Þjóðviljinn - 11.05.1983, Qupperneq 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN' Miðvikudagur 11. maí 1983
Þegarbarna-
frœðslan
í Reykjavík
fór fram
á dönsku
Bridge
Portisch - Karpov
Það merkilega við þessa stöðu er það að
hún hafði komið upp einu ári áður í skák milli
Petrosjans og Balashovs. Petrosjan sem
hafði hvítt lék 20. Bb3 og eftir 20. - Dc7 21.
De4! Kg7 2. Bxf7+! Kxf7 23. Bh6! varð Bal-
ashov að leggja niður vopnin.
20. Had1?
(Eðlilegur leikur sem gefur góð fyrirheit.)
20. .. Dc7
21. Bxg6 fxg6
22. Dc4+ Kg7
23. Bf4 Ba6M
(Snilldar varnarleikur sem Portisch hafði
ekki séð fyrir. Hann bjóst við 23. - b5 og eftir
24. Dc3 kemur upp endatafl sem er unnið á
hvítt.)
24. Dc3+ Bf6
25. Bxc7 Bxc3
26. Hxe8 Hxe8
27. bxc3 Be2!
- og þó svartur sé peði undir þá er það
versta að baki. Hann hefur mótspil vegna
veikleikans á c3. Skákinni laun með jafntefli
í 41. leik.
Haustið 1848 var endurbygg-
ingu dómkirkjunnar lokið. Fór
vígsla hennar fram þann 28. okt..
Ilclgi Thordarsen biskup vígði
kirkjuna en lionum til aðstoðar
voru þeir Asmundur Jónsson,
dómkirkjuprestur, og dr. Pétur
Pétursson, forstöðumaður
Prestaskólans.
Fjölmenni mikið var við at-
höfnina og Túmaði kirkjan eng-
anveginn þann söfnuð allan.
Reikningsglöggir menn töldu að
endurbæturnar á kirkjunni hefðu
kostað 40 þús. ríkisdali.
Barnaskólinn, sem rekinn
hafði verið í Reykjavík um hríð,
va'rð nú að hætta störfum. Var
ástæðan sú, að enginn styrkur
fékkst nú lengur úr Thorkilli-
sjóðnum til skólahaldsins. Pétur
Guðjónsson hafði veitt skólanum
forstöðu undanfarna 8 vetur og
þótti farast vel úr hendi. Hinsveg-
ar hafði kennslan áð mestu leyti
farið fram á dönsku!
- mhg.
Skák
Karpov að tafli — 136
Einvigi Karpovs og Portisch um 1. verö-
laun í Mílanó-mótinu lauk meö naumum
sigri heimsmeistarans, 3'/2 : 2'h. Þá lauk
einvígi Petrosjans og Ljubojevics um 3. sæt-
ið meö jafntefli, 3:3. Sigur Karpovs var svo
sannarlega ekki áreynslulaus. Hann vann
aöeins eina skák, en öörum lauk með jafn-
tefli. Porfisch fékk kjðriö tækifæri í 5tu skák
einvígisins. Hann var með gjörunnið tafl, en
fann ekki vinninginn:
Álaugardaginn var héldu nemendur í Snælandsskóla í Kópavogi vorhátíð og buðu foreldrum sínum að líta á afrakstur starfsvikunnar, sem lauk
þann dag. Einar Karlsson, ljósmyndari Þjóðviljans, tók þessa mynd af útitafli, sem krakkarnir höfðu smíðað á starfsvikunni.
I tveim leikjum fengu N-S pör á öðru
borðinu að leika 4 spaða. Út koma lauf ás
og engin leið að hnekkja spilinu lengur,
þótt skitt sé i tromp. Tvöföld „game"
sveifla, því A-V pör sömu sveita héldu
áfram í 5 hjörtu, sem eru „óhnekkjandi".
Reyndar fengu tvö pör aðeins 9 og 10
slagi í hjarta samning, rýr uppskera, sér-
staklega fyrir annað parið sem fékk að
spiia úttektina á 4. sagnþrepi (?) en hitt
parið hélt rakleitt í slemmu.
(Eigum við að segja að útspil sé tigull?
Sagnhafi fer upp með ás, trompað. Lauf til
baka á ás. Tromp á ás (?) og nú er sagn-
hafi læstur inní borði og hlýtur að gefa 3
slagi i viðbót!)
Gœtum
tungunnar
Sagt var: Þeir eru andsnúnir
hvorutveggju.
Rétt væri: Þeir eru andsnúnir
hvorutveggja.
Heimsþing
A Ikirkj uráðsins
Æskan
í þriðja tbl. Æskunnar er m.a.
að finna eftirtalið efni:
Dýraspítalinn í Víðidal. Fróð-
leiksmolar um páskana. „Sorg-
legt að fara á mis við íþróttirnar“,
spjallað við sjónskerta tvíbura.
Lína langsokkur í Þjóðleikhús-
inu. Heilsíðulitmynd af Sigrúnu
Eddu Björnsdóttur. Heimsþing
templara í Bergen 1982. Á grímu-
dansleik í Fellahelli. „Stefni að
því að stökkva hæð mína“, rætt
við Sigurð Matthíasson, íslands-
methafa í hástökki án atrennu.
Norræn listsýning. Frá Um-
ferðarráði. Fjölskylduþáttur.
Horfðu ekki of mikið á sjónvarp-
ið. Gott íþróttalíf á Austurlandi,
Gunnar Vilhjálmsson tekinn tali.
Hættur af rafmagni og skyndi-
hjálp, eftir Ómar Friðþjófsson.
Poppmúsik í umsjá Jens
Guðmundssonar. Persónulýsing
Bubba rokkkóngs o.m.fl..
- mhg.
Norður
S 987
H G32
KG8432
9
Vestur
S 4
H 1098654
T 1075
L A32
Austur
S G2
H AK7
T AD96
L KDG6
Suður
S AKD10653
H D
T -
L 108754
Hvað er rétta sögnin á S spilin eftir sterka
lauf opnun f A? - 4 S þrátt fyrir „öfugar"
hættur? Sennilega er það árangursríkast á
slík kort. En vestur? - Eru ekki 5-H þá jafn
„sjálfsögð" í slíkri stöðu?
Sjötta heimsþing Alkirkjuráðs-
ins verður haldið 24. júlí - 10.
ágúst í sumar í Vancouver, Kan-
ada. Yfirskrift þingsins er: Jesús
Kristui - líf heimsins.
Meðal þeirra meginefna, sem
tekin verða fyrir á heimsþinginu,
eru:
- Kristinn vitnisburður í sundr-
uðum heimi.
- í átt til einingar kristinnar
manna.
- Barátta fyrir réttlæti og mann-
legri virðingu.
- Stuðningur og samfélag innan
þjóðfélagsins.
- Ógnun við friðinn og afkomu
mannsins.
Má geta þess að norrænir full-
trúar á heimsþinginu hafa ákveð-
ið að fjalla sérstaklega um a)
friðar- og afvopnunarmál, b)
mannréttindamál, sérstaklega
málefni hins svokallaða fjórða
heims, en það eru frumbyggjar
landanna svo sem Eskimóar,
Samar, Indíánar o.s.frv.. c) ein-
ing kirkjunnar.
Island fær að senda tvo fulltrúa
á þingið og eru það herra Pétur
Sigurgeirsson biskup og séra
Dalla Þórðardóttir. Ennfremur
er þess vænst að framkvæmda-
stjórar Hjálparstofnunar kirkj-
unnar og Hins íslenska biblíufé-
lags komist til Heimsþingsins.
Ungur guðfræðingur, Pétur Þor-
steinsson, mun verða starfsmað-
ur þingsins.
(Úr Víðförla, málgangi
íslensku þjóðkirkjunnar,
apríl 1983.)
Senn fer boltinn að rúlla í lslandsmótinu í knattspyrnu. í tilefni þess og
að sífellt fer veðrið batnandi, birtum við þessa skemmtilegu mynd.
Enn berum við niður á Isl. mótinu í sveita-
keppni, enda af nægu að taka, engu líkara
en tölvan hefði á stundum verið haldin
svonefndu viðáttubrjálæði, eyður í 5.
hverju spili (hefur verið kannað) og lita-
lengdir sem rétt mörðu að tolla inná út-
skriftar eintökunum. 5. umf. spil 18. A/N-S
á hættu: