Þjóðviljinn - 15.03.1983, Blaðsíða 1
-
DJÚÐVILJINN
Vindarsnérustí
síðari umferð
sveitarstjórnar-
kosninganna í
Frakklandi og
Mitterrand metur
nú stöðuna.
Sjá 5.
mars 1983
þriðjudagur
58. tölublað
48. árgangur. 3
Sjálfstæðismenn í sjónvarpsumræðum í gærkvöldi:
ÆTLA SÉR HREINAN
IHALDSMEIRIHLUTA
50 ár voru í gær
liðin frá
Novu-slagnum á
Akureyri, en þar
var um að ræða ein
af þremur meiri-
háttar átökum
kreppuáranna.
Stólar Alþingis
verða nú auðir um
sinn. En síðustu
daga þingsins urðu
afdrif mála á ýmsa
vegu.
Alusuisse Og
samkomudagur:
Burtsofnast
á
þlngi
Þau tvö mál sem hæst hafa
borið upp á síðkastið í meðfor-
um alþingis burtsofnuðust á
þinginu. Þessi mál, Alusuissc-
nefndin og þingsályktunartil-
laga um samkomudag þings,
hafa mætt harðri andstöðu ann-
ars vcgar Alþýðubandalagsins
og hins vegar Framsóknar-
flokksins.
Andstaða þessara flokka við
téð mál hafði valdið því að bæði
vóru komin í sjálfheldu. Til-
iagan um samkomudag þings að
afloknum kosningum var kom-
in heldur lengra en hin - eða var
samþykkt í efri deild og komin
til umræðu í neðri deild er þing-
inu var veitt lausn í gærkveldi.
Töldu Alþýðubandalagsmenn í
þinginu í gær að staðfesting væri
komin á því að þingið verði
kallað saman að afstöðnum
kosningum.
— óg.
„Það er þjóðarnauðsyn að Sjálf-
stæðisflokkurinn fái meirihluta í
kosningunum“, sagði Albert Guð-
mundsson, oddviti Sjálfstæðis-
manna í Reykjavík í eldhúsdags-
umræðunum á Alþingi í gærkvöldi.
„Lífshamingja ykkar er í veði“,
sagði Albert ennfremur.
Þannig svaraði Albert í raun
endurteknum óskum Framsóknar-
manna í umræðunum um „sterka
stjórn“, sem á máli þeirra hefur
hingað til þýtt samvinnu við Sjálf-
stæðisflokkinn. Bæði Steingrímur
Hermannsson og Jón Helgason
gáfu þessa línu í ræðum sínum. í
máli Sjálfstæðismanna kom hins-
vegar fram að þeir telja sig geta
staðið óstuddir og náð hreinum
meirihluta í kosningunum!
Olafur Ragnar Grímsson sem
lauk umræðunum í gærkvöldi benti
á að vinstra fólki, verkalýðssinn-
um og öllu félagshyggjufólki væri
nauðsynlegt að hyggja að þessum
viðhorfum og sameinast um ís-
lenska leið út úr vandamálum
líðandi stundar.
Hann kvað Alþýðubandalagið
vera eina stjórnmálaaflið sem
gengi óklofið til kosninga og væri
tilbúið til þess að skapa einingu
gegn hægri stjórn íhalds og Fram-
sóknar eða meirihluta Sjálfstæðis-
flokksins, sem hásetar VSÍ og
Verslunarráðsins myndu stýra að
loknum kosningum, þótt reynt yrði
að fela leiftursóknina. _ ekh.
Þingslit
í gœr
í lok eldhúsdagsumræðna á Al-
þingi í gærkvöldi las dr. Gunnar
Thoroddsen forsætisráðherra upp
forsetabréf þar sem kunngert var
að þingið væri rofíð frá og með 23.
aprfl og þann sama laugardag færu
fram alþingiskosningar. Er forsæt-
isráðherra hafði lesið upp forseta-
bréflð sleit hann 105. löggjafar-
þinginu, en þingmenn halda um-
boði sínu til kjördags.
í umræðunum sem fóru á undan
þingslitunum veittist Gunnar
Thoroddsen harkalega að Sjálf-
stæðisflokknum og kvað flokks-
ræðið þar ekki ríða við einteyming,
enda væri nú kallað á breytingar
þar á bæ. Albert Guðmundsson
sagði að ræða forsætisráðherra
hefði verið högg undir beltisstað og
tímaskekkja á árinu 1983. - óg.
Árnesingar fengu góða gesti um helgina, þegar Víg-
dís Finnbogadóttir heimsótti sýsluna. Á þessari
mynd má sjá forsetann í hraðfrystihúsi Stokkseyrar,
en fleiri myndir frá Stokkseyri og Eyrarbakka eru í
blaðinu í dag.
Heimsókn
forsetans
Ráðstafanlr fyrir 1. maí
Ný ríkisstjórn taki á vandanum, sagði Svavar Gestsson
- Við Ieggjum áherslu á að strax að kosningum loknum, verði mynduð
ríkisstjórn, sem fyrir 1. maí geti gert nauðsynlegar ráðstafanir til að
tryggja gang atvinnuveganna, ríkisstjórn sem getur dregið úr hraða verð-
bólgunnar, án þess að það komi niður á kaupmætti almennra launa - sagði
Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins í sjónvarpsumræðum í
gærkveldi.
Ragnar Arnalds undirstrikaði að
Alþýðubandalagið væri félags-
hyggjuflokkur og vildi sem slíkur
auka við félagslega þjónustu. Al-
þýðubandalagið væri andsnúið
krukkinu í vísitöluna. Framsóknar-
flokkurinn hefði í tvígang á síðustu
vikum farið í bónorðsför til Sjálf-
stæðisflokksins í stjórnarandstöðu.
í fyrra sinnið hefði Framsóknar-
flokkurinn fengið hryggbrot þegar
fikta átti við vísitöluna. í seinna
sinnið hefði Framsókn tekist að ná
samstöðu milli álflokkanna um af-
hrópun á Hjörleif Guttormsson
iðnaðarráðherra.
Garðar Sigurðsson lagði áherslu á
að bölmóðurinn mætti ekki heltaka
fólk, þrátt fyrir aðsteðjandi vanda í
efnahagsmálum. Sagðist hann hafa
orðið fyrir verulegum vonbrigðum
með stjórn Framsóknarflokksins á
sjávarútvegsmálum. Benti Garðar
á nauðsyn þess að draga úr sókn í
ofveidda fiskistofna, sagði t.d.
fulla ástæðu til að taka upp kvóta á
skip sem veiða fisk sem heildar-
kvóti væri á. Þetta þyrfti að leysa
hið ófullkomna skrapdagakerfi af
hólmi, - og hætta hinu óþolandi
smáfiskadrápi. Lagði Garðareinn-
ig nka áherslu á að endurskipu-
leggja þyrfti vinnslu sjávarfanga;
minni afla ætti að mæta með því að
gera aflann dýrmætari með því að
auka úrvinnslu hráefnisins. .