Þjóðviljinn - 11.05.1983, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 11.05.1983, Blaðsíða 5
MiSvikudagur 11. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5 Hugmyndir um vísi- töluskerðingar 1. júni Hljótum að mótmœla Segir Grétar Þorsteinsson formaður Trésmiða- félags Reykjavíkur Ég hlýt að fordæma og mótmæla þeim áformum sem uppi eru um að skerða vísitölubætur á laun, sagði Grétar Þorsteinsson formaður Trésmiðafélags Reykjavíkur um yfirlýsingar Seðlabankastjóra og fleiri um væntanlegas' vísitölu- skerðingar 1. júní. - Mikil býsn eru þær fullyrðing- ar manna, að það sé einhver hol- skefla að ríða yfir 1. júní næstkom- andi. Staðreyndin er sú að launa- fólk hefur búið við óðaverðbólgu og holskeflu á undanförnum mán- uðum. Verðbætur 1. júní gera ekki annað en mæla þessa verðbólgu að hluta til - og endurgreiða að hluta launafólki sem það hefur misst í kaupmætti næstu mánuði á undan. I samhengi við stjórnarmyndun - Fjallræður þeirra Jóhannesar Nordal og Jóns Sigurðssonar hljóta að skoðast í samhengi við það sem Jón Karlsson Sauðárkróki___________ Athugandi að stofna launa- mannasjóði - Það er algjört lágmark að bent sé á leiðir til að verja láglaunafólkið ef hrófla á við vísitölubótunum, sagði Jón Karlsson á Sauðárkróki. Það er ómaksins vert fyrir verka- lýðshreyfinguna að athuga hug- myndina um launamannasjóði, sagði Jón enn fremur: - Vísitölukerfið er í sjálfu sér ekkert heilagt og mér finnst sjálf- sagt að breyta því eða að koma með eitthvað nýtt í staðinn, þarsem láglaunafólkið er varið fyrir verð- hækkunum. - Það sem verið er að tala um nú er ekkert nýtt, því miður. En það er eins með þetta hjá okkur í verka- lýðshreyfingunni. Við erum dálítið stöðnuð í umræðu og leiðum út úr hringiðunni. Ég tel að við í verka- Karvel Pálmason Bolungarvík__________ „Ekkert nýtt” Það er ekkert nýtt í þessum hug- myndum, að mínu mati, sagði Karvel Pálmason formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Bol- ungarvíkur um hugsanlegar skerðingar eða afnám á vísitölu- bótum. Hvað finnst þér um hugmyndir sem fram komu nýverið hjá Jó- hannesi Nordal og Jóni Sig- urðssyni? Ég tek ekki mark á slíkuin hug- myndum. Svona nokkuð hefur líka heyrst áður úr þeim herbúðum. Það er ekkert hægt að segja um svona hugmyndir fyrr en ábyrgir aðiljar láta sitt uppi. Grétar Þorsteinsson: Fjallræður þeirra Jóhannesar og Jóns eru í samhengi við yfirstandandi stjórn- armyndun og falla þar væntanlega í góðan jarðveg. er að gerast á stjórnmálasviðinu, yfirstandandi stjórnarmyndun og falla þær væntanlega í góðan jarðveg. Ýmislegt hefur maður nú séð og heyrt af þessum toga, en ég held að ég hafi aldrei heyrt það fyrr frá slíkum opinberum starfsmanni einsog Jóni Sigurðssyni að ógilda eigi með lögum þá kjarasamninga sem eru í gildi. En það var einmitt einn þeirra kosta sem Jón Sigurðs- son sá útúr meintri holskeflu 1. j úní næstkomandi í ræðu sinni hjá Vinnuveitendasambandinu, sagði Grétar Þorsteinsson formaður Trésmiðafélags Reykjavíkur að lokum. — óg. Jón Karlsson: Verkalýðshreyfingin ætti að hafa forgöngu um nýjar ieiðir. lýðshreyfingunni ættum að hafa forgöngu um nýjar leiðir og reyna eitthvað ferskt og nýtt. - Sú hugmynd sem skaut upp kollinum fyrir nokkru um sérstaka launamannasjóði, sem færa verka- fólki aukinn rétt, finnst mér vera ómaksins vert að athuga fyrir verkalýðshreyfinguna. Þetta hjakk okkar er stundum þreytandi og leiðinlegt, - og ég held að það sé kominn tími til að breyta til, sagði Jón Karlsson formaður verka- lýðsfélagsins á Sauðárkróki. -óg. Karvel Pálmason: Vantar haldbær gögn. Heldur* þú að komi til kjara- skerðingar 1. júní? Ég hef ekki séð nein haldbær gögn um þetta ennþá. Á hitt er og að benda, að þetta er ekkert nýtt. Stjórnvöld hverju sinni, ekki síst síðasta ríkisstjórn, hafa ráðist á kjarasamninga og vísitöluna fyrr. Hefur þú einhverja hugmynd um til hvers konar aðgerða eigi að grípa 1. júní? Ég kýs ekki að tjá mig um það á þessu stigi málsins, sagði Karvel Pálmason að lokum. -óg. r Alyktun framkvæmdastjórnar Sambands byggingamanna: Skerðing verðbóta leysir engan vanda Forstöðumenn Seðlabankans og þjóðhagsstofnunar afhjúpa ráðleysi sitt í efnahagsmálum „I rösklega 43 ár hafa vcrðbætur tíðkast á laun. Af þessum 43 árum hafa yfirvöld látið verðbóta- kerfið afskiptalaust í aðeins 36 mánuði. Með öðr- um orðum sagt hefur stjórnvöldum og efnahags- spekingum þeirra tekist að skerða umsamdar verðbætur í samtals 40 ár af 43. Þrátt fyrir að skerðingar verðbóta séu sagðar helsta leiðin til viðnáms gegn verðbólgu þá sýnir 40 ára ferill verð- bótaskerðinga annað. Stjórnvöldum og hagspekingum þeirra hefur enn ekki auðnast að sjá samhengi þess að verðbæt- ur á laun verða engar nema að á undan hafi gengið hækkun vöruverðs og þjónustu. Verðbætur á laun er afleiðing en ekki orsök verðhækkana. Enn einu sinni hafa forstöðumenn Seðlabank- ans og Þjóðhagsstofnunar afhjúpað ráðleysi sitt í lausn efnahagsmála. Enn einu sinni kyrja þeir aldna og úrelta sálminn sinn um að afnám verðbóta á laun sé lausnarorð efnahagslífsins. Reyndar ganga þeir nú enn lengra en oft áður og krefjast ógilding- ar nokkurra mánaða gamalla kjarasamninga. Það er von Framkvæmdastjórnar Sambands bygginga- manna að nýkjörnir alþingismenn taki ekki mark á svikulum orðum þessara herramanna. Samband byggingamanna vekur sérstaka at- hygli á því, að þann 14. júní 1982 samþykktu aðild- arfélög sambandsins kjarasamningi til þriggja ára. Það er lengri samningstími en áður hefur tíðkast hér á landi. Unt tvo kosti var að velja: Að hafa launahækkanir tiltölulega litlar auk verð- bóta, eða kjarasamning ári verðbóta með tiltölu- lega miklum og örum kauphækkunum þar serri verðbólgan væri áætluð fyrirfram. Fyrri kosturinn var valinn og öllum sem vilja sjá má vera ljóst að verðbótaákvæðin eru alger forsenda svo langs kjarasamnings. Langur samningstími hefur um áratuga skeið verið ofarléga á óskalista atvinnu- rekenda og efnahagssérfræðinga. Ef þessi tilraun aðildarfélaga Sambands byggingamanna til þess að ganga til móts við þessi sjónarmið verður ógild- uð þá mun Framkvæmdastjórn Sambands bygg- ingamanna taka til alvarlegrar íhugunar hvort ekki sé ástæða tii þess að hvetja til öflugrar baráttu gegn því“. Jón Kjartansson um boðskap Seðlabankastjórnas „ Varla við öðru að búast þaðan ” Þak á vísitölubætur, jafnhá krónutala á lágu launin, og launamannasjóðir væru vænlegri leiðir 1. júní - Það var varla viS öðru að búast úr þeirri áttinni, sagði Jón Kjart- ansson formaður Verkalýðsfélags Vestmannaeyja, er blaðið innti hann álits á viðhorfum Jóhannesar Nordals og Jóns Sigurðssonar um afnám vísitölubóta 1. júní n.k. - Því miður eru þær hugmyndir sem uppi eru núna framhald af því sem áður hefur gerst. Verkalýðs- hreyfingin gaf grænt ljós á skerðingu vísitölubóta í fyrrasumar - og ríkisstjórnin var ekki sein á sér að grípa þá skerðingu á lofti. Og ég held að það hafi ekki verið vegna þess að þingmeirihluti hafi ekki verið fyrir hendi að vísitölufrum- varp Gunnars Thoroddsen náði ekkiframaðgangaáþinginu. Það var komið of nærri kosningum. - En boðskapur aðalpáfa ís- lenskra peningamála er ekkert nýr af nálinni. Aftur á móti kom mér málflutningur Jóns Sigurðssonar meira á óvart. Ég hefi nefnilega heyrt hann segja að hann teldi að vísitölubinding launa veitti fyrir- tækjum visst aðhald í rekstri til sparnaðar. En svo virðist sem mað- urinn hafi lært önnur fræði í dvöl sinni erlendis. - Jóhannes Nordal er alltaf að væla þetta um að verði að rjúfa tengsl verðlags og kauphækkana, það verði að kippa vísitölunni úr sambandi til að bjarga rekstri fyrir- tækjanna. Þetta er bankastjóri þess banka sem skilar tæpum miljarði í hagnað á síðasta ári. Ef maðurinn er þeirrar skoðunar að það eigi að taka verðbætur af launafólki til að bjarga rekstri fyrirtækja, væri þá ekki nær að hann tæki hagnað Seðlabankans og skilaði honum til fyrirtækjanna. Þessi hagnaður er nefnilega þannig til kominn. Launamannasjóður með réttindum - Því hefur oft verið ranglega haldið fram að verkalýðsfélögin hefði eitthvað á móti breytingum á .núgildandi vísitölukerfi. Það er ekki rétt. JJvað eftir annað hefur Verkamannasambandið lagt til að sett verði þak á vísitölubætur og greidd jafnhá krónutala á lægri tax- ta. Þetta vil ég að verði gert einnig nú. - Ég heyri það hjá mjög mörg- um, að allir vilja taka þátt í því að Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir formaður Sóknar Víðtæk uppstokkun Eg hef alltaf verið andstæðingur þess verðbótakerfis sem nú er við lýði. En að ráðst á launin eingöngu leysir engan vanda“, sagði Aðal- heiður Bjarnferðsdóttir formaður Sóknar. - Það þarf að taka á efnahags- málum í heild s'inni og gera þarf víðtæka uppstokkun. Óttast þú árásir á laun verka- fólks um mánaðarmótin? Mér sýnist allt benda til þess að menn séu uppi með tilburði í þá veru. Jón Rjartansson. Sá hluti skerðing- arinar sem launafólk tekur á sig á að fara í sérstaka launamanna- sjóði, sem fjárfestu í fyrirtækjunum og veita starfsfólki íhlutunarrétt um málefni eigin vinnustaða. axla hluta byrðarinnar. En vel að verkja sinn hluta. Það er ekki hægt að ætlast til þess að einungis launa- fólk taki á sig byrðarþjóðfélagsins. -Ég hef líka lagt það til að sá hluti vísitöluskerðingar sem launa- fólk tekur á sig verði lagður í sér- stakan sjóð, launamannasjóð. Sá sjóður gæti styrkt þau fyrirtæki sem eiga í erfiðleikum gegn því að starfsfólk fengi hlutdeild í stjórnun fyrirtækjanna. Og verkafólk fjár- festi þannig í fyrirtækjum. Ég tel einni að þetta væri hyggilegasta leiðin nú, ef á að koma til vísitöl- uskerðingar. Ríkisstjórnir og stjórnvöld geta ekki gengið hart að láglaunafólki nú. Það má heldur ekki gerast einsog á viðreisnarár- unum og stjórnartíð Geirs Hall- grímssonar, að fólk þurfi að flýj a úr landi, sagði Jón Kjartansson úr Vestmanneyjum að lokum. -óg Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir. Er verkalýðshreyfingin í stöðu til að verjast slíkri árás? Ég vil hafa sem fæst orð um það á þessu stigi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.