Þjóðviljinn - 15.03.1983, Page 5
Þrigjudagur 15. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Góður
gestur
Vel heppnuð
ferð forseta
Islands
um
Árnessýslu
Þó að veðurguðirnirhafi ekki
verið ísem bestu skapi og
látið regnið dynja á réttlátum
sem ranglátum, létu
Árnesingarþað ekkiaftra sér
frá því að fagna heimsókn
forseta íslands, sem fór um
sýsluna á laugardag og
sunnudag. Hvarsem Vigdís
Finnbogadóttir kom tóku á
móti henni höfðingjar hverrar
sveitarog aragrúi barna og
varþað mál manna að
heimsóknin hefði heppnast
prýðilega, þráttfyrirúrkom-
una.
Á laugardag kom forseti til
Þorlákshafnar, Selfoss, Eyrar-
bakka og Stokkseyrar. Þá heim-
sótti hún Litla-Hraun og mun það
vera í fyrsta sinn sem forseti ís-
lands kemur þangað. Bæjar-
stjórn Selfoss bauð til hádegis-
verðar í gagnfræðaskólanum en
kvöldverður var að Flúðum í boði
sýslunefndar Árnessýslu. Aðfar-
arnótt sunnudags gisti forseti á
Eystra-Geldingaholti, þar sem
hún var um árabil í sveit sem
barn.
í kirkjunni á Eyrarbakka söng telpnakór fyrir forseta. Eftir sönginn var tekið til við spjallið og endaði það á því að forseti rakti ættir sínar
og eins söngvarans saman. Ljósm. -Atli.
Guðlaugur Pálsson og Ingibjörg Jónasdóttir i verslun sinni á Eyrar-
bakka. Guðlaugur er orðinn 87 áraog hefur verslað á Bakkanum í 66 ár.
Það verður kaffi úr verslun hans á boðstólum á Bessastöðum á næst-
unni, því forseti fjárfesti í einu kílói á staðnum. Ljósm. -Atli.
„Hér þarf að mála mynd“ - varð einhverjum að orði er þessi mynd var
tekin. Forseti íslands ásamt fangelsisstjóra á göngum Litla-Hrauns.
Ljósm. — Atli.
Á sunnudag var haldið til Skál-
holts og hlýtt á messu en séra
Guðmundur Óli Ólafsson þjón-
aði fyrir altari. Þá var haldið til
Aratungu, þar sem hreppsnefnd
Biskupstungnahrepps bauð til
kaffisamsætis en að því búnu
skoðaði forseti skólana á Laugar-
vatni. Á sunnudagskvöld fylgdist
hún með leiksýningu menntskæ-
linga á Laugarvatni en heimsókn-
inni lauk seint á sunnudagskvöld.
Vigdís Finnbogadóttir sagðist
vera komin í Árnessýslu til að sjá
og hitta sem flesta. Ekki gátu
fréttamenn kastað tölu á alla þá
sem notfærðu sér þetta skemmti-
lega tækifæri til að sýna forseta
íslands heimabyggð sína, atvinn-
uhætti og menningu, svo margir
voru þeir.
Vindar snúast í Frakklandi
Vinstrimenn
fá meðbyr í
seinni
umferð
kosninganna
Vindar snérust óvænt í
Frakklandi um helgina þegar
síðari umferð borgar- og sveita-
stjórnakosninganna fór f ram:
sú ráðning sem kjósendur
höfðu veitt sósíalistum og
kommúnistum ífyrri umferðinni
lét á sér standa og margar
mikilvægar borgir sem spáð
var að væru glataðar fyrir
vinstri menn unnust. Síðari
umferðin varð því óvæntur
sálfræðilegurog raunverulegur
sigur fyrir vinstri öflin og stjórn
Mitterrands.
Meðal þeirra borga, sem hægri
menn töldu öruggt að þeir myndu
vinna var Marseille, en þar hefur
Gaston Deferre innanríkisráð-
herra verið borgarstjóri síðastliðin
Jacques Chirac borgarstjóri í París sigraði í 20 borgarhverfum höfuðborg-
arinnar...
30 ár. Hægri menn fóru sér þó var-
lega og sögðu fyrir síðari um-
ferðina að gamla ljónið væri aldrei
eins hættulegt og þegar það er sært
(Deferre er nú 73 ára). Svo
reyndist einnig vera, og Deferre
hélt velli ásamt 8 öðrum ráðherrum
sósíalista sem þátt tóku f síðari um-
ferð kosninganna. Einn ráðherra
féll.'
„Eölilegt tap“
Alls töpuðu vinstri menn 31 borg
með yfir 30.000 íbúa og unnu eina.
Er þetta minna en margir höfðu
búist við og talið af mörgum „eðli-
legt tap“ miðað við aðstæður. í síð-
ustu borgarstjórnarkosningum
unnu vinstrimenn 60 borgir, og
halda þeir því eftir helming af sigr-
inum þá. f síðari umferðinni skipt-
ist atkvæðámagnið nokkurn veginn
jafnt á milli hægri og vinstri.
Meðal þeirra skýringa sem færð-
ar hafa verið fram á hinum óvæntu
úrslitum í seinni umferðinni er
meiri kosningaþátttaka, og virðist
þeir sem vildi refsa sósíalistum og
kommúnistum með hjásetu í fyrri
umferðinni hafa greitt þeim at-
kvæði sitt í seinni umferðinni. Þá
telja menn að kjósendur hafi einn-
ig viljað ná sér niðri á hægri
mönnum, þannig að ýmsir þeir sem
greiddu þeim atkvæði í fyrri um-
ferðinni hafi söðlað þar um í þeirri
síðari.
Chirac
sigursæll
Sigurvegari kosninganna varð
Jacques Chirac leiðtogi Gaullista,
en flokkur hans vann sigur í öllum
20 borgarhverfum Parísar. Yfirleitt
stóðu Gaullistar sig betur en
Giscard-sinnar, og kommúnistar
töpuðu hlutfallslega meira en sósí-
alistar eða 15 af 72 borgum sem
þeir réðu.
Af 221 borg með yfir 60.000 íbúa
héldu vinstriflokkarnir völdum í
125 á meðan stjórnarandstaðan
sigraði í 96. Samsvarandi tölur úr
síðustu kosningum voru 154 og 67.
Ekki verður annað séð en að úr-
slitin túlki vilja kjósenda til áfram-
haldandi stjórnar vinstri manna og
sá áfellisdómur sem hægri menn
sóttust eftir hefur látið á sér standa.
Framtíöin
Erfitt er að sjá fyrir, hvaða áhrif
úrslitin muni hafa á stefnu stjórnar-
innar. Almennt var talið að kosn-
ingar þessar myndu marka áfanga-
skil í stjórnarstefnunni, og eftir
fyrri umferðina var því almennt
spáð að róttækar breytingar yrðu
gerðar á stjórninni. Nú hefur það
hins vegar gerst að ráðherrarnir
hafa flestir staðist kosningarnar, og
því er ekkert sem þvingar Mitter-
rand til slíkra breytinga. Hins veg-
ar kunna þær engu að síður að
verða gerðar, því stjórnin stendur
nú frammi fyrir alvarlegum efna-
hagsvanda sem lýsir sér fyrst og
fremst í miklum viðskiptahalla við
útlönd og vaxandi erlendri skulda-
byrði. Er um það deilt í röðum
vinstri manna hvort beita eigi frek-
ari takmörkunum á kaupmætti
með frystingu launa eða hvort
grípa eigi til verndaraðgérða til að
takmarka innflutning.
Ekki er talið óhugsandi að
Mauroy forsætisráðherra muni
fara frá og taka við formennsku í
Sósíalistaflokknum. Eru tveir
menn tilnefndir sem hugsanlegir
eftirmenn hans í forsætisráðherra-
embættinu. Annar þeirra, Jacques
De Lors er talinn sérfræðingur í
fjármálastjórn og stuðningsmaður
aukins aðhalds í ríkisfjármálum, en
hinn, Bere Dovoy er talinn fulltrúi
þess arms er leggur ríkari áherslu á
félagslegar umbætur.
Sjálfur hefur Mitterrand forseti
lagst undir feld til að íhuga kosn-
ingaúrslitin, og er það haft eftir
fréttaskýrendum að hann sé svo
dulur að hann trúi jafnvel sjálfum
sér ekki fyrir hugsunum sínum.
ólg/emj.