Þjóðviljinn - 03.05.1983, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 03.05.1983, Qupperneq 4
12 SÍÐA - ÞJÓÐYILJINN Þriðjudagur 3. maí 1983 Umsjón: ■ Vbi « ■ ■ Víðir Sigurðsson mmmmi suí><g iia. Bryndís Valsdóttir, Val, er markahæst, hefur skorað tvö mörk. -MHM Gróttan Knattspyrna kvenna: fær styrk Það verður Víkingskeimur af 4. deildarliði Gróttu í knattspyrnu í sumar. Gunnlaugur Kristvinsson þjálfar Seltirninga og leikur með þeim og tveir aðrir fyrrverandi Víkingar.leika með liðinu, Hörður Sigurðsson og Sigurjón markvörð- ur Elíasson. Þá hefur heyrst að lög- regluþjónninn síungi og eitilharði, Kristinn Pedersen, hafi hug á að klæðast Gróttubúningnum í sum- ar. " -VS. ÍR-stúlkurnar, undir stjórn Sigurbergs Sigsteinssonar, urðu bikarmeistarar kvenna í handknattleik á föstudagskvöldið með þvj að sigra Val í úrslitaleik 18-17. Lcikurinn var jafn og spennandi ailan timann en Valur var yfir í lcikhléi, 9-8. Ingunn Bernótusdóttir (nr. 5) skoraði 7 mörk fyrir 1R, Erla Rafnsdóttir (nr. 10) 4, en Erna Lúðvíksdóttir var markahæst hjá Val með 9 mörk. Mynd:- eik Litli bik- arinn til Akraness Litla bikarkeppnjn í knattspyrnu kvenna fór fram um helgina. Mjög dræm þátttaka var í henni að þcssu sinni, aðeins tvö lið tóku þátt en voru fimm í fyrra. Breiðablik og Akranes iéku á Akranesi á sunnu- dag, fullan leiktíma, 2X35 mínút- ur, en í fyrra fór keppnin fram í formi hraðmóts og stóð þá hver leikur í 2X20 mínútur. Skagastúlk- urnar náðu bikarnum úr höndum Breiðabliks og sigruðu 3-2. Heimaliðið tók frumkvæðið í leiknum eftir aðeins tvær mínútur þegar Ragna Lóa Þórðardóttir skoraði, 1-0. Blikarnir gáfust ekki upp og jöfnuðu fimmtán mínútum síðar með marki Bryndísar Einars- dóttur. Hún bætti síðan öðru marki við rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og staðan í hálfleik var því 2-1, Breiðabliki í hag. Bæði lið mættu mjög ákveðin til leiks í síðari hálfleik og fengu góð tækifæri til að skora. Fimm mínút- um fyrir leikslok tókst Skagastúlk- um að jafná, 2-2, og var Laufey Sigurðardóttir þar að verki. Þegar nákvæmlega 30 sekúndur voru eftir af leiknum tókst svo Laufeyju að skora sigurmarkið, 3-2, og Skaga- stúlkur urðu þar með „litlu bikar- meistarar“ 1983. -MHM Vals- stúlkur náðu forystunni Einn leikur fór lram á föstudag- inn á Reykjavíkurmótinu í meist- araflokki kvenna í knattspyrnu. Valur lagði Fylki að velli í afspyrn- ulélegum leik, 2-0, á Melavell- inum. Fyrra markið kom þegar fimm mínútur voru til loka fyrri hálf- leiks. Mikil mistök urðu í vörn Fylkisstúlkna og þær skoruðu sjálfsmark. Valsstúlkur voru held- ur frískari í síðari hálfleik og sóttu látlaust en inn vildi boltinn ekki. Annaðhvort fór hann rétt framhjá eða markvörður Fylkis varði en hún stóð uppúr í þessari viðureign og átti vægast sagt stórleik. Hálfri annarri mínútu fyrir leikslok inn- sigluðu Valsstúlkur síðan sigurinn með marki Bryndísar Valsdóttur. Næsti leikur er viðureign Fram og Vals nk. föstudag og hefst hann kl. 19 á Melavellinum. Staðan á mótinu er þessi: Valur..................2 2 0 0 4-0 4 KR.....................2 10 12-32 Fram................. 1 0 10 1-11 Fylkir.................2 0 111-31 Víkingur............. 1 0 0 1 1-2 0 Víkingar eru handknattleiksliö ársins, eða öllu heldur keppnis- tímabilsins 1982-83. Á föstudagskvöldið náðu þeir einstæðum áfanga, sigruðu KR í úrslitaleik bikarkeppninnar 28-18 og unnu þar með þrefalt, urðu Reykjavíkur-, íslands- og bikarmeistarar í vetur. Aðeins einu sinni í íslenskri handknattleikssögu hefur hliðstætt afrek verið unnið; FH varð Reykjanes-, íslands- og bikarmeistari 1976. Tíu marka sigur Víkinga á KR, liðinu sem veitti þeim hvað harðasta keppni um íslandsmeist- Ellert Vigfússon markvörður Vík- inga hefur staðið sig frábærlega vel í forföllum landsliðsmarkvarðarins Kristjáns Sigmundssonar og í úr- slitalciknum á föstudagskvöldið lagði hann grunninn að sigri Vík- inga méð stórgóðri markvörslu. Víkingar náðu í Ellert frá 3. deildarliði Óðins fyrir tveimur árum, öllu heldur gekk Ellert í Vík- ing ásamt öllu Óðinsliðinu, og hann er tvímælalaust kominn í hóp okkar bestu markvarða. Myndir: -eik aratitilinn í vetur, segir sína sögu um það forrn sem þeir voru í undir lok keppnistímabilsins, á þeirn tíma sem mestu máli skipti. Fram- an af vetri hikstaði Víkingsvélin ákaft, liðið virtist alls ekki ná saman og beið slæma ósigra í for- keppnmni og í byrjun úrslita- keppninnar. Síðan small allt í rétt- ar skorður og eftirleikinn þekkja allir. Meistaraflokkur Víkinga hef- ur svo sannarlega fært félagi sínu kærkomna gjöf á 75. afmælisárinu. Gegn KR náðu Víkingar strax góðri forystu, 12-6 í hálfleik, og eftir að þeir höfðu komist í 16-7 var aldrei spurning um úrslitin. Tíu marka forysta náðist skömmu fyrir leikslok, 25-15, og sá munur skildi liðin að þegar upp var staðið. Mörkin í • úrslitaleiknum skoruðu: Fyrir Víking: Þorbergur Aðalsteinsson 9, Sigurður Gunn- arsson 6, Ólafur Jónsson 4, Viggó Sigurðsson 3, Steinar Birgisson 2, Páll Björgvinsson 2, Hilmar Sig- urgíslason og Karl Þráinsson eitt hvor. Fyrir KR: Stefán Halldórs- son 6, Alfreð Gíslason 5, Gunnar Gíslason 3, Anders Dahl Nielsen 2, Jóhannes Stefánsson og Haukur Geirmundsson eitt hvor. Víkingar hafa orðið íslands- meistarar fjögur ár í röð. Úr þeirra röðum hverfa nú Bogdan Kowalc- zyk, þjálfari, Þorbergur Aðal- steinsson, Ólafur Jónsson, Páll Björgvinsson og Árni Indriðason. Allir kvöddu með þessum glæsi- lega bikarsigri og nú er eftir að sjá hvernig þeim sem eftir eru gengur að halda uppi rnerki félagsins næsta vetur. -VS

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.