Þjóðviljinn - 23.08.1983, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 23.08.1983, Blaðsíða 4
U 'SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 23. ágúst 1983 íþróttir Víðir Sigurðsson íslandsmótið í knattspyrnu - 3. deild: FH er nú komið á fulla ferð í toppbaráttu 2. deiidarinnar í knatt- spyrnu eftir 2—0 sigur á efsta liðinu, KA frá Akureyri, í Hafnarfirði á laugardaginn. Liðið hefur nú leikið níu leiki í deildinni í röð án taps og komið á hælana á KA og Fram. FH-ingar byrjuðu af krafti og Pálmi Jónsson skallaði í þverslá í upphafi. Hann færði síðan FH for- ystu strax á 5. mínútu, skoraði af stuttu færi. Pálmi var aftur á ferð- inni á23. mínútu, lék þá á tvo varn- armenn utan vítateigs og skoraði með góðu skoti, 2-0. Hann hefði hæglega getað bætt við marki fyrir leikhlé en tókst ekki. í síðari hálfleik var KA meira með boltann án þess að skapa sér umtalsverð tækifæri. Jón Erling Ragnarsson komst hins vegar nærri því að koma FH í 3-0, skaut fram- hjá eftir ágæta sókn. Tíu mínútum fyrir leikslok var Ólafi Danivals- syni hjá FH vikið af leikvelli fyrir að slá til Guðjóns Guðjónssonar en þeir tveir höfðu eldað grátt silfur saman allan leikinn. KA sótti mjög í lokin en FH-ingar héldu fengnum hlut. Pálmi var bestur FH-inga, fljót- ur og leikinn og fór oft illa með miðverði KA sem áttu óvenju slak- an dag. Viðar Halldórsson var einnig traustur og vörnin, með Guðmund Flilmarsson sem besta mann, var heilsteypt. Hjá KA var Jóhann Jakobsson í aðalhlutverki og Hinrik Pórhallsson og Gunnar Gíslason voru sífellt hættulegir. Vörnin og markvörðurinn voru veikustu hlutar liðsins, mikið óör- yggi þar á ferðum allan tímann. Guðmundur bjargaði Fram Það leit lengi út fyrir að baráttu- glaðir Einherjar frá Vopnafirði næðu báðum stigunum útúr viður- eigninni við Fram í Laugardalnum á laugardaginn. Þeir leiddu, 1-0, þar til átta mínútur voru til leiks- loka að Guðmundur Torfason fékk knöttinn eftir fyrirgjöf Sverris Ein- arssonar og skallaði í netið, 1-1. Framarar voru með undirtökin mest allan tímann en sköpuðu sér lítið af tækifærum. Á 25. mínútu fengu Einherjar hornspyrnu. Bald- ur Kjartansson sendi fyrir Fram- markið og Gísli Davíðsson náði að skora, 0-1. Rétt á eftir munaði engu að Vopnfirðingar bættu öðru marki við, Baldur komst einn í gegn en Guðmundur Baldursson kom útúr markinu og náði að bjarga í horn. Síðari hálfleikurinn var síðan algerlega eign Framara, þeir sóttu látlaust en sterk Ein- íslandsmótið í knattspyrnu - 2. deild: FH-ingar sækja á framhjá undrandi markverðinum og í netið. Eftir þetta gerðist lítið upp við mörkin, hasarinn í al- gleymingi annars staðar, og eftir einn áreksturinn varð Sighvatur Bjarnason Fylkismaður að hverfa af leikvelli vankaður mjög. Mark Duffield, varnarmaðurinn sterki hjá KS, var yfirburðamaður á vell- inum, án hans væru Siglfirðingar illa staddir. —JT/Siglufirði Enn 1-0 Enn einn 1-0 sigurinn vannst í Garðinum, vinsælar tölur þar í ár, nú unnu Víðismenn nágrannana úr Njarðvík 1-0. Heimamenn voru sterkari aðilinn mest allan tímann og komust með sigrinum uppfyrir Njarðvíkinga, í fjórða sætið. Þrátt fyrir að Víðismenn væru meira með boltann voru marktæki- færi af afar skornum skammti. Þeir skoruðu að vísu mark í fyrri hálf- ieik, en Grétar Einarsson notaði hendurnar við það og var réttilega fundinn sekur og markið dæmt af. En hann hafðist ekkert ólöglegt að þegar hann skoraði sigurmarkið um miðjan síðari hálfleik. Daníel bróðir hans sendi fyrir mark Njarðvíkinga, skallað var til Grét- ars sem tók knöttinn viðstöðulaust á lofti og sendi hann í netið með stórglæsilegu skoti. Slakt á Húsavík Leikur Völsungs og Reynis frá Sandgerði, sent fram fór á Húsavík á föstudagskvöldið, var slakur og tilþrifalítill af beggja hálfu. Völs- ungar voru ívið sterkari aðilinn ef eitthvað skildi á milli, en þeir virk- uðu frekar áhugalitlir, 1. deildar- sætið úr seilingarfjarlægð. Reynir þurfti bæði stigin til að halda í von- ina um áframhaldandi 2. deildar- sæti en það er næsta víst að 3. deildin verður hlutskipti þeirra Sandgerðinga næsta sumar. -VS Léku sinn níunda leik í röð án taps. Halldór Arason og Kristinn Jónsson, Framarar, sækja að Einherjamarkinu í leik liðanna á laugardag en Birkir Kristinsson markvörður er til varnar. Mynd: -eik. herjavörnin hélt út þar til Guð- mundur skoraði. Nokkuð jafnræði var með leikmönnum liðanna, helst aðKristinn Jónsson hjá Fram stæði uppúr. Slegist á Siglufirði Hamagangurinn og lætin voru mikil á Siglufirði á laugardaginn þegar KS og Fylkir mættust þar í ekta botnbaráttuleik. Mest lítið fór fyrir áferðarfallegum tilþrifum en því meira bar á að menn spörkuðu eða slægju til mótherjans. Gulu spjöldin voru á lofti eins og skæðadrífa en bæði stigin fóru til Siglfirðinga, þeir unnu 1-0 og þar með er næsta víst að Fylkir og Reynir falla í 3. deild. Strax á fyrstu sekúndunum sluppu heimamenn fyrir horn þeg- ar þeirra maður, Mark Duffield, skallaði í þverslána á eigin marki eftir að lyft hafði verið yfir mark- vörðinn. KS skoraði síðan á5. mín- útu og það reyndist sigurmarkið. Óli Agnarsson var með boltann langt úti á kanti, öllum að óvörum reyndi hann skot, boltinn þeyttist Stórsigur Borgnesinga og efsta sætið Skallagrímur úr Borgarnesi tryggði sér sigur f A-riðli 3. deildar- innar í knattspyrnu um helgina, sigraði ÍK 5-1 á laugardaginn en kvöldið áður höfðu Grindavík og Selfoss reyndar skilið jöfn, 1-1. Skallagrímsmenn leika því á ný í 2. deild næsta sumar, það er að segja ef kærumálin sem í gangi eru í riðlinum verða ekki dæmd þeim í óhag. Skallagrímur náði forystunni rétt fyrir leikhlé, fékk nokkuð um- deilda vítspyrnu sem Ólafur Jó- hannesson skoraði úr. Gunnar Jónsson skoraði síðan tvívegis snemma í síðari hálfleik, 3-0, og Sigurgeir Erlendsson bætti við fjórða markinu úr vítaspyrnu. Ótt- ar Ármannsson lagaði stöðuna í 4- 1 en Björn Jónsson innsiglaði sigur Borgnesinga, skoraði fimmta markið með firnaföstu skoti neðst í markhornið. Leikurinn í Grindavík einkennd- ist af gífurlegri baráttu enda mikið í húfi. Heimamenn sóttu nær lát- laust í fyrri hálfleik, voru grimmir og fljótir á boltann, en notuðu mik- ið langspyrnur fram í stað þess að reyna að spila sig í gegn. Þá lék Anton Hartmannsson mjög vel í Selfossmarkinu. Þetta bar þó ár- angur á 43. mínútu þegar Guð- mundur Erlingsson skoraði eftir þvögu í vítateig Selfyssinga. í síðari hálfleik héldu heimamenn upp- teknum hætti lengi vel en síðasta korterið komust Selfyssingar loks inní leikinn og sóttu mjög það sem eftir var. Tveimur mínútum fyrir leikslok fengu þeir hornspyrnu, Jón Birgir Kristjánsson sendi fyrir mark Grindvíkinga og Sigurlás þjálfari Þorleifsson skallaði í netið, 1-1. Selfyssingar bíða nú í ofvæni eftir niðurstöðu kærumálsins, leika þeir í 2. eða 3. deild næsta sumar? Snæfell bjargaði sér frá falli á föstudagskvöldið með því að sigra HV 3-1 í Stykkishólmi. Pétur Rafnsson og Karl Hjálmarsson skoruðu í fyrri hálfleik og Pétur síðan aftur í þeim síðari. Hann átti skot í þverslá og niður eftir það, áhöld um hvort boltinn hefði farið inn eða ekki. HV minnkaði mun- inn í 3-1 með marki Elísar Víg- lundssonar. Það var varla stætt á vellinum fyrir roki, en fjallgrimmir Hólmarar voru betri aðilinn og unnu sanngjarnan sigur. Þá var Ijóst að Ármenningar væru fallnir en þeir sigruðu þó Vík- ing 2-1 í Ólafsvík. Þeir ætla reyndar að kæra Skallagrím eins og fleiri. Egill Steinþórsson kom Ár- manni yfir í fyrri hálfleik en Logi Úlfljótsson jafnaði eftir hlé. Pétur Finnsson Ólafsvíkingur komst síð- an tvisvar í gegn, fyrst varið og síð- an skaut hann í stöng, Logi skaut einnig í stöngina rétt á eftir. Hinum megin björguðu Ólsarar þrisvar á eigin marklínu. Óskar Ásmunds- son skoraði sigurmark Ármenn- inga þremur mínútum fyrir leikslok en strax á eftir var Egill félagi hans Steinþórsson rekinn af leikvelli fyrir að slá til Helga Kristjáns- sonar. Fjör á Grenivík Leikur Magna og Hugins á Grenivík var fjörugur og spenn- andi. Hringur Hreinsson kom Magna yfir og Heimir Ásgeirsson bætti öðru við en Smári Guðjóns- son minnkaði muninn í 2-1 fyrir hálfleik. í síðari hálfleik jafnaði Sveinbjörn Jóhannsson fyrir Hug- in, 2-2, en á lokamínútunum fengu heimamenn vítaspyrnu. Jón Ing- ólfsson skoraði sigurmarkið úi henni en ekki voru Seyðfirðingai sáttir við þann dóm, mótmæltu á- kaft og lengi og eftir leik fengu ein- hverjir þeirra að líta spjöld hjí dómaranum. Austri vann HSÞ létt á Eskifirði 3-0. Grétar Ævarsson skoraði stór- glæsilegt mark eftir aukaspyrnu oj þeir Guðmundur Árnason oj Bjarni Kristjánsson sáu um hir tvö. Leik Þróttar og Sindra var frest að, margir úr Sindraliðinu leik; einnig í 3. flokki og voru að leika úrslitakeppni í Reykjavík. Kærumálin óútkljáð Lási jafnaði Snæfell slapp Glæsimark Grétars Egill rekinn útaf Hasar á Grenivík Gunnar Jónsson skoraði tvívegis með stuttu millibili þegar Skalla- grímur sigraði ÍK í lokaumferðinni á laugardaginn.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.