Þjóðviljinn - 20.10.1983, Page 5
Fimmtudagur 20. október 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐÁ 5
Arnar Jónsson (Higgins) og Ragnheiður Steindórsdóttir (Elísa).
Leikfélag Akureyrar sýnir
My Fair Lady
Þórhildur Þorleifsdóttir leikstýrir
My Fair Lady á Akureyri.
Leikfélag Akureyrarfrumsýnir
My Fair Lady í Samkomuhús-
inu áföstudagskvöld kl. 20.30. í
Leikfélagsblaðinu sem út er
komið segir að það sé mikið í
ráðist hjá leikfélagi Akureyrar
að setja þennan söngleik á
svið. „Það hefur borið gæfu til
þess að fá framúrskarandi
listafólk til liðs við sig til að gera
sýninguna sem besta. Vonandi
finnst Norðlendingum það hafa
átt erindi sem erfiði og koma á
sýninguna. Ferðahópum gefst
kostur á afsláttarverði á miðum
og Flugleiðir verða með pakka-
ferðirfrá Reykjavíktil Akureyrar
ásýninguna."
Stór áhöfn
Þórhildur Þorleifsdóttir leikstýr-
ir uppfærslunni á My Fair Lady á
Akureyri. Leikmynd gerir Jón Þór-
isson og Una Collins hannar hátt á
annað hundrað búninga fyrir sýn-
inguna. Ljósahönnuður er Viðar
Garðarsson. Hárgreiðslumeistari
er Elsa Björnsdóttir. Yfirsmiður
leikmyndar er Erlingur Vilhjálms-
son. Roar Kvam hefur stjórnað
æfingum á öllum söng og
hljóðfæraundirleik í My Fair Lady
og er hljómsveitarstjóri sýningar-
innar. 17 söngvarar úr Passíukórn-
um á Akureyri og 15 manna hljóm-
sveit Tónlistarskólans á Akureyri
sjá um söng og tónlistarflutning. Þá
hefur verið æfður sérstakur dans-
hópur fyrir sýninguna.
Arnar Jónsson leikur Higgins
prófessor, Ragnheiður Steindórs-
dóttir Elísu Doolittle, Sunna Borg,
frú Higgins og frú Hopkins, Theó-
dór Júlíusson Zoltan Karpathy og
Jamie, Gestur E. Jónasson leikur
Freddy, vonbiðið Elísu og fleiri,
Marinó Þorsteinsson leikur Picker-
ing ofursta, Þórey Aðalsteinsdóttir
leikur frú Pearce, ráðskonu Higg-
ins og Þráinn Karlsson leikur Dool-
ittle, föður Elísu, í My Fair Lady.
Draumahlutverk
„Þetta er alveg draumahlutverk
fyrir karlmann. Algert karlrembu-
svín“, segir Arnar Jónsson
m.a. í viðtali við Leikfélagsblaðið.
„Nei, nei. Higgins er alveg ljóm-
andi skemmtilegur. Það gera ýmis
sérkenni hans - hispursleysi og
heiðarleiki. Um leið og hann er
með þetta hrjúfa yfirborð er hann
spaugari og mjög réttsýnn.
Arnar ræðir einnig um mál-
hreinsunartilraunir Higgins.
„Auðvitað er þetta allt dálítið erfitt
mál, því þetta er allt stílað upp á
enska tungu. En ég er alveg
sannfærður um einn hlut: Það þarf
að gera stórátak í sambandi við
framburð og meðferð tungunnar.
Ég er hræddur um að ef við förum
ekki að gera stórátak í þessum mál-
um þá verði fólk nánast ótalandi
innan skamms. Það er kvíði í
fleirum en leikurum í sambandi við
þessa hluti.“
Gífurlegar
vinsældir
í marsmánuði 1956 var „My fair
lady“ sýnd í fyrsta sinn fyrir vand-
láta áhorfendur New York-borgar.
Söngleikur þessi er byggður á
leikritinu „Pygmalion“ eftir Bern-
ard Shaw, Alan Jay Lerner skrifaði
handritið og Frederick Loewe
tónlistina. Þegar sýningum lauk á
Broadway höfðu þær orðið 2717 í
sama leikhúsinu, en í aðalhlutverk-
unum voru Rex Harrison og Julie
Andrews sem Higgins, prófessor
og Elísa.
Söngleikjaformið er grein á
meiði leiklistarinnar, sem gerir
miklar kröfur til flytjenda. Þeir
verða að hafa á valdi sínu bæði
söng, dans og leik. Og söngleikur-
inn „My fair lady“ sem er með
þeim allra vinsælustu hefur síðan
1956 verið á fjölum leikhúsa út um
allan heim. íslenskir leikhúsgestir
fengu tækifæri til að sjá þetta metfé
hjá Þjóðleikhúsinu 1962 með Rúr-
ik Haraldsson og Völu Kristjáns-
dóttur í aðalhlutverkunum. Sýn-
ingin sló svo rækilega í gegn að
þátttakendur minnast varla betri
viðtaka áhorfenda á frumsýningu.
Lófatakinu ætlaði aldrei að linna- í
lokin stóðu allir áhorfendur upp í
virðingarskyni, klöppuðu og hróp-
uðu. Það var að hætta sýningum
um vorið fyrir fullu húsi, því skila
þurfti leikmyndinni og búningun-
um, sem fengnir höfðu verið að
láni frá Danmörku.
Jón Þórisson gerir leikmyndina.
Sagan á bakvið
Sagan bakvið My Fair Lady er
leikrit í sjálfu sér. Hún hefst árið
1930 þegar kvikmyndajöfurinn
Samuel Goldwyn gerir sér sérstaka
ferð til Englands til að telja hinn
sposka leikritahöfund Bernard,
Shaw á það, að leyfa kvikmyndun á
leikriti hans „Pygmalion". Gold-
wyn lofaði því að kvikmyndin yrði
listræn gæðavara af bestu gerð.
Shaw hristi höfuðið og skaut út úr
sér „Munurinn á okkur er sá, að
þér hugsið bara um listina og ég
bara um peningana“.
Endirinn varð þó sá, að gerð var
kvikmynd eftir „Pygmalion" þar
sem Leslie Howard lék Higgins
meistaralega. Það var ungverski
kvikmyndamaðurinn Gabriel
Pascal, sem stjórnaði henni, ogþað
var líka hann, sem fékk seinna hug-
Roar Kvam, kennari við Tónlistar-
skólann á Akureyri er hljómsveit-
arstjóri og hefur stjórnað öllum
söng og hljóðfæraundirleik í My
Fair Lady.
Una Collins kom frá Bretlandi og
hannaði á annað hundrað búninga
fyrir LA í My Fair Lady.
myndina að því að breyta „Pygma-
lion“ í söngleik. En það var ekki
fyrr en eftir andlát Bernard Shaw
árið 1950 að Pascal tókst að fá leyfi
til þess. Tveimur árum síðar réðust
Lerner og Loewe í verkefnið, en
þeir voru þegar orðnir frægir fyrir
samvinnu sína að söngleikjum.
Andinn var yfir höfundinum og
tónskáldinu og þeir lifðu sig svo inn
í persónur Shaws, að textar og tón-
list féllu fullkomlega að hinum
ólíku persónueinkennum hlutverk-
anna. Söngatriðin urðu perlur eins
og t.d. „Ö, yrði ei dásamlegt“,
„Sértu hundheppinn'1, „Bíddu við,
Henry Higgins“, „Ég á að kvænast
kellu á morgun" og „Ég vildi dansa
í nótt“. My Fair Lady á _ekki síst
þessum söngatriðum hylli sína að
þakka.
Efni leiksins
Higgins, prófessor í málvísind-
um, og baráttumaður um betur tal-
aða ensku, á það til að standa á
götum Lundúna og hljóðrita mál-
far vegfarenda.
í einni slíkri för verður blóma-
sölustúlkan Elísa á vegi hans, sem
„gefur frá sér svo andstyggileg og
ósmekkleg hljóð að hún hefur eng-
an rétt til að vera neins staðar -
engan rétt til að lifa“, eins og Higg-
ins orðar það.
En atvikin haga því þannig að
Elísa „býður honum vinnu“ við að
kenna sér að tala rétt. Hann slær
til, ekki í auðgunarskyni heldur
frekar upp á grín. Hann veðjar
nefnilega við vin sinn Pickering um
að eftir 6 mánaða kennslu treysti
hann sér til að kynna hana sem
hertogafrú á sendiráðsdansleik.
Hún býr hjá honum ásamt Picker-
ing þennan tíma og í leiknum
sjáum við togstreitu þeirra sem
nemandakennara, manns og konu.
Og það er semsagt í Samkomu-
húsinu á Akureyri sem gefast mun
tækfæri til þess að rifja upp kynnin
við Higgings, Elísu, Doolittle og
alla hina karakterana í My Fair
Lady, og þeir sem yngri eru geta
sannfærst um það hvað það var sem
hreif hugi fólks um allan heim um
1960.
Við minnum á giróreikning
Hjálparstofnunar kirkjunnar
20005-0
Verzlunarbanki Islands