Þjóðviljinn - 31.03.1983, Page 22
Irr / Q[f> - YáVA. IÍVOÓW 5 9,1 í ''"i i'i . luaahulfiiifii'í
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 31. mars 1983
íþróttir
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Slakir Englendingar
töpuðu stígi gegn Grikkjum
Smáþjóðimar þvældust fyrir en voru þó allar sigraðar að lokum
Hörmulega slakt enskt landslið
mátti sætta sig við jafntefli, 0-0, á
heimavelli sínum, Wembley-
leikvanginum í London, gegn lé-
legum Grikkjum í Evrópukeppni
landsliða í gærkvöldi. Það var
aldrei glæta í leik enska liðsins,
helst að Steve Coppell sýndi og
reyndi eitthvað af viti. Trevor Fra-
ncis fékk þó gott færi snemma í síð-
ari hálfleik en gríski markvörður-
inn varði vel.
í síðari hálfleik reyndi Bobby
Robson að lífga upp á leik liðsins
með því að setja Graham Rix og
Luther Blissett inná fyrir Tony
Woodcock og Alan Devonshire en
allt kom fyrir ekki og Englendingar
misstu dýrmætt stig á heimavelli.
Þórdís
áfram
íslenska unglingalandsliðið í ba-
dminton hafnaði í 3. sæti í sínum
riðii í Evrópukeppninni sem nú
stendur yfir í Finnlandi. ísland
vann Frakkland 5-0 og Sviss 4-1 en
tapaði 0-5 fyrir Póllandi og 2-3
fyrir Finnlandi.
í gær var keppt í einliðaleik og
féllu allir íslensku keppendurnir út
í fyrstu umferð nema Þórdís
Edwald. Hún sigraði finnska
stúlku og keppir í annarri umferð í
dag.
-VS
Þróttur
vann
Val
Tveir leikir fóru fram í gærkvöldi
í fallkeppni l.deildar karla í hand-
knattleik, báðir í Keflavík. Þróttur
sigraði Val 22-21 og Fram vann ÍR
28-23. Staðan í fallkeppninni er þá
þannig að Valur og Þróttur hafa 23
stig hvort, Fram 18 en ÍR ekkert.
Hvert lið á eftir að leika fjóra leiki.
Staðan í 2. riðli:
England.............4 2 2 0 14-2 5
Danmörk.............2 110 4-3 3
Grikkland...........3 111 2-3 3
Ungverjaland........1 1 0 0 6-2 2
Luxemburg...........4 0 0 4 3-19 0
Nicholas byrjar vel
Það leit ekki vel út hjá Skotum
sem fengu Svisslendinga í heim-
sókn í Hampden Park í Glasgow.
Þeir svissnesku komust í 0-2 með
mörkum Egli og Hermann og allt
stefndi í öruggan sigur þeirra.
Tuttugu mínútum fyrir leikslok
blés John Wark lífi í brjóst Skota
með góðu marki og það sem eftir
var leiks sóttu þeir látlaust. Ný-
liðinn Charlie Nicholas jafnaði á
stórglæsilegan hátt fjórtán mínút-
um fyrir leikslok og Kenny Dalg-
lish átti alla möguleika á að færa
Skotum sigur. Fyrst hitti hann ekki
markið úr opnu færi og síðan horfði
hann uppá svissneska markvörðinn
slá knöttinn í þverslá eftir skalla á
síðustu mínútu leiksins.
Þá léku einnig Austur-
Þýskaland og Belgía og unnu Belg-
ar góðan sigur, 1-2. Þeir komust í
0-2 með mörkum Francois Van
Der Elst og Erwin Vanberbergh og
síðan var mark dæmt af Der Elst.
Joachim Streich náði að laga
stöðuna fyrir A-Þjóðverja 7 mínút-
um fyrir leikslok.
Staðan í 1. riðli:
Belgía...............3 3 0 0 8-3 6
Skotland.............4 112 6-73
Sviss................3 1114-53
A-Þýskaland..........2 0 0 2 1-4 0
Erfitt í Albaníu
Vestur-Þjóðverjar lentu í mestu
erfiðleikum gegn Albönum í Ti-
rana. Heimamenn börðust vel og
ekkert mark var skorað í fyrri hálf-
leik. í byrjun þess síðari skoraði
Rudi Völler fyrir V-Þjóðverja og
Karl-Heinz Rummenigge kom
þeim í 0-2 á 67. mínútu. Targas
lagaði stöðuna fyrir heimaliðið og
Vestur-Þjóðverjar sluppu með
skrekkinn og 2-1 sigur.
í sama riðli lentu Norður-frar í
vandræðum með Tyrki í Belfast.
Þeir fengu þó óskabyrjun og voru
komnir í 2-0 eftir 17 mínútur með
mörkum Martin O’Neill og John
McClelland. Tyrkir gáfust ekki
upp og í byrjun síðari hálfleiks
skoraði hinn 18 ára gamli Metin,
2-1. Norður-írar gerðu ékki meir
en að halda báðum stigunum,
Tyrkir veittu þeim harða keppni
allt til leiksloka.
Staðan í 6. riðli:
Austurríki............ 3 3 0 0 11-0 6
N-írland................4 2 11 3-3 5
V-Þýskaland.............2 1 0 1 2-2 2
Tyrkland.............. 3 1 0 2 2-6 2
Albanía...............4 0 13 1-8 1
Stapleton bjargaði írum
Fleiri „smáþjóðir” þvældust fyrir
í gærkvöldi. Möltubúar tóku á móti
írum, sem ávallt gengur brösug-
lega á útivelli, og heimaliðið var
sterkara í fyrri hálfleik. í þeim sfð-
ari sóttu írar stíft en markalaust
jafntefli virtist uppi á teningunum.
Víðavangs-
hlaup
/
Islands
Víðavangshlaup íslands fer fram
laugardaginn 9. apríl í nágrenni
Borgarness. Keppt verður í eftir-
töldum flokkum:
Karlar (8 km), konur (3 km),
drengir og sveinar (3 km), telpur
(1,5 km), piltar (1,5 km), strákar
(1,5 km) og stelpur (1,5 km).
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast Ingimundi Ingimundarsyni
fyrir miðvikudagskvöldið 6. apríl í
síma 93-5175 og vinnusíma 93-
5172. Þátttökugjald er 30 krónur í
fullorðinsflokkum og 15 krónur í
yngri flokkunum.
Spennandi
fallkeppni
Mikil og hörð barátta á sér nú
stað í fallkepni 2. deildar karla í
handknattleik. Um síðustu helgi
fór fram heil umferð mínus einn
leikur. Úrslit urðu þessi
Ármann-Afturelding...31:20
ÞórVe.-HK............19:16
Þór Ve. -Áfturelding.24:20
Ármann-ÞórVe.........19:19
Afturelding-HK.......24:20
Staðan í fallkeppninni er nú
þannig:
ÞórVe............20 6 6 8 410-426 18
Ármann...........19 5 5 9 397-414 15
Aftureldlng.....20 6 3 11 425-448 15
HK...............19 7 1 11 392-416 15
Trimmmót
Hrannar
Skíðadeild Hrannar gegnst fyrir
trimmmóti í skíðagöngu laugar-
daginn 2. apríl kl. 13 í Skálafelli.
Keppt verður í öllum aldursflokk-
um karla og kvenna og aldurstak-
mörk engin, hvorki efri né neðri.
Yngsti flokkur er 9 ára og yngri, sá
elsti 61 árs og eldri. Þátttaka til-
kynnist á staðnum en þátttöku-
gjald er 100 krónur fyrir eldri en 12
ára en 50 krónur fyrir þá yngri.
Frank Stapleton bjargaði málun-
um, hann skoraði sigurmarkið, 0-
1, með síðustu spyrnu leiksins.
Staðan í 7. riðli:
Holland..................4 2 119-35
írland...................4 2 117-55
Spánn....................3 2 1 0 5-3 5
Malta....................3 1 0 2 2-8 2
Island...................4 0 1 3 2-6 1
ísland vann tvöfaldan sigur á
Færeyingum í síðustu landsleikjum
þjóðanna í blaki að þessu sinni þeg-
ar leikið var í Hagaskólanum í gær-
kvöldi. Bæði íslensku liðin, karla
og kvenna, sigruðu 3-2 eftir hörk-
uspennandi leiki.
Kvennaleikurinn var einkum tví-
sýnn og stóð hann í 104 mínútur.
ísland vann tvær fyrstu hrinurnar,
15-6 og 15-6 en Færeyingar þá
þriðju 17-15 ög þá fjórðu 15-5. í
lokahrinunni virtist færeyskur
sigur vera innan seilingar, staðan
orðin 14-7 fyrir frændkonur vorar,
en íslensku stúlkurnar sýndu mik-
inn baráttuvilja, sigruðu hrinuna
19-17 og leikinn þar með 3-2. Jó-
hanna Guðjónsdóttir var best í ís-
lenska liðinu en Finngerd Solbjörg
í því færéyska.
Akurnesingar voru í sérflokki á
Unglingameistaramóti íslands í bad-
minton sem fram fór á Akureyri
um síðustu heígi. Þeir hlutu 20 gull
af 24 en keppt var í flokkum
hnokka/táta, meyja/sveina og
drengja/telpna. Hin fjögur gullin
sem afgangs voru fóru til TBR.
Oliver Pálmason, ÍA, og Árni
Þór Hallgrímsson, ÍA, hlutu flest
íslandsmót fullorðinna í
borðtennis verður haldið í Laugar-
dalshöllinni í dag, skírdag, og á
laugardag. í dag hefst keppni kl.
9.15 með tvíliðaleik karla og síðan
verður haldið áfram fram eftir
degi. Þráðurinn verður tekinn upp
að nýju með tvenndarkeppni kl.
9.30 á laugardagsmorgun en síðasti
hlutinn, úrslit í meistaraflokki
kvenna, hefst kl. 18.30.
Á þessu íslandsmóti geta úrslitin
í punktakeppni vetrarins farið
{angt með að ráðast. í mfl. karla
íefur Tómas Sölvason, KR, 113
stig, Hilmar Konráðsson, Víkingi,
í fyrrakvöld voru leiknir fjórir
leikir í Evrópukeppninni fyrir leik-
menn 21 árs og yngri. Úrslit urðu
þessi:
Albanía-V-Þýskaland...............1-1
A-Þýskaland-Belgía................2-1
England-Grlkkland.................2-1
Skotland-Sviss....................2-1
tslenska karlaliðið hafði undir-
tökin og vann fyrstu hrinuna 15-6.
Þá kom færeyskur sigur, 15-17, ís-
lenskur 15-6, færeyskur 5-15, en
lokahrinuna unnu íslensku strák-
arnir 15-13 eftir að þeir færeysku
höfðu leitt 7-11.
Leikurinn var nokkuð góður af
íslands hálfu en þó komu slæmir
kaflar inná milli. Leifur Harðarson
átti einna bestan leik og Sveinn
Hreinsson stóð honum ekki langt
að baki. Hjá Færeyingum voru Jo-
hannes Ejdesgard og Eyðstein
Jensen bestir.
í dag kl. 13 fer fram hraðmót í
Hagaskóla með þátttöku Þróttar,
ÍS, íslenska unglingalandsliðsins
og færeyska liðsins Fleyr sem
myndar uppistöðuna í karlaliðinu
þarlenska.
gull, þrjú hvor, með því að sigra í
einliða-, tvíliða- og tvenndarleik í
sínum flokkum, Oliver í hnokka-
flokki en Árni Þór í drengjaflokki.
María Guðmundsdóttir, IA, fékk
tvö gull í tátuflokki, Guðrún Gísla-
dóttir, ÍA, Ása Pálsdóttir, ÍA, og
Þórhallur Jónsson, ÍA, tvö gull
pvert í flokkum meyja og sveina og
Guðrún Júlíusdóttir, TBR, hlaut
tvö gull í flokki teplna.
95 og Tómas Guðjónsson, KR, 94,
en þessir þrír skera sig nokkuð frá
öðrum keppendum. Fyrir sigur á
íslandsmótinu eru veitt 30 stig, 15
fyrir annað sætið en 7 fyrir þriðja
og fjórða, svo sigur þar skiptir gíf-
urlega miklu máli.
Ragnhildur Sigurðardóttir,
UMSB, ogÁstaM. Urbancic, Ern-
inum, heyja einvígi í meistara-
flokki kvenna. Ragnhildur hefur
hlotið 27 stig í vetur gegn 25 hjá
Ástu en sigurvegarinn um helgina
hlýtur 9 stig gegn 4 hjá þeim sem
lendir í öðru sæti.
- VS
SKJÖLDUR
SIGLUFIROI
w
Guðrún Pálsdóttir, íþróttamaður ársins á Sigluflrði.
Guðrún valin á Sigló
Guðrún Pálsdóttir, margfaldur íslandsmeistari í skíðagöngu
kvenna, var kjörin íþróttamaður Siglufjarðar 1982 af Kiwanisklúbbn-
um Skildi sem undanfarin ár hefur staðið fyrir samskonar kjöri.
Annar varð knattspyrnukappinn Oli Agnarsson, sem var markakóng-
ur íslandsmótsins sl. sumar, þriðja Gíslína Salmannsdóttir, sund- og
skíðakona, og í fjórða sæti voru jafnir Baldvin Kárason, göngumaður,
og Óskar Einarsson, sund- og skíðamaður.
-VS
íslenskir sigrar í
spennandi leikjum
-vs
Akurnesingar í
algerum sérflokki
Islandsmót í borðtennis:
Ráðast úrslitin í
punktakeppninni?