Þjóðviljinn - 15.04.1983, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 15.04.1983, Blaðsíða 1
Ná hægri öflin saman eftir kosningar? Kjósum gegrt afturhaldsstjóm atvinnuleysis- stjórn og álfurstastjórn Þá blasir við atvinnuleysi, eignahrun og landflótti Um þetta snýst kosningabaráttan áttu og hafa margir eldri Alþýöuflokksmenn haft samband viö mig. - Hægri öflin í Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum eru að ná saman. Þeir ætla sér að mynda ríkisstjórn strax eftir kosningar. Frambjóðendur Fram- sóknarflokksins keppast við að þvo þessa staðreynd af sér í samtölum og á framboðsfundum. Þeir vilja vafalaust vel, en þeir verða ekki spurðir eftir kosningar. Þá ákveður Ólafur Jóhannesson hvert verður stefnt og myndar ríkisstjórn ásamt Tómasi Árnasyni og íhaldinu. Hægri stjórnin stefnir þjóðinni í atvinnuleysi, kreppu og kvíða. Atvinnuleysi þýðir eignahrun alþýðu og niðurskurð félags- legrar þjónustu. Það er þetta sem blasir við eftir kosningarnar ef íhaldsöflin kom- ast til valda. - Þannig komst Svavar Gestsson formað- ur Alþýöubandalagsins aö oröi er Þjóðviljinn ræddi við hann í gær um kosningabaráttuna og stööu hennar. Hann sagöi ennfremur: „Talsmenn flokkanna reyna að fela þessar staöreyndir hægri stefnunnar meö því aö ræða um húsnæðismál eöa önnur félagsleg réttindamál. Þessar umræöur eru einungis til þess aö villa mönnum sýn. Tilgangur þeirra er sá einn aö fela fyrir almenningi þaö sem raunverulega er aö gerast: Á bak viö tjöld kosningaloforðanna leynist hægrivofan sem skipuleggur atvinnuleysi og landflótta áöur en varir.“ Alþýðubandalagid er eini flokkurinn sem vinstrimenn geta treyst Alþýðuflokkarnir úr leik Bæði flokksbrot Alþýöuflokksins eru úr leik í hinum raunverulegu átökum í efnahagslíf- inu á íslandi. Bandalag jafnaöarmanna nefn- ir aldrei efnahags- og atvinnumál. Þar lifa menn á loftinu. Alþýöuflokkurinn er til allra hluta gagnslaus og sleikir sár sín vegna innri átaka. Óánægjan meö Jón Baldvin í Reykja- vík fer vaxandi dag frá degi og eldri Alþýðu- flokksmenn hafa nú margir ákveöiö að styöja Alþýöubandalagiö. Það er ein athyglis- veröasta staðreynd þessarar kosningabar- Munaðarleysingjar úr Sjálfstæðisflokknum Þeir Sjálfstæöisflokksmenn sem hafa stutt Gunnar Thoroddsen hafa ekki ákveðið hvaö þeir kjósa í kosningunum. Þeir hafa tekiö eftir því aö flokkskynning Sjálfstæöisflokksins í sjónvarpi var samfelld árás á Gunnar Thor- oddsen þrátt fyrir einingartalið. Þetta fólk veltir því fyrir sér til síðasta dags hvaö þaö á að kjósa, en þetta fólk kýs ekki Sjálfstæðis- flokkinn. Hann hefur hrakið þetta fólk frá sér í stórum mæli. Aðeins ein vika til kjördags: Nú verður að nota hverja stund Askorun frá Svavari Gests- syni formanni Alþýðu- bandalagsins, 1. manni G-listans i Reykjavík Alþýðubandalagið eini flokkurinn Alþýðubandalagið er eini flokkurinn sem hefur sett fram stefnuskrá í þessum kosningum þar sem í ein- stökum atriðum er greint frá því hvað flokkurinn vill gera og hvernig eftir kosningar. Alþýðubandalagið er sterk- ur og samstæður flokkur og hefur sjaldan verið betur búinn að málssvörum og málefnum. hess vegna erum við ekki svartsýn í kosningabaráttunni, en við óttumst um þessa þjóð og þetta land ef íhaldið kemst til valda. Það má aldrei gerast. Svavar Gestsson: Á bak við tjöld kosningaloforðanna leynist hægri vofan sem skipuleggur atvinnuleysi og landflótta áður en varir. Áskorun Nú þarf að nota hverja stund, hvert augnablik sem gefst til þess að koma í veg fyrir sigur hægri aflanna. Þeir sem vilja verja ísland fyrir atvinnuleysinu þeir styðja Alþýðubandalagið. Ég skora á alla stuðnings- menn Alþýðubandalagsins að nota hvert augnablik þar til kjörstöðum verður lokað til þess að vinna að sigri Alþýðubandalagsins. Alþýðubandalagið er eina leiðin til þess að bjarga íslandi og íslendingum frá örlögum íhaldsins. ■eÆG/tA á ERLEWDRI STDRIÐJU islensha leiö

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.