Þjóðviljinn - 02.03.1983, Side 9

Þjóðviljinn - 02.03.1983, Side 9
Miðvikudagur 2. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 Frumsýning í Þjóðleikhúsinu: Rammur seiður úr grískri fomöld / Þjóðleikhúsinu reynirnú á hugmyndirmanna um samhengi í menningu og skiljanleika mannlegs hlutskiptis. Enþarer frumsýndur í kvöld þríleikurinn Oresteia eftir Æskylos: leikur þessi hlaut verðlaun í Grikklandi suður fyrir meira en 2400árum. Oresteia er eini þríleikurinn sem varðveist hefur í heild af verkum hinna þriggja meistara forngríksrar leikritunar - en Æskylos var þeirra elstur. Hann er talinn hafa samið um 90 leikrit á langri ævi, en sjö hafa varðveist - Oresteia rekur lestina, var fyrst fluttur árið 458 fyrir Krist - tveim árum síðar dó meistarinn. Sveinn Einarsson leikstýrir eigin samþjöppun á þríleik þessum, en þýðingin er eftir Helga Hálfdan- arson. í Oresteiu er áhorfandinn stadd- ur aftur í rammri forneskju þegar guðirnir hafa margvísleg bein áhrif á mannlegt líf og forlög grimm skekja menn í hendi sér - draga þann nauðbeygða en leiða hinn fúsa eins og sagt var. Efniviðurinn tengist ýmsu því sem menn einna helst þekkja enn í dag úr forn- grískum heimi - Tróju-stríði og þar með Hómerskviðum. Oresteia. hefst reyndar á því að borgarar í Argos bíða þess að fregna hvernig Grikkjum hefur vegnað í Tróju- stríðinu. í þríleiknum skoðar höfundur framgang þeirrar bölvunar sem lögð var á ætt Atreifs. Atreifur hafði deilt við bróður sinn Þýestes, drepið syni hans og gefið föðurnum að éta í herfilegri veislu. Lagði þá Þýestes bölvun á Atreif sem gekk í arf til sonar hans Agamemmons konungs í Argos. Af þeim sökum var Agamemmon til þess neyddur þegar Grikkir ætluðu að sigla til Trójuborgar og gaf ekki byr, að fórná dóttur sinni, Ífigeníu, til að blíðka gyðjuna Artemis. Kona hans, Klýtemnestra, fyrirgaf aldrei þann glæp. Meðan Agamemmon stríddi við Trójumenn tók hún sér til elskhuga Egistus, son Þýestesar. Að tíu árum liðnum fellur Tróju- borg og Grikkir snúa heim. Þar hefst Oresteia. Klýtemn- estra drottning býður mann sinn velkominn og frillu hans Kass- öndru. En síðan er Agamemmon drepinn í baði og frillan einnig. Eg- istus lætur þá til sín heyra og til- kynnir að þau Klýtemnestra hafi tekið völdin í sínar hendur. Kór öldunga reynir að malda í móinn og gefur til kynna að sonur konungs, Orestes, muni hefna hans þá hann vex úr grasi. í næsta hluta segir frá endur- komu Orestesar sem hafði verið smyglað út úr höllinni þegar faðir hans var myrtur. Að skipun guðsins Apollons skundar hann til Argos, kemst inn í höllina með hjálp systur sinnar Elektru og drepur Egistus og svo móður sína. Eftir ódæði þessi er hann ofsóttur af refsinornum sem eiga að hefna fyrir morð á ættingjum og flýr á náðir Apollons. Að lokum ná svo guðir og menn einskonar dómssátt í máli þessu, enda er blóðslóðin orðin löng.... Það hefur verið metnaður leikhúsmanna að glíma við harm- leiki Grikkja, sem svo mörgu hafa ráðið um leikhúslíf í álfunni og öll- um heimi. Stundum hafa menn helt Helga Bachmann og Árni Blandon Anna Kristín Arngrímsdóttir og Róbert Arnfinnsson (eik tók myndir á æfingu). gömlu víni á nýja belgi - Eugene O’Neill hinn bandaríski hefur til dæmis fært Orestesar sögu á sínar heimaslóðir og nálægt sinni samtíð. Stundum skrifa menn harmleikinn upp, halda þræðinum, en lauma að seinni tíma mannskilningi. Og enn er sá siður að láta hina fornu höf- unda hafa orðið, þótt ýmislegt sé stytt. Svo verður nú gert, sem og í fyrri sýningum íslensku leikhús- anna á Antígónu og Ödipusi Sóf- óklesar. -áb. Refsinornir bíða síns tíma. Þingmenn um kjördæmamálið Nokkrir boðuðu andstöðu Nokkurrar andstöðu gætti hjá þingmönnum í neðri deild við frumvarp formanna stjórnmála- flokkanna fjögurra um kjördæm- amálið. Umræðurnar voru í fyrra- kvöld og stóðu fram yfir miðnætti. Gagnrýnin var frá þéttbýlis- mönnum um að ekki væri gert nógu vel við þéttbýlið - og frá nokkrum landsbyggðarmönnum um að ekki væri nógu vel gert við lands- byggðina í þeim tillögum sem nú liggja fyrir. Það var Jón Baldvin Hannibals- - Hér og nú segi ég af mér þess- um nefndarstörfum, sagði Vil- mundur Gylfason í umræðum um nefndarstörf hans í neðri deild al- þingis, en hann var kosinn í þær á vegum alþingis. Eiður Guðnason sagði að þingmaðurinn gerði aðrar siðgæðiskröfur til sjálfs sín heldur en hann gerði til annarra. Þessi umræða sem stóð í tæpan klukkutíma á alþingi í gær hófst með því að Ólafur Ragnar Gríms- son spurðist fyrir um það hvort vera þingmannsins í þessum nefnd- um væri lögleg, en tvisvar hefði son sem hóf umræðuna eftir kvöld- mat og sagði að með frumvarpinu væri verið að efna til árekstrar milli meirihluta þjóðarinnar og meiri- hlutans á alþingi. Meirihluti þjóð- arinnar vildi jafnan kosningarétt, sem og Alþýðuflokkurinn lengst- um. Karvel Pálmason flokksbróðir hans sagði að með frumvarpinu væri verið að færa vald frá dreifbýli í þéttbýlið og sú stefna væri ekki Alþýðuflokksins. Árni Gunnarsson sagði að sér verið haft orð á því á þingi að þessi þingmaður Bandalags jafnaðar- manna væri starfandi í þingnefnd- um á vegum Alþýðuflokksins. Vil- mundur Gylfason sagði að ekki hefði verið farið á leit við sig að hann léti af þessum störfum. Enn fremur vitnaði hann til þess að þingmenn væru umfram allt og ofar öðru bundnir samvisku sinni. Kjartan Jóhannsson sagði að þingflokkur Alþýðuflokksins hefði talið að þingmaður þyrfti að gera það upp við sjálfan sig, hvort hann teldi þessa nefndaþátttöku vera viðeigandi eða ekki. þætti verra að kjördæmamálið væri slitið úr samhengi við heildarend- urskoðun stjórnarskrárinnar. Ing- ólfur Guðnason sagðist vera óbundinn í afstöðu til þessa frum- varps. Olafur Þ. Þórðarson sagðist vera á móti frumvarpinu, upp væri að koma borgríkið Reykjavík með öllu sínu veldi. Frumvarpið væri stríðsyfirlýsing 'við dreifbýlið. Sagði hann að hnefarétturinn væri í sókn - og hafði stór orð um yfir- Þetta er löglegt en siðlaust, sagði Ólafur Ragnar og minnti á að Sig- hvatur Björvinsson hefði fyrir þó nokkru bent á þetta atriði. Eiður Guðnason benti á að hér væri um grundvallaratriði að ræða og greinilegt væri að þingmaðurinn gerði aðrar kröfur til annarra en sjálfs sín. Þá sagði Vilmundur að þetta væri í fyrsta skipti sem þing- maður Alþýðuflokksins hefði brugðist með þessum hætti í þessu máli og segði hann af sér hér og nú téðum nefndarstörfum. Karvel Pálmason sagði að þetta mál sýndi að Vilmundi væri ekki jafn leitt og hann léti að sitja í skjóli flokks- valdsins. -«g gang þéttbýlismanna. Það gerði og Stefán Valgeirsson, sem sagðist áskilja sér rétt til að flytja breyting- artillögu um sérstaka „þjónustu- - Það er leiðinlegt að ráðsmenn í Flugráði þurfi að liggja undir ámælum frá samgönguráðherra (Morgunblaðið í gær) um óheiðar- leg vinnubrögð, sagði Skúli Alex- andersson alþingismaður í umræð- um utan dagskrár í gær, en margir þingmenn kvörtuðu undan fjar- veru Steingríms Hermannssonar samgönguráðherra, en hann hafði beðist undan að vera þátttakandi í umræðu utan dagskrár um emb- ættisveitingu í starf flugmálastjóra. - Þeir Friðrik Sophusson og AI- bert Guðmundsson hófu þessa um- ræðu og lýstu því að þeir hefðu far- ið fram á utan dagskrárumræðu um þessa umdeildu embættisveitingu. Ólafur Ragnar Grímsson sagði að þingmenn Alþýðubandalagsins hefðu verið þess eindregið fylgj- andi að þetta mál yrði tekið fyrir á þinginu, sérstaklega eftir ummæli Steingríms í fjölmiðlum um þetta mál. Árni Gunnarsson benti á að vísitölu” eða „aðstöðuvísitölu” fyrir fólk á landsbyggðinni. Vilmundur Gylfason talaði næst- ur og minnti m.a. á niðurgreiddu dagblöðin. Jóhann Einvarðsson lýsti yfir stuðningi við frumvarpið en boðaði breytingartillögu, sem felur í sér að þjóðaratkvæða- greiðsla skuli fara fram um breytingar á stjórnarskránni. Þeg- ar þessari fyrstu umræðu lauk í neðri deild var komið langt fram yfir miðnætti. samkvæmt þingsköpum mættu þingmenn ekki vera fjarverandi „nema nauðsyn banni“. Ingvar Gíslason sagði að afmæl- isveisla utanríkisráðherra (sem varð sjötugur í gær) stæði yfir og forsætisráðherra hefði lagt til að ráðherrar færu í veisluna kl. 15.00. Guðmundur G. Þórarinsson sagði að Steingrímur vildi gjarnan ræða þetta mál nk. fimmtudag utan dag- skrár. Skúli Aiexandersson sagði að aðdróttanir Steingríms í Morgun- blaðinu um óheiðarleg vinnubrögð Flugráðsmanna myndu standa fram á fimmtudag. Það væri engan veginn nógu gott. Gagnrýnendur ráðherra sögðu að afmælisveisla utanríkisráð- herra, sem verður væri virðingar á tímamótum, væri ekki nógu góð afsökun fyrir samgönguráðherra fyrir því að taka ekki þátt í umræðu um jafn mikið hitamál. Vilmundur Gylfason: Ekki lengur í nefndum Samgönguráðherra Var ekki viðstaddur

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.