Þjóðviljinn - 05.07.1983, Side 4
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 5. júlí 1982
íþróttir Víðir Sigurðsson
íslandsmótið í knattspyrnu - 2. deild:_
Pálmiskaut Sand-
gerðingana í kaf
Guðmundur Torfason skoraði sigurmark Framara í Njarðvík.
Eftir fádæma slaka byrjun í 2.
deild íslandsmótsins í knattspyrnu
náðu FH-ingar heldur betur að rífa
sig uppúr deyfðinni þegar þeir
mættu Reynismönnum í Sandgerði
á laugardaginn. Úrslitin urðu stór-
sigur Hafnarfjarðarliðsins, 6-1, og
var Pálmi Jónsson í aðalhlutverki
því hann sá um þrjú markanna.
FH tók forystuna strax á annarri
mínútu, Jón Erling Ragnarsson
skoraði. Heimamenn efldust við
, mótlætið og Sigurjóni Sveinssyni
tókst að jafna, 1-1, á 14. mínútu.
Reynir lék af krafti næsta korterið
en síðan tók FH öll völd. Ólafur
Danivalsson renndi mjög óeigin-
gjarnt á Pálma sem kom FH yfir,
1-2, og rétt fyrir hálfleik óð Helgi
Ragnarsson upp frá miðju og bætti
við þriðja markinu. Fljótlega í síð-
2. deild
Úrslit leikja í 2. dcild íslands-
mótsins í knattspyrnu um
helgina:
Einherji-KA................... 0-0
KS-Völsungur....................2-1
ReynirS.-FH.....................1-6
Njarövik-Fram................. 0-1
Völsungur...........8 5 1 2 10- 5 11
KA..................7 3 3 1 12- 6 9
Njarðvik............8 4 1 3 10- 6 9
Fram...............6 4 11 7-3 9
Viðir...............7 4 1 2 7- 5 9
KS..................8 2 4 2 8- 8 8
FH..................7 2 2 3 11-10 6
Einherji............5 12 2 1-4 4
ReynirS.............8 1 2 5 5-17 4
Fylkir..............8 1 1 6 8-15 3
Markahæstir:
Pálmi Jónsson, FH............ 5
Hinrik Þórhallsson, KA.........4
Jón B. Guðmundsson, Fylki......4
Jón Halidórsson, Njarðvik......4
Hafþór Kolbeinsson, KS.........4
ari hálfleiknum skoraði 19 ára ný-
liði, Ingi G. Ingason, nýkominn
inná sem varamaður, fjórða mark-
ið og Pálmi bætti tveimur við, 1-6.
Undir lokin bjargaði Jón Örvar Ar-
ason markvörður Reynis sínum
mönnum frá enn háðulegri útreið
þegar hann varði tvívegis mjög vel,
fyrst frá Pálma sem var sloppinn í
gegn og síðan frá Magnúsi Páls-
syni sem var kominn í dauðafæri.
Það eina dæmt af
Eina markið sem skorað var í
leik Einherja og KA frá Akureyri á
Vopnafirði, Vopnfirðingur gerði
það með gullfallegu skoti, var
dæmt af vegna rangstöðu, heima-
mönnum til mikillar hrellingar.
Það var ekkert gefið eftir, KA var
heldur sterkari aðilinn í fyrri hálf-
leik og náði þokkalegu spili. Síðari
hálfleikur var hnífjafn og einkennd-
ist af mikilli baráttu sem leiddi til
þess að fjögur gul spjöld fóru á loft,
þrjú til heimamanna. Birkir
Sveinsson markvörður, Gústaf
Baldvinsson og Aðalbjörn Björns-
son voru bestir heimamanna en hjá
KA bar met á Guðjóni Guðjóns-
syni, Haraldi Haraldssyni og Ragn-
ari Rögnvaldssyni.
Framarar höfðu það
Frömurum tókst að knýja fram
sigur í Njarðvík á sunnudagskvöld-
ið, 0-1, en naumt var það. Fram
spilaði betur en Njarðvíkingar
fengu góð færi og hefðu jafnvel
verðskuldað annað stigið.
Fram byrjaði af krafti, strax á
annarri mínútu varði Ólafur Birgis-
son markvörður Njarðvíkinga gott
skot frá Hafþóri Sveinjónssyni.
Aðstæður voru erfiðar, strekkings-
vindur eftir endilöngum vellinum,
gekk á með skúrum og völlurinn
háll.
Eftir þrjár hornspyrnur í röð
skoruðu Framarar sigurmarkið á
14. mínútu. Sent fyrir og við fjær-
stöngina var Guðmundur Torfason
einn og óvaldaður og skallaði af
krafti í netið. Eftir það komu
Njarðvíkingar meira inní leikinn.
Jón Halldórsson komst í óvænt færi
á 29. mínútu eftir varnarmistök
Framara en Guðmundur Baldurs-
son varði laust skot hans vel.
Njarðvíkingar voru öllu at-
kvæðameiri í síðari hálfleik og Jón
skaut í stöngina utanverða á 5.
mínútu. Síðar þurfti Guðmundur
markvörður tvívegis að taka a hon-
um stóra sínum til að verja, fyrst
frá Ómari Ingvasyni og síðan úr
aukaspyrnu frá Guðmundi Val Sig-
urðssyni. Njarðvíkingar pressuðu
stíft undir lokin en náðu ekki að
jafna. Bestir þeirra voru Ólafur
Biörnsson, Guðmundur Valur og
Ómar, sem barðist vel, en Hafþór,
Sverrir Einarsson og Guðmundur
markvörður voru bestir hjá Fram.
- gsnii/Keflavík
Hafþór átti völlinn
Hafþór Kolbeinsson, hinn stó-
refnilegi leikmaður Siglfirðinga,
hreinlega átti völlinn þegar KS
fékk Völsung frá Húsavík í heim-
sókn á laugardaginn. Hann var all-
an tímann að skapa færi fyrir sjálf-
an sig og aðra, átti allan heiðurinn
af fyrra markinu og lagði upp það
síðara í 2-1 sigri Siglfirðinga.
Pað var jafnræði með liðunum í
fyrri hálfleik. Hafþór spólaði sig í
gegnum vörn Völsungs á 24. mín-
útu en Gunnari Straumland mark-
verði tókst að verja skot hans. Á
28. mínútu voru tveir Völsungar
einir í vítapunkti KS en annar
þeirra skaut í varnarmann og í
horn. Völsungar björguðu síðan á
línu frá Herði Júlíussyni rétt fyrir
hlé.
KS hóf síðari hálfleik með látum
og tók forystuna á 49. mínútu.
Hafþór var að stinga sér í gegnum
vörn Völsungs, varnarmaður náði
að pota boltanum frá honum en
sendi hann beint í eigið mark. Á
24. mínútu fékk síðan Hafþór bolt-
ann á miðju, lék á 3-4 varnar-
menn og skoraði með hörkuskoti af
20 m færi, 2-0. Fimm mínútum síð-
ar minnkuðu Völsungar muninn,
Kristján Olgeirsson skoraði með
þrumuskoti sem markvörður Sigl-
firðinga hálfvarði en náði ekki að
halda knettinum. Völsungar sóttu
talsvert eftir þetta og stanslaust síð-
ustu fimm mínúturnar en náðu
ekki að jafna.
- JT/Siglufirði
Jónatan gerði tvö
Við áttum eftir að nefna marka-
skorarana frá fimmtudagskvöldinu
þegar Víðir vann Fylki 4-2 í
Laugardalnum. Jónatan Ingimars-
son 2, Guðmundur Jens Knútsson
og Baldvin Gunnarsson skoruðu
fyrir Víði en Jón Bjarni og Guð-
mundsson og Sighvatur Bjarnason
fyrir Fylki.
- VS
Islandsmótið í knattspyrnu - 3. deild:
Gústaf, Þorleifur og
Sigurður óstöðvandi
Skoruðu samtals tólf mörk fyrir félög sín.
Selfyssingar styrktu verulega
stöðu sína á toppnum í A-riðli 3.
deildarinnar í knattspyrnu á föstu-
dagskvöldið er þeir fengu Grind-
víkinga í heimsókn. Selfoss sigraði
2-0 og er því í efsta sætinu eftir fyrri
umferðina.'
Grindavík lék undan vindi í fyrri
hálfleik og sótti stíft án þess að
skapa sér umtalsverð færi. Eftir um
20 mínútur fengu síðan Selfyssing-
ar nokkrar hornspyrnur í röð. Fyrst
var bjargað á línu frá Sævari Sverr-
issyni en pressan endaði með því að
Sigurlás Þorleifsson skallaði óvald-
aður í netið, 1-0 í hálfleik. Selfyss-
ingar ógnuðu meira í síðari hálf-
leik og innsigluðu sigurinn með fal-
legu marki. Eftir stórgóðan undir-
búning fékk Sigurlás boltann við
endamörk, lék skemmtilega á
varnarmenn og renndi boltanum á
Heimi Bergson sem sendi hann í
netið. Eftir það höfðu heimamenn
öll tök á leiknum og voru nær því
að bæta við þriðja markinu en
Grindvíkingar að minnka muninn.
Þorleifur Sigurðsson var maður
kvöldsins á Akranesi þegar HV
sigraði Snæfell úr Stykkishólmi 5-
0. Leikurinn var einstefna að marki
Snæfells og Þorleifur skoraði tví-
vegis í fyrri hálfleik. í þeim síðari
héldu HV-menn uppteknum hætti
og vel það. Magnús Ingvason
skoraði fyrst og síðan Þorleifur tvö
í viðbót, þar með fjögur alls. Stór-
sigur í höfn. Einn Snæfellsmanna,
Ingvar Jónsson, var rekinn útaf í
síðari hálfleik fyrir mótmæli.
Víkingur, Ólafsvík, sigraði
Ármann 1-0 í tvísýnum leik á Mela-
vellinum. Eina markið kom í síðari
hálfleik, Logi Úlfljótsson sendi vel
fyrir Ármannsmarkið og Viðar
Gylfason skoraði af stuttu færi.
Rétt á eftir áttu Gunnar Örn
Gunnarsson þrumufleyg í þver-
slána á Ármannsmarkinu. Ármenn-
ingar sóttu mjög í lokin og þá var
dæmt mark af Ármanni, Agli
Steinþórssyni, vegna rangstöðu, en
á afar kostulegan hátt. Línuvörður
lyfti flagginu, lét það detta strax og
Grétar Norðfjörð dómari benti á
miðju. Víkingar bentu á línu-
vörðinn. Grétar skeiðaði til hans
og þeir komust að þeirri niður-
stöðu að um rangstöðu hefði verið
að ræða.
Skallagrímur vann ÍK 2-0 í Kóp-
avogi í jöfnum leik. Gunnar Jóns-
son skoraði á 11. mínútu, lék á út-
hlaupandi markvörðinn. ÍK sótti
mjög í fyrri hálfleik en leikurinn
jafnaðist í þeim síðari. Tólf mínút-
um fyrir leikslok skoraði Gunnar
svo aftur af stuttu færi eftir snarpa
sókn og sigur Borgnesinga var í
höfn.
Gústaf gerði fimm!
Gústaf Björnsson, fyrrum Fram-
ari, skoraði hvorki meira né minna
en fimm mörk þegar Tindastóll
gjörsigraði Val frá Reyðarfirði, 6-
0, í B-riðlinum. Þar með ógnar
hann nú Sigurlási Þorleifssyni veru-
lega í keppninni um markakóngs-
titil deildarinnar.
Sigurfinnur Sigurjónsson
skoraði fyrsta mark leiksins og síð-
an var komið af Gústafi, hann
skoraði tvívegis fyrir hlé. í síðari
hálfleik gerði hann síðan þrennu,
eitt úr aukaspyrnu og síðan tvö úr
vítaspyrnu. Sigurfinnur var rekinn
af leikvelli snemma í síðari hálfleik
en það kom Reyðfirðingum að
engum notum.
Þróttur frá Neskaupstað fékk
harðvítuga mótspyrnu á Horna-
firði frá botnliði Sindra en vann
loks stórsigur, 5-1. Sigurður
Friðjónsson skoraði eftir horn-
spyrnu á 20. mínútu en eftir það
náði sindri betri tökum á leiknum
og Pétur Sigurðsson jafnaði rétt
fyrir hlé.
Loks þegar 20 mínútur voru eftir
skoraði Sigurður aftur, skaut í
stöngina og inn utan vítateigs, og
þar með tóku Þróttarar völdin.
Guðmundur Ingvason skoraði af
stuttu færi, 1-3, Sigurður sitt þriðja
eftir góðan samleik, 1-4, og hinn 18
ára gamli miðvörður, Eysteinn
Kristinsson, brá sér í sóknina á lok-
amínútunni og gerði fimmta mark-
ið eftir hornspyrnu.
Huginn vann Magna frá Greni-
vík 2-1 á Seyðisfirði en naumt var
það. Smári Guðjónsson skoraði
fyrst með skalla fyrir Hugin en Jón
Ingólfsson jafnaði úr vítaspyrnu.
Skömmu fyrir leikslok fékk Magni
annað víti en Helgi Einarsson
markvörður Hugins varði með til-
þrifum, sveif eins og köttur niður í
hornið og varði fast skot Jóns. Rétt
á eftir tryggði Sveinbjörn Jóhanns-
son sigur Hugins með stórkostlegu
marki, beint úr aukaspyrnu af 35 m
færi uppí samskeytin. Elstu
Seyðfirðingar muna vart eftir öðru
eins.
HSÞ sigraði Austra nokkuð
óvænt, 1-0, í Mývatnssveitinni,
nokkuð sanngjarnt eftir atvikum.
Þórhallur Guðmundsson fær mark-
ið á sinn reikning en fékk góða
aðstoð frá varnarmanni Austra
sem sá um endahnútinn.
- VS
3. deild A-riöill:
HV-Snæfell
Ármann-Víkingur Ói
IK-Skallagrimur
.7 6 0 1 18-8 12
Skallagrimur 6 5 1 0 15-4 11
Grindavík 7 5 0 2 13-11 10
VíkingurÓI .7 2'2 3 9-10 6
HV 7 3 0 4 14-19 6
(K .7133 10-10 5
Ármann 6 0 1 5 3-9 1
Snæfell 5 0 1 4 3-14 1
B-riöill:
Tindastóil-Valur Rf.. 6-0
Sindri-Þróttur N
HSÞ-Austri
2-1
Tindastóll ...6 5 1 0 18-3 11
Austri ...7 5 0 2 14-6 10
ÞrótturN ...7 5 0 2 14-8 10
Huginn ...7 4 12 10-8 9
Magni
HSÞ ...7 2 0 5 6-12 4
ValurRf ...6 2 0 4 5-13 4
Sindri ...7 0 0 7 5-22 0
HSÞ hafa vcrið dæmd stigin út-
úr tapleik gegn Magna hjá hér-
aðsdómstóli en Magnamenn hafa
áfrýjað dómnum og niðurstaða
því ekki komin.
Markahæstir:
Sigurlás Þorleifsson, Selfossi....9
Gústaf Björnsson, Tindasfól.......8
Sigurður Friðjónsson, Þrótti N....7
Þorleifur Sigurðsson, HV..........6
Bjarni Kristjánsson, Austra....,..5
Ólafur Petersen, ÍK...............5