Þjóðviljinn - 23.07.1983, Blaðsíða 4
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 23.-24. júlí 1983 _
stjjórnmál á sunnudegi
BRAUTRYÐJANDINN
Dagna sem ríkisstjórnin
var mynduð lýsti forsætis-
ráðherra því yfir að hann
myndi ekki fara troðnar
slóðir heldur reyna að fitja
upp á nýjungum í starfi
sínu sem forsætisráð-
herra. Steingrímur Her-
mannsson hefur staðið
við þessar yfirlýsingar og
má þar minna á eftirfar-
andiatriði:
1.
Ríkisstjórnin gengur lengra í
kjaraskerðingu en nokkur önnur
ríkisstjórn í sögu lýðveldisins. Ef
verkalýðshreyfingin ætlar að ná
kaupmætti launanna 1982 í desem-
ber næstkomandi verður að hækka
kaupið um 40%. Kaupskerðingin
er nærri 30%. Hér er um að ræða
mestu fjármagnsflutninga frá
launafólki sem um getur fyrr og
síðar hér á landi. Á þessu sviði er
Steingrímur Hermansson braut-
ryðjandi.
2.
Ríkisstjórnin hefur bannað kjar-
asamninga í sjö mánuði. Semji
atvinnurekandi og launamaður um
4,1% kauphækkun 1. október
næstkomandi - en ekki 4,0% - hafa
þeir gerst sekir um lögbrot. Aldrei
áður hafa siík lög verið sett á ís-
landi. Þannig ryður Steingrímur
Hermannsson brautina.
3.
Ríkisstjórnin bannar vísitölu
með bráðabirgðalögum í tvö ár.
Þessi lagasetning á sér ekki for-
dæmi. Hún er nýjung. Steingrímur
Hermannsson er brautryðjandi.
4.
í utanríkismálum koma braut-
ryðj andahæfileikar forsætisráðher-
rans einkar vel fram. Sérstaklega
hefur aronskan eignast óvenju-
legan bandamann. Nú á að hefja
byggingar flugstöðvar. Trúr aron-
skunni telur forsætisráðherra að
Bandaríkjamenn eigi að borga
hana að fullu. Hann samþykkir þó
að leggja stórfé frá íslendingum í
þessa framkvæmd sem tekið verð-
ur að láni erlendis. Jafnframt er
það skoðun forsætisráðherrans að
Bandaríkjamenn eigi að gefa ís-
lendingum höfn - í Helguvík. Þar
eiga Bandaríkjamenn að fá leyfi til
þess að koma fyrir hernaðarmann-
virkjum í stórauknum mæli. Með
þessum framkvæmdum er verið að
ryðja aronskunni brautina hér á
landi og skammt sýnist í þá afstöðu
sem Eggert Haukdal hefur lýst að
ameríkaninn eigi að borga hér veg-
ina líka. Þarna er unnið brautryðj-
endastarf.
5.
Með hernaðarframkvæmdum á
suðvesturlandi flyst meginfram-
kvæmdaþunginn yfir á þennan
landshiuta. Til þess að framkvæma
byggðastefnuna hyggst Framsókn-
arflokkurinn nú - ekki bæta stöðu
almennra fslenskra atvinnuvega úti
á landi - heldur koma fyrir nýjum
Steingrímur Hermannsson hefur gerst brautryðjandi í því að leggja pólitísk markmið Framsóknarflokksins
fyrr og síðar að velli á fyrstu vikum samvinnunnar við Geir Hallgrímsson og Sjálfstæðisflokkinn.
• Mesta kjara-1
skerðingin
• Samningabann í
7 mánuði
• Vísitölubann í 2 ár
• Aronskan innleidd
• Ný byggðastefna
• Samstarfsmönnum
hent á dyr
• Útsala á ríkis-
fyrirtækjum
• íhaldssamvinna
óskakostur
• Framsóknarfáninsi
í hálfa stöng
herstöðvum, tveimur fremur en
einni. Verður önnur þeirra á Lang-
anesi en hin á Vestfjörðum. Þetta
er nýjung við framkvæmd
byggðastefnunnar.
6.
Það ber einnig að telja fram í
þessum bálki hvernig forsætisráð-
herrann hefur staðið sig í því að
halda löggjafarsamkomunni í
skefjum. Þingið fær allranáðar-
samlegast að koma saman 10. okt-
óber í haust. Allar óskir um að það
komi saman fyrr eru hafðar að
engu. Stjórnarandstöðunni er
varla svarað þegar hún ber fram
fyrirspurnir. Um leið og því er neit-
að að löggjafarsamkoman megi
setjast á rökstóla er því hótað að
beita hegningarlögunum á verka-
lýðinn ef hann fer í verkfall. Þessi
framkoma við stjórnarandstöðuna
og verkalýðshreyfinguna og þetta
virðingarleysi við lýðræðið er nýj-
ung; aldrei áður hefur lýðræðinu
og þingræðinu verið sýnd jafndjúp-
stæð fyrirlitning.
7.
Þegar ríkisstjórnin var mynduð
henti forsætisráðherrann á dyr
samstarfsmönnum sínum úr síð-
ustu ríkisstjórn þeim Ingvari Gísl-
asyni, Ólafi Jóhannessyni og Tóm-
asi Árnasyni. Það er bersýnilegt að
þessum mönnum fellur mjög þungt
hvernig formaður Framsóknar-
flokksins stendur hér að verki.
Þessi framkoma er líka nýjung -
brautryðj andastarf.
8.
Ríkisstjórn undir forystu Fram-
sóknarflokksins hefur yfirleitt lagt
áherslu á það að hún væri ekki á
yfirborðinu amk. að framkvæma
kröfur íhaldsins í einstökum mál-
um. Nú ætlar ríkisstjórn Steingríms
Hermannssonar að selj a fyrirtæki á
félagslegum grunni. Þetta er nýj-
ung í starfi Framsóknarflokksins.
9.
Aldrei áður hefur Framsóknar-
flokkurinn myndað ríkisstjórn með
Sjálfstæðisflokknum án þess að
nokkur alvarleg tilraun væri gerð
til þess að mynda aðra ríkisstjórn.
Þegar Alþýðubandalagið fór með
stjórnarmyndunarumboð neitaði
Framsókn tilboðum okkar um
aðgerðir í efnahagsmálum og hún
neitaði líka að gera gagntillögur.
Einnig það er nýjung.
10.
Þegar þessi bálkur er lesinn kem-
ur í ljós hversu mikill
brautryðjandi Steingrímur Her-
mannsson er þegar allt kemur til
alls. En niðurstaðan hlýtur líka að
verða sú að hann hefur sem for-
maður Framsóknarflokksins með
einu höggi lagt að velli alla fortíð
flokksins og pólitísk markmið fyrr
og síðar. Þegar svo er háttað skilst
að enn eru opin ný svið til
brautryðjendastarfs við að fram-
kvæma stefnu Sjálfstæðisflokksins
í nafni Framsóknarflokksins. Viss-
ulega ber að viðurkenna að
Steingrímur Hermannsson hefur
síðustu vikumar ekki farið troðnar
slóðir; en það er skoðun margra að
hanr. hafi anað út í forina.
.zmm