Þjóðviljinn - 15.03.1983, Page 10
-14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJÍNN Þriðjudagur 15. mars 1983
Skólinn útskrifar fiskiðnaðar-
fólk og fisktækna. Fiskiönaðar-
fólkið lýkur prófi frá skólanum
með næga undirstöðuþekkingu,
bóklega og verkiega til að geta
annast almenna verkstjórn og
gæðaflokkun, en það nám tekur
þrjú ár. Fisktæknar bæta við sig
einu ári í skólanum og þeir eiga
að vera færir um að taka að sér
eftirlitsstörf, einfalda vinnuhag-
ræðingu, tiltekin rannsóknar- og
skipulagsstörf og stjórnun.
Lárus Björnsson kynnir hér tölvu frá Pólnum á ísafírði og eitthvað eru þeir Óskar Karlsson og Einar Birgisson hugsi á svip. Tölvurnar halda nú
innreið sína í frystihúsin sem á aðra vinnustaði landsmanna og hér á landi eru tvö fyrirtæki mjög framarlega á þessu sviði í fiskvinnslunni, þ.e.
Póllinn og Framleiðni. - (Ljósm. -eik-).
Fiskvinnsluskólirm hélt
nýlega fundmeð fréttafóiki til
þessaðkynna
skólastarfsemina.
Fiskvinnsluskólinn var
stofnaður fyrir rúmum áratug
tilað útskrifa fólk með
kunnáttu og menntun til að
annast eftirlit, verkstjórn og
annað sem fiskiðnaðinum
kemurtilgóða. Skólinn hefur
að auki gengist fyrir
fjölmörgum námskeiðum
síðari árin og hafa háttá fjórða
hundrað manns tekiðþáttí
þeim.
Verða að vísafrá nemendum
Byrjað
verður
á kennslu-
húsnœði
~ í vor
Nemendur koma misjafnlega
vel undir námið búnir - sumir
koma eftir stúdentspróf og hafa
þannig góðan bóklegan grunn,
aðrir koma frá fiskiðnaðarbraut-
um fjölbrautaskólanna. Þá
Ieyfist að taka við nemendum
hafi þeir starfað í 5 ár í fiskiðnaði
og eru 25 ára eða eldri.
Um þriðjungur námsefnis
fiskiðnaðarfólksins er bóklegt.
Meðal kennslugreina eru fisk-
vinnslufræði, framleiðslufræði,
sjávarlíffræði, gerlafræði og
stærðfræði. Liður í stærðfræðinni
er kennsla á tölvur og hvernig má
nýta þær í fiskiðnaði.
f verklega náminu er kennd al-
menn frysting, söltun og mat á
saltfiski, skreiðarmat og verkun,
Kennarar Fiskvinnsluskólans
ásamt skólastjóra.
Talið frá vinstri:
Sigurður Óskarsson,
Sigurður Haraldsson,
skólastjóri, Teitur Gylfason
og Björn Jóhannsson.
(Ljósm. -eik-).
saltsíldarverkun auk verkstjórn-
arfræðslu, svo eitthvað sé nefnt.
Skólinn hefur nú útskrifað 176
af fiskiðnaðarbrautinni. í þeim
hópi eru aðeins 26 konur. í hópi
fisktækna eru aðeins 3 konur af
43. Hins vegar hefur aðsókn
kvenna aukist talsvert nú í seinni
tíð - af 23 nemendum sem byrj-
uðu nám í haust eru 8 konur.
Þá er það athyglisvert hversu
margir útskrifaðra nemenda
starfa nú að fiskiðnaði. Nær allir
hafa tekið tii starfa í þeirri grein
og segja ráðamenn skólans, að
þetta bendi sterklega til þess, að
ekki sé erfitt fyrir nemendur að fá
starf við sitt hæfi að námi loknu. I
vetur stunda nám við skólann 48
nemendur.
Áformað er að hefjast handa
urn byggingu nýs skólahúss í
Hafnarfirði í vor, en skólinn hef-
ur búið við mismunandi aðstæður
til að veita þá fræðslu sem honum
ber lögum samkvæmt. Fyrst í stað
var skólinn til húsa í fundarsal
Rannsóknarstofnunar fisk-
iðnaðarins að Skúlagötu 4, en
nú fer bókleg kennsla fram í
húsnæði að Trönuhrauni 4. Verk-
legt nám fer fram á annarri hæð
húss Bæjarútgerð Hafnarfjarðar,
en þeirri hæð var breytt i í lítið
frystihús.
Mjög þröngt er í húsakynnum
skólans og hefur orðið að vísa frá
nemendum vegna þess arna. En
nú er skólabygging fyrirhuguð og
hefur Óli Þórðarson, arkitekt,
gert teikningar að hinu nýja
skóiahúsi. Sagði Óli við blk. að
þetta væri mjög skemmtilegt
verkefni, en einnig erfitt. Þarna
verður smíðað fyrirmyndarfrysti-
húsið, þannig að nemendur Fisk-
vinnsluskólans geti ávallt kynnst
því nýjasta sem uppi er í
greininni, og þarna verða einnig
rannsóknarstofur. ast