Þjóðviljinn - 08.03.1983, Blaðsíða 4
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 8. mars 1983
UíTisjón:
Víðir Sigurðsson
Þrjú efstu !ið 1. deildar, Li-
verpool, Watford og Manchester
United, töpuðu öll í vikunni sem
leið. Liverpool í Póllandi í Evróp-
ubikarnum, Watford og United
1. deildinni. Öll hristu af sér slen-
ið á laugardag og sigruðu, svo Li-
verpool heldur áfram fjórtán
stiga forystu í 1. deild.
Sigur Liverpool á Stoke var afar
öruggur. Kenny Dalglish skoraði
fyrsta markið eftir samvinnu við
Ronnie Whelan og á 36. mínútu
skoraði Phil Neal, 2-0. í upphafi
síðari hálfleiks átti Ian Rush gott
skot að marki Stoke, knötturinn
hrökk af varnarmanni fyrir fætur
Dalglish sem þakkaði gott boð með
öruggu marki, 3-0. Paul Bracewell
lagaði strax stöðuna fyrir Stoke, 3-
1, en Craig Johnston jók forystuna
Liverpool á ný, knötturinn þeyttist
Toppliöin náðu öll að
hrista af sér slenið
Úrslit:
1. dei'.d:
Arsenal-Nottingh. Forest........0-0
Aston Villa-Norwich City........3-2
Coventry-Watford................0-1
Ipswich-Birmingham..............3-1
Liverpool-Stoke City............5-1
Luton Town-W.B.A................0-0
Manch. City-Manch. Un..........1-2-
Notts County-Tottenham..........3-0
Southampton-Swansea.............2-1
Sunderland-Everton..............2-1
West Ham-Brighton...............2-1
2. deild:
Barnsléy-Bolton Wanderers......3-1
Burnley-Fulham..................1-0
Carlisle-Oldham.................0-0
Charlton-Chelsea................5-2
Crystal Palace-Newcastle........0-2
Grimsby-Sheffield Wed...........1-1
Leeds United-Blackburn..........2-1
Leicester-Derby County..........1-1
Q.P.R.-Middlesborough...........6-1
Rotherham-Shrewsbury............0-3
Wolves-Cambridge................1-1
3. deild:
Bristol Rovers-Orient...........2-1
Doncaster-Bradford City.........1-2
Gillingham-Bournemouth..........2-5
Lincoln City-Brentford..........2-1
Oxford United-Wrexham...........2-0
Plymouth-Chesterfield...........2-0
Preston N.E.-Portsmouth.........0-0
Sheffield United-Exeter.........3-0
Southend-Newport................1-4
Walsall-Millwall City...........4-0
Wigan Athletic-Reading..........2-2
4. deild:
Aldershot-Hartlepool............0-2
Bury-Darlington.................3-0
Chester-Colchester..............1-1
HalifaxTown-Rochdale............0-0
Hereford-Blackpool..............0-0
Mansfield-SwindonTown...........1-0
Northampton-Hull City...........1-2
PortVale-Crewe Alexandra........1-1
Torquay-Peterborough............2-1
Tranmere-Scunthorpe.............0-4
Wimbledon-Bristol City..........2-1
YorkCity-Stockport..............3-1
] Staðan:
1. deild:
Llverpool .29 20 6 3 70-24 66
Watford . 29 16 4 9 50-31 52
Manch. Utd .29 14 9 6 39-23 51
Nottm. For .29 13 7 9 42-36 46
Aston Villa .29 14 3 12 43-39 45
Southampton. .30 12 7 11 40-44 43
Coventry .29 12 6 11 39-38 42
Ipswich .29 11 8 10 46-33 41
Everton .30 11 8 11 46-38 41
West Ham .28 13 2 13 45-42 41
W.B.A .30 10 11 9 38-36 41
Stoke .29 12 5 12 41-46 41
Tottenham .29 11 7 11 39-40 40
NottsCounty.. . 30 12 4 14 42-51 40
Arsenal .28 10 8 10 34-34 38
Manch. City.... .31 10 8 13 39-50 38
Sunderland .29 9 9 11 35-44 36
Luton ,.28 7 10 11 47-57 31
Norwich ,.29 8 6 15 31-48 30
Swansea .30 7 7 16 36-46 28
Brighton .30 7 7 16 28-56 28
Birmingham... .28 5 12 11 24-39 27
2. deild:
Wolves .30 18 6 6 55-32 60
Q.P.R., .29 18 5 6 50-23 59
Fulham . 29 15 7 7 50-35 52
Leicester .30 14 4 12 51-33 46
Oldham .31 10 14 7 49-37 44
Sheff. Wed „29 11 10 8 44-36 43
Barnsley .29 11 10 8 43-37 43
Leeds .29 9 15 5 37-33 42
Grimsby „30 12 6 12 41-49 42
Newcastle . 29 10 11 8 44-39 41
Shrewsbury.... .29 11 8 10 36-38 41
Blackburn .30 10 9 11 40-42 39
Charlton .29 10 6 13 45-61 36
Chelsea .30 9 8 13 41-44 35
Bolton .30 9 8 13 35-42 35
Cr. Palace .29 8 10 11 31-37 34
Rotherham .30 8 10 12 32-44 34
Carlisle .30 8 9 13 49-53 33
Burnley .28 8 5 15 44-49 29
Cambridge .29 7 8 14 30-46 29
Midlesboro .29 6 11 12 31-57 29
Derby Co . 28 5 12 11 33-44 27
3. deild:
Portsmouth ...33 I 20 6 7 55-34 66
Cardiff ...33 I 19 6 8 59-43 63
Lincoln ...32 ! 18 4 10 62-36 58
Huddersfield... ...32 16 9 7 63-36 57
Bristol Rov „32 17 5 10 70-40 56
Newport ...33 16 8 9 59-41 56
4. deild:
HullCity ...34 19 11 I 4 61-26 68
Port Vale ...32 19 8 5 50-23 65
Wimbledon ...32 18 8 6 59-36 62
Bury ...35 17 10 8 58-32 61
Colchester ...33 17 7 9 52-37 58
Scunthorpe.... ...31 14 12 5 46-25 54
Markahæstir:
Eftirtaldir leikmenn hafa
skorað flest mörk í 1. deildar-
keppninni:
lan Rush, Liverpool................20
KennyDalgllsh.Liverpool............17
Luther Blissett, Watford...........15
BrlanStein, Luton..................15
Bob Latchford, Swansea.............14
Gary Rowell, Sunderland............14
John Wark, ipswich.................13
Peter Withe, Aston Villa...........12
af brjóstkassa hans í netið, 4-1.
Loks var komið að fyrirliðanum
Graeme Souness; hann skoraði
fimmta mark Liverpool eftir send-
ingu Dalglish á síðustu mínútunni,
5-1, og þar með hefur Liverpool
skorað 70 mörk í 29 leikjum. Ekki
óhugsandi að hundrað marka múr-
inn verði rofinn í vor.
Watford hélt til Coventry og lék
skynsamlega gegn heimaliðinu en
helsti styrkur þess er góðir miðvall-
arspilarar. Það féll vel saman við
leikaðferð Watford, mikið af
löngum sendingum fram á sókn-
armennina fjóra, og nýliðarnir
réðu mestu um gang leiksins. Les
Taylorskoraði sigurmarkið mínútu
fyrir hlé, fékk knöttinn við miðju,
lék upp og sendi hann í netið af 20
m færi. Hann átti stangarskot
snemma í síðari hálfleik og sókn-
arþungi og pressa Watford var slík
að varnarmenn Coventry voru
hvað eftir annað neyddir til að
senda knöttinn aftur á markvörð
sinn af 35 til 40 m færi.
Hérinn og skjaldbakan
Leik Aston Villa pg Norwich var
líkt við kapphlaupið fræga milli hér-
ans og skjaldbökunnar, en ævin-
týrið gekk þó ekki upp og hérinn,
Aston Villa sigraði að lokum.
Norwich náði tvívegis forystu en
mátti sætta sig við 3-2 tap gegn Evr-
ópumeisturunum. Leikmenn Villa
voru lengst af eins og svefngenglar
en tóku sig á undir lokin og sigr-
uðu; Gari Shaw skoraði úrslita-
markið tíu mínútum fyrir leikslok.
Hin mörk Villa skoruðu Peter
Whithe og Eamonn Deacy en
Mark Barham og Hollendingur-
inn Denis Wan Wyk svöruðu fyrir
Norwich.
• Upton Park þar sem West Ham
og Brighton léku var markalaust
fram á 82. mínútu þrátt fyrir fjölda
færa West Ham, sem lék án Billy
Bonds, Paul Goddard og Sandy
Clark. Þá náði Gerry Ryan foryst-
unni fyrir Brighton en rúmlega
mínútu stðar hafði West Ham
skorað tvívegis. Fyrst Alan Dick-
ens með skoti af 20 m færi og síðan
Tony Cottee sem lyfti skemmtilega
yfir Graham Moseley markvörð
Brighton fimm metrum utar en
Dickens.
Birmingham lék ágætlega í fyrri
hálfleiknum í Ipswich en var síðan
kafsiglt á upphafsmínútum þess
síðari. Innan tíu mínútna hafði Ips-
wich skorað þrisvar, Trevor Putn-
ey, Rusell Osman og Alan Brazil.
Mark Denis náði að minnka mun-
inn fyrir Birmingham en það var
ekki nóg og lið hans vermir nú
neðsta sæti 1. deildar á ný.
Notts County kom sér hins vegar
beint að efninu í fyrri hálfleik gegn
Tottenham og gerði þá út um
leikinn með þremur mörkum.
Fyrst skoraði David Hunt, síðan
Nígeríumaðurinn John Chiedozie
tvívegis.
Markaskorarinn mikli, Bob
Latchford, lék sinn síðasta leik
fyrir Swansea á laugardag en
kvaddi með tapi í Southampton.
Jimmy Loveridge kom þó Swansea
yfir en Ian Bed og David Arms-
trong tryggðu Southampton sigur
og „Dýrlingarnir" eru komnir í
sjötta sætið eftir slakt gengi framan
af vetri.
Sunderland fjarlægist fallsvæðið
og Gary Rowell nálgast marka-
hæstu menn 1. deildar. Hann
skoraði bæði mörkin í 2-1 sigrinum
á Everton, það fyrra úr vítaspyrnu,
en Graeme Sharp læddi inn marki
fyrir gestina.
WBA lék sinn fjórða 0-0 leik í
Gary Rowell skorar orðið nánast í
hverjum leik fyrir Sunderland; nú
tvö gegn Everton.
i Gary Shaw, hér til vinstri í baráttu
við varnarmann Barcelona,
skoraði sigurmark „svefngengl-
anna“ í viðureign hérans og skjald-
bökunnar!
röð þegar liðið sótti Luton heim og
nær ekki Evrópusæti með slíku á-
framhaldi. Ekkert mark var heldur
skorað á Highbury þar sem Arse-
nal og Nottingham Forest léku og
Terry Neill, framkvæmdastjóri
Arsenal lét hafa eftir sér í leikslok:
„Ég dauðskammast mín fyrir að
áhorfendur skyldu vera látnir
borga fyrir að horfa á þessa vit-
leysu!“ Þetta var sennilega síðasti
leikur John Hollins fyrir Arsenal,
hann gerist nú líklega stjóri hjá 4.
deildarliði Colchester.
„Getað skorað tólf“
„Þetta var okkar besti leikur í
vetur og við hefðum getað skorað
tólf mörk í stað sex,“ sagði mið-
herji QPR, Clive Allen, eftir að
hafa skorað þrívegis í 6-1 sigri liðs
síns á Middlesboro í 2. deildinni.
„Við erum alls ekki öruggir með
sæti í 1. deild þrátt fyrir góða stöðu
en nú þurfa aðrir að reyna að elta
okkur uppi, ekki við þá eins og við
þurftum að gera í fyrra og mis-
tókst“. Gary Micklewhite, Mick
Flanagan og John Gregory
skoruðu hin mörk QPR en Heine
Otto svaraði fyrir Middlesboro úr
vítaspyrnu.
Allan Simonsen, Daninn snjalli,
er líklega á leið frá Charlton, jafn-
vel til Ameríku, en hann sýndi frá-
bæra takta þegar Charlton vann
Chelsea 5-2. Hann skoraði 2 stór-
kostleg mörk, bæði eftir mikinn
einleik, en hvert mark gæti verið
hans síðasta fyrir litla Lundúnalið-
ið, sem ekki hefur efni a að halda
honum öllu lengur.
Fulham tapaði í Burnley, Flynn
skoraði eina markið, og keppnin
um 1. deildarsæti er að verða milli
fleiri liða en að stefndi. Leicester
tapaði þó dýrmætum stigum heima
gegn Derby, Steve Lynex skoraði
fyrir Leicester níu mínútum fyrir
leikslok en Joh Barton náði að
jafna. Úlfarnir máttu einnig sætta
sig við jafntefli heima; Mel Eves
skoraði fyrir þá 14 mínútum fyrir
leikslok en Joe Mayo jafnaði fyrir
Cambridge. —VS
Leikur helgarmnar
Mikil barátta í leik
Manchesterliðanna
Frank Stapleton endurtók leikinn
frá því f fyrri viðureign Manchest-
erliðanna og skoraði tvívegis fyrir
United.
í 106. deildaviðureign
Manchester-liðanna City og Unit-
ed, fór lítið fyrir áferðarfallegri
knattspyrnu. Baráttan var í fyrir-
rúmi eins og oftast þegar ná-
grannalið eigast við og leikurinn
var bæði harður og spennandi.
Sigur United, 2-1, var sanngjarn
þegar á heildina er litið og City
færist æ neðar á töflunni. Undir
stjórn John Benson hefur liðið
enn ekki unnið leik og vandamál-
in hrúgast upp hjá félaginu, innan
vallar sem utan.
„Við sköpuðum okkur næg
tækifæri í leiknum og ég held að
sigur okkar hafi verið sann-
gjarn,“ sagði Frank Stapleton
eftir leikinn, en hann skoraði
bæði mörk United, rétt eins og í
fyrri leik liðanna í vetur sem
endaði 2-2. „Við lékum vel fram-
an af, síðan tók City forystuna og
við vorum lengi í gang á ný. Síðari
hálfleikurinn gekk vel, við réðum
gangi leiksins eftir jöfnunar-
rnarkið."
City náði forystunni á
31.mínútu þegar Kevin Stapleton
jafnaði með skalla á 52. mínútu
eftir að Steve Coppell hafði leikið
á Bob McDonald og sent fyrir
mark City. Sigurmarkið, á 76.
mín., skoraði Stapleton einnig
með skalla, nú eftir hornspyrnu
Arnold Muhren. City var hárs-
breidd frá því að jafna í lokin,
Tommy Caton átti stangarskot
eftir aukaspyrnu Ray Ransom á
síðustu sekúndunum.
Það sem skildi á milli liðanna
var hve United nýtti kantana
mikið betur. Coppell olli vörn
City áhyggjum hvað eftir annað
eftir góðar sendingar og leikur
liðsins var öllu áferðarfallegri en
hjá City sem notaði langspyrnur
fram á sóknarmennina. Remi
Moses var bókaður, hann náði
þar með 20 refstigum og missir af
næsta leik United. Hann nær þó
úrslitaleik mjólkur/deildabikars-
ins; tekur bannið út gegn Bright-
on í 1. deildinni.
- VS