Þjóðviljinn - 15.03.1983, Síða 3
Lúðrasveit
V erkalýðs-
ins þrjá-
tíu ára
Þann 8. mars síðastliðinn voru
30 ár liðin frá því að Stefán Ög-
mundsson og Haraldur Guð-
mundsson komu saman í húsi að
Grettisgötu 64 og stofnuðu Lúðra-
sveit verkalýðsins. í tilefni þessara
tímamóta hélt hljómsveitin sér-
staka aímælistónleika í Háskólabiói
síðastliðinn laugardag auk þess
sem haldið var kaffisamsæti í æf-
ingahúsnæði hljómsveitarinnar að
Skúlatúni 6.
Fjölmenni var á afmælistónleik-
unum í Háskólabíói þar sem hljóm-
sveitin lék nokkur þekkt lög úr efn-
isskrá hljómsveitarinnar s.s. „Int-
ernationalinn" og ýmsi lög erlend
sem innlend þ.á.m. nokkur lög út-
sett af stjórnanda hljómsveitarinn-
ar Ellert Karlssyni. Kynnir og
stjórnandi á hljómleikunum í
Háskólabíói var Jón Múli Árnason
en hann hefur haft þann starfa með
höndum undanfarin ár auk þess að
vera gamall meðlimur hljóm-
sveitarinnar.
Að hljómleikum loknum var
boðið til kaffisamsætis í æfinga-
húsnæði hljómsveitarinnar að
Skúlatúni 6 í Reykjavík. Voru gest-
ir hátt á annað hundrað.
-hól.
Þriðjudagur 15. mars 1983 WÓÐVHJINN— SlpA 3
Frá afmæiistónleikum Lúðrasveitar verkalýðsjns í Háskólabíói á
laugardaginn, undir stjórn EUerts Karlssonar. Á innfeUdu myndinni
má sjá kynni hljómsveitarinnar, Jón Múla Árnason en hann sagði
m.a.: „Þessi hljómsveit ætlar sér að lifa þrisvar sinnum þrjátiu ár í
viðbót!“
Ljósm. -eik.
Sigurlaug
í 1. sæti
og
Halldór
í öðru
Sigurlaug Bjarnadóttir varð í
fyrsta sæti í prófkjöri sérframboðs
Sjálfstæðismanna á Vestfjörðum,
hlaut 245 atkvæði í fyrsta sæti en
373 atkvæði alls.
Sérframboðið fékk byr undir báða
vængi og Sigurlaug Bjarnadóttir
varð langefst.
Halldór Hermannsson varð í
öðru sæti með 175 atkvæði í fyrsta
og annað sæti en 310 atkvæði alls. í
þriðja sæti varð Guðjón Karlsson,
skipstjóri á ísafirði, fjórða sæti
Kolbrún Friðþjófsdóttir og í
fimmta sæti Jóna Kristjánsdóttir.
Alls tók 427 manns þátt í próf-
kjörinu, sem er mun meira en búist
var við og virðist þátttakendafjöld-
inn skjóta stoðum undir þá full-
yrðingu sérframboðsmanna að
það hafi vakið mikla óánægju Sjálf-
stæðismanna vestra að ekki var i
viðhaft prófkjör við ákvörðun
listans í vetur.
-S.dór. !
Stofnuð samtök
um kvennalista
Samtök um kvennalista voru
stofnuð á sunnudaginn, en aðild að
þeim eiga þær konur í Reykjavík og
I Reykjaneskjördæmi, sem hafa á-
kveðið að bera fram sérstakan
kvennalista í komandi Alþingis-
kosningum. Konur í Norðurlandi
eystra munu eiga óformlega aðild
að samtökunum, en þær hafa ekki
ákveðið framboð.
Á fundinum var Iögð fram stefn-
hún rædd meðial kvenna úr Reykja-i
vík. Meðal þeirra fór einnig fram
skoðanakönnun um skipan listans í
Reykjavík, en hún fór þannig fram
að hver ritaði nöfn 10 kvenna.
Konur í Reykjaneskjördæmi munu
gangast fyrir svipaðri könnun í sín-
um hópi í þessari viku. !
Reykjavíkuranginn mun funda
næsta sunnudag og er þá búist við
að stefnuskráin og listinn verði full-
búin. ast
Málfundafélag iðn-
nema stofnað aftur
Stofnfundur Málfundafélags
iðnnema verður haldinn 19. mars
nk. í Iðnaðarmannahúsinu Hall-
veigarstíg 1 og hefst hann kl. 14.00.
Á dagskrá fundarins verða venj-
uleg aðalfundarstörf þar sem m.a.
verður kjörin stjórn. Að því loknu
verður haldinn málfundur og hefst
hann kl. 15.00. Verður rætt um
frjálst útvarp og halda framsögu
um það efni þeir Stefán Jón Haf-
stein og Einar K. Jónsson.
Að sögn aðstandenda fundarins
er þetta 3ja tilraunin sem gerð er tii
að koma á laggirnar Málfundafé-
lagi iðnnema. Fyrst var það reynt í
lok stríðsins, árið 1945 og lognaðist
sá félagsskapur út af árið 1951.
Aftur var reynt árið 1967 og dó það
félag drottni sfnum mjög fljótlega.
Nú skal enn reynt enda allt þá er
þrennt er. Eru iðnnemar hvattir til
að mæta á fundinn á laugardag.
Enginn krati fannst!
Skoðanakönnun í Olafsvík og Neshreppi utan Ennis
Krati fyrirfmnst enginn í Ólaf-
svík, ef marka má skoðanakönnun
sem þar var gerð fyrir skömmu.
Það voru nemendur 9. bekkjar
Grunnskólans í Ólafsvík, sem unnu
þessa könnun, undir stjórn Einars
Guðmundssonar kennara.
Úrtakið var 10% af þeim íbúum í
Ólafsvík og á Hellissandi og Rifi,
sem kosningarétt hafa í kosningum
23. apríl næstkomandi. í Ólafsvík
var úrtakið 74 manns og í Nes-
hreppi utan Ennis 33. Alls voru því
107 í úrtakinu. Úrtakinu var kyn-
skipt eftir hlutfalli kynja á kjör-
skrá. í uphafi úrtaks var stuðst við
tilviljanatöflu.
Könnunin var þannig fram-
kvæmd, að seðlar voru bornir í hús.
Á seðlinum voru 2 spurningar.
Seðlinum átti að svari loknu, að
stinga í lokað ómerkt umslag.
Nemendur komu síðan með læstan
kjörkassa til fólks og stungu þátt-
takendur seðlum sínum niður í
kassann.
í Ólafsvík skiluðu 69 af 74
seðlum sínum og í Neshreppi 31 af
33. Úrtakið og skil ættu því að full-
nægja kröfum, og gefa mynd af af-
stöðu fólks á þessu svæði.
Spurningarnar tvær, sem lagðar
voru fyrir voru í fyrsta lagi hvort
menn vildu láta sameina Ölafsvík
og Neshrepp í eitt sveitarfélag og
síðan hvaða stjórnmálaflokk menn
hyggðust styðja.
I Ólafsvík vildu 24% þeirra sem
afstöðu tóku láta sameina sveitar-
félögjn en 76% voru á móti. í Nes-
hreppi snerist afstaðan við. Þar
voru 74% fylgjandi sameiningu en
26% andvígir.
Góð staða
Alþýðubandalagsins
Spurningunni um hvaða flokk
menn hygðust kjósa svöruðu lið-
lega 60% í Ólafsvík en 77% í Nes-
hreppi. Afstaða manna kemur
fram á meðfylgjandi töflu.
Það sem einkum má lesa út úr
þessari könnun er fylgishrun hjá
Alþýðuflokki. í grónu vfgi Alþýðu-
flokksins, Ólafsvík, gaf enginn til
kynna að hann hyggðist styðja
flokkinn.
Ekki verður annað sagt en að
Alþýðubandalagið fái góða út-
komu út úr þessari könnun. Vil-
mundarframboð virðist ekki snerta
fylgi þess, en beinist yfirgnæfandi
gegn Alþýðuflokknum. eng.
TAFLA
Niðurstaða skoðanakönnun-
ar i Ólafsvík og Neshreppi utan
Ennis um fylgi flokkanna.
Ól.vík Nes.hr.
Aiþýðubandalag 19% 21%
Alþýðuflokkur 0% 8%
Bandal. jafnaðarm. 24% 8%
Framsóknarfl. 24% 13%
Sjálfstæðisfl. 33% 50%
Starfsfólki skipasmíðastöðva á Faxaflóasvæðinu
Fækkaði um 2-300 á
nokkrum mánuðum
segir Félag dráttarbrauta og skipasmiðja
Starfsmönnum skipasmíða-
stöðva á Faxaflóasvæði hefur fækk-
að um 2-300 á síðastliðnum mán-
uðum og þeir starfsmenn sem eftir
eru í vinnu hafa ekki næg verkefni
þannig að frekari uppsagnir standa
fyrir dyrum, segir í frétt frá Félagi
dráttarbrauta og skipasmiðja.
Vandi íslensks skipasmíðaiðnað-
ar var til umræðu á fundi sem ný-
lega var haldinn í Félagi dráttar-
brauta og skipasmiðjá og var m.a.
rætt um sambúðarörðugleika Fisk-
veiðasjóðs og Byggðasjóðs. Segir í
frétt frá SDS að togstreitan milli
sjóðanna hafi ekki síst komið niður
á framvindu raðsmíðaverkefnis Fé-
lags dráttarbrauta og skipasmiðja
sem ráðist var í á árinu 1980 í sam-
ráði við stjómvöld. Þá hafi verið
samþykkt sérstök áætlun um inn-
lenda endurnýjun bátaflotans, því
lýst yfir að fjármögnun nýsmíðar-
innar yrði tryggð og að skipasmíða-
stöðvunum yrði tryggður aðgangur
að endurkaupalánum Seðlabank-
Verkefni eru ekki næg fyrir þá
starfsmenn sem enn eru við vinnu
og eru frekari uppsagnir í skipa-
smíðaiðnaðinum fyrirsjáanlegar,
segir í fréttinni.
r -
ans. Þrátt fyrir þessar aðgerðir rík-
isstjórnarinnar hafi lítið sem ekk-
ert gengið varðandi lánsfjármögn-
un til skipasmíða og séu fyrr-
greindir samskiptaörðugleikar
Byggðasjóðs og Fiskveiðasjóðs
helsta hindrunin. Síðan segir:
„Ekki . verður lánsfjáráætlun
fyrir árið 1983 heldur til að auka
bjartsýni fyrirsvarsmanna skipa-
smíðastöðvanna og starfsmanna
þeirra. Samkvæmt henni virðist
einungis ráðgert að útvega fé, er
vart hrekkur fyrir þeim nýsmíða-'
, verkefnum, sem þegar eru hafin.
Ekkert fjármagn verði útvegað til
frekari nýsmíða“.
„Lítur þannig út fyrir að ríkis-
stjómin ætli að láta stjórnir fjár-
festingasjóða taka af sér völdin og
skammta eftir sínu höfði nýsmíða-
og viðgerðarverkefni á næstunni“,
segir m.a. í frétt frá Félagí
dráttarbrauta- og skipasmiðja sem
blaðinu héfur borist. ^ '
-v.