Þjóðviljinn - 15.03.1983, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 15. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA19
RUV ©
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í
mund. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurt. þáttur Árna Böðvarssonar frá
kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgun-
orð: Gunnlaugur Garðarsson talar.
9.05 Morgunstund barnanna: „Vefurinn
hennar Karlottu“ eftir E.B. White
Ragnar Porsteinsson þýddi. Geirlaug
Þorvaldsdóttir les (18).
9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar.
10.30 „Man ég það sem löngu leið“ Ragn-
heiður Viggósdóttir sér um þáttinn.
11.00 íslenskir einsöngvarar og kórar
syngja
11.30 Um húsnæðismál Umsjónarmaður:
Önundur Björnsson. Rætt við Pál S.
Pálsson lögfræðing og Jón Kjartansson
frá Pálmholti um húseigenda- og
leigumál.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Þriðjudagssyrpa - Páll Þor-
steinsson og Þorgeir Ástvaldsson.
14.30 „Vegurinn að brúnni“ eftir Stefán
Jónsson Þórhallur Sigurðsson les (22).
15.00 Miðdegistónleikar Fílharmoníu-
. sveitin í Israel leikur Sinfóníu nr. 3 í
a-moll op. 56 „Skosku sinfóníuna" eftir
Felix Mendelssohn; Leonard Bernstein
stj.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.20 Lagið mitt Helga Þ. Stephensen
kynnir óskalög barna.
17.00 SPÚTNIK. Sitthvað úr heimi vísind-
anna Dr. Þór Jakobsson sér um þáttinn.
17.20 Sjóndeiidarhringurinn Umsjón:
Ólafur Torfason (RÚVAK).
19.55 Barna- og unglingaleikrit: „Lífs-
háski“ eftir Leif Hamre 3. þáttur -
„Leikslok“ Þýðandi: Olga Guðrún
Árnadóttir. Leikstjóri: Jón Júlíusson.
Leikendur: Gunnar Rafn Guðmunds-
son, Guðbjörg Thoroddsen, Ellert Ingi-
mundarson, Gísli Alfreðsson, Þorsteinn
Gunnarsson, Benedikt Árnason, Sig-
urður Skúlason, Gísli Rúnar Jónsson,
Baldvin Halldórsson, Sigríður Þor-
valdsdóttir og Steindór Hjörleifsson.
20.30 Kvöldtónleikar: Tónlist eftir Johann-
es Brahms.
21.40 Útvarpssagan: „Márus á Valshamri
og meistari Jón“ eftir Guðmund G. Hag-
alín Höfundur les»„(5).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Lestur Passíusálma
(38),
22.40 Attu barn? 6. þáttur um uppeldismál
í umsjá Andrésar Ragnarssonar.
23.20 Skíma. Þáttur um móðurmáls-
kennslu. Umsjón: Hjálmar Árnason.
RUV
19.45 Fréttaágrip á táknmáli *
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Dýrin í Fagraskógi Teiknimynd frá
Tékkóslóvakíu
20.45 Tímamót á Grænlandi Á tveimur til
þremur áratugum hefur rótgrónu veiði-
mannasamfélagi á Grænlandi verið um-
bylt í tæknivætt nútímaþjóðfélag. Þessar
breytingar hafa valdið mikilli röskun á
lífi og högum landsbúa. Nú hafa Græn-
lendingar fengið heimastjórn og vonast
til að geta mótað samfélagið meir en
áður eftir sínu höfði. Þessi mynd var að
mestu tekin í Nuuk, (Godtháb) höf-
uðstað Grænlands, þar sem sjónvarps-
menn dvöldust nokkra daga í fyrra-
sumar, en einnig er komið víðar við.
Kvikmyndun: Helgi Sveinbjörnsson.
Hjóð: Sverrir Kr. Bjarnason. Umsjón:
Guðjón Einarsson.
21.45 Endatafl Bresk-bandarískur fram-
haldsflokkur gerður eftir njósnasögunni
Smiley’s People eftir John le Carré. Að-
alhlutverk Alec Guinness. Efni fyrsta
þáttar: Sovéskur útsendari tjáir Maríu
Ostrakovu, ekkju sem býr í útlegð í Par-
ís, að hún geti endurheimt Alexöndru,
dóttur sína, sem hún hefur ekki séð í 20
ár. Ostrakova er tortryggin og leitar
ráða hjá Vladimir hershöfðingja, for-
ingja eistneskra útlaga í Lundúnum.
Vladimir kemst á snoðir um að „Svefn-
álfurinn“, háttsettur sovéskur njósnari
er viðriðinn málið. Hann hyggst koma
sönnun þess í hendur biesku leyniþjón-
ustunnar en er myrtur. George Smiley
er kallaður á vettvang til að ganga frá
lausum endum. Þýðandi Jón O.
Edwald.
22.45 Dagskrárlok
f rák I
Vilmundarj öfnuður
bandalagsframbj óðenda
Páll Hildiþórs skrifar:
Fyrir nokkru skrifaði ég
grein hér f blaðið undir
heitinu „Pólitískur hanas-
lagur“, en þar átti ég við þá
Vilmund Gylfason og Jón
Baldvin Hnanibalsson og upp-
gjör þeirra í Alþýðuflok-
knum. í þeirri viðureign sigr-
aði Jón naumlega, en sperrtist
allur upp sem glaður og upp-
veðraður pólitíkus í allar
áttir
Vilmundur lét þetta ekki sig
fá og safnaði liði og hugði á
grimmilegar hefndir. Endir-
inn varð sá að DV efndi til
prófkjörs um fylgi flokkanna
rétt einu sinni og úthlutaði
Vilmundi hvorki meira né
minna en 8 þingsætum eftir
væntanlegar aprílkosningar,
svo Vilmundur Gylfason er
hinn brattasti um þessar
mundir og er meira að segja
kominn með eldrauðan kamb
og langa sepa.
Á þessum lirtíku þorradög-
um, þrátt fyrir nýafstaðin ill-
viðri, hefur virðulegustu
stofnun okkar, Alþingi, tekist
að drífa upp svolítið skemm-
tiskaup í sambandi við bráða-
birgðalögin margumtöluðu.
Ymsir hafa látið í ljós að
ekki mætti sýna „andlit“ þjóð-
arinnar. Alþingi væri virðuleg
stofnun. Sjónvarpið ætti þar
ekki að koma nærri. Því er ég
ekki sammála. Það á að sýna
okkur kempurnar þegar
svona stendur ár.
Mér er minnisstætt þetta
sjónvarpskvöld frá Alþingi,
hve kratarnir voru kampag-
leiðir, aftur á móti Vilmundur
einn sér, alvarlegur og
ábúðarmikill. Höfuðóvinur-
inn, Jón Baldvin, var aftur á
móti á síféllu rápi og átti í ein-
hverjum vandræðum með að
greiða atkv., kannski eitthvað
pirraður úr í Vilmund eða út í
prófkjör DV og Helgarpósts-
ins.
En burtséð frá erjum þeirra
Jóns Baldvins og Vilmundar
þá eru þessi prófkjörsmál einn
allsherjar skrípaleikur, sem
flokkarnir eiga eftir að súpa
seyðið af. Og svo kemur blað
eins og DV og stillir upp töl-
um til að drífa upp einhvern
hasar í því skyni að auka sö-
luna. Og fólk hleypur til og
rífur út blaðið í einhverjum
æðibunugangi til að sjá hvað
þessi eða hinn flokkurinn hefur
upp úr krafsinu, og auðvitað
eru blaðamennirnir tilbúnir
að raða þingmönnum upp,
lesendum til hægðarauka.
Þetta er skrípaleikur og
ekkert annað hjá þessu íhalds-
blaði, sem þykist vera að
skreýta sig einhverju frjáls-
lyndi.
Mér hefur alltaf fundist ein-
hver ólykt af þessu „vinar-
bragðj" blaðsins, því auðvitað
styður það við bakið á íhald-
ihu, þegar á reynir. Það var
einmitt í DV sem Vilmundur
byrjaði, sællar minningar, sín-
ar þjóðfélagsstórskammir um
svindlið og skepnuskapinn;
nú væri þörf á að taka til hönd-
um og hreinsa rækilega til; en
hvað gerist? Allt í einu stend-
ur þessi hreingerningarm-
eistari uppi sem ráðherra; og
hvað skeður? í stað þess að
byrja hreingerningarstörf á
þjóðfélagsmeinsemdum snýr
hann rassinum í svindlið að
skrifa um í DV, eða Dagblað-
ið, eins og það hét þá.
En auðvitað vill DV eins og
Mogginn að Vilmundur nái
atkvæðum frá vinstri blokk-
inni og að hann næli sé sér-
( staklega í fylgi frá Gunnars-
liðinu. Þá væri kominn
grunnur að nýrri viðreisnar-
stjórn, því auðvitað er það
draumur svörtu aflanna að
hér rísi upp í þjóðfélaginu
sterk stjórn, er verði þægur
þjónn útlendra stóriðju-
manna er stefna að því að geta
valsað með auðlindir okkar að
vild þar til allt er uppurið og
landið í helgreipum voldugra
auðhringa, sem svífast einskis
þegar einhver gróði er annar-
svegar.
Bandalag jafnaðarmanna
er ekkert annað en hentistefn-
uflokkur, sem ekkert erindi á
inn í íslenska pólitík annað en
að auka á þann glundroða er
jafnan fylgir slíkum apparö-'
tum. Það hefur jafnan farið
svo hjá okkur að þessir smá-
flokkar, sem alhr ætla að
verða stórir, hafa risið upp
með miklu brauki og bramli,
hafa jafnan hjaðnað niður
aftur, og eins mun fara fyrir
þessum tveimur framboðum,
Bandalagi jafnaðarmanna og
kvennaframboðinu. Þetta
brölt þeirra mun lognast útaf í
hinum pólitíska kirkjugarði
stjórnmálanna, með svona
heldur rýrum árangri, einfald-
lega vegna þess að það er ekk-
ert pláss fyrir þetta fólk, nema
til að skapa glundroða og upp-
lausn.
Til að skýra þetta skal ég
nefna þá smáflokka, sem hafa
lagt upp laupana á undanförn-
um árum, með rýrum árangri:
Þjóðvarjarflokkinn, Lýðveld-
isflokkinn, Frjálslynda flokk-
inn, Samtök frjálslyndra og
vinstri manna og O-flokkinn.
Öll hafa þessi samtök geispað
golunni vegna þess að þau
áttu ekki annarsstaðar en í
hóflausu framapoti og klofn-
ingsiðju. - Eins mun fara fyrir
Vilmundi.
bamahorn
Þegar
þyrlan
bjargaði
kanínu
Þessi ágæta teikning er frá Róbert
Bragasyni sem á heima á Leynimýri
við Oskjuhlíð í Reykjavík. Hann er 5
ára gamall og hjálpar oft bróður sín-
um, honum Andrési, að bera Þjóð-
viljann út í Heyrnleysingjaskólann.
Eins og við getum séð sýnir myndin
franska þyrlu bjarga kanínu sem datt í
sjóinn.
Læknir, ég hef verið eitthvað svo ræf-
ilslegur upp á síðkastið!
Franska þyrlan bjargar kanínunni.