Þjóðviljinn - 19.07.1983, Page 1
• » M
1. deild
Úrstit leikja i 11. umferö íslands-
mótsins i ííRSttspyrnu urðu sem hér
segir:
Víkingur-ÍA......................1:2
Þór-KH.....;.....................2:0
Þróttur-ÍBÍ......................1:0
Breiöabilk-Valur............... 2:2
ÍBV-ÍBK..........................1:2
Akranes.........11 6 1 4 19-8 13
Breiðablik......11 4 5 2 12-7 13
Vestm.eyjar.....11 4 4 3 20-13 12
Þór.............11 3 5 3 12-12 11
Keflavik........10 5 1 4 14-15 11
Valur...........11 3 4 4 16-20 10
Þróttur.........11 3 3 4 10-18 ,10
ísafjörður......11 2 5 4 11-15 9
Vfkingur........10 1 6 3 7-10 8
Markahæstir:
Ingi Björn Albertsson Val........ 8
Hlynur Stefánsson (BV .............7
Guðjón Guðmundsson Þór.............6
Kári Þorleifsson ÍBV............. 5
SigurðurGrétarsson, Breiöabl.....5
Sigþór Ómarsson ÍA.................5
Næstu leikir:
IA - Breiöablik 23. júli, ÍBI - Þór 25. júií,
Valur - (BV 25. júlí, KR - Víkingur 26.
júlf, ÍBK - Þróttur 26. júli.
1. deiid kvenna:
Skaginn
vann
Akranes vann Vfking með einu
marki gegn engu í 1. deiid kvenna i
knattspyrnu á Vikingsvellinum sl.
sunnudag. Mark Skagastúlkna var
skorað þegar 15 minútur voru af fyrri
hátfleik og þar var aö verkl Vanda Sig-
urgeirsdóttir.
Skagastúlkurnar léku undan
strekkingsvindi I fyrri hálfleik og
sóttu þá mun meira. Þó áttu Víkings-
stúlkurnar nokkrar skyndisóknir sem
voru hættulegar. Hrefna markvörður
Vikings átti góðan leik f markinu og
geta Víkingsstúlkur þakkað henni
fyrir að hafa ekki tapað meö meirl
mun.
Næstu leikir í 1. deild verða á fimm-
tudaginn. Þá leika Breiðablik og Val-
ur, Víðir og ÍA. KR og Vikingur leika á
föstudag.
MHM.
Watson
öllum
sterkari
Bandariski golfleikarinn Tom Watson,
sem verið hefur í öldudal undanfarin ár,
sigraði í hinu ægisterka móti „British -
open“ sem haldið var á St. Andrews-
golfvellinum í Skotlandi. Wakson hefhr
átt i nokkrum vandræðuin vegna „sveifl-
unnar", sem honum hefur ekki þótt
nándar nserri góð og sigur hans kom því
nokkuð á óvart þó engum djljist að þar
fari frábær golfleikari. Watson lék af
frhæru öryggi á meðan Craig Stadler frá
Bandarfkjunum, sem hafði leikið af
snilld fyrstu hringina, brotnaði undan
álaginu og varð að láta sér lynda deíit 11.
sætiö.
Wtson lék holurnar 72 á 275 höggum. I
2. sæti varð H. Irwin frá Bandaríkjunum
með 276 högg. Graham Marsh ÁstraUu
varð í 3. sætl mcð 277 högg og gamla
kempan Lee Trevino, fyrrum Mexfkó-
búl, keppir nú fyrir Bandaríkin, varð í 4.
sæti með 278 högg. Bellesteros frá Spáni,
sem margir telja besta golfleikara heims
um þessar mundir, varð f 5. - 6. sæti.
2. deild
Staðan f 2. deild eftir leiki helgarinnar
er nú þessi:
Fram..............9 6 2 1 13-6 14
KA...............10 5 4 1 17-8 14
Völsungur........10 5 2 3 11-8 12
Vlðlr............11 6 2 3 9-7 12
Njarðvík.........11 5 1 5 13-11 11
KS...............11 2 6 3 10-11 10
Einherji..........8 3 3 2 5-5 9
Reynir...........11 1 3 7 7-22 5
Fylkir...........11 1 2 8 12-18 4
Þriðjudagur 19. júlí 1983 Þ.TÓÐVILJINN - SÍÐA 9
i . ..... —ii'
Vésteinn Hafsteinsson - Fleygði kringlunni 65,60 metra sem
er nýtt íslandsmet. Átti tvö önnur köst yfir 60 metrana.
Sigurður T. Sigurðsson - nýtt íslandsmet í stangarstökki,
5,25 metrar.
Bikarkeppni FRI um helgina- 1. deild:
oi
Vésteinn og Sigurður T.
settu glæsileg íslandsmet
„Ég held að Sigurður eigi að geta
stokkið hærra. Hann hefur verið
að æfa með nýja stöng og það tekur
alltaf sinn tíma að aðlaga sig
breyttum aðstæðum. Ég veit til
þess að hann hefur stokkið 5,37
metra á æfingu þannig að ekki er
óraunhæft að hann stökkvi þetta
5,40-5,50 við toppaðstæður,“ sagði
frjálsíþróttaþjálfarinn kunni,
Ólafur Unnsteinsson eftir að Sig-
urður T. Sigurðsson sveiflaði sér
yfir 5,25 metra seinni keppnisdag-
inn í bikarkeppni FRÍ sem haldin
var á Laugardalsvelli og Kópavogs-
velli um helgina. Vésteinn Haf-
steinsson gerði það heldur ekki
endasleppt. Hann kastaði kringl-
unni 65,60 metra og bætti 9 ára
gamalt með Erlends Valdimars-
sonar um röskan meter. Aðstæður
til keppni í kringlukasti voru með
allra besta móti, hávaðarok. Engin
vindtakmörk eru þegar keppt er í
kringlukasti.
Það hefur runnið mikið vatn til
sjávar frá því að Valbjörn Þorláks-
son setti Islandsmet sitt á Melavell-
inum árið 1958, 4,50 stökk hann á
stálstöng. Þá var heimsmetið 4,77
og þótti gott enda notaði
heimsmethafinn bambusstöng.
Finninn Nikkola fór fyrstur yfir 5
metra árið 1962 og uppúr því fóru
að koma betri og betri stangir á
markaðinn. Stangirnar eru sér-
hannaðar fyrir hvern stökkvara.
Spurt er um hæð og þyngd. Sigurð-
ur hefur verið að æfa sig með nýja
rándýra stöng frá V-Þýskalandi og
hefur gefist vel.
Ekki er víst að Vésteinn fái að
vera með met sitt svo lengi í friði,
því Óskar Jakobsson bankar á.
Hann hefur kastað kringlunni
63,24 metra og átti nýlega kast yfir
65 metra sem mældist hárfínt ógilt.
Kastasería Vésteins var góð.
Hann átti þrjú köst sem fóru yfir 60
metra og í upphituninni kastaði
hann kringlunni yfir 65 metra.
Um önnur úrslit í bikarkeppn-
inni vísast til bls. 10 og 11.
Furðuleg úrslit í 2. deild, 10. umferð:
Öllum
Þau undarlegu úrslit áttu sér í
leikjum 2. deildar um helgina, að
föstudeginum meðtöldum, að öll-
um leikjum 10. umferðar lauk með
einum og sömu úrslitunum, 1:0.
Á föstudagskvöldið fór fram einn
leikur. Völsungar mættu FH á
heimavelli og var þar um afar
mikilvægan leik að ræða fyrir bæði
liðin, ekki síst fyrir FH sem varð að
vinna til að eygja möguleika á sæti í
1. deild næsta keppnistímabil.
Pálmi Magnússon skoraði eina
mark leiksins fyrir FH á 60.
mínútu.
Þá vann Einherji Víði, 1:0. Gúst-
af Baldvinsson var ekkert að tví-
nóna við hlutina og skoraði beint
úr aukaspyrnu af 50 metra færi! 1:0
þar.
Þá höldum við til Siglufjarðár,
en þar öttu heimamenn kappi við
Fram. Guðmundur Torfason
skoraði eina mark leiksins í síðari
hálfleik.
Og á sunnudagskvöldið fóru svo
leikjum lauk 1:0!
fram tveir leikir.
KA vann Fylki 1:0 á Hallarflöt.
Hinrik Þórhallsson skoraði eina
mark leiksins úr vítaspyrnu þegar
stutt var til leiksloka. I Sandgerði
léku Reynir og Njarðvík. Haukur
Jóhannsson skoraði fyrir Njarðvík í
fyrri hálfleik.
Næstu leikir
Næstu leikir í 2. deild karla á
íslandsmótinu verða sem hér segir:
22. júlí, FH - Víðir á Kaplakrika-
velli. 22. júlí, Njarðvík - Fylkir í
Njarðvík. 24. júlí, Fram - Völsung-
ur á Laugardalsvelli. 25. júlí, Ein-
herji - Reynir á Vopnafirði. 25.
júlí. KA - KS á Akureyri.
íslands-
meistari
í hjólreiðum
Pálmar Kristmundsson sigraði í
karlaflokki á meistaramóti Islands
í hjólreiðum sem haldið var í þriðja
sinn um helgina. Pálmar hjólaði
110 kílómetra vegalengd á 3 klst., 4
mínútum og 8 sekúndum. Annar
varð Frosti Sigurjónsson og í þriðja
sæti kom Guðmundur Jakobsson.
í unglingaflokki sigraði Ingólfur
Einarsson, en hann kom sekúndu
fyrr í mark en næsti maður, Sigurð-
ur Gíslason.
Keppendur á mótinu voru níu
talsins.