Þjóðviljinn - 15.03.1983, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Þriðjudagur 15. mars 1983
DJOBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf-
ingar og þjóðfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastióri: Guörún Guðmundsdóttir.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson.
Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guöjón Friöriksson.
Auglýsingastjóri: Sigríöur H. Sigurbjörnsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Siguröardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Blaðamenn: Auöur Styrkársdóttir, Álfheiöur Ingadóttir, Helgi Ólafsson,
Lúövík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason,
Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson.
íþróttafréttaritari: Viöir Sigurðsson.
Utlit og hönnun: Helga Garöarsdóttir, Guöjón Sveinbjörnsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Atli Arason.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson.
Skrifstofa: Guörún Guðvarðardóttir, Jóhannes Haröarson.
Símavarsla: Sigríöur Kristjánsdóttir, Sæunn Óladóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bilstjóri: Sigrún Báröardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson,
Ólafur Björnsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir
Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar:
Síöumúla 6, Reykjavík, simi 81333.
Umbrot og setning: Prent.
Prentun: Blaöaprent h.f.
Hœgri snú hjá
Framsókn
• Á föstudagskvöld var í efri deild Alþingis samþykkt
þingsályktunartillaga þriggja flokka um að Alþingi
skyldi kvatt saman eigi síðar en 18 dögum eftir kosning-
ar í apríl. I>egar þetta er ritað eru ekki horfur á því að
sambærileg ályktun verði samþykkt í neðri deild, enda
hefur ekki verið lagt kapp á að knýja hana fram. Vilji
þingsins kom fram í efri deildinni í þessu efni og liggur
skýr fyrir þegar gengið er til kosninga.
• í umræðum um þingsályktunina skýrðist það nokk-
uð hvað vakti fyrir Framsóknarmönnum með áköfu
andófi gegn því að þing kæmi saman eftir kosningar.
Tómas Árnason viðskiptaráðherra sagði svo ljóst sem
verða mátti að nauðsynlegt væri að hafa frið fyrir þing-
inu eftir kosningar til þess að mynda sterka stjórn án
þátttöku Alþýðubandalagsins. Ekki væri starfandi með
Alþýðubandalaginu og mátti skilja á Tómasi að nú
hyggði Framsóknarflokkurinn á íhaldssamvinnu.
• Það er ekkert launungarmál að fyrir hægri sinnum í
Framsóknarflokknum vakir íhaldssamvinna með nokk-
uð sérkennilegu sniði. Leiða á guðföður Geirsstjórnar-
innar 1974, Ólaf Jóhannesson, til öndvegis í nýrri ríkis-
stjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, þar sem
Geir Hallgrímsson fengi utanríkisráðherraembættið, ef
hann kemst á þingið. Með því gæfist Sjálfstæðisflokkn-
um tóm til þess að leysa sín forystuvandamál án þess að
setja Geir Hallgrímsson beinlínis af, og hægri sinnar í
Framsóknarflokknum settu Steingrím formann sinn til
hliðar.
• Það var athyglisvert að Ólafur Jóhannesson lýsti yfir
því að samþykkt tillögunnar um samkomudag Álþingis
myndi ekki leiða til stjórnarslita eins og Steingrímur
Hermannsson hafði látið sér um munn fara. t»ar var því
komið á framfæri hver réði hjá Framsókn.
• Hinsvegar var það óljóst í umræðunum á þingi
hvernig Framsóknarmenn hugsuðu sér að standa að
þingkvaðningu. Þeir voru sammála öðrum um það að
þingið ætti að koma fljótlega saman, og Ólafur Jóhann-
esson lýsti þeim skilningi sínum að ekki mætti líða of
langt frá breytingu á stjórnskipunarlögum, þar til að
frumvarp til staðfestingar kæmi fram og gengið væri til
nýrra kosninga. En Framsóknarmenn virtust álíta að
nýr meirihluti ætti eftir kosningar að kveða þingið
saman, enda hefur Steingrímur Hermannsson kveðið
upp úr með það að núverandi ríkisstjórn eigi að segja af
sér strax eftir kosningar. Gunnar Thoroddsen forsætis-
ráðherra sagði hinsvegar í umræðunum að hann ætlaði
sér sem slíkur og í umboði forseta að ákveða samkomu-
dag Alþingis eftir kosningar, og sat hjá við atkvæða-
greiðsluna. Erfitt sýnist að koma þessu tvennu heim og
saman.
• Framsóknarmenn hafa gert það lýðum ljóst að þeir
stefna á ríkisstjórn án þátttöku Alþýðubandalagsins og
ætla að reyna að tefja það sem lengst að gengið verði til
kosninga samkvæmt breyttum stjórnskipunarlögum.
Þeir hafa ásamt Pálma Jónssyni blásið núverandi ríkis-
stjórn af og sett punktinn við tímabil hennar. Engar
slíkar yfirlýsingar hafa komið frá forystumönnum Al-
þýðubandalagsins. Þessar staðreyndir ættu menn að
hafa í huga þegar gengið verður til kosninga.
-ekh
Rökþrot álmanna
• Álmenn ÍSALS undir forystu Eggerts Haukdals,
þess sem hljóp úr vistinni hjá Gunnari Thoroddsen í
haust, voru ekki borubrattir á þinginu síðastliðinn
föstudag. Hver eftir annan féllu þeir frá orðinu þegar til
umræðu var tillaga Eggerts, Jóns Baldvins, Friðriks
Sophussonar og Halldórs Ásgrímssonar um vantraust á
Hjörleif Guttormsson. Svo gjörsamlega eru þeir rök-
þrota að þeir treysta sér ekki til þess að verja gerðir
sínar.
klippt
Sjá á iljar
álmanna
Eins og alþjóð veit hafa nokkr-
ir leiðtogar í borgaraflokkunum
sameinast um að flytja tillögu á
alþingi um sérstaka viðræðu-
nefnd við Alusuisse. Nefndin
hefur á að skipa einhverjum
glæsilegustu stjórnmálaskörung-
um þessara flokka - undir forystu
Eggerts Haukdals.
Alþýðubandalagsmenn not-
uðu tækifærið sl. föstudagskvöld
og aðfararnótt laugardags - og
röktu sögu Alusuisse-málsins frá
því á sjöunda áratugnum.
Mörgum flutningsmanna til-
lögunnar leið greinilega illa undir
þeim tölum. Það mun t.d. ekkert
hafa verið sérstaklega ánægjulegt
fyrir Halldór Ásgrímsson vara-
formann Framsóknarflokksins
og arftaka Eysteins Jónssonar á
Austfjörðum, að hlýða á boð-
skap Eysteins gegn Alusuisse um
miðjan sjöunda áratuginn á
alþingi. Þá kvað við annan tón í
Framsókn. Þessi saga - saga
andófs og undirlægju gagnvart
auðhringum var rifjuð upp af
þeim Hjörleifi Guttormssyni,
Svavari Gestssyni og Ragnari
Arnalds, aðfararnótt laugardags.
Þeir álmenn sátu margir hnípn-
ir, rauðir og aumkunarverðir
undir þessari upprifjun. Þegar
leið á nóttina mátti sjá á iljar
glæsimennanna út úr alþingis-
húsinu.
í farteskitil Sviss
Svavar Gestsson vék að þessu
máli í ræðu sinni í gærkveldi.
Sagði hann frá því að tillaga
þeirra Framsóknarmanna, Sjálf-
stæðismanna og Alþýðuflokksins
hefði borið tilætlaðan árangur á
öðrum vígstöðvum en alþingi ís-
lendinga:
„Forstjóri ísals er farinn með
tillöguna í farangri sínum niður til
Sviss. Þangað fór hann á laugar-
dagsmorgun, um það leyti sem
umræðum var að ljúka hér á
alþingi um álmálið. Með Ragnari
Halldórssyni fór Guðmundur H.
Garðarsson formaður fulltrúar-
áðs Sjálfstæðisfélaganna, íhald-
sfélagsins hér í Reykjavík”.
Til marks um
niðurlœginguna
„Kannski hafa þeir fært Muller
og Mayer tillöguna í gylltum
ramma, kannski skrautritaða,
kannski með myndum af flutn-
ingsmönnunum sex úr álflokkun-
um þremur. Ekki veit ég það, en
hitt veit ég að þessi tillöguflutn-
ingur er til marks um niðurlæg-
ingu og þau áhrif sem hinn er-
lendi auðhringur hefur nú þegar á
íslandi. Tillagan er einnig há-
punktur á rógsherferð álflokk-
anna gegn Hjörleifi Guttorm-
ssyni”, sagði Svavar Gestsson.
Benti Svavar einnig á að á
leiðinni til Sviss hafi þeir Ragnar
Halldórsson og Guðmundur H.
Garðarsson vafalaust einnig fjall-
að um stefnumál Sjálfstæðis-
flokksins og Verslunarráðs ís-
lands. Ragnar er nefnilega for-
maður Verslunarráðs íslands og
Guðmundur H. Garðarsson þyk-
ir vera í öruggu sæti á framboðs-
lista Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík.
Að Framsóknarmenn taki þátt
í þessum pólitíska harmleik
Alusuisse-hringsins á íslandi er
óneitanlega vitnisburður um dap-
urleg örlög Framsóknarflokks-
ins; uppdráttarsýki þjóðlegrar
samvinnuhreyfingar.
og skoriö
Fjallið
tók jóðsótt...
Jón Baldvin Hannibalsson hef-
ur fengið gamla drauminn upp-
fylltan, hann hefur fengið að sitja
á þingi um missera skeið. Það er
athyglisvert að þeir sem hafa
gengið lengi með þingmann í
maganum án þess að geta fætt,
verða oft eins og mýldir þegar
þeir loks komast á þing. Þannig
hefur Jón Baldvin verið nánast
verklaus frá því hann kom inn á
þingið. Þessi hressilegi andskoti
Alþýðubandalagsins á Alþýðu-
blaðinu hefur ekki verið annað
en orðlaus héri á þinginu og ekki
einu sinni Alþýðubandalags-
mönnum hefur tekist að kalla
fram viðbrögð eins og kollhnís-
ana forðum nær hann sat í rit-
stjórastóli á Alþýðublaðinu.
...og það
fœddist mús
Þingmál hefur Jón Baldvin
engin flutt fyrr en á síðustu dög-
um. Og hvílík mál og hvílíkur
málatilbúnaður!
Þar er fyrst upp að telja frum-
varp um að Framkvæmdastofnun
ríkisins verði lögð niður. Nú er
sama hvort fólk er því sammála
eða ekki - það þarf að gera ráð
fyrir því sem koma skal í staðinn.
Það þarf að ráðstafa Byggðasjóði
og öðrum þeim föstu verkefnum
sem flestir eru trúlega sammála
um að þurfi að inna af hendi
hvort sem Framkvæmdastofnun-
in lifir eða deyr. Flutningsmaður-
inn lætur svo lítið að geta þess í
greinargerð, að ríkisstjórnin ætti
að semja frumvörp og koma með
tillögur um það hvað eigi að
koma í staðinn fyrir Framkvæmd-
astofnun! Þetta eru auðvitað fá-
heyrð vinnubrögð og eins óvönd-
uð og hugsast getur.
Hugmyndum
hnuplað
Það er engu líkara en skrúfað
hafi verið fyrir fantasíu þing-
mannsins, því hann flytur ekki
önnur mál en þau sem aðrir hafa
flutt og sett fram.
Annað frumvarp Jóns Bald-
vins er um breytingu á útvarps-
lögum. Þar gerir hann sér lítið
fyrir og tekur álit útvarpslaga-
nefndar, sem unnið hefur að
frumvarpsgerð um árabil og lokið
störfum, - og skrifar nafnið Jón
Baldvin Hannibalsson á álit
nefndarinnar. Þar með er komið
frumvarp Jóns Baldvins Hanni-
balssonar.
Gunnars
Mayoness
Ef vinnubrögð þingmannsins
hafa ævinlega verið í þessum dúr,
er ekki að undra giftuleysið í pól-
itíkinni. Það nýjasta af þing-
manninum er svo bónorðsför til
Varins Landsmanna sem vilja
„engar málamiðlanir - jafnan at-
kvæðisrétt”. Hefur hann útskýrt í
tveimur greinum í Morgunblað-
inu (hvar annars staðar? þeir eru
hættir að gefa út Mánudags-
blaðið) að þessir menn sem berj-
ast fyrir hugsjóninni um jafnan
atkvæðisrétt eigi að kjósa sig!
Þeir herramenn sem Jón Bald-
vin er að reyna að ná til með mál-
flutningi sínum hafa hins vegar
sjálfir haft orð á því að bjóða
fram til þings.
Það gera þeir í framhaldi af vel-
heppnaðri „skoðanakönnun”,
sem var nú reyndar undirskriftar-
söfnun um hugsjónina og var
gerð með fjármagnsstuðningi frá
Gunnars Mayoness og kóka-
kóla, hvorttveggja hf.
Það verður trauðla sagt að lán-
ið elti Jón í pólitíkinni.
-«g
-ekh