belti til grundvallar nýs frumkvæðis á alþjóðavettvangi. Og það er einmitt aðferðin sem ríkisstjórn Palme hefur beitt, sem hleypt hefur illu blóði í stjórnar- andstöðuna. í bréfi til ríkisstjórna allra aðild- arríkja Atlantshafsbandalagsins og Varsjárbandalagsins og óháðra ríkja í Evrópu kynnti ríkisstjórn Svíþjóðar hugmyndina um kjarn- orkuvopnalaust belti sérstaklega og bað um álit viðkomandi ríkis- stjórna auk þess sem hún áskildi sér rétt til frekari frumkvæðis í mál- inu. Bréf þetta var sent út 8. de- sember sl. Ásakanir stjórnarandstöðunnar í Svíþjóð beinast fyrst og fremst að meintu samstarfi Olofs Palme og Lennarts Bodström utanríkisráð- herra við Egon Bahr, helsta sér- fræðing vesturþýskra jafnaðar- manna í öryggis- og varnarmálum. Segir stjórnarandstaðan að í stað þess að ráðfærast við sig um mál þetta hafi Palme sent bréfið út eftir pöntun á tilsettum degi, og hafi texti þess í mikilvægum efnum ver- ið gerður að tillögu Bahrs til að þjóna baráttu hans innan Þýska- lands. Hefur Palme mótmælt ásök- unum þessum sem tilhæfulausum en talið sig jafnframt í fullum rétti að ráðfærast við Egon Bahr. Hafa deilur þessar í Svíþjóð orðið til þess að yfirskyggja þann hljómgrunn sem sjálft bréfið hefur fengið. Vidbrögö f austri og vestri Ríkisstjórn Austur-Þýskalands varð einna fyrst til að svara bréf- inu, og telur hún í svarbréfi sínu að kjarnorkulaust belti urn Miðevr- Olof Palmc - lætur hann stjórnast af þýskum jafnaðarmönnum? Egon Bahr - mótaði hann tillögur sænsku ríkisstjórnarinnar um kjarnorkuvopnalaust belti í Evrópu? ópu sé gagnlegt skref í áttina til slökunar spennu. Segir hún í svar- bréfinu að hún sé þess reiðubúin að ganga enn lengra en tillagan gerir ráð fyrir og leggja allt sitt land- svæði undir kjarnorkuvopnalaust svæði. Jafnframt skrifaði Honecker bréf til Kohls kanslara í Vestur- þýskalandi og hvatti hann til þess að styðja slíkar tillögur. Ekki var þess að vænta að vest- urþýska stjórnin tæki undir þá hug- mynd að gera bæði Austur- og Vestur-Þýskaland að kjarnorku- vopnalausum svæðum, þar sem það bryti í bága við Pershing-II áætlunina, sem ríkisstjórn Kohls hefur stutt. Enda hefur ríkisstjórn Kohls hafnað hugmyndum um kjarnorkuvopnalaust svæði í Þýskalandi að svo stöddu. Sovétstjórnin hefur brugðist við þessum hugmyndum með svip- uðum hætti og ríkisstjórn Á- Þýskalands, en lagt á það áherslu að beltið ætti að vera 300 km á hvorn veg í stað 150. Ýmsir gagnrýnendur þessarar hugmyndar hafa haldið því fram að hún myndi litlu breyta, þar sem ekki skipti máli hvort eldflauga- vopn væru á landamærum eða á bak við 150 km línu. Vaxandi ágreiningur í Svíþjóð hafa þessi mál hins veg- ar orðið til þess að skerpa andstæð- ur í sænskum stjórnmálum, og hafa hægrimenn notað tækifærið til þess að gagnrýna það að stjórn jafn- aðarmanna hafi boðið þeim Yasser Aarafat og Fidel Castro í opinbera heimsókn. Einingin um sænska utanríkisstefnu virðist í hættu, þar sem hægri flokkurinn leggur æ meiri áherslu á stuðning við ögrun- arstefnu Reagans á meðan jafn- aðarmenn leita nýrra leiða til slök- unar sperjnu. Þótt hin virka hlutleysisstefna sænskra jafnaðarmanna sé í ýms- um hlutum virðingarverð, þá hafa þeir einnig á síðustu mánuðum gert viðskiptasamninga, sem gætu gefið tilefni til þess að draga hlutleysis- stefnuna í efa. Er þar átti við mik- inn vopnasölusamning Svía við Norðmenn og sölu á Bofors- fallbyssunni til Bandaríkjahers. Það hefur m.a. vakið gremju í Finnlandi að Svíar skuli með þess- um hætti skuldbinda sig til þess að leggja NATO-ríkjum til hergögn. Þessar kvartanir hafa hins vegar ekki farið eins hátt í Svíþjóð, enda skaffar vopnasalan bæði peninga og atvinnu. -ólg. Dr. Stefán Karlssontil erfðafræðirannsókna f október síðastliðnum lauk Stef- án Karlsson, læknir, doktorsprófi frá Lundúnaháskóla. Doktorsritgerð Stefáns nefnist á ensku „Biochemical and Genetical Aspects of Glycoproteins in hum- an tissues" og fjallar um byggingu sykurkeðja próteina og hvernig þeirri byggingu er stjórnað erfða- fræðilega. Slíkar sykurkeðjur eru mjög mikilvægar, einkum utan á frumum, til að taka við hvers kyns „skilaboðum“ frá einni frumu til annarrar og gegna m.a. mikilvægu hlutverki í byggingu A, B, O blóðflokkaefna. Keðjur þessar eru óeðlilegar að byggingu í ýmsum sjúkum frumum, t.d. krabba- meinsfrumum. Stefán Karlsson rannsakaði einkum sameind í þvagi, sem hann uppgötvaði ásamt starfsmönnum í London og París. Jafnframt var bygging sykurkeðju rannsökuð í ýmsum sjúkdómum, einkum cystic fibrosis, arfgengum efnaskiptasjúkdómi, sem veldur alvarlegum sjúkdómseinkennum frá lungum og meltingarfærum. Stefán hefur notið styrkja til rannsókna frá eftirtöldum aðilum á íslandi og í Bretlandi: Vísindasjóði íslands, Heilbrigðisráðuneytinu og Ríkisspítölum og Blóðgjafafélagi íslands, British Council og Cystic Fibrosis Research Trust. Dr. Stefán Karlsson lauk kandi- datsprófi í læknisfræði frá lækna- deild Háskóla íslands árið 1976. Hann var námskandidat á Borgar- spítala, Vífilstöðum og Landspít- ala 1976-1977 og gengdi störfum heilsugæslulæknis á Fáskrúðsfirði og Bolungarvík. Hann hóf sérnám í læknisfræði- legri erfðafræði við Blóðbankann, Reykjavík, 1977-1979 og eftir það á Galton Laboratory, University College, London, 1979-1982. Hann var viðurkenndur sérfræð- ingur í læknisfræðilegri erfðafræði í nóvember 1982. Það er fyrsta viðurkenning af þessu tagi hér- lendis. Stefán Karlsson er sonur Ólafar Stefánsdóttur og Karls Ómars Jónssonar, verkfræðins. Stefán er kvæntur Sigurborgu Ragnarsdótt- ur, þau eiga tvo syni. Dr. Stefán hefur unnið í Blóð- bankanum síðustu 4 mánuði, en er nú á förum til Bandaríkjanna til frekari rannsókna í erfðafræði, einkum á sviði erfðatækni (erfða- verkfræði). Hann mun starfa við Clinical Hematology Branch, Nat- ional Institutes of Health í Mary- land. Hann mun vinna með Dr. Arthur W. Nienhuis, sem sagt var frá í tímaritinu Time Magazine 20. desember síðastliðinn. Sá læknir og samstarfsmenn hans vöktu mikla athygli vegna rannsókna á arfgengu blóðleysi og nýrra aðferða sem þeir beittu til lækninga á slík- um sjúkdómum. Nýtt verð á svínakjöti Félagsráð Svínaræktarfélags ís- lands hefur samþykkt að hækka verð á svínaafurðum um 19,5%. Fyrir svín í besta flokki eiga fram- leiðendur að fá kr. 84,25 á kg. Verðið miðast við að kaupandi greiði flutningskostnað á slátur- gripum frá framleiðanda til slátur- húss, svo og flutninginn á kjötinu frá sláturhúsi til kaupanda. Kaupandinn greiðir sláturkostnað- inn. Hið nýja verð gildir frá 1. mars. -mhg. TILKYNNING TIL EIGENDA AVERY VOGA Höfum opnað eigið viðgerðarverkstæði að Smiðshöfða 10 j( Reyndir vidgerðarmenn jr Rúmgóð hmkynni j( Áhersk löyð á skjóta afgreiðslu j( Allar almennar vogaviðgerðir j( Rafeindavogaviðgerdir Komið eða hringið og ræðið við fagmennina ÓliXf IJR OÍSLASOM & CO. !IF. Vogaþjónusta Smiðshöfða 10 - Reykjavík - sími 86970 Allir þekkja AVERY / / A Islandi í 50 ár

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.