Þjóðviljinn - 15.03.1983, Side 11
Þeir voru allvígalegir vörubílstjórarnir sem fjölmenntu að Alþingishúsinu í gærmorgun til að fylgja eftir
kröfum sínum um afnám kflóskattsins svonefnda. Ljósm. Atli.
Vörubílstjórar mótmæla enn kílóskattinum
,Nóg af skattheimtu’
segir Herluf Clausen formaður Landssambands vörubifreiðastjóra
„Okkur finnst það skjóta skökku
við að vörubíistjórar, sem síðustu
misseri hafa verið að ídjást við um-
talsvert atvinnuleysi, skuli eiga að
taka á sig þennan nýja skatt til upp-
byggingar vegakerfisins í landinu“,
sagði Herluf Clausen formaður
Veggjaldið - kílógjaldið - svo og
vegaáætlun náðu ekki fram að
ganga á þinginu í gær. Veggjaldið
hafði farið í gegnum fimm um-
ræður af sex en dagaði uppi samt
Landssambands vörubifreiða-
stjóra í samtali við Þjóðviljann í
gær.
Sl. föstudag fjölmenntu vörubif-
reiðastjórar til alþingis á bifreiðum
sínum og lögðu þeim umhverfis
húsið áður en þeir gengu á þing-
sem áður. Óvissa er nú um afdrif
þess, en ekki er ólíklegt að setping
bráðabirgðalaga verði íhuguð mið-
að við umræður sem áttu sér stað á
þinginu. -ekh
palla. Tilefnið var frumvarp til laga
um fjáröflun til vegagerðar þar sem
gert er ráð fyrir því að sérstakur
skattur verði tekinn af hverju kílói
af þyngd vörubifreiða. f gærmorg-
un fjölmenntu vörubflstjórar aftur
til fundar við þingmenn og lögðu
bifreiðum sínum í miðbæinn.
„Þegar vegagjaldið var upphaf-
lega tekið upp og mælar settir í alla
okkar bíla var því heitið að það
fylgdi byggingavísitölunni. Það
hefur hins vegar hækkað langt um-
fram hana og við bílstjórar erum
alveg búnir að fá nóg. Ætli þessi
nýja ráðstöfum þýði ekki um 100
miljón króna skatt á okkar stétt,
sem að undanförnu hefur mátt búa
við stórfellt atvinnuleysi", sagði
Herluf Clausen að lokum.
Vcggjald og vegaáætlun
Náðu ekki fram
Hjörleifur fylgdi tillögunni úr hlaði
Kísilmálmvinnslan
bíður næsta þings
Framsóknarmenn fengu Alusuisse-nefndina inn á dagskrá
Framsóknarmenn lögðu svo
mikið kapp á Alusuissetillöguna
sína í sl. viku, að þingsályktunartil-
lagan um kísilmálmvinnsluna
fékkst ekki aftur tekin á dagskrá.
Hjörleifur Guttormsson iðnaðar-
ráðherra mælti fyrir þingsályktun-
artillögunni um að alþingi staðfesti
niðurstöður stjórnar Kísilmálm-
vinnslunnar hf, um að verksmiðja
Stofnkostnaður Kísilmálm-
vinnslunnar á Reyðarfirði hefur
farið lækkandi við enduráætlanir.
Þetta kom fram í máli Hjörieifs
Guttormssonar iðnaðarráðherra,
er hann fylgdi tillögu um að stefna
skuli að gangsetningu verk-
smiðjunnar á árunum 1986-1988
úr hlaði á alþingi.
Stofnkostnaður (án vaxta á
byggingartíma) hefur verið metinn
þannig í útreikningum:
a) Samkvæmt áætlun verkefnis-
stjórnar iðnaðarráðuneytisins 1.
mars 1982: 77.0 miljónir dollara.
b) Samkvæmt áætlun Kísilmálm-
á Reyðarfirði tæki til starfa á tíma-
bilinu 1986-1988.
í framsöguræðu sinni greindi
iðnaðarráðherra frá stöðu málsins
og kom þar fram, að stofnkostnað-
ur við verksmiðjuna væri nú áætl-
aður til muna lægri en áður eða 63
miljónir bandaríkjadala í stað 77
miljóna dala, einsog gert var ráð
fyrir er alþingi samþykkti lög um
vinnslunnar 1. október 1982: 70.6
miljónir dollara.
c) Samkvæmt áætlun stjórnar
Kísilmálmvinnslunnar eftir að til-
boð í búnað lá fyrir 1. febrúar 1983:
63.7 miljónir dollara.
Arðsemi (afkastavextir) heildar-
fjárfestingar fyrir skatt:
Samkvæmt a) 10.4%.
Samkvæmt b) 13.5% aðalspá
11.2% (varfærnis
spá).
Samkvæmt c) Hefur ekki verið
endurmetið.
-óg-
verksmiðjuna vorið 1982. Jafn-
framt áætlar stjórn verksmiðjunn-
ar að arðsemi hennar nú sé hærri en
fyrir lá í fyrra, eða 13.5% sam-
kvæmt aðalspá í stað 10.4%, þegar
málið var lagt fyrir alþingi í fyrra.
(Sjá töflu).
Sverrir Hermannsson tók undir
mál iðnaðarráðherra um vandaðan
undirbúning málsins, einnig hjá
stjórn verksmiðjunnar. Hins vegar
taldi hann að breyta ætti lögunum
um verksmiðjuna á þann veg, að
íslenska ríkið ætti þai ekki meiri-
hluta,heldur ætti að leita eftir meiri-
hlutaþátttöku útlendinga í verk-
smiðjunni.
Eftir framsögu iðnaðarráðherra
og ræðu Sverris frestaði Jón Helga-
son forseti Sameinaðs alþingis um-
ræðu um málið til að koma tillögu
til þingsályktunar um viðræðu-
nefnd við Alusuisse á dagskrá.
Þessu mótmæltu ýmsir þingmenn
Alþýðubandalagsins en þau and-
mæli voru ekki tekin til greina.
Lögðu framsóknarmenn svo mikið
kapp á tillöguna um álmálið að
kísilmálmverksmiðjumálið fékkst
ekki aftur á dagskrá áður en þingi
lauk og bíður afgreiðsla hennar því
væntanlega vorþings.
-óg
Kísilmálmverksmiðjan á Reyðarfirði
Stofnkostnaður lækkar
Þriðjudagur 15. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐÁ 15
Ólafur Ragnar Grímsson:
Sitthvað orð
og gjörðir
hjá Framsókn
Það eru merkar yfirlýsingar sem
hafa fallið hér í umræðunni um
samkomudag þings, sagði Ólafur
Ragnar Grimsson í efri deild á föst-
udagskvöldið. Benti Ólafur Ragnar
á að nafni hans Jóhannesson utan-
ríkisráðherra hefði lýst því yfir að
Framsóknarflokkurinn myndi ekki
ganga út úr ríkisstjórninni verði til-
lagan samþykkt. Þetta er þvert á
yfirlýsingar Steingríms um sama
efni, en hann hefur sagt að hann
hafi lengi langað til að ganga út úr
ríkisstjórninni og tillaga þessi væri
ágætt tækifæri til þess.
Óiafur Ragnar Grímsson sagði
ennfremur að Tómas Árnason
hefði lýst því yfir að nauðsynlegt
væri að ríkisstjórn yrði þegar
mynduð eftir kosningar og að
Framsóknarflokkurinn hefði sér-
stakan áhuga á að Alþýðubanda-
lagið yrði ekki í þeirri ríkisstjórn.
Þegar gengið var til atkvæða um
Ragnar Arnalds:
þingsályktunartillöguna laust fyrir
miðnætti gerðu margir þingmenn
grein fyrir atkvæði sínu.
Forsætisráðherra sagðist ekki telja
það rétt að hann greiddi atkvæði
um þetta mál, þarsem það kæmi
væntanlega í hlut hans sem forsæt-
isráðherra að gera tillögu til forseta
lýðveldisins um samkomudag.
Ólafur Ragnar Grímsson sagði
þingræðið vera grundvallaratriði í
stjórnskipuninni og því væri rök-
rétt að álykta á þann veg að forsæt-
isráðherra færi að vilja meirihluta
alþingis í þessu efni. Þorvaldur
Garðar Kristjánsson rökstuddi af-
stöðu sína á svipaðan veg og Ólafur
Ragnar en Tómas Árnason tók í
gamla strenginn að ekki væri rétt
að ákveða þetta á þingi, heldur ætti
forsætisráðherra að gera það. Var
tillagan síðan samþykkt í efri deild
með 12 atkvæðum gegn 6 og send
til neðri deildar. - óg.
Eitthvað gruggugt
hjá Framsókn?
Þegar Framsóknarfiokkurinn
vill ganga til samstarfs við stjórnar-
andstöðuna um Alusuisse er greini-
legt að eitthvað er á seyði, sagði
Ragnar Arnalds við umræðuna í
neðri deild sl. föstudagskvöld um
samkomudag þings eftir kosningar.
Sagði Ragnar að það væru
undarleg rök hjá Framsóknar-
mönnum að þing mætti ekki koma
saman vegna þess að stjórnar-
myndunarviðræður þyrftu að fara
fram á sama tíma. Auðvitað væri
þinghald ekkert til fyrirstöðu
stjórnarmyndunarviðræðum.
Sagði hann að ef Framsóknar-
mönnum þættu 18 dagar of
skammur tími til að jafna sig eftir
kosningar, og til athugunar fyrir
nýja ríkisstjórn, þá væri sjálfsagt
að lengja þennan frest uppí þrjár til
fjórar vikur.
Sagði Ragnar að hann teldi að
semja ætti um gang þingmála þar-
sem nú þyrfti að ljúka þingstörfum
og afgreiðslu ýmissa mála. Skoraði
hann á Framsóknarmenn að sýna
nú sanngirni og ganga til samninga
um þessi mál.
Áður höfðu þeir Páll Pétursson,
Halldór Ásgrímsson og Stefán
Valgeirsson lýst andstöðu (Fram-
sóknarflokksins) við þessa tillögu
um samkomudag þingsins. Og á
eftir Ragnari Arnalds talaði Ólafur
Þ. Þórðarsson, Stefán Valgeirsson
og fleiri kappar frá Framsókn.
-óg.
Guðrún Helgadóttir:
Alþýðubandalaginu
tíl framdráttar
Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins fái að tala
sem allra lengst og mest
- Ég held að það sé Alþýðu-
bandalaginu til framdráttar að
ráðherrar Sjálfstæðisflokksins fái
að tala sem lengst í sjónvarpsum-
ræðunum og segi því já við því. Á
þessa leið mæltist Guðrúnu Helga-
dóttur er hún gerði grein fyrir at-
kvæði sínu í sameinuðu þingi á
föstudaginn er þingið tók afstöðu til
þess hvort ráðhcrrarnir Friðjón
Þórðarson og Pálmi Jónsson ættu
að fá sérstakan tíma í sjónvarpsum-
ræðunum.
- Ólafur Ragnar Grímsson benti
á við umræðurnar að þessir ráð-
herrar væru uppteknir um helgina
við að móta stefnuskrá með öðrum
frambjóðendum Sjálfstæðisflokks-
ins - og greinilegt væri að þeir væru
komnir heim til föðurhúsanna á ný.
Því væri álitamál hvort ætti að
eyrnamerkja þá forsætisráðherra í
téðum sjónvarpsumræðum ellegar
þá hinum hluta Sjálfstæðisflokks-
ins. Varpaði hann því til þingheims
hvort eðlilegt væri að Sjálfstæðis-
flokkurinn fengi umframtíma í út-
varpsumræðum. Samþykkti þingið
með semingi, en margir sátu hjá,
að heimila ráðherrunum sérstakan
ræðutíma í þessum sjónvarpsum-
ræðum. - óg.