Þjóðviljinn - 25.03.1983, Page 7
1
Föstudagur 25. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
íþróttir
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Úrslitaleikur keppninnar í körfuknattleik:
Mótlætið efldi Valsmenii!
Islandsmeistarar Vals í körfu-
knattlcik sýndu af sér gífurlegan
kraft og baráttuvilja er þeir sig-
ruðu ÍR 78:75 í úrslitaleik bika-
rkeppninnar í Laugardalshöllinni í
gærkvöldi. ÍR leiddi í hálfleik með
fjórum stigum, 45:41, og í upphafí
þess síðari misstu Valsmenn Tim
Dwyer útaf með fimm villur. Þegar
fjórar mínútur voru eftir fór fyrir-
liðinn, Torfí Magnússon, sömu
leið, Valsmenn þá yfir, 70:66, en
þeim tókst að ná sjö stiga forskoti,
76:69, og við það réðu ÍR-ingar
engan veginn.
„Þetta er mín stórkostlegasta
upplifun í körfuboltanum", sagði
Ríkharður Hrafnkelsson, besti
maður Vals í leiknum, en hann og
Kristján Agústsson fóru hreinlega
hamförum í síðari hálfleik. „Það er
gaman að enda svona ferilinn hjá
Val og við sýndum hve sterkum
hóp við eigum á að skipa. Við dutt-
um nokkuð niður þegar Tim fór
útaf en síðan þjöppuðum við okkur
vel saman, lékum sterka vörn í síð-
ari hálfleik, og hún var lykillinn að
sigri okkar,“ sagði Ríkharður,
leikmaðurinn litríki sem nú yfirgef-
ur raðir Valsmanna og flytur til
Stykkishólms. Það verður eftirsjá
að honum úr úrvalsdeildinni.
Baráttán í þessuin úrslitaleik var
gífurleg og bæði lið lentu í miklum
villuvandræðum. Krafturinn var
meiri í ÍR-ingum framan af en
Valsmenn efldust við mótlætið í
upphafi síðari hálfleiks. Ríkharður
og Kristján voru bestu menn vall-
arins ásamt Pétri Guðmundssyni
hjá ÍR. Báðir höfðu frekar hljótt
um sig í fyrri hálfleik, einkum
Kristján. Dwyer var í rólegra lagi
þann tíma sem hann var inná og
Torfi gerði einum of mikið í því að
reyna að „fiska“ villur á Pétur og
kom það niður á leik hans í sókn-
inni. Jón Steingrímsson lék ágæt-
lega og Leifur Gústafsson sýndi að
Valsmenn þurfa ekki að kvíða
framtíðinni. Ríkharður skoraði 21
stig, Kristján 17, Jón 11, Dwyer 9,
Torfi 9, Leifur 7, Tómas Holton 2
og Hafsteinn Hafsteinsson tvö.
Pétur var bestur ÍR-inga,
grimmur í fráköstunum í vörn og
sókn. Hreinn Þorkelsson lék vel í
fyrri hálfleik, svo og Gylfi bróðir
hans, en þeir ásamt öðrum duttu
niður á lægra plan í síðari hálfleik.
ÍR-ingar virtust ekki þola álagið
þegar Valsmenn komust yfir í síð-
ari hálfleik og þeir gerðu klaufa-
mistökin hvert á fætur öðru. Kri-
stinn Jörundsson var drjúgur að
vanda en gerði sín mistök eins og
aðrir í síðari hálfleik. Pétur skoraði
27 stig, Hreinn 14, Kristinn 12,
Gylfi 10, Kolbeinn Kristinsson 6,
Ragnar Torfason 4 og Hjörtur
Oddsson tvö.
Gunnar Valgeirsson og Krist-
björn Albertsson dæmdu þokka-
lega. Körfuknattleiksvertíðinni er
lokið - til hamingju Valsmenn.
- VS
Lava-loppet
í fyrramáliö
Lava-loppet, fyrsta alþjóðlega
skíðagangan sem haldin er hér á
landi, hefst í Bláfjallasvæðinu við
Reykjavík kl. 11 í fyrramálið,
laugardagsmorgun. Gengnar
verða þrjá vegalengdir; 42,3 km,
21 km og 10 km, og einnig verður
sérstök sveitakeppni, einkum ætl-
uð starfsfólki fyrirtækja og stofn-
ana, svo og skólanemendum.
í dag eru síðustu forvöð til að
nálgast rásnúmer og önnur gögn
varðandi gönguna á Eerðaskrif-
stofuna Úrval í Reylcjavík. Loka-
punktur hennar verður hóf í
Broadway á laugardagskvöldið.
HM ’86 í
Englandi?
Englendingar hafa sýnt áhuga á
að fá að halda heimsmeistara-
keppnina í knattspyrnu 1986, fari
svo að Mexíkó, Brasilía, Kanada
og Bandaríkin uppfylli ekki nauð-
synlegar kröfur. Það kemur í ljós í
maí í vor. Að öðrum kosti hyggjast
þeir pressa á að fá keppnina þar á
eftir, árið 1990.
Þróttarar
lögðu Val
Þróttur náði í dýrmæt stig í fall-
baráttu 1. deildar karla í hand-
knattleik í fyrrakvöid með bví að
sigru Val 22:19. Þá léku einnig ÍR
og Fram og sigruðu Framarar
34:21. Staðan í fallkeppninni er nú
þannig:
Valur....19 10 1 8 406:365 21
Þróttur..19 8 3 8 401:401 19
Fram..... 19 7 2 10 416:442 16
ÍR.......19 0 0 19 332:544 0
Falco sá um
bæði mörkin
Tottenham sigraði Aston Villa
2:0 í 1. deild ensku knattspyrnunn-
ar í fyrrakvöld. Mark Falco skoraði
bæði mörkin og hefur því gert þjú
mörk í fyrstu tveimur leikjum sín-
um með aðalliði félagsins í vetur.
Þá gerðu Norwich og Coventry
j afntefli, 1:1. í 3. deild komst New-
port, litla liðið frá Wales, í annað
sæti með 4:1 útisigri á einum af
skæðustu keppinautum sínum um
2. deildarsætið, Lincoln City.
Þorbergur
þjálfar Þór
Þorbergur Aðalsteinsson, fyrir-
liði landsliðsins í handknattleik,
leikur með Þór Vestmannaeyjum
næsta vetur og þjáifar jafnframt
liðið...Þór stendur þessa dagana í
ströngu í fallkeppni 2. deildar og
því ekki útséð hvort Þorbergur,
lykilmaður hjá íslandsnieisturum
Víkings undanfarin ár, tekur við 2.
eða-3. deildarliði.
Thermoclear
plastgler kemur
mörgum að notum...
1) Sterkt og höggpolið,
meira en 200 sinnum
sterkara en gler.
2) Létt, öruggt og auðvelt 3) Auðvelt að saga til og 4) Þykktir frá 3,5 mm—16
að meðhöndla. sníða. mm. Fullnægja marg-
víslegum þörfum.
5) Frábær hitaeinangrun.
orkusparandi fyrir
verksmiðjuþök og
gróðurhús.
6) Hefur yfirburði yfir 7) Auðvelt aö sníða til og 8) Þolir sterkar hita-
mörg hliðstæð efni nota vió margvíslegar sveiflur.
með góðum birtueigin- aðstæður.
leikum.
9) Auðvelt aö nota í
huröir, glugga og sól-
svalir/skýli.........
10) . . . í biðskýli. síma- 11) Hentar vel í verk-
klefa, söluskála og alla smiðju- og vöru-
þá staði sem verða fyrir skemmuþök og
slæmum umgangi. glugga, eða sem
skermar á vinnu-
stöðum.
12) i sundlaugarþök, bíl-
skúrsglugga og ótal
fleira. eftir útsjónar-
semi og hugarflugi
hvers og eins.
er fjölhæft efni
SÖLUSTAÐIR
SÖLUFÉLAG GARÐYRKJUMANNA
REYKJANESBRAUT 6 — SÍMI 24366
KONRÁÐ AXELSSON
ÁRMÚLA 36 — SÍMI 82420