Þjóðviljinn - 21.06.1983, Page 12
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 21. júní 1983
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Fundur um
friöarmal
Fimmtudaginn 23. júní kl. 20.30 verður
fundur um friðarmá! á Hverfisgötu 105
á vegum kvenna í ABR.
Dagskrá nánar auglýst á morgun.
Nefndin.
Tilkynning frá skrifstofu
Aiþýðubandaiagsins
Frá og með mánudeginum 13. júní til 1. september verða skrifstofur
okkar að Hverfisgötu 105 opnar frá kl. 8 árdegis til kl. 4 síðdegis mánudag til
föstudags.
Fastur viðtals- og símatími framkvæmdastjóra flokksins er frá kl. 9-11
árdegis.
Sumarferð Alþýðubandaiagsins
í Reykjavík
Viðeyjarferð 25. júní.
Laugardaginn 25. júní n.k. verður farið i árlega sumarferð Alþlýðubandal-
agsins í Reykjavík. Förinni er heitið í Viðey og verður lagt upp frá Sunda-
höfn kl. 10 og 10.30 árdegis. Heimferð kl. 17-18 eða 20-21. Miðasala hefst
mánudaginn 20. júní á skrifstofu ABR, Hverfisgötu 105 kl. 8-16. Miðinn
kostar 150 krónur og er ókeypis fyrir 12 ára börn og yngri. Tryggið ykkur
miða strax á mánudag.
Ferðanefnd
Úr Hornvík. - Séð frá Höfn yfir til Kálfatinda. Þar var á fyrri öldum talið
heiðnaberg, - bústaður Skinnbrokar tröllkonu. Lengst til vinstri tindur-
inn Jörundur, sem lengi var talinn ókleifur. Undir Kálfatindum stóð bær-
inn á Horni.
Sumarferð Alþýðubandalagsins á Vestfjörðum 8. júlí.
Farið verður á Hornstrandir
Hin árlega sumarferð Alþýðu-
bandalagsins á Vestfjörðum verður
að þessu sinni farin norður í Hornvík.
Lagt verður af stað með Djúpbátn-
um Fagranesinu frá ísafirði föstudag-
inn 8. júlí kl. 2 eftir hádegi, og komið til
baka ásunnudagskvöld. Farið verður
á Hornbjarg og í gönguferðir um ná-
grennið undir leiðsögn kunnugra
manna. Dvalið verður í tjöldum þess-
ar 2 nætur.
- Kvöldvaka og kynning á Horn-
ströndum -
Verð fyrir fullorðna kr. 980.-
Öllum heimil þátttaka.
Nánar auglýst síðar.
Kjördæmisráð Alþýðubandalags-
ins á Vestfjörðum
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins:
Þórsmerkurferð 1.-3. júlí
Helgina 1. til 3. júlí næstkomandi
verður farin Þórsmerkurferð á vegum
Æskulýðsfylkingar Alþýðubanda-
lagsins. Auðvitað mæta allir sem
vettlingi geta valdið ungir sem gamlir.
Föstudaginn 1. júlí mæta þeir sem
ætla í Þórsmörk með ÆFAB við
Flokksmiðstöð Alþýðubandalagsins
að Hverfisgötu 105, klukkan hálf níu
um kvöldið stundvíslega. Og allir méð
tjald, vel útilátið nesti og hlífðarföt, ull
og góða gönguskó.
I Þórsmörk verður farið í göngu-
ferðir um svæðið, efnt verður til
kvöldvöku og sameiginlegrar grill-
veislu, og allir verða í góðu skapi.
Heimleiðis yerður haldið síðdegis á
sunnudag. Áætlað gjald fyrir Þórs-
merkurferð ÆFAB er 4-500 krónur.
Ábyrgir fararstjórar. Hringið og látið
skrásetja ykkur í Þórsmerkurferð
ÆFAB í síma 17 500. Fjölmennum.
I Æskulýðsfylkíng Alþýðubanda-
lagsins, félagsmálahópur.
X)
.. _ - V...
Rannsóknahús á Hvanneyrl
Laugardaginn4. júní 1983 tók Jón
Helgason, landbúnaðarráðherra,
fyrstu skóflustungu að grunni
Rannsóknahúss á Hvanneyri. Þar
með er hafin bygging húss yfir
rannsóknastofu, sem hefur búið við
óhentugt og ófullkomið húsnæði til
þessa. Auk þess verður í húsinu
nokkur aðstaða til kennslu og
æfinga.
Aðdragandi
Bændaskólinn á Hvanneyri hef-
ur menntað bændaefni og
leiðbeinendur í íslenskumlandbún-
aði nær 90 ár. Arið 1947 hófst nýr
þáttur í starfi skólans með stofnun
framhaldsdeildar, sem nú starfar
undir nafninu Búvísindadeild.
Jafnframt kennslu hafa kennarar
og aðrir starfsmenn skólans um
langt skeið sinnt tilrauna- og rann-
sóknastarfi í vaxandi mæli, oft við
erfiðar aðstæður. Á meðan til-
raunastarfsemin jókst varð þörfin
brýnni fyrir aukna aðstöðu til efna-
greininga jarðvegs og héysýna.
Þannig varð til sú rannsóknastofa,
sem Bændaskólinn rekur nú á fjós-
loftinu á Hvanneyri.
A rannsóknastofunni eru efna-
greind hey- og jarðvegssýni, sem,
koma annarsvegar frá bændum á
Vesturlandi, (tengist leiðbeininga-
þjónustunni) og hinsvegar af til-
raunareitum á Hvanneyri. Þessi
þáttur starfseminnar er fyrir-
ferðarmestur og fer ört vaxandi.
Auk þess eru gerðar ýmsar aðrar
mælingar, svo sem á eðliseigin-
leikum jarðvegs. Kennsla íefna- og
líffræðigreinum fer einnig fram á
rannsóknarstofunni, eftir því sem
aðstaðan leyfir.
Húsnæði á fjósloftinu hefur alla
tíð verið ófullnægjandi einkum
vegna öryggiskrafna. Vegna þessa
hefur m.a. alls ekki verið hægt að
sinna fitu- og trénisrannsóknum.
Rannsóknahúsið
Byggingin er hönnuð af arkitekt-
unum Ásmundi Harðarsyni og
Karli Erik Rocksén, (Stikan sf).
Verkfræðistofurnar Fjölhönnun og
Rafteikning önnuðust verkfræði-
vinnu. Gólfflötur er samtals um
640 ferm., þar af 95 ferm. í kjallara
og 115 ferm. í risi. Áætlaður kostn-
aður við bygginguna fokhelda og
frágengna að utan er tæpar 5 milj.
kr. Byggingaverktaki er Bygginga-
félagið Borg í Borgarnesi.
I húsinu verður fullkomin
aðstaða til fjölbreyttra rannsókna.
Þar er m.a. um að ræða efna-
greiningu á jarðvegs- og heysýnum
frá bændum til notkunar við
áburðar- og fóðurleiðbeiningar og
rannsóknir vegna jarðræktar- og
fóðurtilrauna á vegum Bænda-
skólans. Þá má nefna rannsóknir á
líf- og lífeðlisfræði og rannsóknir á
vegum nemenda Búvísindadeildar.
Kennsluaðstaða er einnig í hús-
inu. Hún er ætluð til verklegrar
kennslu í búvísinda- og bænda-
deild, einkum í efna-, jarðvegs- og
fóðurfræði, svo og almennri líf-
fræði.
Fyrirhugað er að byggja 100-200
ferm. gróðurhús í tengslum við
rannsóknahúsið. Við það eykst
notagildi þess að mun.
-mhg
40|fc
E
- 3 ' '
kmJi ;fá JS
Hjörleifur Guttormsson Helgi Seljan
Vopnafjörður - almennur fundur
Alþýðubandalagið á Voþnafirði boðar til almenns fundar með alþingismönnun-
um Helga Seljan og Hjörleifi Guttormssyni, þriðjudagskvöldið 28. júní kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Höfn í Hornafirði - almennur fundur
Alþýðubandalagið í Austur-Skaftafellssýslu boðar til almenns fundar með Hjör-
leifi Guttormssyni alþingismanni í Miðgarði á Höfn, fimmtudaginn 24. júní kl.
20.30.
Allir velkomnir. Stjórnin.
Djúpivogur - almennur fundur
Alþýðuþandalagið á Djúpavogi boöar til almenns félagsfundar með Hjörleifi
Guttormssyni alþingismanni í skólanum á Djúpavogi, miðvikudagskvöldið 23.
júní kl. 20.30.
Allir velkomnir. Stjórnin.
Margot Levrett leikur á klarinettu I
Norræna húsinu í kvöld. Ljósm.
-eik.
Norræna húsið
í kvöld:____________
Klarínetta
og píanó
í kvöld, þriðjudaginn 21. júní
heldur bandaríski klarinettleikar-
inn Margot Leverett tónleika í
Norræna húsinu. Anna Guðný
Guðmundsdóttir píanóleikari
leikur með á tónleikunum, sem
hefjast kl. 20.30. ✓
Efnisskrá tónleikanna er mjög
fjölbreytt, en leikin verða tónverk
eftir Schumann, Poulenc, Bern-
stein, Rachmaninov, Stravinsky og
Áskel Másson. Margot Leverett
lék verk Áskels „Blik“, nýlega í
Bloomington, Indiana,og vakti við
það tækifæri mikla athygli fyrir leik
sinn.
Ðakkafjörður - almennur fundur
Alþingismennirnir Helgi Seljan og Hjörleifur Guttormsson verða á almennum
fundi, miðvikudagskvöldið 29. júní kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Sumarmot AB -
Norðurlandskjördæmi eystra
Sumarmót AB í Norðurlandskjördæmi eystra verður haldið í Hrísey dagana
8.-10. júli. Gist verður í tjöldum. Fólk hafi með sér grilltól. Fastar ferðir frá
Arskógsströnd föstudag og laugardag. Dagskráin í stórum dráttum: Útsýnis-
ferð um eyjuna, kvöldvaka á laugardag riieð tónlistaleikverki (musikteater)
„Aðeins eitt skref“ með Kolbeini Bjarnasyni flautuleikara og Jóhönnu Þórhalls-
dóttur söngkonu. Fleira verður sér til gamans gjört. Varðeldur og fjöldasöngur
með mararorganundirspili. Upplýsingar gefa Steinar í 21740, Erlingur i 25520
og Hilmir í 22264.
Stjórn Kjördæmisráðs AB.