Þjóðviljinn - 23.08.1983, Qupperneq 2
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 23. ágúst 1983
íþróttir
Umsjón:
Víöir Sigurðsson
íbróttir
Þriðjudagur 23. ágúst 1983 , ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Sannfærandi
sigur United
Manchester Unitcd vann góðan sigur, 2-0, á Li-
verpool í opnunarleik ensku knattspyrnunnar, úr-
slitaleiknum um góðgerðarskjöldinn, Charity
Shield. United var betri aðilinn í þcssum árlega leik
Englands- og bikarmeistaranna og leikur liðsins lof-
aði góðu fyrir baráttuna í vetur.
Það var Bryan Robson sem skoraði bæði mörk
United, á 23. og 63. mínútu, bæði af stuttu færi.
Liverpool fékk nokkur ágæt tækifæri, Kenny Dalg-
lish átti m.a. skot í þverslá, en United hefði einnig
gctað bætt við markatöluna.
Víkingar unnu
í eldri fiokki
Víkingar sigruðu Val, 2-0, í úrslitaleik „Oldunga-
deildarinnar" í knattspyrnu en þar keppa leiktnenn
30 ára og eldri. Pessi lið höfðu unnið sigur í sínum
riðlum og úrslitaleikurinn fór fram í Laugardalnum
á sunnudaginn. Leikurinn var skemmtilegur og
spennandi en Víkingar skoruðu bœði mörk sín ífyrri
hálfleik, Kári Kaaber og síðan Páll Björgvinsson úr
vítaspyrnu.
Dusseldorf
byrjar vel
Atli Eðvaldsson, Pétur Ormslev og félagar í Dúss-
eldorf hafa byrjað vel í vestur-þýsku „Bundeslig-
unni“ í knattspyrnu. Þeir sigruðu Köln 2-0 í annarri
umferð á fimmtudagskvöldið og hafa 3 stig úrfyrstu
tveimur leikjunum. Rudi Bommer skoraði bæði
mörkin. Stuttgart, félag Ásgeirs Sigurvinssonar,
gerði jafntefli, 2-2, í Kaiserslautern og hefur einnig
hlotið þrjú stig. Meistarar Hatnburger unnu Dort-
mund 2-1 á útivelli og nýliðar Uerdingen komu
áfram á óvart, sigruðu Frankfurt 5-2 og hafa skorað
níu mörk í tveimur fyrstu umferðunum.
Tvöfalt
heimsmet
Ulrike Mayfarth, Vestur-Þýskalandi, og Tamara
Bykova, Sovétríkjunum, vippuðu sér báðaryfir 2,03
metra í hástökki kvenna í Evrópubikarkeppninni í
frjálsum íþróttum í London um helgina. Þœr deildtt
þar með sér nýju heimsmeti.
Austur-Þýskaland sigraði bæði í karla- og kvenna-
flokki í London en þar kepptu bestu þjóðirnar í
A-riðli. Sovétríkin lentu í öðru sæti í báðum en
Vestur-Þjóðverkjar urðu þríðju í karlaflokki, Tékk-
ar í kvennaflokki.
ÍA nálgast tit-
ilinn óðfluga
Fátt eitt getur komið í veg fyrir
að Skagamenn verði íslandsmeist-
arar í knattspyrnu í ár. Þó sagt sé af
mörgum að allt geti gerst í knatt-
spyrnu, þá má mikið gerast til að
það bregðist. Þeir eru með tveggja
stiga forystu og í raun þriggja þvi
markatala þeirra er sú langbesta.
En þrátt fyrir yfirburði sem Skaga-
menn hafa ótvírætt þessa stundina,
þá er liðið í einhverri lægð sem
stendur. Um það ber leikurinn
gegn ísfirðingum á laugardaginn
vitni, ÍA vann að vísu 3-0, en oft
hafa sést betri tilþrif á Akranesi.
Skagamenn byrjuðu leikinn af
Sigurður Aðalsteinsson Víkingur hefur fót á knettinum og sekúndu síðar hafði hann skorað fyrra mark liðs
síns gegn IBV. Mynd: -eik.
Víkingarnir loks komn-
ir úr mestu hættunni
Víkingar virðast vera komnir á
rétta braut í 1. deildinni í knatt-
spymu eftir slakt gengi mestan hluta
sumars. Á sunnudaginn lögðu þeir
Eyjamenn að velli, 2-0, á Laugar-
dalsvelli eftir markalausan fyrri hálf-
leik.
Fyrri hálfleikur var mjög slakur,
Vestmannaeyingar heldur sterkari
án þess að skapa sér umtalsverð
færi.
Seinni hálfleikur var öllu fjör-
meiri. Á 54. mínútu sköpuðu Eyja-
menn sér hættulegt færi. Þórarinn
Þórhallsson á þá góða sendingu inn-
fyrir vörn Víkings þar sem Ágúst
Einarsson kom aðvífandi en Óg-
mundur hafði hönd á boltanum. Á
68. mínútu fá Eyjamenn sitt besta
færi í leiknum, Ómar Jóhannesson
komst þá einn innfyrir vörnina, átti
aðeins Ögmund eftir en Ögmundur
bjargaði með stórgóðu úthlaupi. Á
sömu mínútu fékk Ómar annað
upplagt tækifæri, en skalli hans frá
markteig var of laus. Á 72. mínútu
kom síðan fyrsta mark leiksins.
Þórður Marelsson á þá þversend-
ingu frá hægri kanti, boltinn barst til
Sigurðar Aðalsteinssonar á vinstra
markteigshorni sem skaut boltanum
efst í stöngina og þaðan í netið, 1-0.
Eftir markið dofnaði nokkuð yfir
Eyjamönnum en Víkingar hresstust
að sama skapi. Eyjamenn björguðu
á línu frá Heimi. Heimir innsiglaði
sigur Víkings með marki á 85. mín-
útu eftir að hafa haft betur í baráttu
við Valþór og leikið á Aðalstein
markvörð.
Ögmundur var bestur Víkinga,
' mjög öruggur í markinu. Heimir og
Aðalsteinn áttu góða spretti. í slöku
Eyjaliði var Hlynur bestur, aðrir
spiluðu undir getu. Kári Þorleifsson
lék ekki með Eyjamönnum, hættur
að æfa. Líklega ekkert allt of sáttur
við þjálfarann eftir að hafa verið
hvfldur í bikarleiknum við FH.
Ágætur dómari var Ragnar Örn
Pétursson.
-Frosti-
miklum krafti og boltinn fór ekki af
vallarhelmingi Isfirðinga í sextán
mínútur. Stöðug pressa, fjöldi
horna og sífelld hætta við ísa-
fjarðarmarkið. En þá rönkuðu ís-
firðingar við sér og áttu síðan ekki
neitt minna í fyrri hálfleiknum.
Einungis er hægt að minnast
þriggja færa fyrir leikhlé. Skoti Sig-
urðar Jónssonar á 8. mínútu sem
Hreiðar Sigtryggsson markvörður
ÍBÍ varði vel, skalla sama leik-
manns yfirá 25. mínútu og síðan því
besta, Jón Oddsson Isfirðingur
komst innfyrir vörn f A, Bjarni Sig-
urðsson markvörður kom út á móti
honum. Jón renndi boltanum
framhjá honum og inn var hann að
fara þegar Jón Askelsson kom á
fullri ferð og bjargaði í horn. Sem
sagt, fyrri hálfleikur daufur.
Á 53. mínútu átti Ámundi Sig-
mundsson hörkuskot að Skaga-
markinu eftir aukaspyrnu, rétt
framhjá. Þremur mínútum síðar
skoraði ÍA sitt fyrsta mark. Horn-
spyrna eftir að Hreiðar markvörð-
ur ÍBÍ hafði slegið yfir þrumuskot
Jóns Áskelssonar lengst utanaf
velli. Sigurður Jónsson tók hana,
sendi beint á kollinn á nafna sínum
Lárussyni og inn fór boltinn.
Sex mínútum sðar kom mark
númer tvö. AUan heiður af því átti
Hörður Jóhannesson. Hann einlék
á fjölda fsfirðinga, renndi síðan
knettinum á Ólaf Þórðarson sem
stóð einn og óvaldaður á markteig
og átti ekki í neinum vandræðum
með að skora, 2-0.
„Ágætt að vinna, en...
„Það var ágætt að vinna svona
stórt, en þetta var samt sennilega
lélegasti leikurinn okkar í sumar,
að Breiðabliksleiknum undan-
skildum", sagði Björn Árnason,
þjálfari Þórs, eftir að menn hans
höfðu unnið stórsigur, 4-0, á Þrótti
úr Reykjavík. Leikur félaganna í 1.
deildinni í knattspyrnu fór fram á
Akureyri á föstudagskvöldið.
Leikurinn var frekar slakur en
þó brá fyrir ágætu spili á köflum hjá
báðum liðum, meira hjá Þórsur-
um. Ekkert markvert gerðist fyrr
en á 26. mínútu þegar Halldór
Áskelsson, Þór, og Árnar Friðriks-
son, Þrótti, fengu eldrautt spjald
hjá dómaranum fyrir að sparka
hvor í annan góða stund. Bæði lið
léku því með 10 mönnum það sem
eftir var.
Á 35. mínútu kom fyrsta Þórs-
markið. Guðjón Gumundsson, ný-
kominn inná sem varamaður, átti
stungusendingu í gegnum vörn
Þróttar, Bjarni Sveinbjörnsson
komst einn í gegn og lyfti boltanum
yfir Guðmund markvörð Erlings-
son og í netið. Annað mark kom
aðeins þremur mínútum síðar,
Óskar Gunnarsson renndi knettin-
um á Sigurbjörn Viðarsson, hann
skaut föstu skoti, Guðmundur
varði en hélt ekki boltanum og Nói
íslandsmótið í knattspyrnu - 4. deild:
Haukar og Stjarnan í úrslit
Örn skoraði sex á Patró — Elli svarti með sitt árlega gegn borðtennislandsliði Víkverja
Haukar úr Hafnarfirði og Stjarnan
úr Garðabæ tryggðu sér um helgina
sæti í úrslitakeppni 4. deildarinnar í
knattsm'rnu. Haukar með því að
sigra Oðin 9-0 og Stjarnan með
tveimur góðum sigrum, 3-1 gegn ÍR
á fimmtudagskvöldið og 5-0 gegn
Létti á laugardag. Haukar, Stjarnan
og Víkverji leika saman í riðli í úrslit-
unum og eitt þeirra kemst upp í 3.
deild. Hvöt, Leiftur og Leiknir frá
Fáskrúðsfirði berjast um hitt lausa
sætið í 3. deild og hefjast úrslitin ann-
að k\ ild. Þá mætast Víkverji og
Stjarnan á Melavellinum og Hvöt og
Leiftur á Blönduósi. Leikið er heima
og heiman í úrslitakeppninni.
Úrslit í 4. deild um helgina urðu
sem hér segir:
A-riðill:
Óöinn-Haukar.........................0-9
Afturelding-Reynir Hn................4-2
Hrafnaflóki-Stefnir..................4-8
Nóg af mörkum og flest þeirra
gerði Örn Hólm fyrir Stefni í tólf
marka leiknum á Patreksfirði, sex
talsins. Hafþór Kristjánsson skoraði
tvö fyrir Aftureldingu, Lárus Jóns-
son og Ríkharður Jónsson eitt hvor.
Staðan:
Haukar...............12 10 1
Afturelding..........12 9 2
Reynir Hnífsdal......12
Stefnir..............11
Bolungarvik..........12
Hrafnaflóki.........11
Óðinn................10
B-riðill:
ÍR-St|arnan........................1-3
Hafnir-Augnablik...................0-3
Grótta-Grundarfjörður..............1-3
Léttir-Stjarnan....................0-5
Stjarnan þurfti aðeins jafntefli
gegn Létti á laugardag eftir sigurinn
á IR en þeir Garðbæingar létu sér
það ekki nægja heldur unnu stór-
sigur.
Slæm byrjun í mótinu felldi
Augnabliksmenn og sigurinn gegn
Höfnum var ekki nóg. Eitt mark-
anna þar gerði Sigurður Halldórs-
son, tvíburinn eldsnöggi.
Lokastaðan:
Stjarnan.............12 8 3 1 30-7 19
Augnablik............12 8 2 2 25-15 18
ÍR...................12 8 1 3 44-21 17
Léttir................12 5 2 5 24-25 12
Hafnir................12 2 3 7 22-30 7
Grótta................12 3 1 8 25-48 7
Grundarfjörður........12 1 2 9 14-38 4
C-riðill:
Þór Þ.-Víkverji...:..................4-3
Stokkseyri-Drangur...................7-0
Hveragerði-Eyfellingur...............1-4
Fyrsta og eina tap Víkverjanna
kom í Þorlákshöfn á föstudagskvöld-
ið. Fyrst skoraði Ingi Hreinsson, 15
ára, fyrir Þór en Svavar Hilmarsson,
Guðmundur B. Ólafsson og Tómas
Sölvason svöruðu fyrir Víkverja, 1-
3. Jón „bolti“ Hreiðarsson og Ellert
Hreinsson með aðstoð varnarmanns
Víkverja, jöfnuðu, 3-3 fyrir leikhlé.
Erlingur Sæmundsson, „Elli svarti",
skoraði svo sigurmark Þórs, þru-
munegling af 25 m færi, sláin inn, en
það er komið upp í vana hjá honum
að skora slík mörg í lok hvers keppn-
istímabils. í liði Víkverja léku fjórir
landsliðsmenn í borðtennis og það
var einn þeirra sem „smassaði" í
eigið marknet.
Halldór Viðarsson skoraði 4 mörk
fyrir Stokkseyri gegn Drangi,
Steinþór Einarsson og Eyjólfur
Eyjólfsson eitt hvor en eitt mark-
anna var sjálfsmark Víkurpilta.
Staðan:
Víkverji.............12
Stokkseyri...........12
Þór Þ................11
Árvakur..............12
Hveragerði...........12
Eyfellingur..........12
Drangur..............11
10 1 1 33-10 21
7 1 4 34-20 15
6 3 2 32-19 15
6 2 4 33-17 14
3 1 8 19-32 7
3 0 9 15-41 6
209 11-38 4
-vs
Björnsson skoraði af stuttu færi,
2-0 í hálfleik.
Þróttarar voru mun frískari
framan af síðari hálfleik, Sigurður
Hallvarðsson klúðraði dauðafæri
af markteig á 51. mínútu, og það
var gegn gangi leiksins þegar Þór
bætti þriðja markinu við á 58. mín-
útu. Bjarni fékk boltann utan víta-
teigs og þrykkti honum glæsilega í
netið, alveg út við stöng, 3-0.
Hann fullkomnaði síðan þrennuna
á 70. mínútu, lék á Guðmund
markvörð og sendi boltann í autt
markið, 4-0. Tveimur mínútum
síðar komst Þorvaldur Þorvaldsson
einn innfyrir Þórsvörnina en Þor-
steinn Ólafsson markvörður bjarg-
aði laglega.
Bjarm var að sjálfsögðu maður
leiksins hjá Þór, bestur á vellinum.
Þorsteinn skilaði því sem skila
þurfti í markinu en aðrir voru jafn-
ir. Ársæll Kristjánsson var bestur
Þróttara, sterkur í vörninni, og þá
átti Daði Harðarson ágætan leik.
Dómari var Friðgeir Hallgríms-
son og stóð hann sig ekki nógu vel.
-K&H/Akureyri
Á 64. mínútu léku Jón Oddsson
og Ámundi skemmtilega upp völl-
inn og voru að reka endahnútinn á
sóknina þegar naumlega var bjarg-
að. Vel gert hjá þeim félögum. Á
75. mínútu var Jón aftur í aðalhlut-
verkinu og átti gott skot að marki
ÍA en bjargað var í horn.
Þriðja mark ÍA kom á 79. mín-
útu. Eftir hornspyrnu barst boltinn
út til Harðar Jóhannessonar sem
skaut að marki. Á markteig stóð
Sigþór Ómarsson og bætti um bet-
ur og skoraði. Síðustu tvö færi
leiksins áttu ísfirðingar. Ámundi
skaut í stöng eftir að ísfirðingar
höfðu opnað Skagavörnina laglega
og Jón skaut góðu skoti sem Bjarni
varði.
ísfirðingar virkuðu ekki mjög
sannfærandi í þessum leik. Allan
kraft og baráttu vantaði. Þeirra
bestu menn voru Ámundi og Jón
en einnig áttu Guðmundur Magn-
ússon og Jóhann Torfason ágætan
leik.
Hjá ÍA var Sigurður Jónsson
bestur maður og eins átti Hörður
góðan leik. Liðið virtist sakna
Sveinbjörns Hákonarsonar sem er
í leikbanni. Annars segir marka-
tala liðsins, 27-10, allt sem þarf,
langflest skoruð mörk og fæst feng-
in á sig.
Ágætur dómari var Þóroddur
Hjaltalín. Áhorfendur voru 810.
-MING/Akranesi
Ásta B. Gunnlaugsdóttir sækir að finnskum varnarmanni í landsliðsleiknum á sunnudag. Mynd: -cik.
Slakt gegn Finnum
Enn máttu íslensku stúlkurnar
sætta sig við tap í Evrópukeppni
kvennalandsliða í knattspyrnu, nú
0-2 gegn Finnum á Kópavogsvellin-
um á sunnudag. Finnsku stúlkurnar
voru betri aðilinn, einkum í síðari
hálfleik, og sigur þeirra var sann-
gjarn eftir atvikum.
Fyrri hálfleikur var slakur, mest
um miðjuþóf og lítið um færi. Helst
voru langskot íslensku stúlknanna
hættuleg, það besta átti Erla Rafns-
dóttir, en markvörður Finna sló
boltann í horn.
f síðari hálfleik náðu finnsku
stúlkurnar betri tökum á leiknum og
tóku forystuna á 6. mínútu. Helena
Vanhanen stakk svifaseina íslensku
vörnina af og skoraði örugglega.
Eftir þetta var oft hætta við íslenska
markið og á lokamínútunni bætti
Vanhanen, besti leikmaður Vallar-
ins, öðru marki við. Hún lék á varn-
armann og skoraði með föstu skoti
sem Guðríður Guðjónsdóttir var þó
mjög nálægt því að verja.
Skortur á sjálfstrausti háði ís-
lensku stúlkunum og mesti galli liðs-
ins er svifasein vörn. Guðríður stóð
sig þokkalega í markinu, hirti allar
háar fyrirgjafir sem komu nálægt
markinu en hún er ragari þegar þær
koma utarlega í vítateiginn. Arna
Steinsen stóð sig best af útispilurun-
um, Ásta B. Gunnlaugsdóttir og
Laufey Sigurðardóttir léku ágætlega
frammi, en fengu lítið að vinna úr.
Rósa Valdimarsdóttir barðist vel og
Erla og Magnea Magnúsdóttir stóðu
sig þokkalega. Kristín Arnþórsdótt-
ir var skárst í vörninni.
Ðlikar stefna
en Keflavík
upp
niður
Breiðablik úr Kópavogi er áfram
í slagnum um efstu sæti 1. deildar-
innar í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á
Keflvíkingum í Kópavogi á sunnu-
daginn. Möguleiki á Evrópusæti í
fyrsta skipti en í herbúðum Kefl-
víkinga cr vaxandi fallskjálfti eftir
þennan fjórða tapleik í röð.
Fyrri hálfleikur var fremur
tíðindalítill. Breiðablik tók for-
ystuna strax á 13. mínútu, Sigurjón
Kristjánsson átti góða sendingu á
Sigurð Grétarsson sem skoraði
með fallegu skoti, 1-0. Mörkin
hefðu getað orðið fleiri fyrir hlé,
Jóhann Grétarsson og Sigurður
fengu báðir ágæt færi en Keflvík-
ingar björguðu naumlega í bæði
skiptin.
Keflvfkingar sóttu talsvert í síð-
ari hálfleik en gekk illa að skapa sér
færi. Blikarnir voru hins vegar
ákaflega hættulegir í skyndisókn-
um sínum, Sigurður slapp í gegn en
Þorsteinn Bjarnason markvörður
bjargaði með úthlaupi, og Keflvík-
ingar voru nærri því að gera sjálfs-
mark eftir hornspyrnu.
Sigurður Grétarsson og Sigurjón Kristjánsson fagna fyrra marki þess
fyrrnefnda gegn Keflvíkingum. Sigurður hefur nú náð Inga Birni Alberts-
syni í markakóngskeppni 1. deildar, báðir hafa skorað 9 mörk. Mvnd:
-eik.
Annað mark Breiðabliks kom
einmitt eftir skyndisókn á 55. mín-
útu. Einfalt, Benedikt Guðmunds-
son átti langa sendingu á Sigurð,
hann stakk vörnina af og renndi
boltanum í netið, 2-0.
Keflvíkingar sóttu áfram og á 72.
mínútu minnkuðu þeir muninn í 2-
1. Freyr Sverrisson lyfti yfir varn-
arvegg Breiðabliks úr aukaspyrnu
og Óli Þór Magnússon skoraði með
viðstöðulausu þrumuskoti. Blikar
voru síðan rétt búnir að skora
þriðja markið undir lok leiksins,
misheppnað skot Sævars Geirs
Gunnleifssonar kom Þorsteini
markverði mjög á óvart en hann
náði að slá boltann í stöng og útaf.
Sigur liðsheildarinnar hjá Blik-
unum, vart veikan hlekk að finna í
liði þeirra. Sigurður var sífelld ógn-
un varnarmönnum Keflvíkinga og
aðrir stóðu honum ekki langt að
baki. Keflvíkingarnir voru allir
fremur daufir, enginn reif sig upp-
úr meðalmennskunni að þessu
sinni.
Enn nálgast Valsmenn 2. deildina
KR-ingar fylgja Skagamönnum
á eftir í toppbaráttu 1. deildarinnar
eftir 3-2 sigur á Val í fjörugum og
skemmtilegum leik á Laugardals-
vellinum á föstudagskvöldið.
Leikurinn var jafn og tvísýnn,
Valsmenn áttu síst minna í honum,
en þeir máttu sætta sig við enn eitt
tapið og hafa nú leikið átta leiki í
röð í deildinni án sigurs.
Eftir nokkurt jafnræði með
liðunum framan af þar sem KR-
ingar voru ívið hættulegri, tók KR
forystuna á 34. mínútu. Sæbjörn
Guðmundsson sendi fyrir mark
Vals og Willum Þórsson skallaði í
netið af stuttu færi. Undir lok hálf-
leiksins sóttu Valsmenn stíft en á
42. mínútu fengu KR-ingar víta-
spyrnu, reglulega unideilda. Úr
henni skoraði Ottó Guðmundsson,
2-0.
í byrjun síðari hálfleiks skoraði
Hilmar Sighvatsson fyrir Val með
fallegu skoti utan vítateigs, 2-1, en
eins marks munurinn hélst ekki
lengi. KR-ingar byrjuðu á miðju,
geystust upp í sókn og Sæbjörn
skoraði, 3—1, með skemmtilegu
skoti.
Eftir þetta var mjög á brattann
að sækja fyrir Val en þeir gerðu
harða hríð að KR-markinu allt til
leiksloka. Uppskeran varð þó
aðeins eitt mark, Hilmar skallaði
fallega í netið eftir fyrirgjöf Magna
Péturssonar á 53. mínútu. Hann
fékk síðan opið færi til að jafna en
þá bjargaði Jósteinn Einarsson á
marklínu og Ingi Björn Albertsson
klúðraöi síðan dauðafæri tíu mín-
útum fyrir leikslok, skaut yfir af
markteig. KR-sigur og Valsmenn
nálgast ískyggilega 2. deildina.
Sæbjörn Guðmundsson átti
bestan leik KR-inga, en mið-
verðirnir Jósteinn og Ottó voru
einnig góðir ásamt Magnúsi Jóns-
syni. HjáValbarmestáHilmari og
Guðmundi Þorbjörnssyni og
Hörður Hilmarsson komst einnig
ágætlega frá leiknum.