Þjóðviljinn - 25.03.1983, Side 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Föstudagur 25. mars 1983
Bridge
(Spil 2...)
Við erum enn í Biarritz og eigum eftir
seinna spilið í 3.síöustu setu lokaumferðar-
innar í undankeppni opna flokksins.. Fyrra
spilið (ath. blaðið í gær) tók Garozzo 13
mínútur í úrspili. Þetta var síðara spilið. N/S
á hættu. Gjafari A:
Norður
S 98
H K62
T10864
L 9762
Vestur
SG10765
H D10
TK52
LDG10
Austur
S AKD3
H AG94
TADG9
L A
Suður
S 42
H 8753
T 73
LK8543
Riallan nliimrii' 1 mínúta eftir af setunni!
Eins og fyrri daginn sátu Garozzo-Dupont
N/S. HL og ÖL A/V. Sagnir gengu hratt,
svo ekki sé sterkar að orði kveðið:
Austur
Hermann
1-lauf
1- grand
2- spaðar
4-lauf
4-hjörtu
4-grönd
Vestur
Ólafur
1- spaði
2- lauf
2-grönd
'4-tíglar
4- spaöar
5- spaðar
..og af því að tíminn var nú liðinn:
7-spaðar
Dupont valdi H-2 í útspil og Ólafur tók
við. Enginn tími til að telja slagi. Bara
spila.. Upp með ás. Lauf ás. Tveir efstu i
trompi... (og þið sjáið vitanlega, i róleg-
heitunum að þrettán slagir eru nú kaldir).
Fjórir efstu í tígli, hjarta drottningu kastað.
Nú var bara, að víxltrompa afgang, en Óli
bað um spaða þrist á gosa. Lauf drottningu
síðan trompsvínað. 50 í N/S. Eina talan í
N/S! 334/334. Dasaðir stauluðumst við að
næsta borði. Kudla/Milde biðu okkar þar.
Skák
Karpov að tafli - 117
Eftir tapið í 2. einvigisskák breytti Kort-
snoj um stefnu I einvíginu. Hann hóf að
tefla franska vörn og í 4. einvígisskákinni
átti hann ekki í miklum erfiðleikum með að
halda jöfnu. Þegar 5. skákin hófst hafði
Karpov enn vinninginn yfir, þrjú jafntefli og
einn sigur:
abcdefgh
Kortsnoj - Karpov
Kortsnoj náöi yfirburðastöðu snemma i
þessari skák og á tírrtabili virtist stutt í að
honum tækistað jafna metin. Frábær varn-
artaflmennska Karpovs þar sem honum
tókst leik eftir leik að þræða einstigið varö
til þes að Kortsnoj varð að sætta sig við
jafntefli. Þegar hér er komið sögu er mesta
hættan. yfirstaðin en Kortsnoj á þó enn
vinningsmöguleika. Framhaldið varð:
51. Kg5 Ke7
52. Kh6 Re5
53. Kxh7 Rf3!
54. Kh1 Ke6
55. Kg7 c4
56. Hh3 Re5
57. Ha3 Kf5
58. Hc3 Ke4
59. Hc1 Kd4
60. f4 Rd3
61. Hf1 Ke4
62. f5 Re5
63. Kf6 Rg4
64. Kg5 Re3
65. fxg6 fxg6
66. Hc1 Kd3
67. Kxg6 Rg2!
- og hér sömdu keppendur um jafntefli.
Eftir 68. h5 Rf4+ og 69. - Rxh5 heldur
svartur sínu.
Bergþóra Árnadóttir Pálmi Gunnarsson
„B- og P-gengið “
í hljómleikaferð
Þau Pálmi Gunnarsson og Berg-
þóra Árnadóttir eru nú stödd í
Borgarnesi og í dag, föstudag,
munu þau heimsækja vinnustaði í
Borgarnesi, í boði verkalýðsfé-
lagsins.
Um kvöldið skemmta þau
hestamönnum á staðnum, í Hótel
Borgarnesi. Á morgun, laugar-
dag, halda þau tónleika á Akra-
nesi; í Rein, kl. 16.30, og um
kvöldið koma þau fram á Hótel
Akranesi.
Á sunnudag heldur „B- og P-
gengið‘% „heim í Búðardal", og
hefur þar tónleika kl. 15.00 í
Dalabúð, ef veðurguðirnir lofa.
Þetta er í fyrsta sinn sem Pálmi
og Bergþóra slá sér saman á opin-
berum vettvangi, en áður hafa
þau starfað allnokkuð saman í
hljómverum. T.d. lék Pálmi stórt
hlutverk á sólóplötu Bergþóru,
Eintaki, sem kom út árið 1977, og
eins var hann viðriðinn lög he’nn-
ar á plötu Vísnavina, „Heyrðu“,
sem kom út í maí 1981
Sótti um
prestakall
á Sjálandi
en fékk
ekki
Sr. Pétur Pétursson tók naerri
sér að vera ekki veitt dómkirkju-
grestsembættið í Reykjavík er sr.
Ásmundur í Odda hlaut það. Pét-
urs beið þó ýmiss konar embætt-
isframi. Arið 1847 varð hann for-
stöðumaður Prestaskólans og
síðar biskup yfir íslandi. Kon-
ungkjörinn alþingismaður var
hann frá 1849-1886 og þjóðfund-
armaður 1851.
Þar sem Helgi G. Thordarsen
hafði nú tekið við biskupsemb-
ættinu var dómkirkjuprestsemb-
ættið laust til umsóknar. Tveir
sóttu um það: sr, Ásmundur
Jónsson, prófastur í Odda, og sr.
Pétur Pétursson, próffastur á
Staðastað.
Ekki var almenningur á einu
máli um hver hljóta mundi emb-
ættið. Báðir höfðu umsækjendur
ágæt próf en sr. Pétur hafði það
umfram sr. Ásmund að hafa bæði
licentiat- og doktorsgráðu í guð-
fræði.
Svo fóru þá leikar, að sr. Ás-
mundi var veitt embættið og var
talið, að meðmæli Helga biskups
hefðu riðið þar baggamuninn. Sr.
Pétri þótti hins vegar svo nærri
sér höggvið að hann hugðist
hverfa af landi brott og sótti um
prestakall á Sjálandi. Fékk það
þó ekki frekar en dómkirkjuna
og sat því um kyrrt. En sr. Ás-
mundur keypti Landakot fyrir 5
þús. ríkisdali og settist þar að.
- mhg
Segul-
mögnun
jarðvegs
Tékkar telja sig hafa sýnt
framá með rannsóknum, að sé
jarðvegur segulmagnaður verði
bygging hans betri, örverulíf
aukist og fosfór verði auðieystari
úr efnasamböndum. Er frá þessu
skýrt í búnaðarblaðinu Frey.
Afleiðingar þessara aðgerða
eru aukin uppskera, minni orku-
þörf og eldsneytisnotkun jarð-
yrkju- og dráttarvéla, auk ann-
arra góða áhrifa.
Tæki til segulmögnunar eru
sögð ódýr, einföld í framleiðslu,
endingargóð og auðveld í flutn-
ingum.
- mhg
Helgi
Oskars-
son og
Ilizarof
undra-
lœknir
Helgi Óskarsson, þrettán ára
drengur, hefur verið í læknismeð-
ferð austur í Siberíu í borginni
Kurgan. Tókst það allt mjög vel
og óx Helgi um 18 sentimetra á
stuttum tíma og hafa þessi tíðindi
vakið talsverða athygli.
Læknir Helga heitir Ilizarof og
er orðinn heimsfrægur maður
fyrir frumlegar aðferðir sínar sem
hafa gert honum mögulegt að
lengja útlimi um meira en fimm-
tíu sentimetra. Án þess að nota
skurðhníf lagar hann bogna fætur
og handleggi og aðra útlimsgalla
og „mótar“ upp á nýtt.
í tímaritinu Naúka í zízn birtist
í fyrra viðtal við prófessor Ilizarof
þar sem hann m.a. gerir
skemmtilega grein fyrir aðferð
sinni og viðhorfum til vísinda.
Hann segir þar m.a.:
„Ég harma oft, að fullorðna
fólkið hættir svo fljótt að vera
börn. Barnið hefur áhuga á öllu
og spyr alltaf: „Hvers vegna?“
Það óttast ekki að vera talið
heimskt. Það má uppgötva
eitthvað óvænt í hinu venjulega.
Við skulum taka dæmi sem er
nærtækt hér. Aðferðin okkar.
Hún varð til „allt í ejnu“.
Frá tímum Hyppókratesar hef-
ur verið talið, að beinbrot greru
mjög hægt vegna þess að í
beininu er harður vefur andstætt
við aðra vefi líkamans. Maður,
sem fótbrotnaði, var settur í gips
og settur upp í rúm í marga mán-
uði og í óþægilega stellingu og
sagt að hreyfa sig ekki. En mað-
urinn er lifandi. Hann hreyfir sig
og samsetning brotsins fór úr
skorðum. Aftur þurfti að gera að-
gerð og líða allar kvalir upp á
nýtt. Orsökin var talin sú, að
beinið var lengi að gróa.
Nú þegar okkur hefur tekist að
sanna með þúsundum aðgerða,
að bein er einn þeirra vefa, sem
eru hvað mest lifandi, að það
endurnýjar sig vel, ef aðstæður
eru góðar, virðist undarlegt, að
við skyldum álíta, að slíkir mögu-
leikar væru ekki fyrir hendi. Get-
ur verið eitthvað í mannslíkam-
anum, sem er passívt? Á sínum
tíma lagði ég þessar spurningar
fyrir mig og ég skynjaði með inn-
sæi mínu, að læknisaðferðir á
sviði beinbrota voru úreltar. Og
síðan fékk ég ekki frið fyrir þeirri
hugsun, að það hlyti að vera hægt
að finna eitthvað nýtt og gjöró-
líkt.
Ég ferðaðist um, hugsaði,
flaug í flugvél, hugsaði, lagðist til
svefns, hugsaði... Og las auðvit-
að mikið. Ég gerðist áskrifandi
að öllu, sem hægt var að fá í Dolg-
ovku. Las dag og nótt. Fékk mér
leyfi frá störfum á eigin kostnað
og fór til Moskvu og settist þar að
á bókasöfnum. Ég varð að ná
valdi á vísindum, sem ég hafði
ekki vitað áður að voru til. Þegar
ég vann að því að hanna tækið,
varð ég að læra til smíða...
Tækið, sem við notum, er til-
tölulega einfalt. Naglar eru rekn-
ir inn í beinin og teygt á. Útlimur-
inn vex um 1-2 millimetra á sólar-
hring. En það má ekki ætla, að
þetta sé svona einfalt.
Það má ekki nota tækið eins og
eitthvað sem hentar hverjum og
einum. Við notum eina grund-
vallaraðferð, en yfir 400 undir-
aðferðir og stöðugt er unnið að
tilraunum og nýjungúm.“
(Þýðing - APN)
Helgi Óskarsson austur í Kurgan -
lengst um þrettán sentimetra.
þegar myndin var tekin hafði hann