Þjóðviljinn - 20.10.1983, Blaðsíða 16
w/omíj/m Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er haegt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
Fimmtudagur 20. október 1983 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 -12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Frumvarp Hjörleifs og Kristínar um raforkuverð
til stóriðju og almennings
Lögbundið hlutfall
Alusuisse borgi 65% af almennu orkuverði
„Ef þetta frumvarp verður að lögum felst í því afar þýðingar-
mikil neytendavernd og trygging fyrir því að orkusölusamningar
eins og við ísal og Járnblendiverksmiðjuna verði ekki endurtekn-
ir,“ sagði Hjörleifur Guttormsson í gær, en hann hefur ásamt
Kristínu Haildórsdóttur lagt fram frumvarp sem gerir ráð fyrir því
að verð til stóriðju verði aldrei lægra en sem nemur 65% af
heildsöluverði raforku til almenningsrafveitna. Jafnframt er
ákvæði til bráðabirgða um að endurskoðun á raforkusamningnum
við Alusuisse skuli taka mið af ákvæðum laganna.
„Gildi slíkrar lagasetningar sést
m.a. af því að nú greiða almenn-
ingsrafveitur 41,8 mills á kílówatt-
stund en ísal hins vegar aðeins 6,5
mills samkvæmt samningi og tíma-
bundið 9,5 mills skv. bráðabirgða-
samkomulagi sem gert var í síðasta
mánuði“, sagði Hjörleifur. „Mun-
urinn er þannig 540% eða 350%
eftir því við hvort verðið er miðað,
en mætti ekki fara yfir 54% sam-
kvæmt ákvæðum frumvarpsins."
í greinargerð er m.a.vísað til sér-
fræðiálits starfshóps sem í áttu sæti:
Finnbogi Jónsson, framkvæmda-
stjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarð-
ar, Gunnlaugur Jónsson, deildar-
stjóri á Orkustofnun, Jóhann Már
Maríusson, aðstoðarforstjóri
Landsvirkjunar og Kristján Jóns-
son, rafmagnsveitustjóri ríkisins.
Meginniðurstaða þeirra var sú að
„stóriðjan eigi að greiða orkuverð
sem nemur a.m.k. 65% af
heildsöluverði til almennings-
veitna.“
„Hér er raunar vægt farið í sak-
irnar“, sagði Hjörleifur, „miðað
við það sem algengast er hjá raf-
orkuframleiðendum sem byggja á
vatnsorku í nálægum löndum. f
Noregi hefur Stórþingið nýlega
markað þá stefnu að grunnverð til
stóriðju skuli svara til 20 mills en
þar er hlutfall á verði til störiðju
um 80% af verði til almennings-
veitna“, sagði Hjörleifur.
„Ef verð til ísal hefði t.a.m. fylgt
þessu lágmarkshlutfalli, 65% af
verði til almenningsveitna, í gegn-
um árin, hefði verð til almennings-
veitna Iækkað stórlega að
óbreyttum heildartekjum Lands-
virkjunar," sagði Hjörleifur að
lokum.
-ÁI
Nýjasti bíll
ríkisstjórnarinnar
Við keyptum hann
undir Sverri
Nýjasti ráðherrabíll „sparnaðarstjórnar“ Steingríms Hermannssonar er kominn á göturnar. Þetta er Range
Rover jeppabifreið, sem Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra óskaði eftir að ríkissjóður keypti.
Kaupverð þessarar bifreiðar er um 1.2 miljónir kr.
Flutningsmenn frumvarpsins, Kristín Halldórsdóttir og Hjörleifur Gutt-
ormsson, á Alþingi í gær.
Almenningur minnkar bílakaupin
Sex Skodar og
fjórir Volvo
fluttir inn í hverjum mánuði
I nýútkominni skýrslu frá Hag-
stofu íslands kemur í ljós, að bif-
reiðainnflutningur fyrstu 9 mánuði
þessa árs nær ekki helming af því
sem hann var á sama tíma í fyrra. Á
fyrstu 9 mánuðum þessa árs hafa
verið fluttar til landsins alls 4.595
bifreiðar en á sama tíma í fyrra
9.361 bifreið. Mest er áberandi við
lestur skýrslunnar hve innflutning-
ur bifreiða hefur hrapað niður eftir
efnahagsráðstafanir ríkisstjórnar-
innar í vor.
Sem dæmi um það má nefna að
fyrstu 6 mánuði ársins voru að jafn-
aði fluttar inn 26 bifreiðar á mán-
uði af einni vinsælustu bílategund-
inni Daihatsu Charade, en mánuð-
ina júlí-september aðeins 12 á
mánuði. Af Skoda voru fluttir inn
17 bflar á mánuði jan.-júní en að-
eins 6 á mánuði júlí-sept. Af Volvo
244 gerðinni voru fluttir inn 18 bfl-
ar á mánuði að jafnaði jan.-júní en
4 á mánuði júlí-sept.
Greinilegt er að ódýrustu og
sparneytnustu bifreiðarnar koma
best út í ár. Hrun er í milliverð-
flokki og dýrari verðflokkum bif-
reiða.
Að sjálfsögðu þýðir þessi sam-
dráttur í innflutningi bifreiða mikið
tekjutap fyrir ríkissjóð. Sem dæmi
má nefna að tekjur ríkissjóðs
vegna hins sérstaka innflutnings-
gjalds sem lagt er á bifreiðar nam
106.2 miljónum króna árið 1982.
Að raungildi hefur það þá minnkað
um helming það sem af er þessu
ári.
- S.dór.
Sjá 3
VMSI-þingið og kœra Bjarnfríðar:
Hrindum árásum
ríkisvaldsins
Andinn á þinginu markaðist
mjög af árásum ríkisvaldsins og
þeirri vitneskju að ríkisstjórnin
er að brjóta niður velferðarkerfið
í landinu, sagði Karl Steinar
Guðnason varaformaður Verka-
mannasambands íslands í viðtali
við Þjóðviljann í gær.
En voru ekki deilur á þinginu?
- í raun voru deilur helst um
áherslur, en ekki sjálft markmið-
ið, sem er að hrinda árásum ríkis-
valdsins og sækja mannsæmandi
laun að nýju.
Hvað hefur þú um framkomna
kæru um kosningar til sam-
bandsstjórnar að segja?
- Ég vil benda á að þingið taldi
rétt að farið og engar athuga-
semdir voru gerðar, hvorki af
starfsfólki né þingfulltrúum.
Væntanlega mun ASÍ kveða upp-
úr um það hvort þingfulltrúar og
starfsfólk hafi á röngu áð standa.
Bjarnfríður Leósdóttir orðar
þig við hermangið?
- Er það eitthvert hermang að
vilja tryggja lífsafkomu þeirra fé-
laga í verkalýðsfélaginu sem ég er
formaður fyrir? Það er verkefni
mitt að tryggja afkomu þeirra fé-
laga sem vinna uppá Keflavíkur-
flugvelli eins og annarra í mínu
félagi. Éghef ekkert meir afþess-
um her að segja - og ég veit ekki
hvað þessar ásakanir um her-
mang eiga að þýða.
En Bjarnfríður bendir á
ruddalega framkomu þína, þar
sem þú hlakkir yfir því að hún
hafi ekki náð kjöri?
- Égsagðinúþettaífljótfærnis-
gríni einsog stundum gerist, en
ekki reiði eða heift. Síðar datt
mér í hug, að hún kynni að hafa
misskilið þessi orð og sárnað þau
- og því bað ég hana afsökunar.
Það kom mér því á óvart að sjá
þessi ummæli í Morgunblaðinu.
Auðvitað hefur Bjarnfríður
marga góða kosti sem ber að
virða, en engu að síður erum við
mjög ósammála í mörgum mál-
,um. En persónulegt skítkast og
óhróður hafa ekkert með þann
Hafði beðið
Bjarnfríði afsökunar,
segir Karl Steinar
pólitíska ágreining að gera og
gera verkalýðshreyfingunni ekk-
ert gott. Ég hefi ekki lagt í vana
minn að elta andstæðinga mína
með slíku, sagði Karl Steinar að
lokum.
-óg
Byggð á
misskilningi
segir Guðmundur
J. Guðmundsson
- Eg tel nú kæruna vera á mis-
skilningi byggða, sagði Guðmund-
ur J. Guðmundsson formaður
Verkamannasambands íslands um
kæru Bjarnfríðar Leósdóttur á
kosningum til sainbandsstjórnár
Verkamannasambandsins. Það
var ekki krafist endurtalningar
þegar úrslit þessara kosninga voru
kynnt, en það held ég hljóti að
verða gera til að kæran verði
marktæk.
- Staðreyndin er hins vegar sú,
að við kosningarnar urðu slæm mis-
tök sem voru leiðrétt og enginn
gerði athugasemd við þá leiðrétt-
ingu. En það er miðstjórn ASÍ
sem tekur afstöðu til málsins,
sagði Guðmundur J. Guðmunds-
son að lokum.
-óg