Þjóðviljinn - 03.05.1983, Síða 4
12 SÍÐA - ÞJÓÐYILJINN Þriðjudagur 3. maí 1983
Umsjón:
■ Vbi « ■ ■ Víðir Sigurðsson
mmmmi
suí><g iia.
Bryndís Valsdóttir, Val, er
markahæst, hefur skorað tvö
mörk. -MHM
Gróttan
Knattspyrna
kvenna:
fær styrk
Það verður Víkingskeimur af 4.
deildarliði Gróttu í knattspyrnu í
sumar. Gunnlaugur Kristvinsson
þjálfar Seltirninga og leikur með
þeim og tveir aðrir fyrrverandi
Víkingar.leika með liðinu, Hörður
Sigurðsson og Sigurjón markvörð-
ur Elíasson. Þá hefur heyrst að lög-
regluþjónninn síungi og eitilharði,
Kristinn Pedersen, hafi hug á að
klæðast Gróttubúningnum í sum-
ar. " -VS.
ÍR-stúlkurnar, undir stjórn Sigurbergs Sigsteinssonar, urðu bikarmeistarar kvenna í handknattleik á föstudagskvöldið með þvj að sigra Val í
úrslitaleik 18-17. Lcikurinn var jafn og spennandi ailan timann en Valur var yfir í lcikhléi, 9-8. Ingunn Bernótusdóttir (nr. 5) skoraði 7 mörk fyrir 1R,
Erla Rafnsdóttir (nr. 10) 4, en Erna Lúðvíksdóttir var markahæst hjá Val með 9 mörk. Mynd:- eik
Litli bik-
arinn til
Akraness
Litla bikarkeppnjn í knattspyrnu
kvenna fór fram um helgina. Mjög
dræm þátttaka var í henni að þcssu
sinni, aðeins tvö lið tóku þátt en
voru fimm í fyrra. Breiðablik og
Akranes iéku á Akranesi á sunnu-
dag, fullan leiktíma, 2X35 mínút-
ur, en í fyrra fór keppnin fram í
formi hraðmóts og stóð þá hver
leikur í 2X20 mínútur. Skagastúlk-
urnar náðu bikarnum úr höndum
Breiðabliks og sigruðu 3-2.
Heimaliðið tók frumkvæðið í
leiknum eftir aðeins tvær mínútur
þegar Ragna Lóa Þórðardóttir
skoraði, 1-0. Blikarnir gáfust ekki
upp og jöfnuðu fimmtán mínútum
síðar með marki Bryndísar Einars-
dóttur. Hún bætti síðan öðru marki
við rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og
staðan í hálfleik var því 2-1,
Breiðabliki í hag.
Bæði lið mættu mjög ákveðin til
leiks í síðari hálfleik og fengu góð
tækifæri til að skora. Fimm mínút-
um fyrir leikslok tókst Skagastúlk-
um að jafná, 2-2, og var Laufey
Sigurðardóttir þar að verki. Þegar
nákvæmlega 30 sekúndur voru eftir
af leiknum tókst svo Laufeyju að
skora sigurmarkið, 3-2, og Skaga-
stúlkur urðu þar með „litlu bikar-
meistarar“ 1983. -MHM
Vals-
stúlkur
náðu
forystunni
Einn leikur fór lram á föstudag-
inn á Reykjavíkurmótinu í meist-
araflokki kvenna í knattspyrnu.
Valur lagði Fylki að velli í afspyrn-
ulélegum leik, 2-0, á Melavell-
inum.
Fyrra markið kom þegar fimm
mínútur voru til loka fyrri hálf-
leiks. Mikil mistök urðu í vörn
Fylkisstúlkna og þær skoruðu
sjálfsmark. Valsstúlkur voru held-
ur frískari í síðari hálfleik og sóttu
látlaust en inn vildi boltinn ekki.
Annaðhvort fór hann rétt framhjá
eða markvörður Fylkis varði en
hún stóð uppúr í þessari viðureign
og átti vægast sagt stórleik. Hálfri
annarri mínútu fyrir leikslok inn-
sigluðu Valsstúlkur síðan sigurinn
með marki Bryndísar Valsdóttur.
Næsti leikur er viðureign Fram
og Vals nk. föstudag og hefst hann
kl. 19 á Melavellinum.
Staðan á mótinu er þessi:
Valur..................2 2 0 0 4-0 4
KR.....................2 10 12-32
Fram................. 1 0 10 1-11
Fylkir.................2 0 111-31
Víkingur............. 1 0 0 1 1-2 0
Víkingar eru handknattleiksliö ársins, eða öllu heldur keppnis-
tímabilsins 1982-83. Á föstudagskvöldið náðu þeir einstæðum
áfanga, sigruðu KR í úrslitaleik bikarkeppninnar 28-18 og unnu þar
með þrefalt, urðu Reykjavíkur-, íslands- og bikarmeistarar í vetur.
Aðeins einu sinni í íslenskri handknattleikssögu hefur hliðstætt
afrek verið unnið; FH varð Reykjanes-, íslands- og bikarmeistari
1976.
Tíu marka sigur Víkinga á KR,
liðinu sem veitti þeim hvað
harðasta keppni um íslandsmeist-
Ellert Vigfússon markvörður Vík-
inga hefur staðið sig frábærlega vel
í forföllum landsliðsmarkvarðarins
Kristjáns Sigmundssonar og í úr-
slitalciknum á föstudagskvöldið
lagði hann grunninn að sigri Vík-
inga méð stórgóðri markvörslu.
Víkingar náðu í Ellert frá 3.
deildarliði Óðins fyrir tveimur
árum, öllu heldur gekk Ellert í Vík-
ing ásamt öllu Óðinsliðinu, og hann
er tvímælalaust kominn í hóp okkar
bestu markvarða. Myndir: -eik
aratitilinn í vetur, segir sína sögu
um það forrn sem þeir voru í undir
lok keppnistímabilsins, á þeirn
tíma sem mestu máli skipti. Fram-
an af vetri hikstaði Víkingsvélin
ákaft, liðið virtist alls ekki ná
saman og beið slæma ósigra í for-
keppnmni og í byrjun úrslita-
keppninnar. Síðan small allt í rétt-
ar skorður og eftirleikinn þekkja
allir. Meistaraflokkur Víkinga hef-
ur svo sannarlega fært félagi sínu
kærkomna gjöf á 75. afmælisárinu.
Gegn KR náðu Víkingar strax
góðri forystu, 12-6 í hálfleik, og
eftir að þeir höfðu komist í 16-7 var
aldrei spurning um úrslitin. Tíu
marka forysta náðist skömmu fyrir
leikslok, 25-15, og sá munur skildi
liðin að þegar upp var staðið.
Mörkin í • úrslitaleiknum
skoruðu: Fyrir Víking: Þorbergur
Aðalsteinsson 9, Sigurður Gunn-
arsson 6, Ólafur Jónsson 4, Viggó
Sigurðsson 3, Steinar Birgisson 2,
Páll Björgvinsson 2, Hilmar Sig-
urgíslason og Karl Þráinsson eitt
hvor. Fyrir KR: Stefán Halldórs-
son 6, Alfreð Gíslason 5, Gunnar
Gíslason 3, Anders Dahl Nielsen 2,
Jóhannes Stefánsson og Haukur
Geirmundsson eitt hvor.
Víkingar hafa orðið íslands-
meistarar fjögur ár í röð. Úr þeirra
röðum hverfa nú Bogdan Kowalc-
zyk, þjálfari, Þorbergur Aðal-
steinsson, Ólafur Jónsson, Páll
Björgvinsson og Árni Indriðason.
Allir kvöddu með þessum glæsi-
lega bikarsigri og nú er eftir að sjá
hvernig þeim sem eftir eru gengur
að halda uppi rnerki félagsins næsta
vetur.
-VS