Þjóðviljinn - 20.10.1983, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 20. október 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
íslensk tölva
á markaðinn!
Sérrit Þjóðviljans á morgun
Um þessar mundir er að koma á markað hér á landi ný
tölva, sem framleidd er af fyrirtækinu Atiantis h.f. Er þetta
fyrsta tölvan sem framleidd er hér á landi og mun hún við það
miðuð að geta fullnægt þörfum smærri fyrirtækja, einstak-
linga og stofnana hér á landi. Atlantis viðskipta- og iðnaðar-
tölvan hefur að fyrirmynd nýja tölvu frá IBM, svokallaðan
IBM Personai Computer. Atlantis hf. hefur einnig látið gera
hugbúnað og forrit á íslensku fyrir þessa tölvu, sem einnig
verður fáanlegur.
Ingólfur Arnarson fram-
kvæmdastjóri Atlantis sagði í við-
tali við Þjóðviljann að með fram-
leiðslu íslenskrar örtölvu væri brot-
ið blað í íslenskum rafeindaiðnaði,
og að með þessari framleiðslu væri
bæði verið að spara gjaldeyri og
flytja nýja tækniþekkingu inn í
landið. Nánar verður sagt frá Atl-
antis viðskipta- og iðnaðartölvunni
í sérstökum blaðauka um tölvumál
í Þjóðviljanum á morgun.
Atlantis-tölvan
Samdráttur í bílainnflutningi:
Smábílar koma best út
Ljóst er af skýrslu Hagstofu
íslands um bifreiðainnflutning-
inn fyrstu 9 mánuði ársins að
minnstu og sparneytnustu bif-
reiðarnar koma skást út í hinu
mikla hruni innflutningsins úr
9.361 bifreið á sama tíma í fyrra
niður í 4.595 í ár.
Mest seldi bíllinn á fyrstu 9 mán-
uðum ársins er Subaro með 212
bfla, næst kemur svo Daihatsu
Charade með 207 og Daihatsu
Charmant 110 bifreiðar. Daihatsu
er því mest seldi bíllinn hér á landi,
þar sem þessar tvær gerðir hans eru
næstum eins. Hinar þrjár gerðir
Mazda bifreiða, sem eru mjög ólík-
ar hafa þó selst meira, 323 gerðin
133 bílar, 626 gerðin 180 bílar og
929 gerðin 131 bfll.
Nissan Cherry seldist langbest
allra gerða af Nissan eða 151 bif-
reið, aðrar gerðir eru frá 1 og uppí
87 bfla. Skoda seldi 123 bíla og To-
yota Tercel 118 bíla aðrar gerðir af
Toyota eru frá 1 og uppí 58 bíla. Af
Volvo 244 gerðinni seldust 121
bifreið en að öðrum gerðum Volvo
frá 1 og uppí 23.
Af dýrari gerðum bifreiða kem-
ur Saab 900 einna best út með 78
bfla, aðrar gerðir í dýrari flokki eru
nokkuð langt á eftir. Innflutningur
amerískra bíla hefur svo til alveg
dottið niður í ár. - S.dór.
Unnið er af fullum krafti við undirlag knattspyrnuvaliarins í Laugardal, þar sem gervigrasið verður lagt
næsta haust. (Ljósm. Magnús).
Gervigras verður lagt
Ekki hefur verið tekin ákvörðun
eftir 12-16 mánuði
Að sögn Baldurs Jónssonar
vallarstjóra íþróttavallanna í
Reykjavík verður gervigrasið
ekki lagt á völlinn í Laugardal
fyrr en eftir 12-16 mánuði. Nú
er unnið að undirbyggingu vall-
arins en nauðsynlegt er að und-
irlagið fái að þjappast og síga
sem mest og best áður en mal-
bikað verður yfír.
Baldur sagði að bíða yrði í það
minnsta í eitt ár áður en fyrra mal-
bikslagið verður sett á. Ofan á það
verður svo lögð hitalögn og síðan
malbikað yfir hana og þá loks verð-
ur gervigrasmottan lögð á. Þá
verða flóðljósin á Melavelli færð að
þessum velli og verður þá hægt að
leika knattspyrnu á vellinum 24
tíma í sólarhring allt árið um kring,
eins og Baldur komst að orði.
um hvaða gervigrasategund verður
fyrir valinu en um fjölmargar teg-
undir er að ræða. Baldur sagði að
menn væru í sambandi við marga
aðila erlendis sem hefðu lagt gervi-
gras á velli til að reyna að átta sig á
því hvaða tegund gervigrass hefði
reynst best.
- S.dór.
Hætta
sérfræðingar
að vinna
fyrfr sjúkra-
samlögin?
Hafa sagt upp
frá 1. desember
og kostnaður
lendir þá á
sjúklingum einum
Flestir sérfræðingar i Reykja-
vík hafa sagt sig undan samn-
ingi Læknafélags Reykjavíkur
við Tryggingastofnun ríkisins
og Sjúkrasamlagið frá og með
1. desember n.k. Standi þeir við
uppsagnir sínar og hætti að
vinna fyrir sjúkrasamlögin mun
heimsókn til sérfræðinga kosta
sjúklinga 3-500 krónur í stað
þess að nú grciðir sjúkrasam-
lagið allan kostnað nema 120
krónur.
Samningurinn sem hér um
ræðir var gerður s.l. vetur og
var gildistími hans ákveðinn til
1. desember. í sérstakri bókun
tilkynntu læknarnir að þeir
hyggðust ekki starfa eftir nýjum
samningi eftir þann tíma en þeir
geta sem einstaklingar sagt sig
undan samningnum með fjög-
urra mánaða fyrirvara. í
millitíðinni voru svo bráða-
birgðalögin sett en þau fram-
lengja alla kjarasamninga til 1.
febrúar og banna gerð nýrra.
Engu að síður sögðu flestir sér-
fræðingar sig undan samning-
num fyrir 1. ágúst s.l.
Halldór Jóhannsson, for-
maður samninganefndar sér-
fræðinganna sagði í samtali við
Þjóðviljann í gær að ekkert lægi
ákveðið fyrir um aðgerðir
þeirra 1. desember. „Þessi
bráðabirgðalög hafa ekki verið
tekin fyrir í félaginu", sagði
hann, „og það liggur ekkert
fyrir um það hvort þau banna
mönnum að segja sig undan
samningnum. Eflaust fram-
lengja þau samninginn til 1. fe-
brúar eins og aðra, en að form-
inu til eru þettaAveir óskyldir
hlutir, annars vegar uppsagnir
manna og hins vegar lagaleg
framlenging á samningnum.“
Halldór sagði að á næstunni
yrði tekin ákvörðun um hvert
framhaldið yrði.
Þorsteinn Geirsson, er full-
trúi fjármálaráðuneytisins í
santninganefnd TR við lækna.
Hann sagðist ekki trúa því að
læknarnir rnyndu standa við
uppsagnirnar og hætta störfum
fyrir sjúkrasamlagið 1. desem-
ber n.k. „Þeir hafa oft áður ver-
ið með svipaðar yfirlýsingar“,
sagði hann, „en það hefur aldrei
orðið af því að þeir færu út úr
gjaldskránni.“ Þorsteinn sagði
að samningamenn ríkisins
hefðu einnig lagt fram bókun
við samningagerðina s.l. vetur
þar sem það er áréttað að gerð-
ardómur bindi alla lækna, hvort
sem þeir eru aðilar að
samningnunr eða ekki. Enn-
fremur að ef um einstaklings-
bundnar uppsagnir yrði að ræða
væri ekki víst að samningavið-
ræður héldu áfram, heldur yrði
málinu vísað beint í gerðardóm.
Páll Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Læknafélags
Reykjavíkur sagði að félagið
hefði sent allar uppsagnir sem
borist hefðu til Tryggingastofn-
unar. „Við höfum engin við-
brögð fengið við þessum upp-
sögnum", sagði hann, „en það
er skoðun félagsins að samning-
urinn sjálfur sé framlengdur til
1. febrúar n.k.“
-ÁI