Þjóðviljinn - 25.03.1983, Blaðsíða 1
woðviuinn
Stórkostleg
frammistaða
Valsmanna í síðari
hálflcik tryggði
þeimsigurálR-
ingum í úrslitaleik
bikarkeppninnar í
körfuknattleik.
Sjá 19
mars 1983
föstudagur
67. tölublað
48. árgangur
Alþýðubandalagið kynnir samstarfsgrundvöll
SÆKIUM FRAM TIL
BETRI LÍFSKJARA
Vörn gegn atvinnuleysi og verðbólgu
• Víðtœkt skipulagsuppgjör
• íslensk atvinnustefna -full atvinna
• Félagslegur jöfnuður
• Framfarir í húsnœðismálum
• Endurskipulagning stjórnkerfisins
• Auðlindir og umhverfi
• Friðarbarátta - utanríkismál
Samstarfsgrundvöliur Alþýðubandalagsins var
kynntur á blaðamannafundi í nýju flokksmiðstöðinni I
gær. Þar er að finna helstu áhersluatriði Alþýðubanda-
lagsins í kosningabaráttunni. í lok yfirlýsingarinnar
segir: „Á þessum grundvelli viljum við skapa forsendur
fyrir samstarfi við þá sem vilja berjast gegn atvinnuleysi
- sem vilja treysta lífskjörin - sem vilja treysta sjálf-
stæði þjóðarinnar.”
Samstarfsgrundvellinum um ís-
lenska leið er skipt í sex megin-
kafla. í fyrsta kaflanum er gerð
grein fyrir samræmdu verðbólgu-
viðnámi og víðtæku skipulagsupp-
gjöri á öllum sviðum hagkerfisins,
sem Alþýðubandalagið bendir á
sem leið til að ná varanlegum á-
rangri gegn verðbólgu.
Jafnarí lífskjör
í samstarfsgrundvellinum er sagt
frá grundvallarforsendum í efna-
hagsstefnu Alþýðubandalagsins en
þær eru: full atvinna, verndun
kaupmáttar og jafnari lífskjör.
í kaflanum um atvinnumál er
lögð áhersia á íslenska atvinnu-
stefnu, og m.a. bent á nýsköpun í
iðnaði, eflingu smáiðnaðar, aukna
fjölbreytni og fleira. Þar er og getið1
um samræmingu veiða og vinnslu -
aflastýringu og bætt gæði fram- •
leiðslu sjávarafurða og fullvinnslul
afurðanna. Kveðið er á um lýðræði
á vinnustöðum, - lögfestur verði
réttur launafólks til ákvarðuna og
umfjöllunar, bæði í opinDerum
fyrirtækjum og einkafyrirtækjum.
f kaflanum um félagslegan jöfn-
uð er lagt til að komið verði á af-
komutryggingu einstæðra foreldra,
styttingu vinnútímans, lengingu
fæðingarorlofs og kjarajöfnun.
Lögð er áhersla á jafnrétti í
menntunar- og menningarmálum
og á búsetujöfnuð.
Lögð er rfk áhersla á að
heilbrigðisþjónustan verði varin
fyrir niðurskurði afturhaldsins.
Enn fremur er undirstrikuð sú
stefna, að heilsurækt og heilsu-
gæsla njóti forgangs í heilbrigðis-
þjónustu á næstu árum.
I kaflanum um framfarir í húsn-
æðismálum er m.a. fjallað um sér-
stakan sjóð sem fjármagni húsnæði
fyrir fólk sem er að tryggja sér
íbúðir í fyrsta sinn. Gert er ráð fyrir
sérstökum leiðum til að fjármagna
þennan sjóð. Þar er einnig kveðið á
um ný eignarform, félagslegar
íbúðabyggingar, námsmannaíbúð-
ir, leiguíbúðir og fleira.
Þá eru í samstarfsgrundvellinum
kaflar um endurskipulagningu
stjórnkerfisins, - m.a. er undir-
strikuð þörfin á að samræma fjár-
festinga lánasjóði og að einfalda
bankakerfið. I kaflanum um auð-
lindir og umhverfi er kveðið á um
íslenskt forræði yfir auðlindum,
um skipulega landnýtingu, um að
stjórn umhverfismála verði sam-
einuð og fleira.
Kjarnorkuvopnalaus
svœði
{ lokakaflanum - um friðarbar-
áttuna og utanríkismál er kveðið á
um frystingu vígbúnaðar, m.a. að
öll endurnýjun á vígbúnaði Banda-
ríkjahers og Nató á íslandi verði
stöðvuð. Þar er einnig bann við
geymslu og flutningi kjarnorku-
vopna og lagt til að alþingi álykti
um aðild íslands að kjarnorku-
vopnalausu svæði Norðurlanda.
Hætt verði við hernaðarfram-
kvæmdir í Helguvík og að íslend-
ingar auki þróunaraðstoð á næstu
árum. Sjá baksíðu -óg
islensha leió I
Veríum ísland gegn
atvinnuleysinu
' ,%Alþýðubandalagið er flokkur allra íslenskra vinstri manna, sem vilja vernda
og treysta sjálfstæði þjóðarinnar, standa vörð um hagsmuni vinnandi fólks
og tryggja alhliða framfarir í landinu". eins og segir i stefnuskrá
bandalagsins.
"Alþýðubandalagið berst fyrir félagslegu jafnrétti, lýðræði og sósialisma.
Alþýöubandalagið berst fyrir friðlýstu íslandi og er andvigt hersetu og aðild
(slands að hernaðarbandalagi.
1 Alþýðubandalagið vill skapa einingu um islenska leið i baráttunni gegn
kreppu og atvinnuleysi. Sú islenska leið er svar við erlendum
ihaldskenningum, sem hægri öflin vilja nú hrinda í framkvæmd hér á landi.
i Þó Alþýðubandalagið hafi sérstöðu á mörgum sviðum getur það átt samleið
með öllum þeim sem vilja sækja til betra mannlífs og menningar, og þeim
sem vilja sameinast um að sporna við tilraunum til að mola niður samhjálp
og sjálfstæði.
Alþýðubandalagið leggur áherslu á uppgjör við afturhaldsstefnuna.
í kosningunum er tekist á um stefnu kreppu og atvinnuleysis eða samstöðu
um að treysta lifskjör í landinu, þjóðlega atvinnuvegi og sjálfstæði
þjóðarinnar.
Hér eru birtar tillögur Alþýðubandalagsins að málefnagrundvelli.
í samstarfsgrundvelli Alþýöubandalagsins er sagt frá grundvallarforscnd-
um í efnahagsstefnu tlokksins en þær eru: full atvinna, vcrndun kaupmátt-
ar og jafnari lífskjör.
7Með blaðinu í dag
fylgir þriðji og
síðasti blaðaukinn
um
landbúnaðarmál að
sinni.
Megináherslan er
að knýjaáum
hækkun á
raforkuverðinu til
Alusuisse til að ná
niður
orkurcikningum
heimilanna.
Langþreyttir
á fasískum
vinnubrögðum
segja starfsmenn álversins í Straumsvík
Blaðamaður og Ijósmyndari Þjóðviljans heimsóttu
Álverið í Straumsvík í gær. í skautasmiðjunni var okk-
ur boðið í afdrep verkamanna og þar varð brátt þröngt
á þingi og var greinilega þungt í mönnum:
- Menn eru hræddir hérna, - við
erum beittir heraga eins og í Pól-
landi. Menn eru farnir að mæta
veikir í vinnuna af hræðslu við að fá
neikvæða umsögn sem notuð yrði
gegn þeini. Við erum bara eins og
númer í tölvu fyrir stjórnendunum,
þá skiptir engu hvort við erum
dauðir eða lifandi.
Okkur leyfist ekki að segja neitt
um skipulagningu vinnunnar, þeir
túlka afstöðu okkar sem ósamvinn-
uþýðni. Það nýjasta er að forstjór-
inn kallar málstað okkar „kosning-
askjálfta komnia og krata“. En viö
stöndum eirihuga í þessari vinnu-
deilu og erum orðnir langþreyttir á
fasískum vinnubrögðum stjórn-
enda.
Þetta gengur ekki lengur, þegar
menn eru farnir að kvíða fyrir því
að mæta til vinnunnar á hverjum
degi. Ég held að Ragnar ætti að
fara að standa við stóru orðin sín og
loka þessu skítafjósi sínu - við för-
um bara aftur á sjóinn ef hann vili
í afdrepi verkamanna í Straumsvík ræddu þeir málin við blaðamann og
var greinilcga þungt í mönnum. Ljósm. - cik.
su»aa«,ifjap
það heldur. Það er þó manneskju-
leg vinna. - Þetta voru tilsvör
starfsmanna í skautasmiðju álvers-
ins í gær. Þeir vildu ekki láta nafns
síns getið, en fleiri viðtöl eru inni í
blaðinu._________________- ólg.
Sjá 3