Þjóðviljinn - 27.09.1983, Síða 4

Þjóðviljinn - 27.09.1983, Síða 4
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 27. september 1983 ________________________________________íþróttir Víðir Sigurðsson Enska knattspyrnan: Enska knattspyrnan: Stai ía n - 1. deild: West Ham 7 6 0 1 18:4 18 Manch. Utd 7 5 0 2 11:8 15 Southampton......... 7 4 2 1 8:2 14 Liverpool 7 .4 2 1 8:4 14 Ipswich 7 4 12 18:9 13 AstonVilla 7 4 12 11:9 13 Nottm. Forest 7 4 12 11:9 13 Arsenal 7 4 0 3 13:8 12 Q.P.R 7 3 2 2 13:8 11 W.B.A 7 3 2 2 11:11 11 Coventry 7 3 2 2 11:12 11 Birmingham 7 3 2 2 7:8 11 Luton Town 7 3 13 14:8 10 Everton 7 2 3 2 5:7 9 Watford 7 2 2 3 14:12 8 Tottenham.....; 7 2 2 3 10:11 8 Sunderland :..... 7 2 14 6:13 7 NottsCounty.......... 7 2 0 5 8:15 6 Norwich 7 12 4 8:11 5 StokeCity 7 115 5:15 4 Wolves 7 0 2 5 5:18 z Leicester 7 0 16 4:18 1 Markahæstir: Paul Mariner, Ipswich David Swindlehurts, W.Ham.. ...6 John Barnes, Watford Eric Gates, Ipswich ...5 2. deild: Sheff.Wed 7 5 2 0 11:4 17 Manch.City 7 5 11 16:6 16 Huddersfield 6 3 3 0 8:3 12 Middlesboro 6 3 3 0 9:5 12 Charlton 6 3 3 0 7:3 12 Cheisea 6 3 2 1 10:3 11 Newcastle 7 3 2 2 11:7 11 Shrewsbury............ 7 3 2 2 8:9 11 Portsmouth 6 3 12 9:5 1Ö Grimsby 6 2 3 1 8:7 9 Blackburn 72 3 2 10:13 9 Brighton 7 2 2 3 10:10 8 Cardiff 6 2 13 5:6 7 Leeds 7 2 14 8:11 7 Carlisle 7 13 3 2:5 6 Cambridge 6 12 3 6:7 5 Fulham 6 12 3 4:9 5 Oldham 6 12 3 4:11 5 Derby 7 12 4 6:16 5 Barnsley 6 114 9:11 4 Swansea 6 114 4:8 4 Cr. Palace 5 0 2 3 4:8 2 Markahæstir: Derek Parlane, Manch. City.... ...7 SimonGarner, Blackburn.... ...5 Jim Tolmie, Manc. City ...5 Stuttar fréttir úr neöri deildum:___________ Sheff.W. og City stinga af Sheffield Wednesday heldur sínu striki ■ 2. deild og hefur ekki tapað leik. f Oldham á iaugardag komst þó hcima- liðið yfir með marki Paul Heaton úr vitaspyrnu á 14. minútu. Imre Varadi jafnaði fyrir hlé og Gary Shelton og Mel Sterland tryggðu Wednesday sigur, 1-3, í síðari hálfleik. Manchcster City nýtur svipaðrar vel- gengni, vann Leeds 1-2 úti og fékk á sig mark snemma. Það var Andy Ritchie sem skoraði fyrir Leeds, Graham Baker jafnaði og Derek Parlane færði City sigur með sínu 7. marki í 2. deild. Parlane var einmitt keyptur frá Leeds í sumar. Swansea vann sinn fyrsta sigur, 2-1 á Cambridge. Alan Curtis og Bob Latch- ford skoruðu mörkin. Fulham náði forystu í Grimsby, Gor- don Davies skoraði, en Paul Wiikinson og Paul Emson svöruðu fyrir heima- liðið. Portsmouth gæti blandað sér í topp- slaginn og vann Shrewsbury sannfærandi, 4-1. Mark Hateley skoraði fyrst, Steve Cross jafnaði en Alan Biley kom Portsmouth yfir á ný. Varamaðurinn Nicky Morgan bætti svo við tveimur mörkum fyrir „Pompey" í síðari hálfleik. Ronnie Moore skoraði sigurmark Charlton gegn Derby en rétt áður hafði Paul Hooks hjá Derby verið rekinn af leikvelli. Steve Gatting hjá Brighton fékk einn- ig brottvísun, í 2-2 jafnteflinu í Black- burn. Roger Jones, 37 ára gamall mark- vörður og fyrirliði York í 4. deild, var rekinn af leikvelli fyrir brot eftir aðeins 8 mínútur í Darlington! York tókst þó að halda hreinu. Hull og Oxford eru efst í 3. deild með 14 stig, Wimbiedon hefur 13 og Orient, Bolton og Bristol Rovers 12 hvert. York og Hereford hafa 13 stigí4. deild, Colchester og Doncaster 12. -VS Atkinson hógvær eftir sigurinn á Liverpool: „Þetta er bará einn áfangi“ Frá Heimi Bergssyni frétta- manni Þjóðviljans í Eng- landi: Ron Atkinson, framkvæmdastjóri Manchester United, varóvenju rólegurog fámáll eftir 1 -0 sigurinn á Liverpool á laugardag. „Þetta er bara einn áfangi, “ var það eina sem hann lét hafa eftir sér. Leikur þessara tveggja risa olli nokkrum vonbrigðum, síðari hálf- leikur var þó í líflegra lagi eftir af- spyrnudaufan fyrri hálfleik. Man. Utd. var hættulegri aðilinn og sig- urinn var verðskuldaður. Arthur Graham og Bryan Robson voru bestir hjá Man. Utd. og haft er á orðið að Graham hafi með frammi- stöðu sinni greitt til baka kaupverð sitt og gott betur. Hann lagði upp sigurmarkið, fékk boltann frá Mike Duxbury, gaf fyrir mark Li- verpool á Frank Stapleton sem skoraði. Þetta ar á 53. rnínútu leiksins. Stapleton og Norman Whiteside fengu nokkur gullin tækifæri til að bæta við markatöluna. Því besta bjargaði Phil Neal, bakvörður Li- verpool, hreinsaði af eigin marka- línu frá Whiteside. Liverpoolliðið var slappt, Kenny Dalglish einna skástur, og í heild áttu 57.000 áhor- fendur á Old Trafford von á betri frammistöðu beggja. Steve Archibald hefur ekkert fengið að spila við Tottenham í haust og verið á sölulista. Hann var þó varamaður á Watford á laugar- daginn og var skipt inná í síðari hálfleik, með hangandi haus. Fimm mínútum fyrir leikslok skoraði hann stórkostlegt mark, skot af 25 m færi í bláhornið, og færði Tottenham forystu 1-2. Chris Hughton skoraði strax á eftir, 1-3, en Nigel Callaghan minnkaði mun- inn á 2-3 á lokamínútunni, skoraði úr vítaspyrnu sem John Barnes fi- skaði. Ég sá megnið af þessum leik í sjónvarpi, eins og Man. Utd. Li- verpool, og Watford var betri aði- linn lengi vel. Wilf Rostron skoraði í fyrri hálfleik, eftir sendingu frá Barnes sem hafði snúið glæsilega á Steve Perryman. Glenn Hoddle jafnaði fyrir Tottenham snemma í Steve Archibald kom inná með hangandi haus en skoraði glæsilegt og þýðingarmikið mark fyrir Tott- enham. síðari hálfleik með stórkostlegu marki. Hann fékk boltann frá Gary Brooke, sneri sér fallega og lyfti knettinum í hornið fjær, gersam- lega óverjandi. Síðan kom Arci- bald og Tottenham hirti þrjú stig. - HB/VS Brooking er til- búinn í slaginn! Trcvor Brooking, hinn 35 ára gamli miðvallárspilari hjá West Ham lék gegn Notts County á laugardaginn. Hann skoraði fyrsta markið í 3-0 sigri og lagði upp annað sem Paul Goddard skoraði. Eftir slaka frammistöðu enskra gegn Dönum sl. miðvikudag eru menn farnir að orða Brooking við landsliðið á ný, og eftir leikinn á laugardag gaf hann í skyn að hann væri tilbúinn í slaginn. West Ham lék mjög vel, County reyndar ágætlega líka, en mátti sætta sig við sitt fimmta tap í röð. Trevor Brooking nálgast óðum sitt gamla landsliðsform. Þriðja markið skoraði Ray Stewart á lokamínútu leiksins, úr vítasp- yrnu. Það var sammerkt með flestum sem settir voru útí kuldann hjá en- ska landsliðinu fyrir leikinn gegn Dönum, að þeir áttu góðan dag á laugardag. Éinn þeirra var Peter Withe hjá Aston Villa, sem skoraði sigurmarkið gegn Southampton á 24. mínútu eftir að Mark Walters hafði snúið á þrjá varnarmenn Southampton. Baráttan í leiknum var hrikaleg, fimm bókaðir og Frank Worthington, miðherji Southampton, rekinnn útaf eftir sviptingar við Allan Evans. South- ampton sótti mjög í síðari hálfleik og undir lokin bjargaði Brendan Ormsby, miðvörður Villa, á mark- línu með markvörðinn, Nigel Spink, liggjandi bjargarlausan úti í vítateig. Garry Thompson skoraði sigur- mark WBA í Ipswich, 3-4, út vít-_ aspyrnu á síðustu mínútu eftir að Terry Butcher hafði fellt Cyrille Regis. Tveimur mínútum áður hafði hinn 18 ára Mick Perry jafn- að, 3-3, fyrir WBA. Romeo Zon'd- ervan skoraði fyrsta mark leiksins, 0-1 fyrir WBA, en John Wark, víti, og Eric Gates komu Ipswich yfir. Regis jafnaði, 2-2, með þrumu- fleygs fyrir hlé. Paul Mariner kom Ipswich í 3-2 eftir frábæran undir- búning Gates, en mörkin tvö hjá WBA komu sem vatnsgusa framan í leikmenn Ipswich undir lokin, sigur hafði breyst í tap. Clive Allen var í banaformi þegar QPR vann Úlfana 4-0 á útivelli. Hann skoraði tvö markanna og bresku blöðin segja eftir leikinn að hann eigi fyllilega skilið að fá tæki- færi með enska landsliðinu. John Gregory og Simon Stainrod skoruðu hin mörkin. Lee Chapman kom Arsenal yfir gegn Norwich, í sínum fyrsta leik í haust. Alan Sunderland skoraði síðan tvö, 3-0, í síðari hálfleik. Charlie Nicholas haltraði af leikvelli, annan leikinn í röð. Ian Wallace skoraði sigurmark Nottingham Forest gegn Luton, eftir sendingu Steve Wigley á 58. mínútu. Wigley hefur tekið stöðu John Robertson sem útherji og er geysilegt efni. Luton var líklegra liðið lengi vel, fékk betri færi, en Hans Van Breukelen átti stórleik í marki Forest. Ian Painter og Paul Maguire komu Stoke í 0-2 í Leicester. Nýlið- arnir jöfnuðu fyrirhlé, Robert Jon- es og Gary Lineker, og náðu í sitt fyrsta stig. Colin West skoraði sigurmark Sunderland gegn Coventry á 53. mínútu. Howard Gayle kom Birmingham yfir gegn Everton í fyrri hálfleik en Graeme Sharp náði að jafna, l-lrí síðari hálfleiknum. - HB/VS Clive Allen fór illa með varnarmenn Úlfanna og þessi sterkbyggði en leikni miðherji QPR er farinn að banka á dyr enska landsliðsins. úrslit.-.úrslit ■ ■■ úrslit i 1. deiid: Arsenal-Norwlch Cíty...........3:0 Aston Villa-Southampton........1:0 Everton-Blrmingham.............1:1 Ipswlch-W.B.A..................3:4 leicester-StokeCity............2:2 Manch. United-Liverpool........1:0 Nottm.Forest-LutonTown.........1:0 Sunderland-Coventry Clty.......1:0 Watford-Tottenham............ 2:3 WestHam-NottsCounty............3:0 Wolves-Q.P.R...................0:4 2. deild: Barnsley-Newcastle.............1:1 Blackburn-Brighton.............2:2 Carllsle-Huddersfield..........0:0 Charlton-Derby.................1:0 Chelsea-Middlesborough....,....0:0 Crystðl Palace-Cardiff.....frestað GrimsbyTown-Fulham.............2:1 LeedsUnited-Manch. Clty........1:2 Oldham-Sheffield Wednesday.....1:3 Portsmouth-Shrewsbury..........4:1 SwanseaCity-Cambridge..........2:1 3. deild: Bolton Wand-Rotherham......'....2:0 Bournemouth-Gillíngham..........2:0 Brentford-Burnley...............0:0 Exeter City-Wlmbledon...........0:3 Hull City-Lincoln Clty..........2:0 Newport-Scunthorpe..............1:1 Orlent-Bristol Rovers...........0:1 Oxford-MillwallCity.............4:2 Plymouth-Preston N.E............1:0 PortVale-BradfordCity...........1:2 Sheffield Unlted-Wigan..........2:2 Southend United-Walsall.........0:0 4. deild: Aldershot-Wrexham..............1:1 Blackpool-Crewe Alexandra.......3:0 BristolCity-Torquay.............5:0 Chester-Reading................2:1 Chesterfield-Cholchester.......1:1 Darlington-YorkCity.............0:0 Doncaster Rovers-Bury..........3:1 Haiifax Town-Hartlepool.........3:2 Peterborough-Mansfield..........3:0 Rochdale-Northampton...........1:1 Stockport-Swindon Town.........r 1:3 Tranmere-Hereford...............0:1

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.